Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Ein af klisjunum sem við þorps-búar yljuðum okkur lengi við
var að þrátt fyrir allt ættum við
besta vatn í heimi og hreinustu
höfuðborgina. Vorum roggin gagn-
vart útlendingum sem hingað
slæddust enda vó hreinleikinn upp
á móti því hversu allt var – líka þá
– rosalega dýrt. Dálitlum kima
þjóðarsálarinnar fannst kannski
hrós gestanna eins konar uppreisn
æru frá því í gamla daga þegar
hingað komu leiðangrar evrópskra
menntamanna til að skjalfesta
lifnaðarhætti við ítrasta sóðaskap.
Trúlega hefur samt snyrtimennska
almannafæris Reykjavíkur á
seinni hluta síðustu aldar annað
hvort verið ofmetin eða tilkomin
vegna fólksfæðar. Við vorum ein-
faldlega ekki nógu mörg til að
vera jafn ógeðsleg á malbikinu og
áður í torfkofunum.
SÍÐAN þá hefur ýmislegt breyst.
Í fyrsta lagi erum við orðin fleiri
þótt samtals myndum við vel rúm-
ast í úthverfi í Kalkútta. Sem er
raunar annað skemmtilegt dæmi
um borg þar sem andstæðunum
ægir saman þó að í ofurlítið ýktari
mynd sé. Þar í borg má til dæmis
sjá glæsileg íbúðarhús við hlið
hrófatildurs úr spýtnabraki en
geitur og kýr á beit á ruslahaugn-
um á hlaðinu. Skepnurnar eru
þannig nokkurs konar náttúruleg
endurvinnsla í umhverfi sem ekki
hefur burði til skipulagðrar
hreinsunarstarfsemi. Svona frjáls-
legt húsdýrahald væri kannski
eitthvað fyrir okkur. Að minnsta
kosti er umburðarlyndi gagnvart
skítandi hundum umtalsvert í
Reykjavík svo nokkrar ruslétandi
geitur og kýr yrðu fín viðbót.
VELSÆLDIN hefur ekki aukið
umgengnisþroskann að ráði. Við
sýnum yfirborðslega óþolinmæði
gagnvart almannasóðum og
megum ekki heyra minnst á viður-
lög. Sá sem dirfðist að orða höml-
ur við sölu á úðabrúsum var
umsvifalaust keflaður með fussi
og sveii um viðbjóðslega forræð-
ishyggju. Nú þegar við höfum öðl-
ast auð og afl til að ráða umhverfi
okkar sjálf kemur misþroskinn
enn betur í ljós með draugalegum
niðurrifskofum sem eru í hróp-
andi ósamræmi við sjálfsmynd-
ina.
ÞAÐ sem hefur nefnilega ekki
breyst er að ennþá er hreinlæti
afgangsstærð vegna þess að ekki
er hægt að hirða af því tafarlaus-
an hagnað. Enn kennum við börn-
um virðingarleysi fyrir umhverf-
inu. Á meðan mamma og pabbi
losa úr öskubökkunum út um
bíl gluggann hlýtur það að vera í
fínu lagi.
101 Kalkútta
Í dag er miðvikudagurinn 9.
apríl, 100. dagur ársins.
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
19
16
0
4/
08
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Land Cruiser - Tákn um frelsi
Land Cruiser sameinar hörku og mýkt, orku og lipurð, áræðni,
munað og fullkominn tæknibúnað. Fyrsta flokks innrétting tryggir
þægilegan og ánægjulegan akstur. Fáguð og viðbragðsfljót vélin ber
þig hvert sem leið liggur og það er stórkostlegt að sitja undir stýri.
Land Cruiser er hlaðinn hátæknibúnaði sem eykur öryggi og þægindi í akstri.
Reynsluaktu Land Cruiser og upplifðu frelsið
Verð frá 5.950.000 kr.
Verð bíls á mynd með 35" breytingu er 7.230.000 kr.
Njóttu þess að vera frjáls
6.16 13.29 20.44
5.55 13.13 20.34