Fréttablaðið - 09.04.2008, Side 34

Fréttablaðið - 09.04.2008, Side 34
26 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Síðustu leikirnir í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fara fram í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Roma og Schalke heimsækir Bar- celona. Leikur United og Roma er fyrir margra hluta sakir áhugaverður. Mikið hefur verið fjallað um seinni leik liðanna í átta liða úrslitunum á Old Trafford fyrir tæpu ári þegar United slátraði Roma 7-1 sem var og er stærsti sigur í sögu útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. United getur hins vegar með sigri í kvöld slegið annað met en liðið hefur nú þegar unnið tíu heimaleiki í röð í Meistaradeildinni, sem er met sem liðið deilir með Juventus. United stendur vel að vígi fyrir leikinn í kvöld eftir 0-2 sigur á Ólympíuleikvanginum í Róm í síðustu viku en liðið verður án Nemanja Vidic, og Rio Ferdinand er tæpur fyrir leikinn. Knatt- spyrnustjórinn Sir Alex Ferguson á þó marga möguleika í stöðunni með þá John O‘Shea, Gerard Pique, Gary Neville og Mikael Silvestre alla leikfæra. Roma verður sem fyrr án Francesco Totti auk þess sem Alberto Aquilani er tæpur vegna meiðsla en Simone Perotta kemur aftur í liðið eftir leikbann. Philippe Mexes, varnarmaður Roma, er ekki tilbúinn að gefast upp. „Það er aldrei að vita hvað getur gerst í fótbolta og við erum ekkert hættir,“ sagði Mexes. Schalke á ekki öfundsvert verk fyrir höndum gegn Barcelona á Nývangi eftir 0-1 tap á heimavelli í síðustu viku og sparkspekingar eru sumir þegar farnir að tala um einvígi United og Barcelona. Samuel Eto‘o, framherji Barce- lona, er bjartsýnn fyrir leikinn. „Ég ætla ekki að fara leynt með að möguleikar okkar á að komast áfram eru frábærir en við verð- um samt að leggja hart að okkur til þess að svo verði,“ sagði Eto‘o í viðtali við heimasíðu UEFA. - óþ Manchester United og Barcelona eru í góðri stöðu til að tryggja sig í undanúrslit Meistaradeildarinnar: Slær United met í Meistaradeildinni? SNILLINGUR Allir munu fylgjast með Cristiano Ronaldo í kvöld en hann skor- aði sitt sjöunda mark í Meistaradeildinni í síðustu viku. NORDIC PHOTOS/GETTY LEIKIR KVÖLDSINS Manchester United-Roma Beint á Stöð 2 Sport kl. 18.45 Barcelona-Schalke Beint á Stöð 2 Sport 3 kl. 18.45 Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson var í gær ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis í handknattleik. Aðalsteinn hefur undanfarin ár stýrt liði Stjörnunnar með góðum árangri og þar áður liði ÍBV sem hann gerði að Íslandsmeistur- um líkt og með Stjörnuna. Aðalsteinn hafði lýst því yfir að hann væri hættur í þjálfun í bili en hefur nú snúist hugur. „Þetta átti sér langan aðdraganda. Ég var ekki á leið í þjálfun en stjórnarmenn Fylkis voru afar sannfærandi og kynntu fyrir mér áhuga- vert verkefni þar sem ég fæ að stýra starfinu eftir minni hugmynda- fræði. Þetta er spennandi hópur með efnilegum leikmönnum og mikil tækifæri í Árbænum til góðra verka,“ sagði Aðalsteinn Reynir, sem hafnar því að peningar séu ástæðan fyrir því að hann fer til Fylkis. „Þetta er mín atvinna en ég er ekki að elta peninga og það vita þeir sem hafa ráðið mig í vinnu. Ég þarf samt að eiga ofan í mig og á. Pen- ingar voru ekki stærsti áhrifavaldurinn í þessari ákvörðun. Ég vil ekkert tjá mig um launin en ég er á nokkuð sléttu. Menn verða samt seint ríkir í þjálfun á Íslandi. Ég er meira í þessu af hugsjón en peningum,“ sagði Aðalsteinn. Hann hefur verið mörg ár í Garðabænum. Var alinn upp þar og er svo búinn að stýra aðalliðinu síðustu þrjú ár. „Ég var kominn á endastöð með þennan hóp. Hef þjálfað margar þeirra síðan þær voru ellefu ára gamlar og hef verið stór þáttur í þeirra íþróttalífi. Samstarfið hefur verið gott en einhvern tímann verður að skera á naflastrenginn,“ sagði Aðalsteinn, sem vildi ekki fara í önnur félög en að vel athuguðu máli ákvað hann samt að taka tilboði Fylkis. „Stjarnan bauð mér fínt skrifstofustarf en ég er enginn skrifstofukall heldur þjálfari. Mér finnst gaman að byggja upp og ég held að það hafi verið ótímabært að hætta á þessum tímapunkti þar sem ég get enn gefið mikið af mér þar sem ég hef mikla þekkingu og reynslu. Ég á ferilskrá sem er ein sú besta sem sést á pappír,“ sagði Aðalsteinn, sem ætlar ekki að taka með sér leikmenn úr Stjörnunni. AÐALSTEINN REYNIR EYJÓLFSSON: TEKUR VIÐ KVENNALIÐI FYLKIS Í HANDKNATTLEIK Ferilskráin mín er ein sú besta sem sést á pappír > Hækka sektir um fimm hundruð prósent Knattspyrnusamband Íslands hefur hækkað verulega sektir vegna úrsagna úr mótum frá og með 10. apríl næstkomandi. Á heimasíðu sambandsins er vitnað í reglugerð KSÍ um knattspyrnumót. „Lið, sem dregur sig út úr móti fyrir 10. apríl, skal sæta sekt að upphæð kr. 10.000 í meistaraflokki og kr. 5.000 í öðrum flokkum. Frá og með 10. apríl og þar til keppni hefst eru sambærilegar sektir kr. 50.000 í meistaraflokki og kr. 20.000 í öðrum flokkum.“ Þetta þýðir hækkun upp á fimm hundruð prósent. KÖRFUBOLTI Keflvíkingar þurfa að fá meira frá fyrirliða sínum, Magnúsi Þór Gunnarssyni, ætli þeir að jafna undanúrslitaeinvígið gegn ÍR í Iceland Express-deild karla. Annar leikur liðanna fer fram í Seljaskóla klukkan 19.15 í kvöld. Magnús Þór klikkaði á 10 af 12 skotum sínum í fyrsta leiknum, sem Keflavík tapaði 87-92 í framlengingu, en hann skoraði þá 7 af 9 stigum sínum í framleng- ingunni. Keflavík jafnaði hins vegar einvígið með 72-98 sigri í öðrum leiknum í Seljaskóla þar sem Magnús skoraði 15 stig og hitti úr 5 af 8 þriggja stiga skotum sínum. Keflvíkingar unnu einvígið síðan 3-1 og urðu Íslandsmeistarar. - óój Einvígi Keflavíkur og ÍR: Magnús lykill að endurkomu? MIKILVÆGUR Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Keflavíkur. KÖRFUBOLTI Það má telja líklegt að ÍR-ingar leggi ofurkapp á að stoppa Keflvíkinginn Tommy Johnson í öðrum undanúrslitaleik liðanna í Seljaskóla í kvöld. Tommy Johnson var aðeins með 8 stig og 27 prósenta skotnýtingu í fyrsta leik ÍR og Keflavíkur. Keflvíkingar hafa tapað öllum fjórum leikjum sínum í vetur þar sem Johnson hefur ekki náð að brjóta tíu stiga múrinn en aftur á móti unnið 21 af 22 leikjum þar sem hann hefur skorað 11 stig eða meira. Tommy var með 19,3 stig að meðaltali og 40,6 prósenta þriggja stiga skotnýtingu í 18 sigurleikj- um Keflavíkur í deildinni í vetur en í tapleikjunum fjórum var hann hins vegar aðeins með 9,0 stig og 17,6 prósenta þriggja stiga skotnýtingu. - óój Keflavík og ÍR mætast í kvöld: Nóg að stoppa Tommy? Meistaradeild Evrópu: Liverpool-Arsenal 4-2 0-1 Abou Diaby (13.), 1-1 Sami Hyypia (30.), 2-1 Fernando Torres (69.), 2-2 Emmanuel Adebayor (84.), 3-2 Steven Gerrard, víti (85.), 4-2 Ryan Babel (90.). Chelsea-Fenerbahce 2-0 1-0 Michael Ballack (4.), 2-0 Frank Lampard (87.) Enska úrvalsdeildin: West Ham-Portsmouth 0-1 0-1 Niko Kranjcar (61.) ÚRSLIT FÓTBOLTI Tvö ensk félög bókuðu farseðilinn í undanúrslit Meist- aradeildarinnar í gær. Liverpool lagði þá Arsenal, 4-2, í mögnuðum leik og á meðan vann Chelsea þægilegan sigur á Fenerbahce, 2- 0. Fyrri hálfleikur á Anfield í gær var stórkostleg skemmtun. Bæði lið mættu gríðarlega grimm til leiks og ætluðu augljóslega að selja sig dýrt. Diaby kom Arsenal yfir með skoti í teignum eftir mjög góða sókn gestanna. Heimamenn gáfust ekki upp og Sami Hyypiä jafnaði metin með stórkostlegum skalla sem fór í stöngina og inn. Nokkuð hægðist á leiknum í síðari hálfleik eins og búast mátti við. Lítið var um opin færi og leikurinn var algjörlega stál í stál þegar Fernando Torres kom Liverpool yfir með stórglæsi- legu marki tuttugu mínútum fyrir leikslok. Hann fékk þá háa send- ingu í teiginn, sneri Senderos auð- veldlega af sér og hamraði bolt- ann í markhornið fjær. Theo Walcott átti ótrúlegan sprett upp völlinn sjö mínútum fyrir leikslok. Lék á hvern Liver- pool-manninn á fætur öðrum og gaf boltann í teiginn þar sem Adebayor var einn á auðum sjó og lagði boltann auðveld- lega í netið. Leikmenn Arsenal voru enn að fagna þegar Ryan Babel braust í gegnum vörn Arsenal, sem endaði með því að brotið var á honum í teign- um. Ákaflega klaufalegt. Steven Gerr- ard tók vítið og skoraði örugglega úr vít- inu. Arsenal setti alla menn í sóknina undir lokin og Liverpool refsaði með langri sendingu á Babel sem stakk varnarmann af og lagði boltann smekklega í netið. „Þetta var líklega ein versta frammistaða mín í Liverpool-bún- ingi en ég hafði samt alltaf trú á því að ég myndi skora úr vítinu,“ sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liver- pool, eftir leik- inn. „Arsenal er með frábært lið sem yfirspilaði okkur á köflum en það vorum við sem stóðum uppi sem siguvegarar,“ sagði Gerrard en bæði hann og Ryan Babel hrósuðu stuðnings- mönnum sérstaklega. Chelsea byrjaði leikinn gegn Fenerbahce með miklum látum en Michael Ballack kom liðinu yfir með góðum skalla eftir aðeins fjórar mínútur. Þannig stóðu leikar í hálfleik. Frank Lampard gerði svo út um leikinn, og rimmuna, þrem mínút- um fyrir leikslok með marki af stuttu færi eftir laglegan undir- búning hjá Michael Essien. henry@frettabladid.is Sjö daga stríðinu lokið Liverpool vann sjö daga stríðið gegn Arsenal með mögnuðum sigri, 4-2, í loka- orrustu félaganna. Liverpool er þar með komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem það mætir Chelsea, sem vann Fenerbahce örugglega, 2-0. GLEÐI OG SORG Steven Gerrard og Fernando Torres skoruðu enn eina ferðina fyrir Liverpool. Leikmenn Arsenal voru svo eðlilega svekktir. Hér til hliðar fagna síðan Ballack og Kalou marki þess fyrrnefnda. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Það voru engir timbur- menn hjá leikmönnum Port- smouth í gær þegar þeir mættu West Ham skömmu eftir að hafa tryggt sér sæti í úrslitum enska bikarsins. Lokatölur 1-0 fyrir Portsmouth en það var Króatinn Niko Kranjcar sem skoraði eina mark leiksins um miðjan síðari hálfleik. West Ham náði aldrei að ógna Portsmouth eftir markið en leikurinn þótti í daufari kantin- um. Hermann Hreiðarsson var í byrjunarliði Portsmouth, spilaði allan leikinn og þótti standa sig vel. Talsverðar breytingar voru á liði Portsmouth sem byrjuðu án Kanu, Jermain Defoe og Milan Baros. - hbg Enska úrvalsdeildin: Portsmouth lagði West Ham MARKI FAGNAÐ Niko Kranjcar fagnar hér marki sínu í gær með félögum sínum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.