Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Ein af klisjunum sem við þorps-búar yljuðum okkur lengi við var að þrátt fyrir allt ættum við besta vatn í heimi og hreinustu höfuðborgina. Vorum roggin gagn- vart útlendingum sem hingað slæddust enda vó hreinleikinn upp á móti því hversu allt var – líka þá – rosalega dýrt. Dálitlum kima þjóðarsálarinnar fannst kannski hrós gestanna eins konar uppreisn æru frá því í gamla daga þegar hingað komu leiðangrar evrópskra menntamanna til að skjalfesta lifnaðarhætti við ítrasta sóðaskap. Trúlega hefur samt snyrtimennska almannafæris Reykjavíkur á seinni hluta síðustu aldar annað hvort verið ofmetin eða tilkomin vegna fólksfæðar. Við vorum ein- faldlega ekki nógu mörg til að vera jafn ógeðsleg á malbikinu og áður í torfkofunum. SÍÐAN þá hefur ýmislegt breyst. Í fyrsta lagi erum við orðin fleiri þótt samtals myndum við vel rúm- ast í úthverfi í Kalkútta. Sem er raunar annað skemmtilegt dæmi um borg þar sem andstæðunum ægir saman þó að í ofurlítið ýktari mynd sé. Þar í borg má til dæmis sjá glæsileg íbúðarhús við hlið hrófatildurs úr spýtnabraki en geitur og kýr á beit á ruslahaugn- um á hlaðinu. Skepnurnar eru þannig nokkurs konar náttúruleg endurvinnsla í umhverfi sem ekki hefur burði til skipulagðrar hreinsunarstarfsemi. Svona frjáls- legt húsdýrahald væri kannski eitthvað fyrir okkur. Að minnsta kosti er umburðarlyndi gagnvart skítandi hundum umtalsvert í Reykjavík svo nokkrar ruslétandi geitur og kýr yrðu fín viðbót. VELSÆLDIN hefur ekki aukið umgengnisþroskann að ráði. Við sýnum yfirborðslega óþolinmæði gagnvart almannasóðum og megum ekki heyra minnst á viður- lög. Sá sem dirfðist að orða höml- ur við sölu á úðabrúsum var umsvifalaust keflaður með fussi og sveii um viðbjóðslega forræð- ishyggju. Nú þegar við höfum öðl- ast auð og afl til að ráða umhverfi okkar sjálf kemur misþroskinn enn betur í ljós með draugalegum niðurrifskofum sem eru í hróp- andi ósamræmi við sjálfsmynd- ina. ÞAÐ sem hefur nefnilega ekki breyst er að ennþá er hreinlæti afgangsstærð vegna þess að ekki er hægt að hirða af því tafarlaus- an hagnað. Enn kennum við börn- um virðingarleysi fyrir umhverf- inu. Á meðan mamma og pabbi losa úr öskubökkunum út um bíl gluggann hlýtur það að vera í fínu lagi. 101 Kalkútta Í dag er miðvikudagurinn 9. apríl, 100. dagur ársins. www.toyota.is ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 4 19 16 0 4/ 08 Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 Land Cruiser - Tákn um frelsi Land Cruiser sameinar hörku og mýkt, orku og lipurð, áræðni, munað og fullkominn tæknibúnað. Fyrsta flokks innrétting tryggir þægilegan og ánægjulegan akstur. Fáguð og viðbragðsfljót vélin ber þig hvert sem leið liggur og það er stórkostlegt að sitja undir stýri. Land Cruiser er hlaðinn hátæknibúnaði sem eykur öryggi og þægindi í akstri. Reynsluaktu Land Cruiser og upplifðu frelsið Verð frá 5.950.000 kr. Verð bíls á mynd með 35" breytingu er 7.230.000 kr. Njóttu þess að vera frjáls 6.16 13.29 20.44 5.55 13.13 20.34

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.