Fréttablaðið - 09.04.2008, Page 20
[ ]Sebrahesta gætir þú rekist á í spennandi safaríferðum, þá helst á sléttunum í austanverðri Afríku. Sebrahestar eiga það til að ráðast á fólk.
Námskeið sem nefnist Hvað er
bak við hólinn? er á döfinni hjá
Ferðamálaskólanum í Kópa-
vogi.
Á námskeiðinu Hvað er bak við
hólinn? verður fjallað um vænt-
ingar og óskir ferðamanna sem
sækja landið heim. Þjálfun í leið-
sögn og upplýsingagjöf til ferða-
manna verður meðal efnis og því
velt upp hvað ferðamenn vilja
helst sjá og hverju þeir vilja kynn-
ast hjá landi og þjóð.
Kynning verður á helstu ferða-
mannastöðum en líka vakin athygli
á fjölbreytileika Íslands því skoð-
unarverðar perlurnar leynast
víða, jafnvel bak við næsta hól.
Kennari á námskeiðinu er Hild-
ur Jónsdóttir en það verður haldið
á morgun, hinn 10. apríl, frá kl. 17-
20 eða eftir samkomulagi. - gun
Hvað er bak
við hólinn?
Sjónarhornin eru mörg og perlurnar í
landinu leynast víða.
Lónsöræfi í máli og myndum
Í KVÖLD VERÐUR HÆGT AÐ FRÆÐAST UM LÓNSÖRÆFI HJÁ FERÐAFÉLAGI
ÍSLANDS.
Ferðafélag Íslands stendur í kvöld fyrir myndakvöldi þar sem sýndar verða
myndir frá Lónsöræfum.
Leifur Þorsteinsson hefur umsjón með kvöldinu og mun ásamt því að
sýna myndirnar miðla af fróðleik sínum um svæðið.
Lónsöræfin eru ein af
náttúruperlum landsins
og sífellt fleiri ferðamenn
leggja leið sína þangað.
Myndakvöldið fer
fram í húsakynnum
Ferðafélagsins í Mörkinni
6 og hefst klukkan átta.
Aðgangseyrir er 600
krónur.
Þótt meðlimir lúðrasveitarinnar Svansins
leggi sig alla fram á vortónleikunum í Ráðhúsi
Reykjavíkur í kvöld er óvíst að þeim verði tekið
sem rokkstjörnum eins og í þýska bænum Bad
Orb. Guðrún Björg Ingimundardóttir kann að
lýsa því.
„Bad Orb er smábær í Suður-Þýskalandi. Þar eru 60
prósent íbúanna yfir 65 ára aldri og aðalverslanirnar
eru apótek. Þarna eru yndisleg kaffihús en engir
skemmtistaðir og allt ofboðslega friðsælt, litlir garðar,
krúttlegar ísbúðir og lífið í allt öðru tempói en hjá
okkur. Í Bad Orb eru haldin lúðrasveitamót í septemb-
er annað hvert ár og þangað koma um 20 lúðrasveitir
alls staðar að. Við í Svaninum vekjum samt ávallt
athygli, kannski af því við komum fljúgandi en hinar
sveitirnar eru frá meginlandinu. Að minnsta kosti er
okkur alltaf tekið eins og stórum poppstjörnum. Tveir
menn sem eru par og reka bensínstöðina í þorpinu eru
okkar menn á svæðinu. Þeir heita Christoph og
Christof og stjana við okkur, sýna okkur allt og eru
duglegir að koma okkur á framfæri.“
Guðrún segir mótin ávallt haldin í risastóru tjaldi
með endalausum langborðum, bar og sviði. Þar
marseri sveitirnar inn ein af annarri. „Þegar við
Íslendingarnir göngum inn þá ætlar allt um koll að
keyra. Það er dansað uppi á borðum, klappað og öskrað
og ég veit ekki hvað og hvað. Við veljum líka alltaf
dálítið hress og skemmtileg lög, hinir eru kannski
meira í hefðbundnum mörsum en við komum með
James Bond-lög, Stuðmannalög og önnur sem hleypa
fjöri í mannskapinn. Mótið stendur frá fimmtudegi til
mánudags, það er spilamennska á torgum og götuhorn-
um úti um allan bæ og alltaf eitthvað um að vera í
tjaldinu á kvöldin, Týrólaband að spila, dansiböll og
fjör. Ekki spillir veðrið. Við höfum alltaf verið í
glampandi sól og allt að 30 stiga hita. Margir líta á
þetta sem byrjunina á októberfest. Svona forskot á
sæluna.“
Meðlimir Svansins eru á aldrinum 16 til 55 ára að
sögn Guðrúnar Bjargar sem byrjaði að spila með árið
2003. Hún segir um 30 starfandi í sveitinni. „Svo erum
við með fólk á sporbaug í kring sem kemur inn í þegar
þarf,“ segir hún kankvís og kemur því að í lokin að
vortónleikarnir séu í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld kl.
20. Þar sé aðgangur ókeypis og öllum heimill.
gun@frettabladid.is
Tekið sem rokkstjörnum
Bad Orb er friðsæll bær og lífið allt í föstum skorðum nema
þegar um 20 lúðrasveitir gera innrás annað hvert ár.
„Við spilum á sundlaugarbakka og skellum okkur svo í sund á
eftir,“ lýsir Guðrún Björg.
Guðrún er á
fjórða starfsári
með lúðrasveit-
inni Svaninum
og hefur farið
með henni í
nokkur ferðalög.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Nú er rétti tíminn til þess að undirbúa
næsta veiðitímabil. Veiðikortið veitir aðgang að
rúmlega 30 vatnasvæðum vítt og breitt um landið
fyrir aðeins 5000 kr. Frí heimsending þegar verslað
er beint á www.veidikortid.is
Tryggðu þér Veiðikortið í tíma!
Á að veiða
í sumar?