Fréttablaðið - 09.04.2008, Blaðsíða 30
22 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
> BRJÁLUÐ
Leikkonan Jamie Lee Curt-
is er brjáluð yfir forsíðunni
á tímaritinu Aarp. Þar hefur
mynd af henni verið breytt til
að svo líti út sem hún sé ber
að ofan, þegar hún sat í raun
fyrir í hlýralausum kjól. Curtis
segir að hún myndi aldrei sitja
fyrir nakin nú, og sjái mikið eftir
myndinni Trading Places, sem hún
lék í 21 árs gömul, þar sem hún
berar brjóst sín í einu atriði.
„Þetta fjármagn leggur frekari
grunn að sókn hátíðarinnar sem
á að stækka á alþjóðavísu,“
segir Hrönn Marinósdóttir,
stjórnandi RIFF – Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík.
Þríhliða samningur milli
aðstandenda RIFF, Reykjavíkur-
borgar og menntamálaráðuneyt-
isins var undirritaður í gamla
Miðbæjarskólanum í gær.
Samningur þessi tryggir RIFF
öruggt fjárframlag næstu þrjú
árin upp á alls 48 milljónir
króna. Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra undirrituðu
samninginn við Hrönn. „Við
viljum fá hingað bestu myndirn-
ar, góða gesti og að þetta verði
aðalhátíðin á Norðurlöndunum.
Það er hægt ef allir hagsmuna-
aðilar, stjórnvöld og einkageir-
inn taka höndum saman,“ segir
Hrönn.
Af þessu tilefni fengu þau
Ólafur og Þorgerður afhenta
sérstaka Heiðurslunda, en
Lundinn er tákn hátíðarinnar.
- shs
Ríki og borg
styrkja RIFF
„Já, sæll! Eigum við að ræða frum-
sýninguna eitthvað? Það komust
færri að en vildu því allir vildu sjá
Stóra G á hvíta tjaldinu,“ segir Egill
Einarsson, eða Stóri G, meðlimur
hljómsveitarinnar Merzedes Club.
Hljómsveitin frumsýndi nýtt mynd-
band við lagið Meira frelsi á mánu-
dagskvöldið í Laugarásbíói við
mikla kátínu viðstaddra. „Miðað
við örtröðina sem var fyrir utan, þá
er ég að sjá að G-maðurinn þarf að
fara full power í kvikmyndirnar,“
segir Egill ákveðinn en hann hefur
hug á að leika í fyrstu íslensku has-
armyndinni. „Mér fannst ég koma
gríðarlega vel út á hvíta tjaldinu og
á auðvelt með að sjá mig fyrir mér
beran að ofan, í action með hagla-
byssuna að drepa fullt af gæjum.“
En aftur að myndbandinu. Það
sýnir einhvers konar aðdraganda
að kvöldi úti á lífinu þar sem með-
limir sveitarinnar og fleiri koma
við sögu. „Þetta er kynþokkafyllsta
myndband sem gert hefur verið,“
fullyrðir Egill. „Ég var búinn að
lofa því og stend við það. Það fá
allir fiðring sem sjá þetta, karlar og
konur. Vanalega eru þessi vídeó
nefnilega gerð sérstaklega fyrir
rúnkara, en menn geta tyllt sér
fyrir framan skjáinn með konunni
og horft á þetta. Ég garantera „a
good time“,“ segir Egill. Hann
harmar mjög að ekki hafi allir sem
vildu komist að á frumsýningunni.
„Það er hægt að fara inn á Gillz.is
og horfa á það þar. Ég mæli bara
með því að fólk loki hurðinni, dragi
fyrir og horfi á þetta myndband.“
- shs
Kynþokkafyllsta myndband í heimi
FRAMTÍÐIN? Gillz á von á því að birtast aftur á hvíta tjaldinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HARDCORE Meðlimir Merzedes Club
voru ánægðir með útkomuna.
WIGGLE WIGGLE Haffi Haff lét sig ekki
vanta og mætti með leikurum úr mynd-
bandinu.
Kynnar Eurovision-keppninnar í
Belgrad í ár verða þau Jovana Jankovic
og Zeljko Joksimovic. Jovana leggur sitt
af mörkum með reynslu af störfum í
sjónvarpi, en hún er nokkurs konar
opinbert andlit sjónvarpsstöðvarinnar
RTS, þar sem hún kynnir sjónvarpsþátt
á hverjum morgni. Zeljko er hins vegar
reynslubolti úr tónlistarheiminum, svo
ekki sé meira sagt.
Það hefur áður komið fyrir að
fyrrverandi keppendur í Eurovision taki
að sér að vera kynnar, en Zeljko á
væntanlega vinninginn í þeim efnum.
Hann er gríðarlega vinsæll tónlistar- maður á heimaslóðum sínum og var
fulltrúi Serbíu og Svartfjallalands árið
2004. Þá lenti hann í öðru sæti með lagið
Lane Moje, en Ruslana skaut honum ref
fyrir rass og nældi í fyrsta sætið. Árið
2006 samdi hann svo framlag Bosníu og
Hersegóvínu til keppninnar, lagið Lejla,
sem Hari Mata Hari flutti. Það er hins
vegar allsendis ekki allt og sumt. Í ár
samdi Zeljko einnig lag sem keppti í
undankeppninni í Serbíu. Það ber heitið
Oro, og var flutt af Jelenu Tomasevic.
Svo fór að Jelena söng sig til sigurs, og
því vill þannig til að kynnir Eurovision-
keppni ársins, er einnig höfundur
framlags Serbíu til keppninnar í ár.
Reynsluboltar kynna í Belgrad
LAGAHÖFUNDUR KYNNIR Zeljko Joksimovic er
annar kynnanna í Belgrad í ár, en hann er einn-
ig höfundur framlags Serbíu til keppninnar.
Nýjar fyrirsætur bætast
stöðugt í hóp þeirra sem
fyrir eru, og nýjasta upp-
skeran virðist aðallega vera
komin úr barnaherbergjum
fræga fólksins.
Splunkunýjasta viðbótin í raðir
heitustu fyrirsæta dagsins í dag
er Dakota Johnson, dóttir Holly-
wood-stjarnanna Melanie Griffith
og Don Johnson. Hún hefur ekki
enn lokið gagnfræðaskólagöngu
sinni, en hefur þegar skrifað undir
samning við módelskrifstofuna
IMG models, og mynd af henni
mun prýða forsíðu bandarísku
útgáfu Vogue innan skamms.
Coco Sumner hefur einnig vakið
mikla athygli að undanförnu, en
hún er meðal annars nýtt andlit
hins virta tískuhúss Burberry, og
situr fyrir í auglýsingum fyrir það
ásamt ofurfyrirsætunum Agyness
Deyn og Lily Donaldson. Coco er
dóttir tónlistarmannsins Sting og
Trudie Styler, og hefur einnig
reynt fyrir sér í tónlist
meðfram fyrirsætu-
ferlinum, með hljóm-
sveitinni I Blame
Coco.
Daisy Lowe
hefur þegar
náð góðum
árangri í fyr-
irsætubrans-
anum, en hún
á meðal ann-
ars að baki
samning sem andlit Agent Provo-
cateur, og hefur gengið tískupall-
ana fyrir merki eins og Burberry
Prorsum. Lowe er dóttir rokkar-
ans Gavin Rossdale, sem er
giftur Gwen Stefani, og
Pearl Lowe. Reyndar var
það ekki fyrr en nýlega
að DNA-prufa skar úr
um að Lowe væri
dóttir Rossdale, sem
þangað til var guð-
faðir hennar.
Barnabarn
Elvis og Priscillu
Presley, og dótt-
ir Lisu Marie
Presley,
hefur einnig
gert góða
hluti í brans-
anum. Hún ber nafnið Riley Keo-
ugh og birtist fyrst á tískupöllun-
um aðeins fjórtán ára gömul,
þegar hún gekk fyrir Dolce &
Gabbana í Mílanó. Hún hefur verið
andlit Dior og birst á forsíðu
Vogue ásamt mörgum öðrum
tískublöðum.
Systurnar Theodora og Alex-
andra Richards eru svo ellismell-
irnir í þessum hópi, en þær eru
fæddar 1985 og 1986 og eru dætur
hins alræmda Keiths Richards úr
Rolling Stones og Patti Hansen.
Báðar hafa þær setið fyrir fyrir
Tommy Hilfiger, en Alexandra
hefur þar að auki birst á síðum
blaða eins og Vogue, breska Gla-
mour, Harpers Bazaar og Vanity
Fair.
Hvort það eru genin sem gera
niðjum fræga fólksins svo
auðvelt fyrir í bransan-
um, eða einfaldlega það
að þekkt eftirnafn opni
fleiri dyr, skal ósagt
látið, en svo mikið er
víst að það virðist vita
á gott að eiga fræga
foreldra ef draum-
arnir snúast um
tískusýningarpalla.
Fyrirsætur fræga fólksins
DAKOTA JOHN-
SON Dóttir
Melanie Griff-
ith og Don
Johnson,
átján ára.
COCO SUMNER Dóttir Trudie Styler og
Sting, sautján ára.
DAISY LOWE
Dóttir Gavin
Rossdale og
Pearl Lowe,
nítján ára.
RILEY KEOUGH
Dóttir Lisu Marie Presley
og Danny Keough, átján
ára.
ALEXANDRA OG THEODORA RICHARDS
Dætur Keiths Richards og Patti Hansen,
21 árs og 23 ára. NORDICPHOTOS/GETTY
Þeir sem sakna stefnumótaþáttar-
ins Djúpu laugarinnar geta glaðst,
því skemmtistaðurinn Q bar blæs
til þriggja kvölda í anda þáttarins
næstu miðvikudagskvöld. „Þetta
verður svona óður til Djúpu
laugarinnar, sem tröllreið öllu
þegar hún var sýnd á Skjá einum
hérna um árið,“ útskýrir Óli Hjört-
ur Ólafsson, einn eigenda barsins.
„Við byrjum á hommunum, sem
eiga kvöldið í kvöld. Eftir viku eru
það lesbíurnar, og svo verður
lokakvöldið straight. Við vildum
halda straight-kvöld líka, þar sem
við erum straight-friendly bar,“
segir hann.
Óli Hjörtur segir viðtökurnar
hafa verið framar öllum vonum,
og er ekki frá því að stefnumóta-
kvölda á borð við þetta hafi verið
sárt saknað. „Miðað við viðbrögðin
get ég eiginlega ekki sagt annað.
Fólk er alveg æst í að taka þátt, og
við höfum ekki undan því að svara
tölvupóstum,“ segir Óli.
Sami háttur verður hafður á og í
þáttunum, þar sem þrír keppendur
kepptu um hylli eins og sama
einstaklings. Kynnar á kvöldunum
verða Birna Sif Magnúsdóttir og
Haffi Haff, sem er þjóðþekktur
eftir frammistöðu sína í Eurov-
ision. Djúpa laugin á Q bar hefst
klukkan 20. - sun
Óður til Djúpu
laugarinnar
FRÁBÆRAR UNDIRTEKTIR Óli Hjörtur
heldur Djúpu laugar-kvöld á Q bar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
44 DAGAR TIL STEFNU
RIFF Í SÓKN Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri, Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra og Hrönn
Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, undirrita
samninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON