Fréttablaðið - 09.04.2008, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2008 15
RAUFARHÖFN Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu Heimskauts-
gerðis á Raufarhöfn. Í Heimskautsgerðinu, sem verður norðan og ofan
við Raufarhöfn á hæð sem heitir Melrakkaás, á að vera sólúr og
völuspá.
Heimskautsgerðið verður hlaðið úr grjóti og gætu stærstu steinarnir
vegið allt að sex tonn. Heimskautsgerðið myndar hring sem er 54
metrar í þvermál. Inngönguhlið verða fjögur ásamt tólf metra háum
bendisteini í miðjunni.
Tryggvi Finnsson, forstjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, segir
að árinu verði skipt í 72 vikur. Utan við Heimskautsgerðið verði 72
viksteinar þar sem fornum dvergum úr Völuspá séu ætlaðir staðir.
„Þetta getur orðið hliðstætt við stjörnumerki,“ segir hann.
Hugmynd er um að fá táknræna steina frá sem flestum stöðum í
heiminum, til dæmis frá Skandinavíu og Síberíu, til að mynda dverga-
hringinn. Suðri, Austri, Norðri og Vestri verða þó fengnir hver úr
sínum landsfjórðungi eftir fornri skiptingu Íslands.
Samhliða uppbyggingu og starfrækslu Heimskautsgerðisins tekur
Álfasteinn að sér að vera með starfsemi í verksmiðjuhúsi SR Mjöls á
Raufarhöfn en húsið hefur staðið autt í nokkur ár. Tryggvi segir að
mikil vinna bíði við að sníða til grjót í gerðið.
Kostnaður við uppbyggingu Heimskautsgerðisins er talinn nema
nokkrum tugum milljóna króna. Þegar hefur fengist 20 milljóna króna
fjárveiting frá ríkinu í verkefnið. Stefnt er að því að verkefnið skapi
20-30 störf á svæðinu, bæði í gerðinu og hjá Álfasteini. - ghs
Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu Heimskautsgerðis á Raufarhöfn:
Fornum dvergum ætlaður staður
LÖGREGLUMÁL Lýst er eftir vitnum
að umferðaróhappi sem varð á
mótum Stekkjarbakka og
Höfðabakka í Reykjavík þann 25.
mars síðastliðinn um klukkan
17.30. Lentu þar saman grá
fólksbifreið af gerðinni MMC
Galant sem ekið var austur
Stekkjarbakka og silfurgrá
fólksbifreið, líklega af gerðinni
Subaru Station, sem ekið var
norður Höfðabakka.
Ökumaður silfurgráu bifreiðar-
innar ók á brott af vettvangi. Þeir
vegfarendur sem kunna að hafa
orðið vitni að óhappinu eru beðnir
um að hafa samband við lögreglu
í síma 444 1000. - kg
Umferðaróhapp í Bökkunum:
Lögregla lýsir
eftir vitnum
FORVARNIR Mikið verður um dýrð-
ir í flestum framhaldsskólum
landsins í dag en þá er í fyrsta
sinn staðið fyrir sameiginlegum
forvarnadegi framhaldsskól-
anna.
Lilja Dögg Jónsdóttir, formað-
ur forvarnanefndar SÍF (Sam-
bands íslenskra framhaldsskóla-
nema), segir ekki verra ef hægt
sé að skemmta sér um leið og
vakin er athygli á þessu brýna
málefni: „Forvarnarnefnd SÍF
var stofnuð í nóvember síðast-
liðnum með það að markmiði að
halda uppi gagnvirku og
skemmtilegu forvarnastarfi í
framhaldsskólum landsins. For-
varnir hafa
lengi verið
virkar í grunn-
skólum en vilja
detta niður
þegar komið er
upp í fram-
haldsskóla. Við
viljum stuðla
að því að
fræðslan komi
að mestu frá
jafningjum og það er hvatinn að
þessum degi.“
Forvarnadagurinn mun að
mestu fara fram á kennslutíma
og er skipulagning í höndum
nemendafélaganna. Skólunum er
þannig í sjálfsvald sett hvernig
dagskránni er háttað, til dæmis
mun Kvennó, skóli Lilju Daggar,
halda áheitadag til styrktar Götu-
smiðjunni, í Flensborg verður
haldinn íþróttadagur og Fram-
haldsskólinn á Laugum ætlar að
fara í meðmælagöngu frá skól-
anum og að Goðafossi. „Maður
verður var við það að fólk tengir
ekki endilega forvarnir við eitt-
hvað skemmtilegt og jákvætt.
Þessu viljum við breyta. For-
varnir eru af hinu góða og við
viljum að fólk skemmti sér um
leið og það fræðist,“ segir Lilja
Dögg og hvetur sem flesta til að
taka þátt. - kg
Forvarnadagur framhaldsskólanna fer fram í fyrsta sinn í dag:
Fólk skemmti sér og fræðist
LÖGREGLUMÁL Um 65 prósent
ökumanna óku yfir leyfilegum
hraða á Ásabraut í Garðabæ fyrir
hádegi í gær. Fylgst var með
ökutækjum sem var ekið Ása-
braut í vesturátt í eina klukku-
stund og voru brot 20 ökumanna
mynduð. 31 ökutæki fór þessa
akstursleið á þessari klukkustund.
Þrjátíu kílómetra hámarks-
hraði er á Ásabraut en meðal-
hraði hinna brotlegu var 46
kílómetrar á klukkustund. Sex
óku á 50 kílómetra hraða eða
meira, en sá sem hraðast ók
mældist á 64 kílómetra hraða.
Allir hinna brotlegu verða
sektaðir. - kg
Hraðamælingar í Garðabæ:
65 prósent
keyrðu of hratt
LILJA DÖGG
JÓNSDÓTTIR
Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélags
Íslands, tók við formennsku í Samtök-
um ferðaþjónustunnar hinn 3. apríl.
FERÐAÞJÓNUSTAN
Árni kjörinn formaður SAF
Úraræningjar ófundnir
Lögregla leitar enn tveggja manna
sem grunaðir eru um að hafa stolið
armbandsúrum fyrir milljónir króna í
verslun Hermanns Jónssonar úrsmiðs
við Ingólfstorg í lok síðasta mánaðar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HEIMSKAUTSGERÐI Á RAUFARHÖFN Framkvæmdir eru hafnar við uppbyggingu
Heimskautsgerðis á Melrakkaási við Raufarhöfn. Gert er ráð fyrir að Álfasteinn verði
með starfsemi í verksmiðju SR Mjöls. Myndin sýnir módel af Heimskautsgerðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR EINKASAFNI
Vilja byggja á flugvellinum
Þyrluþjónustan annars vegar og
Norðurflug hins vegar hafa hvort fyrir
sig óskað eftir því við borgaryfirvöld
að fá að byggja flugskýli á Reykjavíkur-
flugvelli. Þyrluþjónustan vill einnig
heimild fyrir þjónustubyggingu.
REYKJAVÍK
Das Auto.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Polo er einn af fjölmörgum sparneytnum bílum frá Volkswagen
Ef sparneytni væri skrásett vörumerki, væri það að sjálfsögðu í eigu Volkswagen
Það er ekki hægt að fá einkaleyfi á orðinu sparneytni. Jafnvel þótt við hjá Volkswagen höfum í raun
fundið upp það hugtak. Jafnvel þótt hönnuðir okkar séu á hverjum degi að finna upp leiðir til að
auka sparneytnina enn frekar – til dæmis með nýju kraftmiklu TDI dísilvélunum. Og við þurfum
ekkert einkaleyfi á sparneytni. Fólk veit að við erum venjulega fyrstir með tækninýjungarnar þannig
að þegar þú kaupir Volkswagen þá færðu einfaldlega meira fyrir peningana.
ALVÖRU
SJÁLF-
SKIPTINGAR
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
ÖFLUGAR EN
HLJÓÐLÁTAR
DÍSILVÉLAR
EYÐSLU-
GRANNAR
VÉLAR
KOLEFNIS-
JAFNAÐIR
Í EITT ÁR
MINNI
LOSUN ÚT Í
UMHVERFIÐ
HAGKVÆMIR
Í REKSTRI OG
VIÐHALDI
UPPFYLLA
STRÖNGUSTU
ÖRYGGISSTAÐLA
Tilboðsverð á Polo
22.790 kr. á mánuði
Tilboðsverð á Polo Comfortline 1,4 bensín 1.950.000 kr. Fullt verð 2.110.000 krónur.
Mánaðarleg afborgun miðast við gengistryggðan bílasamning til 84 mánaða og
30% útborgun (585.000 kr.). Árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,12%.
Sparneytni