Tíminn - 01.11.1981, Síða 22
Sunnudagur 1. nóvember 1981
■ Er Anwar el-Sadat, forseti
Egyptalands, haföi veriö myrtur
fyrir skömmu lögöu ráögjafar
Reagans Bandarikjaforseta,
mjög hart aö honum að fara ekki
til jarðarfararinnar af öryggis-
ástæöum. Reagan féllst á sjónar-
mið þeirra og ekki var heldur
taliö öruggt aö senda George
Bush, varaforseta. bá var komið
upp mikiö vandamál: Hvernig
mátti með sem viröulegustum
hætti votta hinum látna þjóðar-
leiötoga aðdáun og þakklæti
Bandarikjanna. Einhver fékk
hugmynd: Nixonog Carter, fyrr-
verandi forsetar höföu báöirlátið
iljósósk um aö fá aöfylgja Sadat
til grafar, og þvi ekki aö senda
þriöja fyrrverandi forsetann,
Ford, með þeim? Þrir fyrrver-
andi forsetar, það yröi sjón aö
sjá! Haft var samband við Ford,
hann samþykkti eins og skot, og
málið var leyst.
Það var reyndar mikið og erfitt
verk að velja boðsgesti i flugvél
forsetans, SAM 26000 (Ath. Air
Force One er notaö um hverjaþá
flugvél sem inniheldur forseta
Bandarikjanna, en oftast er i
raun um að ræöa SAM 26000). 1
þessari sömu flugvél, Boeing 707,
hafði Lyndon Johnson svarið em-
bættiseiö sinn, og lik John F.
Kennedys haföi veriö flutt i henni
frá Dallas til Washington. Nú
barst fjöldi óska um aö fá að vera
með og ein ósk sem taka varð til
greina kom frá smábænum
Plains i' Georgiu: frá Rosalynn
„Forsctarnlr högnðn sér vel”
— Nixon, Ford og Carter í sviðsljósinu við jarðarför Sadats
Carter. Ekki hafði verið ætlunin
að eiginkonur forsetanna þriggja
væru meö i förinni en Rosalynn
þótti svo til um Sadat að Carter-
hjónin kváöust fara til Kairó upp
á sitt eindæmi ef ekki fengist
plássfyrir Rosalynn i vélinni. Þvi
var eitt sæti frátekið fyrir hana.
Annað fyrir Sam Brown 14 ára
gutta frá þorpi i Suður-Karóli'nu,
en hann hafðiskrifaö Sadat hjart-
næmt bréf nokkru áður og hafði
egypski forsetinn sýnt þvi' mikla
athygli.
Sam Brovvn, 14 ára
Hinn opinberi leiðtogi sendi-
nefndar Bandarikjanna við
jarðarförina var utanrikisráö-
herrann Alexander Haig, svo
hann fékk „forseta-svituna” i vél-
inni. Mörgum þótti kaldhæðnis-
legt að tveimur klefum fyrir aftan
Haig var Henry Kissinger stað-
settur, en fyrir ekki mörgum
árum hafði Haig verið minni-
háttar aðstoðarmaður Kissingers
utanrikisráðherra. Skjótt skiptast
veður ilofti, sögðu menn og hristu
höfuðiö.
1 næsta klefa fyrir aftan Haig
var starfsl® þotunnar en siðan
voru forsetarnir þrír i sérstökum
klefa. 1 þeim klefa voru átta sæti
kringum tvö borð — við annað
boröið sátu Nixon og Fordhlið við
hlið og Kissinger og Caspar Wein-
berger, varnarmálaráöherra, á
móti þeim, en við hitt borðið sátu
Carter-hjónin og Ashraf Ghorbal,
sendiherra Egyptalands i
Washington, ásamt eiginkonu
sinni. 1 þeim sætum sem eftir
voru i flugvélinni voru diplómat-
ar, þingmenn og herforingjar —
og Sam Brown 14 ára.
Forsetarnir þrir hittust fyrst
siðla á fimmtudagskvöldi en þá
lentu þeiralliriWashington á ná-
kvæmlega sama tima. Þeir voru
siðan fluttir i þyrlu til Hvi'ta húss-
ins þar sem þeir áttu stuttar viö-
ræður viö Reagan forseta og
hlýddu á ræðu hans um Sadat.
„Einhver besta ræöa sem ég hef
nokkurn ti'ma heyrt”, sagði Ger-
ald.Ford, en ræðuna hafði Reagan
sjálfur sett saman úr gögnum
sem samstarfsmenn hans höfðu
undirbúið. Eftir ræðuhöldin var
forsetunum þremur smalaö út i
aöra þyrlu sem flytja skyldi þá til
Andrews-herflugvallarins. Það
rikti vandræöaleg þögn milli þre-
menninganna en sem þeir hófu
sig upp frá Hvita húsinu gerði
Richard Nixon tilraun til að
brjóta isinn: ,,Mér Ukaði alltaf
heldur vel að búa i þessu húsi.
Hvað fannst ykkur?” Andrúms-
loftið fór aðeins aö léttast.
ís handa Ford, vindlar
handa Nixon
A meðan þessu fór fram var
smiðshöggið rekið á undirbúning-
inn um borö i SAM 26000. Yfir-
brytinn, sem veriö hafði lengi i
starfi sinu, reyndi að gera öllum
forsetunum til hæfis. Hann mundi
að Ford hafði mikla ást á sér-
stakri tegund af is, pantaði
snimmendis mikið magn af þeirri
tegund—mundi lika að Nixon
reykti helst ekki aðra vindla en
Don Diego, þeim var komið fyrir
hjá borði hans. Til að fullkomna
þetta gróf hann upp gamla eld-
spýtnastokka með nöfnum forset-
anna og setti á borðin. t sætum
þeirra voru ýmsar skýrslur — um
jaröarförina og um hugsanlegar
afleiðingar morösins á Sadat.
Nú komu forsetarnir og aörir
boðsgestir á vettvangog þotan fór
i loftið.
Úr sætum sinum skimuðu
Charles Percy, öldungadeildar-
þingmaöur frá Illinois og Sol
Linowitz, fyrrum sendimaður
Carters i Miöausturlöndum,yfir á
borð forsetanna. Þeir tóku eftir
þvi' að kuldi virtist rikja milli
Fords og Carters, einnig milli
Nixons og Fords, en þeir virtust
staðráðnir i að njóta þessarar
ferðar. Allt i einu fór Carter úr
jakkanum, fór i peysu, Ford
sprangaði um á skyrtunni en
Nixon hélt kyrru fyrir i bláum
jakkafötum sinum. Ljósmyndar-
ar Hvíta hússins hóíu aö taka af
þeim myndir. Nixon reyndi aö
bregða á glens: „Þeir vilja ekki
láta mynda sig með mér1'. En
þeir reyndust ekkert hafa á móti
þvi. Teknar voru myndir af for-
setunum þremur i vinsamlegum
sam ræðum. Fulltrúadeilda rþing-
mennirnir Clement Zablocki og
William Broomfield komu og
báðu um eiginhandaráritanir
þeirra.
Nixon var um sig
Rosalynn fór vltt og breitt og
tók i hendurnar á öllum sem hún
þekkti. Nixon var sérlega kurteis
við hana en annars virtist hann
var um sig er hann gekk upp og
niðurganga flugvélarinnar. Hann
leit vandlega I kringum sig óg var
ekkert nema vinsamlegheitin ef
einhver tók augnaráði hans vel en
honum var umhugað um að
þröngva sérekkiuppá neinn. Bak
við varkárnina var hann samt
greinilega iessinu sinu. Hann var
kominn aftur i hringiðuna, inn að
miðdepli valdsins, og hann naut
þess sýnilega mjög. Sumir gest-
anna voru fullir fyrirlitningar á
gleöi hans, en aðrir reyndu að
vera skilningsri'kir. Hann hafði
sagt af sér með skömm — hinum
tveimur höföu kjósendur hafnað,
hver var munurinn? Og hvimáttu
þeir ekki gleöjast i nokkra
klukkutima? Þeir glöddust allir.
Fljótlega fóru þeir að kalla
hver annan Dick, Jerry og
Jimmy — i fyrsta sinn, sagði
Jimmy Carter. Nixon fékk sér
martini, kannski tvo, og át hnetur
látlaust. Ford fékk sér i pipu. Þeir
skiptust á sögum um Sadat og
sorg þeirra vegna morðsins var
sönn og einlæg. Siöan fóru þeir að
ræða sölu á AWACS-flugvélum til
Sádi-Arabiu. Allir reyndust fylgj-
andi sölunni og kváðu fast að.
Skyndilega birtist Alexander
Haig og dró Kissinger á eintal.
Hann haföi þá fengið skeyti frá
bandariska sendiráðinu i' Jidda,
Sádi-Arabiu, þar sem spurt var
hvort sendiráðið ætti að bjóða
Nixon til kvöldverðar. Guð minn
góður, spurði Haig, er Nixon að
fara til Sádi-Arabiu? Kissinger
féllst á að athuga málið en Nixon
yppti bara öxlum. Það væri ekki
vist, sagöi hann. Hann hafði
fengið heimboö til nokkurra landa
i Miðausturlöndum en var ekki
viss um hvort hann kæmist til
Sádi-Arabiu.
Gamlirefurinn
Tricky Dick
Það varð raunar fljótlega ljóst
hver var miðdepillinn i flugvél-
inni: Enginn annar en gamli ref-
urinn Richard Milhous Nixon.
Hinir tveir forsetarnir höföu sýni-
lega mikinn áhuga á honum, og
Carter gekk mjög illa að hemja
forvitni sína. Þeir töluðu lengi
saman, um Kina og um ýmsa af
toppunum i Washington. „Þar
hafa stór orð verið látin falla,”
sagði einhver með glott á vör.
Einnig ræddu þeir um sameig-
inleg áhugamál sin, til að mynda
bókasöfnin sem oft eru reist i
minningu fyrrverandi forseta.
Nixon og Ford höfðu þegar fengið
sin bókasöfn en bókasafn Carters
er enn órisið. Þeir töluðu um rit-
störf sin og um það hvernig væri
að vera fýrrverandi forseti. „Hel-
viti gott, ” var niðurstaðan. Eftir
þvi sem á leið varð hlýrra á milli
þeirra. Allir virtust jafnánægðir
með að vera i sviösljósinu á nýjan
leik.
Rœalynn Carter hvislaði aö
einhverjum að hún væri stein-
hissa á hvað Nixon sýndist vera
indæll maður. Henry Kissinger
lýsti því yfir að það væri mikil
synd aö Gerald Ford skyldi ekki
hafa veriö endurkjörinn. Sol
Linowitz þorði varla að láta eftir
sér að dotta, hann gæti misst af
einhverju.
Sumir gestanna ræddu um
hvort ekki væri æskilegt að for-
setarnirþrir kæmu saman svona
einu sinni i mánuöi, gengju jafn-
vel á fund Reagans og spjölluðu
fram á nótt. Þama undir þessum
sérstöku kringumstæöum gátu
þeirverið eöliiegir og hreinskiptir
hver við annan — er fluginu lyki
yrðu þeir aftur varir um sig.
,, Þið eruð s vei mér
beiniribaki”
Ford ræddi stjórnmál i Michi-
‘gan viö Broomfield. Nixœi ræddi
heimsmálin i viöu samhengi við
Charles Percy, öldungadeildar-
þingmann. Þeir ræddu um NATO
og voru sammála um að styrkja
þyrfti bandalagið, um Japan og
voru sammála um að styrkja
þyrfti varnir þar, og um Palest-
inuvandamálið og voru sammála
um að þaö skipti höfuðmáli i
lausn deilunnar fyrir botni Miö-
jarðarhafs. Allt i einu greip Nixon
hönd Percy og sýndi viðstöddum
hann: „Chuck Percy hefur alltaf
stutt forsetann.” Að visu virtist
hann vera búinn að gleyma hat-
römmum deilum þeirra i milli, en
Ford tók undir þetta. Kissinger
leið vel. Forsetarnir höguðu sér
vel og sögðu allir réttu hlutina,
hugsaði hann.
Þar kom að talið barst að ör-
yggisgæslu við jaröarförina. Einn
maður viðurkenndi að í fyrsta
sinn hefði fjölskylda hans lagst
gegn þvi að hann færi i opinbera
sendiför. Forsetarnir þrir höföu
allir fengið skotheld vesti en svo
var ekki um alla aðra. Daginn
sem jarðarförin fór fram klifraði
Charles Percy inn i bil þar sem
forsetarnir þrir sátu teinréttir
eins og mörgæsir. „Þið eruð svei
mér beinir i baki,” sagði hann
furðu lostinn. „Hvar er vestið
þitt?” spurði einhver hann. Allt i
einuuppgötvaðihann að hann var
varnarlaus fyrir kúlum tilræðis-
manna. „Leyfið mér að sitja fýrir
aftan ykkur,” sagði hann, skelf-
ingu lostinn.
Loksins nennti
einhver aðhlusta
En núerfarið of fljótt yfir sögu.
Eftir að SAM 26000 hafði millilent
á Spáni og tekið eldsneyti fór aö-
eins að þyngjast róðurinn i vin-
samlegum samskiptum forset-
anna. Við kvöldverð sem þeim
var haldinn iKairó voru þeir allir
heldur formlegir. Carter talaði
um persónulegt samband sitt við
Sadat, Ford talaði eins og hann
væri fulltrúi bandarisku þjóðar-
innar, en Nixon hélt langa ræðu
um þjónustuliðið sem bar fram
matinn. Við þennan kvöldverð
háttaðisvo til að Kissinger lenti i
sæti við hlið Sam Browns, strákl-
ings frá Suður-Karólinu og hann
varð æfur. „Ég fór nú eiginlega
ekki um 13 þúsund milur til að
tala við krakka, hversu ágætur
sem hann getur verið.” Kissinger
var svo litið bar á komið fyrir
annars staðar.
Við jarðarförina sjálfa var
margt stórmenna og forsetarnir
þrirvoru ekkilengur einir i sviðs-
ljósinu. Linowitzmisstijafnvægið
er hann reyndi að forðast að vera
ýtt á einn forsetanna og steig i
staðinn ofan á tærnar á Karli
Bretaprins. Og svona gekk þetta.
Er bandariska sendinefndin
kom saman að nýju eftir jarðar-
förina varNixon horfinn, farinn i
einkaferðalag um Arabalöndin.
Hinir tveir héldu blaðamanna-
fund þar sem þeir lýstu þvi að
Bandarikin yrðu fyrr eða sföar að
hef ja viðræöur við PLO um lausn
Palestinuvandamálsins. Þetta
olli reiði i Jerúsalem og undrun i
Washington. Forsetunum var
sama. Þeir nutu þess að einhver
nennti að hluta á þá. Aftur.
— ijbyggði á TIME.