Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2008 19
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við and-
lát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, stjúpmóður, tengdamóður,
dóttur og systur,
Önnu Jónsdóttur
Vallargötu 18, Vestmannaeyjum,
sem lést 25. mars.
Karl Björnsson
Björn Ívar Karlsson
Katla Snorradóttir Hreinn Pétursson
Berglind Karlsdóttir
Elfa Karlsdóttir
Jón S. Óskarsson Hrefna Sighvatsdóttir
Orri Jónsson Hulda Birgisdóttir
Már Jónsson Margrét Jónsdóttir
Jóhanna Magnúsdóttir Steingrímur Benediktsson
Guðmunda Magnúsdóttir Ólafur Bragason
Hrafnhildur Magnúsdóttir Guðmundur Hárlaugsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðlaugur Stefán
Jakobsson
Víðilundi 20, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, föstudaginn
4. apríl.
Þorgerður J. Guðlaugsdóttir
Valgerður K. Guðlaugsdóttir Kristján Davíðsson
og afabörnin.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðjón Sigurðsson
Kleppsvegi 64, áður til heimilis að
Stóragerði 12,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 27. mars. Útförin
fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 10. apríl
kl. 15.00.
Logi Guðjónsson
Björn Guðjónsson Guðbjörg Gunnarsdóttir
Gylfi Már, Oddný Þóra og Guðjón Örn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Haukur Hauksson
varð bráðkvaddur á heimili sínu, Stuðlaseli 3, Reykjavík.
Jóna Margrét Hauksdóttir
Alda Ósk Hauksdóttir
Einar Haukur Hauksson
tengdabörn og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför eigimanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Pálssonar
fyrrverandi sveitarstjóra, Laufskógum 31,
Hveragerði.
Guð blessi ykkur öll.
Sigrún Sigfúsdóttir
Ingvar Sigurðsson
Sævar Sigurðsson Fay Robina Castell
Sigmar Sigurðsson Jónína Dagmar Ásgeirsdóttir
afa- og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
Berta Guðbjörg Rafnsdóttir
til heimilis að Hvammsgötu 20, Vogum,
varð bráðkvödd á heimili sínu mánudaginn 31. mars.
Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudag-
inn 11. apríl kl. 15.00.
Eggert N. Bjarnason
Haraldur Dean Nelson Guðrún Hulda Gunnarsdóttir
barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur.
Eiginkona mín og móðir mín,
Hanna Frímannsdóttir
Bárugata 5, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn
2. apríl. Hönnu verður sungin sálumessa í Kristskirkju
Landakoti föstudaginn 11. apríl og hefst hún kl. 13.00.
Heiðar R. Ástvaldsson
Ástvaldur S. Heiðarsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Ragnhildur Sigurðardóttir
frá Eyvindarhólum, búsett í Kanada,
er látin. Útförin hefur farið fram, þökkum auðsýnda
samúð.
Ingrid Pedersen
Dýrfinna Jónsdóttir Garðar Einarsson
Kristjana Garðarsdóttir Guðjón Gunnarsson
Sigurfinnur Garðarsson Ester Hafdís Ásbjörnsdóttir
og barnabarnabörn.
AFMÆLI
Denn-
is Quaid
leikari er
54 ára.
Jenna Jameson
klámleikkona
er 34 ára.
Yoanna
House fyr-
irsæta er
28 ára.
Guðni Ág-
ústsson
þingmaður
er 59 ára. Brimrún Hrönn Hafsteinsdóttir segir nafn sitt hafa
sterkar taugar til hafsins.
„Hún mamma heyrði þetta nafn útundan sér og fannst
það svo fallegt að hún ákvað að nota það á mig. Ég er
ekki skírð í höfuðið á neinum í fjölskyldunni þannig
að ég er sú eina í fjölskyldunni,“ útskýrir Brimrún og
bætir við meiri fróðleik.
„Brim og Rún eru samnefnarar yfir sjó og einnig
Hrönn. Svo má ekki gleyma að ég er Hafsteinsdóttir
þannig að segja má að nafnið mitt sé brimsalt.“
Faðir Brimrúnar var eitt sinn sjómaður og það gæti
hugsanlega haft áhrif á valið. Brimrún hefur alla tíð
verið kölluð af vinum og vandamönnum Bimma. Brim-
rún segist þekkja til tveggja annarra Brimrúna hér
á landi og í þeirra fjölskyldum er nafnið notað aftur
og aftur. „Sem krakki slapp ég alveg við að vera upp-
nefnd,“ segir hún og bætir við að henni þyki virkilega
vænt um nafnið sitt og sé stolt af því.
NAFNIÐ MITT: BRIMRÚN HRÖNN HAFSTEINSDÓTTIR
Ber brimsalt nafn
BRIMRÚN er stolt af því að bera nafn sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Átjánda árið í röð gefur Út-
gáfufélagið Heimur út ferða-
handbókina Á ferð um Ísland.
Bókin, sem er 240 blaðsíður,
hefur aldrei verið stærri og
er gefin út á þremur tungu-
málum; íslensku, þýsku og
ensku.
Enska útgáfan Around Ice-
land hefur komið út sam-
fellt í 33 ár en þýska útgáf-
an Rund um Island kemur
nú út í ellefta sinn. Ritinu er
dreift í 100.000 eintökum á
alla helstu ferðamannastaði
landsins, sem eru um fimm
hundruð talsins. Í bókinni er
umfjöllun um hvern lands-
hluta og þjónustulistar sem
eru uppfærðir árlega í sam-
starfi við heimamenn, ásamt
kortum þar sem gististað-
ir, tjaldsvæði og sundlaugar
eru númeruð á svæðum utan
þéttbýlis. Sambærileg kort
eru einnig frá helstu þéttbýl-
isstöðum landsins. Þá er að
finna hálendiskafla með há-
lendiskorti og þjónustulist-
um í bókinni. Fremst í bók-
inni er síðan að finna ýmsan
fróðleik um land og þjóð,
það helsta sem er á döfinni í
sumar, afþreyingu og margt
fleira.
Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningu frá útgáfufélag-
inu Heimi. Þar segir einn-
ig að bókin njóti mikilla vin-
sælda og er vitnað í könnun
meðal erlendra ferðamanna
sem gerð var síðastliðið
sumar. Þar kemur fram að
meira en þriðjungur þeirra
notaði bækurnar og tæp
fimmtíu prósent þýskumæl-
andi ferðamanna notuðu
Rund um Island.
Fjöldi fallegra ljósmynda,
meðal annars eftir Pál Stef-
ánsson ljósmyndara, prýð-
ir bókina. Þessar myndir
er einnig hægt að kaupa á
heimasíðunni www.heimur.
is. Bækurnar standa undir
kostnaði með auglýsingasölu
sem gerir það kleift að dreifa
bókunum ókeypis. Bækurn-
ar eru einnig birtar í vefút-
gáfu á www.heimur.is/world.
Ritstjóri bókanna er Ottó
Schopka.
Á ferð um Ísland
komin út
ÍSLAND Í VASANN Ferðahandbókin nýtur mikilla vinsælda bæði meðal
íslenskra og erlendra ferðamanna.
Landsbankinn styrkir lands-
söfnun Lionshreyfingarinnar
á Íslandi, Rauðu fjöðrina, um
eina milljón króna. Í lands-
söfnuninni í ár var markmið-
ið að safna fé til kaupa og
þjálfunar á leiðsöguhundum
fyrir blinda og sjónskerta.
Framlag Landsbankans
gerir það meðal annars að
verkum að allt söfnunarfé
frá almenningi og fyrirtækj-
um rennur beint til málefn-
isins.
Landssöfnun Lionshreyf-
ingarinnar stóð yfir dagana
3.-6. apríl um land allt. Þetta
er í níunda sinn sem Lions-
hreyfingin stendur fyrir
landssöfnun með því að selja
Rauðu fjöðrina. Fyrsta lands-
söfnunin fór fram árið 1972
en þá rann allt söfnunarfé
til stofnunar augnlækninga-
deildar Landakots. Í síðustu
söfnun árið 2004 var safn-
að fyrir langveikum börnum
undir kjörorðunum „Léttum
þeim lífið“.
Landsbankinn var fjár-
gæsluaðili landssöfnunar
Lionshreyfingarinnar í ár.
Rauðar fjaðrir
Landsbankans
FRAMLAG LANDSBANKANS
Viggó Ásgeirsson, markaðsstjóri
Landsbankans, færir Guðmundi
Rafnari Valtýssyni, fulltrúa Lions-
hreyfingarinnar á Íslandi, framlag
Landsbankans í landssöfnunina.