Tíminn - 08.11.1981, Blaðsíða 6
6___________________
erlend fréttafrásögn
Sunnudagur 8. nóvember 1981
Rithöfundurinn sem
njósnaði fyrir brennivín
Frændur okkar Danir uröu
býsna uppveöraöir um daginn
þegar kom i 1 jós að hinn kunni rit-
höfundur,Arne Herlöv Petersen
hafi i tíu ár verið á mála hjá
sovésku leyniþjónustinni KGB
Var eitthvaö i uppsiglingu i ætt
við allar ofanafflettingarnar i
Bretlandi? Flestum þótti þó lik-
legra aö vesæll rithöfundur hafi
ekki haft mikinn aögang aö rík-
isleyndarmálum Dana og ypptu
öxlum. E n dagblöðin þar eru ekki
iefnishallæri þessa dagana. Arne
Herlöv Petersen mun hafa haft
samband viö ýmsa leyniþjónustu-
menn sem störfuðu viö sovéska
sendiráöiö undir ýmsu yfirskini.
Nú siöast mun hann hafa þegið
7000 krónur danskar fyrir þjön-
ustu sina og hljómtæki i þokka-
bót. Mestanpart mun hann þó
hafa þegiö laun sin i áfengi.
Lögreglan haföi haft Petersen
undir eftirliti i tvö ár. Hiin hefur
m.a. fylgst með fundum hans og
annars sendiráðsritara, Vladi-
mirs Merkulovs, sem nýverið var
visaö úr landi — siðasta árið
munu þeir hafa hist hvorki meira
né minna en 23 sinnum. Það er
fullyrt aö sambandið milli þeirra
hafi verið meira en vanalegir
vinafundir, þeir áttu m.a. fundi i
óbyggöum sem vart getur talist
eölilegt. Herlöv Petersen hringdi
aldrei i' Merkulov frá heimili sínu
á Langalandi, heldur úr simaklef-
um hér og þar og notaði þá ein-
hvers konar lykilorð.
Herferð að
frumkvæði
Merkulovs
Rannsóknarlögreglan er þeirr-
ar skoðunar að Petersen hafi gert
sér fulla grein fyrir þvi sem hann
hafði fyrir stafni — hann veitti
Rússum allar þær upplýsingar
sem var á hans færi að afla. I
málsgögnum er m.a. listi yfir
blaðamenn, sem Herlöv taldi að
gætu hjálpað Rússum um upplýs-
ingar um stjórnmálaástandið.
Herlöv var einnig formaður
Dansk-norður-kóreanska vinafé-
lagsins og er taliö að hann hafi að
undirlagi RUssanna gefið kóre-
önskum vinum sínum rangar
upplýsingar.
Loks telur lögreglan að hann
hafi aö frumkvæði Merkulovs
hrundiö af stað herferð fyrir
kjamorkuvopnalausum Norður-
löndum meðal listamanna, þar
skrifuðu m.a. undir plagg 150
þekktir listamenn — þar á meöal
Vita Andersen, Benny Anderáen,
Jacob Holdt, Klaus Rifbjerg,
Finn Söeborg, Dea Trier Mörch,
Dan Truell og — Arne Herlöv Pet-
ersen. Áskorunin birtist i dag-
blaðinu Information þann 30. mai
á þessu ári. Fyrir vikið á Peter-
sen að hafa þegið áðurtaldar
greiöslur auk mikils magns af á-
fengi. Það er þó ekki vist hvort
peningamir voru hugsaðir sem
laun handa Petersen eða hvort
þeirvom notaðir til að fjármagna
herferðina. t yfirheyrslum hefur
hann haldið þvi fram aöherferðin
hafi fengiö styrk úr sjóði nokkr-
um. Rússarnir hafi hvergi komið
þar nærri.
Þýddi
Kim II Sung
Arne Herlöv Petersen hefur
löngum verið mjög virkur á
vinstri kantidanskra stjórnmála.
Hann er einn af dugmestu þyð-
endum Dana, m.a. af rússnesku
og meðlimur i ýmsum vinafélög-
um. Hann er fæddur i Kaup-
mannahöfn 1943, sonur skrifstofu-
manns. Gdík menntabrautina og
lauk prófif sögu frá Kaupmanna-
hafnarháskóla. Hann vakti fyrst
verulega athygli á sér sem rithöf-
undur 1975 með bókinni „Imod
Fremtids Fjerna Mál” annars
hefur hann gefið út um 17 bækur
og skrifað fáein leikrit. Eitt
þeirra hefur m.a.s. verið leikið i
Konungiega leikhúsinu. Þó hefur
hann þénað mest á þýðingunum,
hann mun hafa snúið um 130 ame-
riskum bókum á dönsku og það
sem meira er —Petersen var út-
nefndur yfirþyðandi á verkum
Kim II Sungs, leiðtogans norður-
kóreanska. Hann hefur feröast
mjög viða, til Kina, Albaniu,
Norður-Kóreu, Kúbu, Kenýa og
Blikksmiðir
Okkur vantar vana blikksmiði strax.
Fæði og húsnæði á staðnum.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra
mánud. 9. nóv frá 8.00-17.00 simi 19877 og
92-1575.
íslenskir Aðalverktakar Keflavikurflug-
velli.
Byggingavörur
Timbur
• Flísar
• Hreinlætistæki
• Blöndunartæki
• Gólfdúkar
• Málningarvörur
• Verkfæri
• Baðteppi
• Baðhengi og mottur
• Harðviður
• Spónn
• Spónaplötur
• Viðarþiljur
• Einangrun
• Þakjárn
• Saumur
• Fittings
Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar
allt niður í
20%
útborgun og eftirstöðvar allt að
níu
mánuðum
Við höfum flutt okkur um set, að
Hringbraut 119,
aðkeyrsla frá Framnesvegi
eða inngangur úr Fatadeild JL-hússins
i • Opið fimmtudaga til kl. 20, föstudaga
til kl. 22 og laugardaga kl. 9 til 12
_ ATH.: Við opnum kl. 8 á morgnana '
— nema laugardaga kl. 9 —
I I byggingavörur
Ln Hrinnhrant 11Í) ---
Notkunarmöguleikar eru fjölþættin
m f QT’rAC/’ IM A (Hver segir að litsjónvarpstæki
^ 1 1 ^rUlT/Aþurfiendilega aðverastórt?)
• í SVEFNHERBERGIÐ
• í ONGUNGAHERBERGIÐ
• í SOMARBÓSTAÐINN
• í TJALDIÐ
AUGCVSlNGAÖTOFA KRISTINAR MF 60 J3
• í RÍI INN (Ten9'sr|úra fyrir
1 LMLll 11 1 vindlingakveikjara fyrirliggjandi)
• í BÁTINN
• Á HÓTELHERBERGIÐ
•ÁSJÚKRAHÚSIÐ
• Á VINNOSTAÐINN