Fréttablaðið - 09.04.2008, Qupperneq 32
24 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGURNÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
16
10
16
7
12
16
10
16
7
7
12
7
THE EYE kl. 8 - 10
VANTAGE POINT kl. 8 - 10
THE SPIDERWICK CRONICLES kl. 6
HORTON kl. 6 ÍSLENSKT TAL
16
16
7
16
16
16
16
THE AIR I BREATHE kl.6 - 8 - 10
VANTAGE POINT kl.6 - 8 - 10
IN BRUGES kl.5.45 - 8 - 10.10
HORTON kl.6 ENSKT TAL
THE ORPHANAGE kl. 8 - 10
DEFINITELY MABY kl. 5.30 - 8 - 10.30
DEFINITELY MABY LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
VANTAGE POINT kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
THE OTHER BOLEYN GIRL kl. 8
SHUTTER kl. 8 - 10
THE SPIDERWICK CRONICLES kl. 3.30 - 5.45
HORTON kl. 3.30 ENSKT TAL
HORTON kl. 4 - 6 ÍSLENSKT TAL
SEMI PRO kl. 10.30
DOOMSDAY kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE OTHER BOLEYN GIRL kl. 5.30 - 8
THE EYE kl. 10.30
THE SPIDERWICK CRONICLES kl. 5.50
HEIÐIN kl. 10
THE KITE RUNNER kl. 8 - 10.30
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8
5%
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
!óíbí.rk055
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
S.V. - MBL.
„Fín Fjölskyldumynd”
- 24 Stundir
„Allt smellur saman
og allt gengur upp”
- A. S., 24 Stundir
MESTI FARALDUR SÖGUNNAR...
MILLJÓNIR SÝKTAR...
EINANGRUÐ...
YFIRGEFIN...
25 ÁRUM SÍÐAR
ER TÍMI MANNKYNSINS RUNNINN ÚT.
FRÁBÆR VÍSINDATRYLLIR Í ANDA
28 DAYS LATER FRÁ LEIKSTJÓRA
THE DESCENT!
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
FOOL´S GOLD kl. 5:40 - 8 - 10:30 7
FOOL´S GOLD kl. 5:40 - 8 - 10:30 VIP
STÓRA PLANIÐ kl. 6D - 8D - 10:10D 10
DOOMSDAY kl. 5:50 - 8 - 10:10 16
LARS AND THE REAL GIRL kl. 10:10 L
10.000 BC kl. 8 - 10:30 12
THE BUCKET LIST kl. 8 7
UNDRAHUNDURINN M/- ÍSL TALkl. 6 L
STEP UP 2 kl. 6 7
3D-DIGITAL
FOOL´S GOLD kl. 6 - 8 - 10:10 7
STÓRA PLANIÐ kl. 8:10D - 10:10D 10
HANNA MONTANA kl. 6 (3D) L
JUNO kl. 8 - 10 7
UNDRAHUNDURINN M/- ÍSL TALkl. 6 L
DIGITAL
DIGITAL
FOOL´S GOLD kl. 8 - 10 7
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10 10
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10 10
SEMI PRO kl. 8 L
JUNO kl. 10 L
STÓRA PLANIÐ kl. 8 - 10:10 10
LARS AND THE REAL GIRL kl. 8 L
SHUTTER kl. 10:10 7
Þrælskemmtileg rómantísk gamanmynd.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
DEFINITELY, MAYBE kl. 5.45, 8 og 10.15 L
THE EYE kl. 8 og 10 16
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 6 7
HORTON - ÍSLENSKT TAL kl. 6 L
SEMI-PRO kl. 8 og 10 12
“Vel gerð ævintýra-og fjölskyldumynd.
Með betri slíkum undanfarin misseri.”
- VJV, Topp5.is/FBL
- H.J. MBL
Erykah Badu sló í gegn með
fyrstu plötunnni sinni Baduizm
sem kom út árið 1997. Sú plata
var með mjúkri djass- og blúsá-
ferð og þótti minna á söngkonur
eins og Ninu Simone og Billie
Holiday. Næstu tvær plötur,
Mama’s Gun (2000) og Worldwide
Underground (2003) voru fínar,
en jöfnuðust þó ekki á við hinn
fullkomna frumburð. Fjórða plata
Erykuh, New Amerykah: Part
One (4th World War) er nýkomin
út, heilum fimm árum á eftir síð-
ustu plötu. Og nú dregur til tíð-
inda.
New Amerykah er hreint mögn-
uð. Þetta er ein af þessum plötum
sem láta frekar lítið yfir sér við
fyrstu hlustun, en vaxa og vaxa
við nánari kynni. New Amerykah
er meðal annars unnin með með-
limum Sa-Ra hópsins og snillingn-
um Madlib auk þess sem Quest-
love Thompson, James Poyser,
Roy Ayers og fleiri koma við
sögu. Tónlistin er fjölbreytt og
djörf. Platan byrjar á 70’s lituðu
fönk-stykki, Amerykahn Prom-
ise, og svo tekur hvert meistara-
stykkið við af öðru. Kraumandi
fönkbræðingur, hæggeng soul-
djass stykki, ferskir hip-hop takt-
ar og svo einhver óræð tilrauna-
stemning sem litar bæði tónlistina
og textagerðina. Og allt gengur
þetta upp. Platan er tæpar sextíu
mínútur og mætti ekki vera mín-
útu styttri.
New Amerykah: Part One er
klárlega ein af plötum ársins það
sem af er. Og Erykah er greini-
lega í miklum ham þessa dagana
því að þetta er bara fyrsta platan
af þremur sem hún ætlar að gefa
út á árinu. Trausti Júlíusson
Djörf endurkoma Erykuh
TÓNLIST
New Amerykah: Part One (4th
World War)
Erykah Badu
★★★★★
Erykah Badu snýr aftur með sína
djörfustu og framsæknustu plötu. Meist-
araverk sem vex við hverja hlustun.
Plötusnúðarnir Carl Cox og Fedde
Le Grand munu ekki koma saman
fram á Broadway síðar í mánuðin-
um eins og áformað hafði verið.
Cox vildi spila á Nasa og því munu
þessir þekktu kappar keppast um
hylli dansáhugamanna sama kvöld-
ið. „Cox vildi koma til Íslands og
spila á sama stað og GusGus. Síðan
töldum við skynsamlegt að sam-
eina þetta Fedde Le Grand-gigginu
á Broadway enda óvenjulegt að
tveir stórir plötusnúðar spili í
Reykjavík sama kvöld. Umboðs-
maður hans samþykkti þetta en
þegar Cox frétti sjálfur af þessu
sagði hann nei. Hann vildi bara
spila á Nasa,“ segir Margeir Ing-
ólfsson hjá Jóni Jónssyni, sem
flytja Cox til Íslands.
Tónleikar þeirra Cox og Fedde
Le Grand verða miðvikudagskvöld-
ið 23. apríl, daginn fyrir sumardag-
inn fyrsta. Margeir segir að allt
hafi verið í góðu milli skipuleggj-
enda þegar þetta var ákveðið. Hann
segist ekki hafa áhyggjur af öðru
en að fólk muni fjölmenna á Nasa
til að sjá Carl Cox. „Carl Cox er
óumdeilanlega stærsti plötusnúður
heims sem hefur ekki enn komið til
Íslands þannig að við erum hvergi
bangnir.“
Cox og Fedde ekki saman
CARL COX Spilar á Nasa.FEDDE LE GRAND Spilar á Broadway.
Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors
eru nýkomin heim frá Bretlandi eftir
fjögurra mánaða dvöl. Þar léku þau í
Hamskiptunum við góðan orðstír. Nóbels-
verðlaunahafinn Harold Pinter mætti á
lokasýninguna.
„Við vorum að leika átta sinnum í viku í fjóra
mánuði,“ segir Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona.
Hún og maðurinn hennar, Björn Thors, eru nýkomin
heim frá Bretlandi eftir fjögurra mánaða útlegð þar
sem þau léku í Hamskiptunum eftir Franz Kafka.
„Þetta var ógeðslega gaman og líka frábær reynsla
að prófa að búa erlendis,“ segir Unnur Ösp.
Hamskiptin hafa heldur betur farið vel í Breta því
uppselt var á hverju kvöldi og sýnt var sem fyrr
segir allt að átta sinnum í viku. Þá hefur sýningin
einnig hlotið einróma lof gagnrýnenda þar í landi.
Unnur og Björn leystu af hólmi Nínu Dögg Filippus-
dóttur og Gísla Örn Garðarsson og segir hún að
gengi sýningarinnar hafi verið framar öllum vonum.
„Við byrjuðum á að sýna í mánuð í London og fórum
þaðan til sex eða átta borga minnir mig, þetta
rennur allt meira og minna saman. Síðan snerum við
aftur til London og lékum þar í tvær vikur.“
Þetta góða gengi hefur vakið athygli ytra og voru
Björn og Unnur í viðtali við BBC á dögunum þar
sem fjallað var um þennan mikla áhuga Breta á
verkinu. „Það er eins og Bretarnir tengi sig mikið
við verkið enda hafa þeir lifað í meiri nálægð við
styrjaldir og þekkja stéttaskiptinguna vel,“ segir
Unnur en einu sinni í viku voru umræður um
sýninguna að henni lokinni þar sem leikarar ræddu
við áhorfendur. Unnur segir að þar hafi þau orðið
vör við hve sterk áhrif sýningin hafði á áhorfendur.
Það var margt góðra gesta á lokasýningum
Hamskiptanna sem fram fóru síðustu helgi. Þangað
mættu meðal annarra menningamálaráðherra
Bretlands, tónlistarmaðurinn Nick Cave og síðast en
ekki síst Nóbelsverðlaunahafinn og leikritaskáldið
Harold Pinter. „Það var aukin spenna að fá hann á
sýninguna, Nóbelsverðlaunahafann. Hann er orðinn
töluvert fullorðinn svo við náðum nú ekki að hitta
hann eftir sýninguna en hann fór í hádegisverð með
leikstjóranum og lagði blessun sína yfir þetta,“ segir
Unnur.
Unnur Ösp og Björn léku á ensku og segir hún það
hafa gengið vel. „Það er auðvitað viss áskorun en við
vorum með tvo Breta með okkur svo við höfðum
samanburðinn. Stundum fór maður í hermikrákuleik
til þess að ná hreimnum. Annars gerist verkið á
mjög óræðum stað svo hreimur skiptir kannski ekki
öllu,“ segir Unnur. Hún segir það einnig hafa verið
gaman að kynnast því að vinna með breskum
leikurum. „Þeir eru frekar ólíkir okkur. Við erum
meira flippuð, en þeir svolítið íhaldssamir og fastir í
hefðinni. Annar þeirra var mikill Shakespeare-
leikari til dæmis. Þetta kom þó engan veginn niður á
samstarfinu enda settum við jafnmikla pressu á þá
og þeir á okkur. Við erum öll miklir vinir og annar
þeirra er búinn að heimsækja okkur og hinn er á
leiðinni,“ segir Unnur.
Þeim Unni Ösp og Birni Thors fæddist sonurinn
Dagur síðasta sumar. Hann fylgdi foreldrum sínum
um gjörvallt Bretland. „Við vorum með ömmu hans
með okkur til þess að passa, annars hefðum við
aldrei getað þetta. Það gekk vel að ferðast með hann
og hann dafnar vel,“ segir Unnur.
soli@frettabladid.is
Léku fyrir Harold Pinter
VELHEPPNUÐ BRETLANDSFÖR Unnur Ösp Stefánsdóttir er
komin heim eftir góða törn í Bretlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BJÖRN THORS Lék með Unni Ösp í Hamskiptunum.