Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 26
18 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
CYNTHIA NIXON
LEIKKONA 42 ÁRA.
„Ég held að konur vilji
alveg gifta sig. Hins vegar
efast ég um að þær gifti
sig sama hvað í dag.“
Cynthia Nixon sló í gegn
sem hin harðsvíraða Mir-
anda í þáttunum Beðmál
í borginni fyrir nokkrum
árum.
MERKISATBURÐIR
1940 Þjóðverjar ráðast inn í
Danmörku og Noreg.
1963 Mikið norðanrok og
hörkufrost skellur á. Sex-
tán sjómenn farast þenn-
an dag og hinn næsta.
1967 Fyrsta Boeing 737-flugvél-
in flýgur jómfrúarflug sitt.
1991 Georgía lýsir yfir sjálfstæði
frá gömlu Sovétríkjunum.
1992 Manuel Noriega, fyrrver-
andi einræðisherra í Pan-
ama, er dæmdur fyrir átta
glæpi.
1999 Ibrahim Baré Maïnassara,
forseti Nígeríu, er ráðinn
af dögum.
2002 Elísabet drottningarmóðir
er borin til grafar frá West-
minster Abbey. Múgur og
margmenni fylgdi drottn-
ingarmóðurinni til hinnar
hinstu hvílu.
Gosið í Heklu árið 1981 stóð stutt yfir og er talið
vera framhald á gosi sem hófst árið áður. Eld-
fjallið Hekla er 1.488 m hár eldhryggur og eitt
virkasta og
þekktasta eldfjall
á Íslandi. Fjallið
er sunnanlands,
í Rangárvalla-
sýslu, og sést
víða að. Hekla
er fremur ungt
eldfjall og nú-
verandi megin-
hluti hennar tal-
inn vera yngri en 2.500 til 7.000 ára gamall. Fjall-
ið sker sig frá öðrum íslenskum eldfjöllum að
því leyti að kvikuhólf hennar er mun dýpra en í
öðrum fjöllum landsins og er á um ellefu kíló-
metra dýpi í jarðskorpunni.
Einhver mestu hamfaragos á Íslandi áttu sér
stað í Heklu fyrir 7.000, 4.500 og 2.900 árum.
Þá var gosvirkni í Heklu öðruvísi. Lengra leið á
milli gosa og
sprengivirkni
þeirra var mun
meiri, en ein-
göngu kom upp
kísilrík gjóska og
að öllum líkind-
um runnu engin
hraun í þess-
um gosum. Um-
merki um þessi
gos má finna í formi gjóskulaga sem dreifðust
yfir stóran hluta landsins, einkum í norðurátt.
Einnig var sprengigos. Gjóskufallið frá því gosi
lagði meðal ananrs byggð í Þjórsárdal í eyði.
ÞETTA GERÐIST: 9. APRÍL 1981
Drottningin Hekla gaus á ný
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Guðlaugsson
Húnabraut 30, Blönduósi,
lést 2. apríl. Útförin fer fram í Blönduóskirkju föstu-
daginn 11. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamleg-
ast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins látna er
bent á orgelsjóð Blönduósskirkju.
Ingibjörg Þ. Jónsdóttir
Skarphéðinn H. Einarsson Sigrún Kristófersdóttir
Jón Karl Einarsson Ágústa Helgadóttir
Kári Húnfjörð Einarsson Ingunn Þorláksdóttir
Magdalena Rakel Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Elín Rósa Finnbogadóttir
Rauðagerði 39,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn
11. apríl kl. 13.00.
Kristján Sigurgeir Guðmundsson
Finnbogi G. Kristjánsson Gunnhild Ólafsdóttir
Guðrún Þ. Kristjánsdóttir Birgir Óskarsson
Elín Rósa Finnbogadóttir Steingrímur Waltersson
Kristján Guðmundur Birgisson
Kristbjörg Steingrímsdóttir
Finnbogi Steingrímsson
Ólafur Jón Einarsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Geir Gunnarsson
fyrrverandi alþingismaður,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudag-
inn 11. apríl kl. 11.00.
Ásta Lúðvíksdóttir
Gunnar Geirsson Guðfinna Kristjánsdóttir
Lúðvík Geirsson Hanna Björk Lárusdóttir
Hörður Geirsson Jóhanna S. Ásgeirsdóttir
Ásdís Geirsdóttir Jón Páll Vignisson
Þórdís Geirsdóttir Guðbrandur Sigurbergsson
og barnabörn.
80 ára afmæli
Á miðvikudaginn 9. apríl verður
heiðurskonan
Þorbjörg
Jóhannesdóttir
áttræð. Í tilefni dagsins tekur
Þorbjörg á móti gestum í sal safnaðar-
heimilis Fríkirkjunnar að Laufaásvegi
13 á milli 18.00 og 20.00.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Bjarni Pétursson
Hjallabraut 15, Hafnarfirði,
lést af slysförum laugardaginn 5. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Þórunn S. Kristinsdóttir
Bjarni Þór Bjarnason Þórunn Guðmundsdóttir
Kristinn Ásgeir Bjarnason Helga Lára Kristinsdóttir
Berglind Bjarnadóttir Jón Andrés Valberg
Gústaf Bjarni og Emil Gauti Valberg
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Inga Hjartardóttir
Gnoðarvogi 22,
sem lést þann 2. apríl sl. verður jarðsungin frá
Langholtskirkju í dag, fimmtudaginn 10. apríl, kl.
13.00.
Jens Gíslason
Ingveldur Gísladóttir
Ragna B. Gísladóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Samband íslenskra framhaldsskóla-
nema, SÍF, var stofnað í fyrrahaust.
Sambandið er hagsmunafélag fram-
haldsskólanema og eru flestir fram-
haldsskólar landsins meðlimir. Í dag
er í fyrsta sinn haldinn forvarnadagur
sambandsins sem verður fagnað með
óvenjulegum hætti á Laugum.
„Hverju nemendafélagi var í sjálf-
vald sett hvernig dagskrá færi fram
þennan dag í sínum skóla,“ segir
Gunnar Sigfússon, forseti nemenda-
félags framhaldsskólans á Laugum.
„Okkur fannst þá tilvalið að fara í mót-
mælagöngu því það er þónokkuð sterk
upplifun. Síðan ákváðum við að það
væri náttúrlega gáfulegra og flott-
ara að fara í meðmælagöngu,“ segir
Gunnar sem mun ásamt skólafélög-
um, starfsfólki skólans og kennurum,
ganga fjögurra klukkustunda leið frá
skólanum yfir Fljótsheiði að Goðafossi
í dag. Ekki til að mótmæla heldur til að
mæla með. „Við ætlum að hafa tákn-
ræna athöfn við Goðafoss, þar sem
við mælum með kærleika, friði, rétt-
læti, heilbrigði, menntun, samkennd
og von. Síðan ætlum við að henda í
fossinn steinum sem tákna hið and-
stæða og þar með losa okkur við það
slæma. Þetta er eins konar spegill á
söguna við þennan foss,“ segir Gunnar.
Upphaflega hugmyndin að forvarna-
deginum kom frá SÍF. Að sögn Gunn-
ars er markmiðið að gera sýnilegt það
góða sem ungt fólk í framhaldsskól-
um landsins stendur fyrir. „Við höfum
orðið þónokkuð vör við neikvæða um-
fjöllun til dæmis í fjölmiðlum þar sem
ungt fólk er mikið bendlað við óheil-
brigt líferni. Þess vegna langaði okkur
að sýna líka það fólk sem minna fer
fyrir og er meirihluti framhaldsskóla-
nema. Nefnilega hugsandi fólk með
heilbrigðar skoðanir,“ segir Gunn-
ar sem vonast til þess að gangan verði
að árlegum viðburði. Hann segir fjöl-
breytta dagskrá fara fram í dag víða
um land. Ýmist fyrirlestrar og önnur
fræðsla til að vekja áhuga og athygli
á forvörnum og jákvæðu starfi fram-
haldsskólanema. Gunnar segir nem-
endafélagið hafi fengið góðar mót-
tökur varðandi hugmyndina og á Laug-
um ríki almenn bjartsýni varðandi
daginn. „Ungt fólk í dag er mjög mis-
jafnt eins og mannfólkið flest. Og það
eru skiptar skoðanir á því hvernig líf-
erni unglingar lifi í dag. Hins vegar
held ég að rosalega margir framhalds-
skólanemar séu meðvitaðir um andlegt
og líkamlegt heilbrigði,“ segir Gunn-
ar sem er sjálfur á öðru ári á íþrótta-
braut, en vill ekki gefa neitt út um það
hvað hann ætlar að leggja fyrir sig í
framtíðinni. Hann segir Laugaskóla
bjóða nemendum góðar aðstæður til
heilbrigðs lífs og að nemendur séu
að sjálfsögðu uppteknir af heilsunni.
„Hér er frábær aðstaða til íþróttaiðk-
unar, tuttugu og fimm metra sundlaug,
frjálsíþróttavöllur, íþróttasalur og lyft-
ingasalur sem er ókeypis fyrir alla
nemendur,“segir Gunnar sem hlakk-
ar mikið til meðmælagöngunnar sem
hefst klukkan 15.00 í dag að fram-
haldsskólanum á Laugum.
rh@frettabladid.is
MENNTASKÓLINN Á LAUGUM: FORVARNADAGUR HALDINN Í FYRSTA SINN
Meðmæli við Goðafoss
HUGUR Í UNGU FÓLKI Gunnar segir mikilvægt að ungt fólk sem er að gera góða hluti sé einnig sýnilegt. Hann segist einnig vona að forvarna-
dagurinn verði hefð í framhaldsskólum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÖRLYGUR HNEFILL