Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 28
20 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég óttast eftir-
launaaldurinn...
Hvað á ég að
vinna við?
Takk fyrir að það gangi
aðeins betur hjá Liverpool!
Það þýðir aðþað gangi
aðeins betur í þessu húsi!
Þá er pabbi glaður maður!
Pabbi er góður maður...
Hann er meira að segja
ánægður með að það séu til
sveitaballabönd...
Svo að þeir heila-
dauðu finni líka tónlist
fyrir sinn smekk!
Þú getur hugsað
aðeins til hans,
því hann hugsar
fyrir öllu!
allið mig Ísmael. allið mig
heilalamaðan.
Úúú! Moby Dick!
Í hvaða kafla ertu
kominn?
Ég er að reyna að
láta mér detta í hug
eitthvað sniðugt,
fyndið og áhugavert
að segja...
Mjá.
Ég vona að þetta hafi
ekki misst gildi við
þýðingu.
Og þessi takki skiptir um
stöðvar. Prófaðu!
Klikk! Klikk!
Klikk!
Klikk!
Hæ! Velkomin í
þátt Hannesar!
Hæ! Velkomin í
þátt Hannesar!
Hæ! Velkomin í
þátt Hannesar!
Hæ! Velkomin í
þátt Hannesar!
Þetta er eins og veruleikaþátt-
ur, bara enn raunverulegra.
Er þetta
ekki
flott?
Þegar maðurinn skreið
niður úr trjánum og
hóf að stunda búskap
hafði hann í huga
lítinn og snotran
helli með hentugt
eldstæði og nóg af
steinum til að smíða
sér eldhúsáhöld og
vopn. Steinaldar-
maðurinn vildi nefni-
lega helst ekki þurfa að skilja
eftir sig mikil verðmæti ef villi-
dýr eða ribbaldaflokkar gerðu
árás og tækju yfir nýja heimilið.
Steinaldarmaðurinn breytti
síðan um stíl og lagði stund á
hirðingjafræði. Þótti betra að
vera á sífelldum þönum um slétt-
urnar með lítið tjald á bakinu og
vopn til að verjast. Þegar hann
hafði fengið sig fullsaddan af
þessum eilífu göngutúrum kom
hann sér fyrir á fallegum stað
þar sem nóg var af æti og ekki
var verra ef rennandi vatn var í
nágrenninu. Mannskepnunni datt
það ekki í hug að flytja heldur bjó
kynslóð eftir kynslóð á sama
staðnum.
En einhver snillingurinn fékk
þá flugu í hausinn að best væri
nú ef allir byggju á sama blettin-
um. Þá væri nefnilega hægt að
nýta mannskapinn til að byggja
stórar hallir eða pýramída fyrir
goðumlíka einvalda. Og þrátt
fyrir harðræði og kúgun, jafnvel
ofsóknir, leiddi enginn hugann að
því að flytja. Betra væri að vera
brenndur á báli en að þurfa að
setja allt niður í gamla kassa og
setjast að í fjarlægri borg.
Þessi þekking fornmannsins
virðist hins vegar hafa skolast til
með tímanum. Því nútímamann-
inum þykir fátt jafn skemmtilegt
og að pína sína nánustu með stöð-
ugum flutningum, tilfærslum og
umbreytingum. Hann stendur í
þeirri trú að flutningar séu
skemmtilegir, þeir endurveki
gömul vinasambönd og styrki
fjölskylduböndin. En um leið og
nútímamaðurinn lyftir fyrsta
bókakassanum, gengur niður
fjórar hæðir með bókasafnið og
svo upp tvær áttar hann sig strax
á því að þrátt fyrir að trúin flytji
fjöll þá flytur hún ekki búslóðir.
STUÐ MILLI STRÍÐA Trúin flytur fjöll en ekki búslóðir
FREYR GÍGJA GUNNARSSON VILL VERA STEINALDARMAÐUR
Aðalfundur Fáks
Aðalfundur Hestamannafélagsins Fáks
verður haldinn í félagsheimili Fáks,
miðvikudaginn 16. apríl k. 20:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin
10 - 11 - 17 - 18 - 24 - 30. apríl
kl 20.00 alla daga
ALLAR SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Í kvöld 9. apríl kl. 20 – Uppselt
Föstudaginn 11. apríl kl. 20 – Uppselt
LOKASÝNING: Sunnudaginn 13. apríl kl. 20 – Örfá sæti laus
MIÐAVERÐ: 1.000 KR.
www.opera.is
Þjóðleikhúsið
um helgina
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri.
Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Engisprettur e. Biljana Srbljanovic
sýn. fim 10/4 örfá sæti laus, fös. 11/4 örfá sæti laus
Baðstofan e. Hugleik Dagsson
sýn. lau 12/4 næst síðasta sýning
Sólarferð e.Guðmund Steinsson
Tvær sýningar lau. 12/4 örfá sæti laus, sýn 13/4 uppselt
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
sýn. lau 12/4 örfá sæti laus
Skilaboðaskjóðan e. Þorvald Þorsteinsson
sýn. sun. 13/4 uppselt
Sá ljóti e. Marius von Mayenburg
sýn. mið 9/4 uppselt, fös 11/4 sun. 13/4 örfá sæti laus