Tíminn - 25.10.1981, Page 20
20
Sunnudagur 25. október 1981
V 1
„Þú ert
aldrei fullnuma"
Tíminn spjallar við stjörnanda og aðalleikara Peking-óperunnar
Margt getum við íslendingar, eða öllu heldur
Vesturlandabúar, lært af framkomu og við-
móti Austurlandabúa. Þetta var það fyrsta
sem blaðamanni Timans datt i hug, þegar hann
hitti að máli þrjá aðalleikendur Peking-óper-
uflokksins frá Wuhan, sem nú sýna listir sinar i
Þjóðleikhúsinu. Stjórnandi flokksins og túlkur
aðstoðuðu blaðamann og listamenninga,
þannig að tjáningarsambandið væri með eðli-
legum hætti, eða með öðrum orðum, túlkuðu.
Það sem blaðamaður á við með lærdóminn
sem við getum dregið af Austurlandabúum, er
þetta einstaklega hlýja viðmót, umburðarlyndi
og brosmildi. Ekki svo að skilja að blaðamaður
fari i neinar grafgötur með það að i Austur-
löndum sem annars staðar þrifst óvild, óvin-
átta og hatur. En þetta hlýlega viðmót sem
mætir manni þegar rætt er við Austurlanda-
búa, Kinverja i þessu tilviki, yljar manni ó-
neitanlega um hjartarætur, og eftir hálftima
eða svo, er maður jafnvel farinn að brosa, án
þess að hafa til þess nokkurt „löglegt” tilefni, á
islenskan mælikvarða.
Þau sem blaðamaður hitti að máli eru þrir
aðalleikarar flokksins, en þau heita Liu Heng
bin, Wang Wan Lua og Zheng Dan. Stjórnandi
flokksins var einnig viðstaddur og nefnist hann
Zhou Xiao Xian.
,,Þú ert áldrei
fullnuma”
— Fyrsta spurningin sem
blaðamaöur beinir til listamann-
anna er hve löng þjáltun liggi aö
baki þvi að fullnema sig i list-
greininni. Eftir smáhandapat og
hlátur kemur svarið*.
„Þú ert aldrei fullnuma. Að
visu verður maður að nema i sex
ár i Peking — ðperuleikskólanum
áður en maöur fær inngöngu i
flokkinn, en eftir það er um stöð-
ugar æfingar að ræða. A meöan
að sýning fer fram, fer einnig
fram æfing og þess á milli einnig.
Við sem erum i flokknum byrjuð-
um eftir nám i áður nefndum
skóla, en auövitað urðum við ekki
strax aðalleikarar. Slikt kemur
aðeins með áralangri þjálfun og
geysilegri vinnu.”
Hér skýtur stjórnandinn þvi inn
i að börn á aldrinum 10 til 11 ára
séu tekin inn i skólann og hljóti
sina menntun þar i sex ár, áður en
þaufara að taka þátt i sýningum.
Segir hann að nú séu 200
nemendur i Peking-óperuleik-
skólanum.
„Sýnendurnir verða að
hafa hæfileika á öllum
fimm sviðunum”
— Ef ég bið ykkur að skýra i ör-
stuttu máli hvernig hlutverka-
skipting hjá ykkur er, hvert
verður þá svarið:
„bessi forna leiklistarmenning
okkarbyggist á fimm meginþátt-
um sem eru söngur, dans, akró-
bat, striðsleikir og framsögn. All-
ir sýnendurnir verða að hafa
hæfileika á öllum þessum sviðum
til þess að teljast gjaldgengir i
sýningarflokknum, en sérhver
þeirra hefur einnig sitt sérsvið.
Wang Wan Lua, hún er til dæmis
sérhæfð i söng og striðsleikjum,
Liu Heng bin er sterkastur sem
striðsmaður og söngmaður og
Zheng Dan er einkum i akróbat,
skylmingum og framsögn. 011 eru
þau þó fær á fleiri sviðum, en
fyrsta áhersla er lögð á áður-
greinda þætti i flutningi þeirra.”
„Fyrsta sinn i Evrópu”
— Sýnið þið mest i heimaborg
ykkar, eða ferðist þið einnig
mikið um?
„Peking-óperuflokkur okkar er
mjög stór, þannig að þegar farið
er i sýningarferðir, þá er flokkn-
um yfirleitt skipt i tvo sýningar-
flokka. Við ferðumst um Kina og
sýnum svona tvisvar til þrisvar á
ári, en hingað til höfum við ekki
fariðmikið út fyrir Kina. 1953 fór-
um við til Norður-Kóreu og
sýndum þar, 1957 fórum við til
Kambódeu, en þetta er okkar
fyrsta ferð til Evrópu.”
— 1 framhaldi af þvi finnst
blaðamanni ekki óeðlilegt að
spyrja hvað listamönnunum
finnist um Evrópu.
Wang Wan Lua er fyrst til að
svara og segir hún: „Mér hefur
virst sem Evrópulönd i mjög
mörgum tilvikum súe háþróuð
lönd. Menningin er gjörólik
okkar, en samt hægt að finna
margt sameiginlegt. Þó að við
höfum aðeins verið tvo daga á
Islandi, þá hefur það vakið sér-
staka athygli mina hversu mikið
af nýjum og glæsilegum bygging-
um þið eigiö og hversu gott skipu-
lag þjóöfélagsins virðist vera.”
Næstursvarar Liu Heng bin: „Ég
ætla ekki að gera Evrópulöndin
almennt að umtalsefni, en mig
langar til þess að minnast örlitiö
á Island. 1 gærkveldi eftir frum-
sýningu okkar i Þjóðleikhúsinu,
þá fögnuðu áhorfendur okkur meö
miklu lófataki, hlýju viðmóti og
vingjarnleika i langan tima.
Þetta snart okkur djúpt og mér
finnst þessar móttökur endur-
spegla þá virðingu sem þið
íslendingar virðist bera fyrir
okkar fornu menningu, auk þess
sem þær sýna fram á vináttu ykk-
ar i garð okkar Kinverja. Ég vil
taka það fram að við erum ykkur
mjög þakklát.”
Zhen Dan tekur upp þráðinn
þar sem Liu Heng bin hætti og
segir: „Þaðer rétt'aðfrumsýning
okkar i Þjóðleikhúsinu gekk mjög
vel, en það getum við aðeins
þakkað þeim geysilega góðu mót-
tökum sem við höfum fengið
hérna og þvi hversu vel hefur ver-
iö aö okkur búið. Þessi velvilji i
okkargarðhvetur okkur til dáða i
leiksviðinu og við erum einhuga
um að gera okkar besta fyrir
slika áhorfendur.”
„Náttúra lands ykkar
einstök”
—Listamennirnir virðast ekki
vilja annað ræða en Island, þegar
þeir eru komnir á bragðið og
stjórnandinn Zhou Ziao Xian
leggur næst orð i belg:
„Það sem ég hef séð af íslandi
finnst mér einkar tilkomumikið
og ég tel að náttúra lands ykkar
sé einstök. Það væri gaman að fá
tækifæri til þess að ferðast um
landiðykkar. Nú á eftir förum við
i skoðunarferð um Reykjavik og
nágrenni og ég get fullvissað þig
um að allir 49 þátttakendurnir i
þessari för ætla að fara i þá ferð
og biða spenntir.
Okkur þótti það afar tilkomu-
mikið þegar við komum hingað til
Reykjavikur að sjá litadýrðina á
húsunum ykkar, þvi slik litadýrð i
Kina sést aðeins á fornum höllum
og byggingum.
Aður en við fórum frá Kina, þá
var okkur sagt að hér á íslandi
rikti hámenning sem byggði á
fornum hefðum. Þrátt fyrir stutt-
an stans höfum við þegar fengið
að sannreyna þetta. Við höfum
einnig heyrt að þið væruð mesta
bókaþjóð i heimi og að næstum
sérhver Islendingur væri ljóð-
skáld. Þvi finnum við til mikils
menningarlegs skyldleika við
ykkur, þótt bakgrunnur og að-
stæður allar séu ólikar i löndun-
um okkar. Eins og þú veist þá
hefur Kina alið af sér mjög góð
ljóðskáld og ég er sannfærður um
að það hefur lsland einnig gert.”
—Blaðamaður finnur að við-
mælendur hans eru farnir að
ókyrrast örlitið, þótt þeir af eðlis-
lægri kurteisi séu jafn brosmildir
og endranær. Skýringin kemur i
ljós, þegarlitiðerút um gluggann
á Hótel Holti, en þar biður stór
rúta og fjöldinn allur af kinversku
listamönnunum biða hjá henni.
Slik er kurteisi Kinverjanna, að
blaðamanni dettur helst i hug að
þeir myndu ekkert við þvi segja
þótt hann hefði af þeim skoðunar-
ferðina, en hann flýtir sér að
fyrirbyggja allan misskilning og
segist þakka fyrir ánægjulegt
spjall. Við slika kveðju lyftist
brúnin enn á Kinverjunum og þeir
eru beinlinis brosandi út að eyr-
um þegar ljósmyndari og blaða-
maður kveðja, með það i huga að
viðmót Kinverjanna muni lifga
upp fremur drungalegan dag.
—AB
Liu Heng bin er sérhæfur á sviði
striösleikja og söngs.
Wang Wan Lua telur að Evrópu-
lönd séu I mörgum tilvikum há-
þróuð lönd.
Zheng Dan taldi islenska
áhorfendur einstakiega þakkláta
og góða áhorfendur.
Stjórnandinn Zhou Xiao Xian
segir náttúru okkar tslendinga
vera einstaka.
Timamyndir —Ella