Tíminn - 08.11.1981, Side 2
2
var
ogí
■ Ljós vikunnar skein við okkur
úr Helgarpóstinum i gærmorgun,
bjart og hiytt. Megum við kynna:
Jóhönnu Þórhallsdóttur og Sonju
Jónsdóttur.umsjónarmenn þeirr-
ar siöu sem ritstjórn Helgarpósts
kýs að kalla „Stuðarann”. Sá
mun ekki slst vera fyrir úlllnga.
Við prentum hér i heilu lagi svo-
nefnt „fræðsluhorn” Stuðarans i
gær:
Dularfulla smokkamálið
Eins og margoft trekk i trekk
og hvað eftir annaö hefur komið
fram á Stuðarasiðum Helgar-
póstsins (hm, hm) hefur óra
lengi, æ ofan i æ, og lon og don
verið lofaö að fjalla um getnaðar-
varnir. Við viljum allra auðmjúk-
legast vekja athygli lesenda á
þeirri hörmulegu staðreynd að
það eru a.m.k. þrjár vikur liðnar
frá þvi' við skiluðum skýrslu okk-
ar um smokkinn inn á ritst jómar-
skrifstofurHelgarpóstsins. Hvort
sem starfsmenn blaðsins (sem
eru jú i meirihluta karlmern)
hafa verið svo ófróöir um þetta
blessaöa þarfaþing að greinin
hafi stöðvast hjá þeim, ellegar
hjá prenturunum úti i Blaða-
prenti eða efni okkar verið i svo
miklu magni að hún hafi hrein-
lega ekki rúmast á sibunum er
okkur hulin ráðgáta. En hvaö um
það, loksins birtist greinarkorn-
ið.
(ATH. Þó fyrr heföi verið!
Helgar-Timinn)
,,Nú hefst fræðsluhorn Stuðar-
ans á kynningu á smokknum. Já,
smokkur það er alveg óþarfi að
roðna, þetta er þrælgóð getnaðar-
vörn, 95% örugg og auk þess mjög
góð vörn gegn kynsjúkdómum.
Þess vegna er smokkurinn ágæt-
ur i skyndisamböndum. Þetta er
eina getnaðarvörnin sem til er
fyrirkarlmenn. Smokkur er þunn
gúmmiverja, rúllað upp á stinnt
typpiö. Við samfarirnar lendir
sæðið I smokknum en eftir sáðfall
minnkar typpið og til þess að
koma i veg fyrir aö smokkurinn
renni út af þegar typpið er dregið
út úr leggöngunum er nauðsyn-
legt að halda við hringinn efst á
smokknum og ber hér að hafa
hröð handtök og örugg. E^f
smokkurinn er ekki settur nógu^
varlega á typpiö getur hann rifn- \
að og þvi' er best að fara varlega. \
Smokkurinn fæst I öllum apótek-
um og sumum almenningssalem- ,
um. Og þaö mega allir kaupa
hann, sama hvað þeir eru gamlir
eða ungir.
Smokkurinn er einmitt ágætur
fyrirungt fólk þvi að pillan getur
verið slæmfyrir ungar stelpur, en
smokkurinn hefur engar auka-
verkanir i för með sér. Sé hann
notaður á réttan hátt er hann góð
getnaöarvörn.
P.s. Sama smokkinn má bara
nota einu sinni!
framhald i næsta blaði.”
Við biðum yfir okkur spenntir
eftir framhaldinu. 1 millitlðinu
geta þærstöllur, Jóhanna og/eða
Sonja, sótt sér kerti á ritstjórn
Helgar-Timans.
Fyrirleshir í IVwrana
húsinu um Dalina
■ ERIK HOFREN minjavörður
og forstöðumaöur Falun minja-
safnsins i Dölunum i Sviþjóð held-
ur fyrirlestur þriðjudaginn 10.
nóv. kl.20:30 með litskyggnum og
talar um söfn I Dölunum og dala-
myndir (dalmalningar).
Dalirnir er það hérað 1 Sviþjóö,
þar sem fornar hefðir og siðir
hafa varöveist lengst og er mjög
áhugavert hvað þjóöhætti varöar.
Þar er að finna hinar viöfrægu
„dalmalningar”, dalamyndir/-
skreytingar en svo er nefnd al-
þýðulist sú, sem blómstraði I Döl-
unum á s.hl. 18. aldar og f.hl. 19.
aldar. Voru heilu herbergin prýdd
þessum myndum, sem voru ýmist
málaðar á dúk eöa pappír. Mynd-
irnar lýsa atburðum úr bibliunni
eða veraldlegum atvikum. Mjög
mikil litadýrð er gjaman i þess-
um myndum og mikið um blóma-
skrúð.
Falun minjasafnið, sem Erik
Hofrén veitir forstöðu, hefur á
síðustu árum orðið miðstöð fyrir
söfnin i léninu og þar er aö finna
heildarskrá yfir muni I þessum
söfnum, en söfnin I Dölunum hafa
haft forgöngu um endurskipu-
lagningu innan sænsku byggða-
sfnanna.
Erik Hofrén er ásamt Rune
Runbro ritstjóra, I heimsókn hér
á landi og ætla þeir að gera út-
varpsdagskrá um menningarlif
og söfn á Islandi. Þeir eru gestir
Arbæjarsafns.
Norræna húsið og Arbæjarsafn
standa sameiginlega að fyrir-
lestrinum.
Mánudagskvöld 9. nóv. kl.20:30
heldur Kammersveit Oslóar tón-
leika i Norræna húsinu, en sveitin
er hér á ferð á vegum Kammer-
sveitar Reykjavikur. Á efnisskrá
tónleikanna eru verk eftir Vagn
Holmboe, K.B. Blomdahl, Jón As-
geirsson (Sjöstrengjaljóð), Jean
Sibelius o.fl.
Finnski grafiklistamaöurinn
LISBET LUND er gestur Nor-
ræna hússins um þessar mundir
og sýnir grafik I anddyri hússins
7.-20. nóv. Sýningin veröur opin á
opnunartima hússins kl.9-19,
nema sunnud. 12-19. Aðgangur er
ókeypis.
Neistavika
Ú r dagskrá Neistaviku
■ Það sem veröur á dagskrá
NEISTA-viku (7.-13. nóv.) helg-
ina 7.-8. nóv.:
— Laugardagur 7. nóvember:
Hótel Borg kl.14.00 LIST BAR-
ATTUNNAR — BARATTA LIST-
ARINNAR
Fjallað um verkfallið 1970, Pétur
Hraunfjörð og fleiri aka saman og
flytja syrpu.
Upplestur og tónlistBaldvin Hall-
dórsson les úr Meistaranum og
Margréti eftir Bulgakov i þýð.
Ingibjargar Haraldsdóttur.
Einar Olafsson les úr eigin verk-
um.
Guðmundur Hallvarðsson og
Kristján Jónsson lesa þýðingu á
ljóöum eftir Bertolt Brecht
Kristján Jónsson les úr nýútkom-
inni bók sinni „Haustið er rautt”
Simon ívarsson leikur flamengo á
gitar.
Stella Hauksdóttir spilar og syng-
ur
Vilborg Dagbjartsdóttir les úr
nýrri bók
Þorgeir Þorgeirsson les úr eigin
verkum.
— Sunnudagur 8. nóvember:
Laugavegur 53 A (Fylkingarhús)
kl. 15.00
MYNDLISTARSÝNING opnuö
verður sölusýning á myndverkum
sem NEISTA hafa veriö gefin.
Sýningin verður opin til 15. nóv.
daglega kl.15.00-22.00 GEFEND-
UR verka: Alfreð Flóki, Arni Ing-
ólfsson, Guðrún Svava Svavars-
dóttir, Hringur Jóhannesson, Jón
Gunnar Arnason, ölafur Gisla-
son, Jónina Guönadóttir, Borg-
hildur óskarsdóttir, Völundur
Björnsson og Þorvaldur Skúla-
son.
Hljómplatan „Sóleyjarkvæöi”
með ljóði Jóhannesar úr Kötlum
v/tónlist Péturs Pálssonar veröur
til sölu á sýningunni. Plata þessi
hefur verið ófáanleg lengi en er til
i nokkrum eintökum.
OtWSTELLIb
Glæsilegt í formi - handverk í sérflokki
fágað í áferð
Nýja Öðustellið er glæsilega
yfirvegað í formi með silkimjúka
pastelgráa áferð og býður
upp á fjölbreyttustu möguleika
í upprööun.
Einfalt, beint á tréborðið, eða á
glæsilegt veisluborð með kertum
og blómaskreytingum.
— Öðusteltið, form og áferð,
fer allsstaðar vel.
Öðustellið er glerjaö meö
sterkustu steinefnum.
SENDUM MYNDALISTA
ÐABAKKA 9
85411 REYKJAVÍK.