Tíminn - 08.11.1981, Qupperneq 12
12
Sunnudagur 8. nóvember 1981
Fulltrúi
framkvæmdastjóra
Ein af aðaldeildum Sambandsins óskar
eftir að ráða fulltrúa framkvæmdastjóra.
Starfið felur i sér aðstoð við fram-
kvæmdastjóra við stjórnun fyrirtækisins
og að vera staðgengill hans. Viðskipti við
erlend fyrirtæki og utanferðir.
Leitað er að manni með haldgóða við-
skiptamenntun eða starfsreynslu á þessu
sviði. Hannþarf að vera góður i umgengni
og hafa stjórnunarhæfileika.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist starfs-
mannastjóra fyrir 20. þessa mánaðar, er
veitir nánari upplýsingar.
SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉIAG A
STARFSMANNAHALD
IMámskeið í
JÓLAFÖNDRI:
verður haldið i FELLAHELLI
3 næstu mánudaga og
3 næstu miðvikudaga
kl. 13.15—16
Kennslugjald kr. 160.-, efnisgjald verður
greitt sér.
Þátttakendur hafi með sér góð skæri og
nálar.
Þátttaka tilkynnist i simum: 12992 og
14106 fyrir kl. 12 mánudaginn 9. nóv., en
þann dag hefst annað námskeiðið.
Kennari: Asdis Sigurgestsdóttir.
Námsflokkar Reykjavikur.
Umboðsmenn Tímans
Vesturland________________
Staður: Nafn og heimili: Simi:
Akranes: Guömundur Björnsson, 93-1771
Jaöarsbraut 9,
Borgarnes: Unnur Bergsveinsdóttir,
Þórólfsgötu 12 93-7211
Rif: Snædis Kristinsdóttir, Háarifi 49
Ólafsvik: Stefán Jóhann Sigurösson,
Engihliö 8 93-6234
Grundarfjöröur: Jóhanna Gústafsdóttir, Fagurhólstúni 15,
Stykkishólmur: Esther Hansen,
Silfurgötu 17 93-8115
RITSKOÐUN
í ÚTVARPI
■ Um siöustu helgi birtist hér i
Helgar-Timanum viötal sem varð
býsna umdeilt, N.N. ræddi um
þaösemhann kallaöi „Litlu Ame-
rlku” sem sé spillingu og hugar-
farsmengun á Keflavikurflug-
velli. Þaö er I sjálfu sér ekki i frá-
sögur færandi. Hitt er svo annað
mál aö viö ætluöum okkur þá dul
aö auglýsa þetta efni i Utvarpinu,
eins og ti'tt er, en fengum ekki.
Auglýsingin var á bessa leið:
„Spilling og hugarfarsmengun á
Keflavikurfhigvelli” — rætt viö
verkmann á Vellinum”. Er við
hringdum á auglýsingastofu út-
varps siödegis á laugardag var
enginathugasemd gerövið þessa
auglýsingu,hins vegar var hringt
i ritstjóra Timans morjuninn eft-
ir og honum tilkynnt aö útvarps-
stjóri og Guömundur Jónsson,
framkvæmdastjóri útvarpsins,
heföu tekiö ákvöröun að þessi
auglýsing skyldi bönnuö. Bað Eli-
as þá útvarpsmenn vel aö lifa.
Þaö er svo sem engin ný bóla
fyrir blaöamenn aö auglýsinga-
stofa útvarpsins banni tilteknar
auglýsingar. Fjölmörg dæmi eru
til. Þetta er hins vegar i fyrsta
sinn sem Helgar-Timinn veröur
fyrir þessu svo viö fórum aö velta
þvi fyrir okkur hverju þetta sætti.
Þaö sem um er aö ræða er þetta:
Viö erum með viötal sem viö vilj-
um auglýsa. Tökum úr þvi
komment — „spilling og hugar-
farsmengun” — sem vel aö
merkja var einnig notað i fyrir-
sögn viötalsins i blaöinu, þannig
aö úr veröur bein tilvitnun. Svo er
þessu kippt út. Hvers vegna?
Það var heldur fáttum svör hjá
útvarpinu. Auglýsingastjórinn,
Þorbjörg Guömundsdóttir, sagöi
aö hún heföi lagt þessa auglýs-
ingu fyrir Guömund Jónsson
vegna þess aö hún heföi talið hana
„hlutsama” — hvað svo sem þaö
þýðir. Hún sagöi og aö svona mál
væru dálitiö erfiö vegna þess að i
raun væru fáar og smáar reglur
aö fara eftir, stundum þyrfti aö
byggjaá tilfinningueinni. Benti á
að þaö sem lesiö er i útvarp særir
fólk oft meira en þaö sem stendur
á prenti,hvort sem þaö er nú rétt.
En hdr var einungis um aö ræöa
tilvitnun 1 viötal, þetta var ekki
fullyröing blaösins, eins og ljóst
mátti vera af framhaldi auglýs-
ingarinnar.
Þá sagöi auglýsingastjórinn aö
eina reglan sem eftir væri farandi
væri i raun sú aö einungis mætti
auglýsa fyrirsagnir greina eöa
viötala. Þetta er bara ekki svo-
leiðis, eins og allir vita. Blööin
telja nauösynlegt aö semja aug-
lýsingar sem eru ekki beinar
fyrirsagnir og er þaö eölilegur
hlutur. Og oft hafa komið i út-
varpiö auglýsingar frá blööum
sem eiga li'tiö eöa ekkertskylt við
þaö efni sem er i blaöinu. Tökum
til aö mynda blaöiö hans Vil-
mundar, Nýtt land heitiö. Þaö
blaö auglýsti hvaö ofan I annaö
hluti sem voru ekkert annaö en
pólitisk kommentá menn og mál-
efni. Tökum nokkur dæmi:
27. ágúst síðastliöinn var eftir-
farandi auglýsing lesin upp i út-
varpiö: „Þjóöviljinn kallar rit-
stjóra Nýs lands vindbelgi, vegna
umf jöllunar þeirra um aukin lýð-
ræði i verkalýðshreyfingunni.
Verkafólk: ykkar svar er aö
kaupa Nýtt land”.
Skyldi þetta ekki vera ,,hlut-
samt”? Eða þá þessar hér:
„Nýtt land, vikublaö gegn rit-
skoöun, gegn flokksræöi”.
„I Breiöholtinu búa 27 þúsund
manns, við prentum i 20 þúsund
eintökum, dæmiö hlýtur að ganga
upp”??
,,Nýtt land auglýsir: Viö erum
andvigir Grænmetisverslun land-
búnaðarins. Viö viljum hollustu
og heilbrigöi. Nýtt land, viku-
blaö”.
„Viö lýsum stjóminni á Versl-
unarmannafélagi Reykjavikur”.
„Nýtt land lýsir baksviöi gos-
drykkja-styrjaldarinnar fyrir fá-
tæku fólki”.
,,Við segjum frá þvisem frétta-
stofa Rikisútvarpsins segir ekki
frá”.
„Hafa lögregla og fjölmiölar
gertalvarleg mistök? Nýtt land,
vikublaö”. Sisona. Þaö voru eng-
ar útskýringar meö þessu.
,,Viö viljum aö bændur greiöi
sjálfir fyrir sin búnaöarþing”.
„Stjórn blaöamannafélags Is-
lands ályktar gegn ritstjóra Nýs
lands. Svar ykkar er aö kaupa
Nýtt land”.
„Nú hefur útvarpsráö visaö á
bug „órökstuddum aödróttunum”
eins og þeir kalla þaö, ritstjóra
Nýs lands. Nýtt land fæst á flest-
um blaösölustöðum”.
Og einhver allra besta auglýs-
ingin var á þessa leið:
„Nýtt land auglýsir: lleiöara i
Timanum i' morgun, sem lesinn
var I Rikisútvarpinu, var ritstjóri
Nýs lands kallaður apaköttur.
Umræðan verður sifellt málefna-
legri. Nýtt land fæst á flestum
blaösölustööum. Nýtt land, viku-
blað”.
Hvers vegna fá svona auglýs-
ingar aö fara I gegn en ekki sú
sem viö vildum? Auglýsingastjóri
útvarpsins upplýsti að auglýsing-
ar frá Nýju lami heföu sifellt ver-
iö til vandræöa og þvi heföi sér-
stök nefnd manna séð um aö fara
yfir þær. Og siöustu tvær auglýs-
inearnar sem birtar voru hér aö
ofan voru lesnar með sérstöku
leyfi Guömundar Jónssonar,
framkvæmdastjóra. Hvaö er þá
athugavert við „Spilling og hug-
arfarsmengun á Keflavikurflug-
velli” — rætt við verkamann á
Vellinum.
Það má nefna fleiri dæmi af
skrýtnum vinnubrögöum ritskoð-
unar útvarpsins. Helgarpósturinn
hefur oft lent i þessu og marg-
sinnis veriö bannaðar auglýsing-
ar frá honum. Árni Þórarinsson
ritstjóri Helgarpóstsins, sagöi til
aö byrja meðhefði „Yfirheyrsla”
blaösins fariö mjög fyrir brjóstið
á auglýsingadeild útvarpsins en
siðan heföi þaö jafnað sig þannig
aö auglýsa mátti til aö mynda:
„Guömundur J. i' yfirheyrslu.
Helgarpósturinn” en hinsvegar
heföi önnur auglýsing sama eölis
— „Biskup tslands i Yfirheyrslu.
Helgarpósturinn” — verið bönn-
uð. Þá heföi „mjög saklaust slag-
orö” blaösins veriö bannaö i út-
varpinu: „Skyggnst bak viö
framhliö Islensks þjóöfélags”.
Þetta slagorö fékkst hins vegar
athugasemdalaust birt i' sjón-
varpinu, þegar farið var fram á
þaö.
Þá sagöi Arni Þórarinsson:
„Þessi ritskoöun er auðvitaö fár-
ánleg, sérstaklega i ljósi þess aö
um er aö ræöa auglýsingar sem
borgaö erfyrir. Aö minu mati ætti
blöðunum,semogöðrum, aö vera
leyfilegt aö auglýsa hvaö sem er
hvernigsem er —innan almennra
marka. Viö mundum til dæmis
aldrei láta okkur detta i hug að
auglýsa i útvarpinu: „Helgar-
pósturinn er bestur. Hin blööin
eru skitur”. En aö ekki megi
segbja að Uskup Islands sé i yfir-
heyrslu þegar þaö er bláköld
staðreynd, það er fáránlegt.
Þaö er aldrei hægt að gera sér
grein fyrir þvi fyrirfram hvaö
mun fara i taugarnar á auglýs-
ingadeildinni. Reglur eru engar,
þarna ræöur hentistefna ein-
stakra manna”.
Laukrétt hjá Arna! Væri út-
varpinu sæmandi að leggja
snimmendis niöur ritskoöunartil-
buröi sina eöa semja aö minnsta
kosti gallharöar reglur til að fara
eftir.
— >j-
IUugi Jökulsson,
blaðamaður, skrifar