Tíminn - 08.11.1981, Síða 28
Sunnudagur 8. nóvember 1981
BÆNDUR - SUMARBÚ STAÐAEIGENDUR
FOSS —ROTÞHÆR
Nú er rétti tíminn til að notfæra sér
auðvelda lausn á skólpvandamálinu.
• 777^777^%..
FOSS — ROTPRÆR
eru úr trefjaplasti
og því níðsterkar.
FOSS — ROTMIÆR
þola mikinn þrýsting
og hafa langa endingu
FOSS — ROTPRÆR
eru tilbúnar til notkunar,
léttar í meðförum og
auðvelt að setja þær niður
FOSS — ROTÞRÆRNAR
eru framleiddar i mörgum
stærðum, sem henta sumar-
bústöðum, bændabýlum og stærri sambýlum.
^SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
i i r\ i i r-> i a im r\ n r~> a i í t oo r» i n /i i ooaoo
SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033
Aldrei meira úrval af leikföngum og gjafavörum
Heildsölubirgðir
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Sími 33560
Brúðuhúsgögn
Þessi einstaklega fallegu
brúðuhúsgögn eru öll handunnin
úr harðviði og á ótrúlega góðu verði
Smásöluverð:
No 1 kr.95.-
” 2 ” 93.-
” 3” 165.-
” 4” 165.-
No. 5 kr.42.-
” 6” 47.-
” 7” 50,-
” 8” 110.-
framhaldssagan
Votar varir
eftir Brján Brjánsson
Sögulok
Ekki veit ég hvað þú segir við þeim ósköpum sem ég ætla nú
að segja þér. Gamanið er rétt að byrja. Ég er örlítið búinn að
komast ifæri við varirnar votu, og þaðsem meira er: snertingu!
Og nú vil ég helst ekki segja þér meira.
Égveitaðþettaerhinfyrirlitlegasta framkoma aðhætta, þeg-
ar gamanið er rétt að byrja, en mér til afsökunar hef ég það að
þegar ég byrjaði á þessu volæði minu, þá vakti það eitt fyrir mér
að ná fram hefndum á þvi sem þá var i minum augum stúlku-
kind. En eins og þú ef til vill gerir þér grein fyrir, þá hefur sam-
band mitt við stúlku þá sem votu varirnar tilheyra, þróast úr þvi
að vera kuldalegt og yfirborðslegt i það að vera bæði innilegt og
vingjarnlegt. Mér er þaðþvi hreint ekkert kappsmál nú i dag, að
vera að bera þetta samband á torg, þvi ef framavonir minar eiga
eftir aðrætast, þá á sambandiðeftir að verða ástrikt.
Litt er ég hrifinn af þvi að liggja undir. ámæli þinu og vera
nefndur gunga, bleyða og svikari. Þvi ætla ég að friðmælast við
þig á þann hátt, að ég ætla að segja þér frá bióferð okkar Ornu á
mánudagskvöldið, en siðan ekki söguna meir. Er þetta sam-
þykkt?
Ég man litið um hvað myndin fjallaði og með öllu er mér fyrir-
munað að muna titil myndarinnar. En samt sem áður er þetta
ein ánægjulegasta bióferð sem ég hef farið. Ég sótti Ornu heim,
þorði ekki inn, en beiö fyrir utan og út kom hún stormandi,stór-
glæsilegað vanda. Umræðuefniðá leið i bió var heldur rýrt, enda
var eins og hálfgerð feimni hrjáði okkur bæði. begar við hins
vegar vorum sest niður i bióinu og búið að slökkva ljósin, var
eins og þægilegheitanna ró færðist yfir okkur bæði. Ég þori nú
ekkert að fullyrða með örnu, en hvað mig varðar þá var þetta
staðreynd.
Ég sat og lét hugann liða og þakkaði minum sæla fyrir að ég
sæti þarna i rökkrinu við hlið draumadisar minnar. Hugleiddi ég
hvort um framhald á þessu sambandi okkar gæti orðiö að ræða
og þá á hvaða hátt. Við rákum olnbogana saman þegar við
ætluðum bæði að láta armana hvila á sama stólarminum,
kipptum bæði að okkur höndum, flissuðum siðan eins og smá-
krakkar og færðum armana aftur saman. Þessum „handalög-
málum” lyktaðiá þann hátt að litill og mjúkur lófi örnu endaði 1
krumlu minni. Hvort okkar átti heiðurinn að frumkvæðinu veit
ég ekki, en bæði virtust jafn ánægð með lyktirnar. Um mig fór
hálfgerður sæluhrollur og ég þrýsti hönd Ornu öðruhverju bara
til þess að fullvissa mig nú um að þetta væri raunverulega litill
kvenmannslófi sem ég hélt utan um.
Varð ég nú nokkuð óþreyjufullur að kvikmyndin rynni sitt
skeið á enda, þvi nú fannst mér vera meira um vert að við Arna
fengjum að ræða betur saman og auövitað óskaði ég þess lika að
við fengjum að komast í nánari snertingu en við vorum i þarna.
Mest af öllu hugleiddi ég þó hvort ég fengi tækifæri þetta kvöld til
þess að snerta varirnar votu með minum eigin. Ég þraukaði nú
, samt þangað til syningunni var lokið og ég held meira aö segja
að mér hafi tekist að hlæja á viðeigandi stöðum, en ekki er ég þó
viss i minni sök.
Þegar við komum aftur út i bil, upphófst sama vandræða-
feimnisástandið og ég spurði hvort við ættum ekki að fá okkur
smábiltúr, hvað hlaut náð fyrir örnu augum. Fyrst ókum við
gegnum miðbæinn, og á leiðinni liðkaðist heldur um málbein
okkar, þannig að við vorum orðin sæmilega óþvinguö þegar ég
tók stefnuna á Seltjarnarnesið.
Arna hefur sjálsagt fundið á sér hvaða stefnu hugur minn hafði
tekið, þvi hún fór að segja mér grinsögur af kunningjum, sem
hefðu verið i hinurp ósiðlegustu ástarleikjum úti undir berum
himni á golfvellinum á Seltjarnarnesi eina fagra vornótt, þegar
póliti staðarins kom að þeim, þeim og sjálfum sér til hinnar
mestu skelfingar. Stúlkan hafði nefnilega verið dóttir pólitisins!
Ég hló auðvitað heilmikið og lét eins og ég skildi alls ekkert
hvers konar aðvörun lá i orðum örnu, heldur hélt minu striki og
ók framhjá golfvallarafleggjaranum og lengst vestur á nesið.
Þar lagði ég bllnum og sagði, „við erum hérna á röngum árs-
tima, þvi sólarlagið á vorin er alveg stórkostlegt héðan”. Þá var
það sem blessunin hún Arna min kom mér enn einu sinni á óvart,
þvl hún snéri sér hálfpartinn að mér, vætti varirnar freistandi
með tungunni og brosti sinu bliðasta til min. Boðið gat ekki aug-
ljósara verið svo ég tók i mig rögg, færði mig nær henni, tók utan
um hana og... og... já, hvort sem þú trúir þvi eða ekki, og kyssti
hana beint á varirnar votu! Það eina sem komst aö i huga mln-
umvar: „Loksins! Loksins!” Draumurinn minn langþráöi hafði
ræst og raunveruleikinn I kossinum var sist eftirbátur þess sem
éghafði gert mér i hugarlund að umræddur koss yrði, þegar og
ef aö honum kæmi. Þessar hugsanir flugu i gegn um kollinn á
mér, þannig að ég gleymdi mér algjörlega, og varð mér því
meiraen litiðum, þegar Arna ýtti mér fremur harkalega frá sér
og greip andann á lofti. Brosti hún siöan sinu bliðasta á nýjan
leik og sagði á ótrúlega eðlilegan hátt: „Ég hef ekkert út á koss-
inn að setja. Ég naut hans til hins ýtrasta eins og þú, en þú
klemmdir bara á mér nefiö með vanganum, þannig að ég var
orðinmeðöllu súrefnislaus! ” Þetta var nú einum of mikið af þvi
góða og jarðsetti alla rómantik snarlega en bæði tvö hlógum við
eins og vitlausir menn að þessu „drama okkar”.
Akváðum siðan að við ættum eftir að reyna þetta aftur og kom-
umst meira að segja að þeirri niðurstöðu að viö yrðum aö gera
tilraunir á fleiri sviðum, en þér ætla ég ekki að segja frá þeim.