Fréttablaðið - 09.04.2008, Síða 16
16 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björgvin Guðmundsson og Björn Ingi Hrafnson. Fréttablaðið kemur út í
103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Örvæntingarfullar tilraunir Seðlabanka Bandaríkjanna til
að halda amerísku hagkerfi á floti
eru stórmerkilegar fyrir að
minnsta kosti tvær ástæður. Í
fyrsta lagi að þar til nýlega var það
viðtekin skoðun að Bandaríkin
kæmust hjá kreppu. Nú blasir hún
við. Í öðru lagi virðast aðgerðir
Seðlabankans ekki bera árangur.
Þvert á móti harðnar enn á dalnum.
Fjármálakreppan í Bandaríkjun-
um er að miklu leyti tilkomin af
völdum Seðlabankans. Höfuðá-
byrgð ber enginn annar en Alan
Greenspan, fyrrverandi seðla-
bankastjóri, sem skildi eftirmann
sinn, Ben Bernanke, eftir í bobba.
En Bernanke var í ábyrgðarstöðu
innan Seðlabankans í stjórnartíð
Greenspan og kom heldur ekki
auga á vaxandi vandamál í stefnu
bankans.
Upphaf vandans
Fjármálakreppan í dag á rætur að
rekja til ársins 2001, þegar
netbólan sprakk og hryðjuverka-
menn létu til skarar skríða í New
York. Það var þá sem Seðlabank-
inn skrúfaði frá peningaflæðinu til
að hindra að hægði á hjólum
efnahagslífsins. Fé var dælt í
bandarískt hagkerfi og stýrivextir
lækkaðir úr 3,5 prósentum árið
2001 niður í aðeins eitt prósent.
Þessum vöxtum var haldið of
lágum of lengi.
Þessar aðgerðir Seðlabankans
gera lántökur auðveldari og
ódýrari gegnum allt hagkerfið.
Þær geta einnig veikt gjaldmiðil-
inn og ýtt undir verðbólgu. Allt
þetta gerðist í Bandaríkjunum.
Athyglisvert var að nýju
lántökurnar voru aðallega bundnar
við fasteignir. Það á vissulega
yfirleitt við að lágir stýrivextir ýta
undir húsnæðiskaup, en í þetta
sinn, eins og frægt er orðið, tóku
viðskipta- og fjárfestingarbankar
að bjóða upp á nýjar leiðir til að
lána fólki með lélegt lánstraust.
Seðlabankinn hafði ekki eftirlit
með þessari vafasömu iðju. Svo til
allir gátu fengið húsnæðislán, með
lítilli eða jafnvel engri útborgun,
og vaxtagreiðslum var frestað um
mörg ár fram í tímann.
Aukin eftirspurn leiddi til
hækkana á fasteignaverði. Bankar
töldu því óhætt að lána til fólks
með lélegt lánstraust. Ef það lenti í
vanskilum væri jú hægt að gera
eignarnám í húsi sem væri orðið
verðmætara en áður. Þannig
hljóðaði kenningin að minnsta
kosti. Auðvitað gilti hún aðeins svo
lengi sem húsnæðisverð hélt
áfram að hækka. Þegar hámarkinu
væri náð og verðið lækkaði varð
minna svigrúm fyrir lánveitingar
og bankarnir þurftu að gera
eignarnám í húseignum þar sem
verðmæti nam ekki skuldum.
Hið ótrúlega var hvernig
Seðlabankinn, undir forystu
Greenspans, stóð aðgerðalaus hjá
meðan fasteignabólan sótti í sig
veðrið og beið þess að springa.
Fasteignabólan náði hámarki á
árunum 2006 og 2007. Uppgjör
bankanna fylltu háar upphæðir af
áhættusömum húsnæðislánum,
sem var pakkað í svo flóknar
umbúðir að erfitt var að leggja
mat á áhættuna. Bankarnir fóru að
draga úr lánum og vanskil jukust.
Fasteignaverð náði hámarki þegar
hægðist á lánveitingum og í
kjölfarið fór verðið að lækka.
Fasteignabólan sprakk síðastliðið
haust og bankar sem lánað höfðu
mikið fé til fasteignakaupa töpuðu
háum fjárhæðum og reið það
sumum að fullu, til dæmis Bear
Stearns.
Situr við sinn keip
Frá því í haust hefur Seðlabankinn
verið að lækka stýrivexti í þeim
tilgangi að bægja frá kreppu og
aðstoða banka í slæmri stöðu. En í
þetta sinn er féð ekki notað til
húsbygginga heldur í vörur og
erlenda gjaldmiðla.
Stefna Seðlabankans kyndir nú
undir verðbólgunni í stað þess að
draga úr henni. Verð á olíu,
matvælum og gulli hefur rokið upp
í sögulegar hæðir en dollarinn
hrunið í sögulegar lægðir. Evran
kostar nú um 1,60 dollara en
kostaði 0,90 dollara í janúar 2002. Í
örvæntingarfullri tilraun til að
bægja kreppunni frá heldur
Seðlabankinn hins vegar áfram að
dæla fé í hagkerfið og knýr þannig
verðbólguna áfram.
Seðlabankinn getur ekki úr
þessu komið í veg fyrir hnignun í
bandarísku efnahagslífi, að
minnsta kosti til skamms tíma en
jafnvel lengur. Óbreytt peninga-
stefna mun ekki koma í veg fyrir
hrun heldur gæti hún hrint af stað
kostnaðarverðbólgu – verðbólgu og
samdrætti í efnahagslífi. Seðla-
bankinn ætti að reyna að koma í
veg fyrir lausafjárskort, halda
verðbólgu í skefjum og forðast að
seilast í vasa skattgreiðenda til að
bjarga bönkum úr klípu sem þeir
komu sér í með glæfraskap.
Áhrifanna af þessum atburðum
mun gæta að einhverju leyti um
allan heim. Það eru hins vegar
ágætar líkur á að niðursveiflan í
Bandaríkjunum verði bundin við
Ameríku. Skaðinn sem heims-
byggðin verður fyrir þarf að mínu
mati ekki að vera mikill.
Höfundur er hagfræðiprófessor og
forstjóri Earth Institute við
Kólumbíuháskóla í Bandaríkjun-
um. ©Project Syndicate, 2008.
(Millifyrirsagnir eru
Fréttablaðsins.)
JEFFREY SACHS
Í DAG | Fjármálakreppa í
Bandaríkjunum
Rætur kreppunnar
UMRÆÐAN
Skipulagsmál
Það var fagnaðarefni að heyra af sam-komulagi samgönguráðherra og borgar-
yfirvalda um að hefja skuli byggingu á
samgöngumiðstöð í Vatnsmýri. Eins og áður
hefur komið fram hjá mér tel ég mikilvægt
að slíkri framkvæmd verði hraðað, þannig að
nokkur hundruð þúsund farþegar sem um
flugvöllinn fara á hverju ári, fái boðlega þjónustu og
að þau fyrirtæki sem hana veita geti skapað starf-
semi sinni og starfsfólki sómasamlega aðstöðu. Í
mínum huga er engum blöðum um það að fletta að
þetta er eitt mikilvægasta skrefið í að tryggja
áframhaldandi rekstur Reykjavíkurflugvallar á
núverandi stað um ókomna framtíð.
Á sama tíma og ég fagna þessum áfanga vil ég þó
lýsa efasemdum mínum um að miðstöð fyrir
almenningsvagna, hópferða- og leigubíla þurfi að
setja niður á sama stað. Þó vissulega sé gott landnæði
í Vatnsmýri eru takmörk fyrir því hversu öflugum
umferðarmannvirkjum verður hægt að koma fyrir á
svæðinu. Ég fæ ekki séð nauðsyn þess að miðstöð
hópferðabíla og almenningsvagna sé nauðsynleg í
sama húsnæði og flugstöð. Það þarf eingöngu að
tryggja gott aðgengi þessara þjónustuaðila
og tíðar áætlanir almenningsvagna við
svæðið. Miklu nær væri að byggja aðstöðu
fyrir hópferðabíla í jaðarbyggð borgarinnar
og losa okkur þannig við umferð þessara
stóru tækja í gegnum alla borgina.
Þær framkvæmdir sem þegar eru í gangi
og fyrirhugaðar eru munu auka umferðar-
þunga á svæðinu gríðarlega. Það mikið að
ég hef miklar efasemdir um réttlætingu
þeirra allra. Reikna má með að umferð um
4.000 manna bætist á svæðið á næsta ári með tilkomu
Háskóla Reykjavíkur. Þá hefur nefnd sem skipuð var
af heilbrigðisráðherra skýrt frá niðurstöðu sinni um
að staðsetja skuli nýtt sjúkrahús í Vatnsmýrinni.
Enga skýrslu sem styður þá niðurstöðu hef ég
reyndar séð enn, þrátt fyrir fyrirspurnir, og þannig
vantar enn þann rökstuðning fyrir málinu sem ég vil
sjá. Ég hef haft efasemdir um þessa byggingu og
staðsetningu hennar á þessum stað. Mér finnst liggja
nær að staðsetja hana þannig að umferðarmannvirki
sem fyrir eru séu nýtt í gagnstæða átt við megin
umferðarþunga á álagstímum. Því markmiði sé ég
fyrir mér að mætti ná með því að velja þessu
mannvirki staðsetningu á Vífilsstöðum. Önnur góð
rök liggja því einnig til grundvallar.
Höfundur er alþingismaður.
Enn um Vatnsmýri
JÓN GUNNARSSON
Traustir vinir
Íslenskir ráðamenn eru ekki mikið
fyrir að raupa af vinfengi sínu við
erlend fyrirmenni. Kemur það því
iðulega skemmtilega á óvart þegar
fréttist að slíku sambandi, til dæmis
þegar Al Gore upplýsti
á blaðamannafundi
á Bessastöðum að
hann og Ólafur Ragnar
hefðu verið nánir
vinir í áratugi. Það
vissu ekki margir.
Skemmst er líka að
minnast traustra
vináttubanda
Davíðs Oddssonar
og George Bush
Bandaríkjaforseta,
sem voru víst helsta
ástæðan fyrir því að Bandaríkjaher
dvaldi hér á landi jafn lengi og hann
gerði. Já, vin sínum skal maður vinur
vera, eins og segir í Hávamálum.
Óvild yfir Atlantsála
Þeir Bush og Gore tókust á í víðfræg-
um forsetakosning-
um árið 2000, þar
sem sá fyrrnefndi
hafði betur eftir
mikið stapp. Fræg-
ara er en þurfi að
nefna að litlir
kærleikar voru
á milli Davíðs
og Ólafs
Ragnars þegar
þeir flugust á í
stjórnmálum á
sínum tíma. Kannski helgaðist óvild
þeirra í garð hvors annars einmitt
af vinskap þeirra við erkifjendurna
bandarísku. Hvað segir ekki annað
spakmæli úr Hávamálum: En óvinar
síns skyli engi maður vinar vinur vera.
Ólesinn
Bjarni Harðarson, þingmaður
Framsóknarflokksins, ræddi skýrslu
utanríkisráðherra um utanríkismál
á Alþingi í gær. Var hann henni
sammála í flestum atriðum. Athygli
vakti hins vegar að Bjarni tók fram að
minnsta kosti í tvígang að hann hafði
ekki lesið skýrsluna til hlítar. Er ekki
hægt að gera þá kröfu til þingmanna
að þeir lesi skýrslur sem þeir eru að
tala um í þinginu?
bergsteinn@frettabladid.is
Vor í Kaupmannahöfn!
Come2 Scandinavia er með tvær íbúðir í miðborg Kaup-
mannahafnar. Einungis 15mín gangur að Ráðhústorgi.
Þetta er frábær og ódýr lausn fyrir hópa og fjölskyldur
sem vilja hafa það gott yfir helgi eða viku í Köben.
Erum einnig með góð verð á bílaleigubílum.
Nánari upplýsingar á www.come2scandinavia.com
Sími: +45 3325 6425 • Netfang: info@come2scandinavia.com
A
l Gore flutti fyrirlestur sinn í Háskólabíói í gær. Fyr-
irlesturinn var að uppistöðu sá sami og Gore flytur
í hinni verðlaunuðu kvikmynd sinni, Óþægilegum
sannleika.
Al Gore er stjórnmálamaður og atvinnufyrirlesari.
Hann dansar um sviðið og bregður upp myndum sem sumar
eru sláandi. Hlutirnir ganga hratt fyrir sig, dregin er upp skýr
mynd og hún er dökk.
Þessi aðferð Als Gore hefur verið gagnrýnd. Sumir halda
því einnig fram að ekki byggi allt sem hann segir á traustum
upplýsingum. Hinir virðast þó mun fleiri sem hafa trú á því
að sú mynd sem Al Gore dregur upp af framtíð lífs á jörðinni
með síhækkandi hlutfalli koltvísýrings í lofthjúpi jarðar, sé
í samræmi við niðurstöður virtra rannsókna. Í síðarnefnda
hópnum eru flestir fræðimenn sem tjá sig um málið en í þeim
fyrrnefnda einkum stjórnmálamenn og ýmsir pistlahöfundar
og álitsgjafar.
Loftslag á jörðinni hefur hlýnað hratt undanfarin ár, ört
hraðari bráðnun jökla er einnig staðreynd og afleiðingarnar
eru ekki með öllu fyrirsjáanlegar. Ljóst er líka að mannfólkið
ber að minnsta kosti að einhverju leyti ábyrgð á hlýnun jarðar,
þótt menn greini á um að hversu miklum hluta.
Viðbrögð við þessu verða að vera á hnattrænum grunni, eng-
inn getur skorast undan. Stjórnvöld í hverju landi verða að taka
ábyrgð, sambönd ríkja og svo auðvitað hver og einn íbúi þess-
arar jarðar.
Engan þarf að undra að margföldun mannkyns á fáum ára-
tugum, ásamt tæknibyltingu sem kúvent hefur bæði atvinnu-
háttum og samgöngum, valdi breytingum á jörðinni. Engan
þarf heldur að undra að nauðsynlegt geti verið í ljósi þessa að
staldra við og leita nýrra leiða.
Ljóst er að þeir íbúar jarðarinnar sem búa við velmegun geta
með breyttum lífsvenjum dregið úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda án þess að tapa lífsgæðum svo nokkru nemi eða leggja
efnahagskerfi í rúst. Það er því erfitt að sjá hvaða tilgangi það
þjónar að reyna að gera Al Gore að loddara, jafnvel þótt sú
mynd sem hann dregur kunni að vera eitthvað ýkt því ljóst er
að hún getur orðið að raunveruleika, sé ekkert að gert, þótt
fresturinn sé hugsanlega lengri en Gore vill vera láta.
Al Gore hélt því fram í fyrirlestri sínum í gær að það væri
siðferðileg afstaða að leggja sitt af mörkum til að draga úr
hlýnun jarðar, ekki pólitísk. Á sama hátt og það er siðferðileg
afstaða, en ekki pólitísk, að fólk eigi jafnan rétt óháð kynþætti
eða kynferði.
Komandi kynslóðir hljóta að eiga það skilið að við sem nú
byggjum þessa jörð tökum þessa siðferðilegu afstöðu og leggj-
um okkar af mörkum til þess að jörðin verði byggileg niðjum
okkar. Margt er ófyrirséð en betra er að hafa vaðið fyrir neðan
sig í þessum efnum sem öðrum.
Al Gore segir það siðferðilega skyldu jarðarbúa
að leggja baráttunni gegn hlýnun jarðar lið.
Að hafa vaðið
fyrir neðan sig
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR