Fréttablaðið - 19.05.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500019. maí 2008 — 134. tölublað — 8. árgangur
HAFSTEINN JÚLÍUSSON
Hefur gaman af því að
brjóta umhverfið upp
heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Vöruhönnuðurinn Hafsteinn Júlíusson á skemmtilegan ísskáp sem er þakinn myndum af
vinum og vandamönnum.
„Þetta er líkl
Hafsteinn og sambýliskona hans gerðu íbúðina
sína upp með það fyrir augum að finna ódý
skemmtilegar lausni
Matur og minningar
Hafsteinn gerir ýmsar tilraunir á heimili sínu og málaði eldhúsvegginn og eldavélina í eiturgrænum lit.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GARÐVERKIN KALLANú er rétti tíminn til að taka til hendinni í garðinum.HEIMILI 2
FALLEGAR Á BORÐIÐSumarlegar vatnskönnur geta verið til mikillar prýði á matarborðinu og ekki er verra að lauma litríkum ávöxtum í vatnið.
HEIMILI 3
Mex - byggingavörurSími 567 1300 og 848 3215www.byggingavorur.comVönduð vara og hagstætt verð.....
STIGAR
Ryðfrítt
Stál
Gler
Tré
Einnig: Innihurðir, Harmonikkuhurðir Fullningahurðir, Útihurðir, GereftiGólflistar og margt fleiraAllar mögulegar gerðir og stærðirsmíðað eftir óskum hvers og eins
„...fyrst á visir.is“
FASTEIGNIR
Vel staðsett verslunar-
og lagerhúsnæði
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
19. MAÍ 2008
Fasteignasalan Stóreign hefur til sölu vel stað-
sett verslunar- og lagerhúsnæði.
Hú
að framan sem gefa mikl
Stórir sýningargluggar
Stórir gluggar á framhlið gefa mikla möguleika.
Klapparhlíð – 3ja herb.
Flott 87,5 m2 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýli við Klapparhlíð 11.
Íbúðin er mjög rúmgóð og björt með fallegum mahóní innréttingum í eldhúsi, baði
og svefnherbergjum. Góð tæki í eldhúsi og stór stofa. Baðkar m/sturtuaðstöðu og
sér geymsla í íbúð. Íbúðin er laus til afhendingar strax.
Verð kr. 25,9 m.
Fr
um
Klapparhlíð - 97 fm íbúð
Vorum að fá í sölu 97 m2 endaíbúð á 2. hæð nýlegu 3ja hæða fjölbýli við Klappar-
hlíð 24 í Mosfellsbæ. Þetta er mjög falleg endaíbúð með eikarparketi og mahóní
innréttingum. Flísalagt baðherbergi m/sturtu og sér þvottahús. Flottur staður,
mjög stutt í World Class, Lágafellslaug, Lágafellsskóla og leikskólann Hulduberg.
Verð kr. 26,5 m.
Klapparhlíð – 4-5 herb.
Þetta er 112,6 m2 endaíbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýli með opnum stigagangi við
Klapparhlíð 30 í Mosfellsbæ. Íbúðin er teiknuð sem 5 he b
herbergja, hægt að breyta aftur Þrjú ú
„Merbau“ pa k
fasteignir
Einstakt örlæti
Málmfríður Jóhannsdóttir ánafnaði
Blindrabókasafni Íslands allar eigur
sínar.
TÍMAMÓT 20
HÍBÝLI
Indíánafjaðrir og
framúrstefnuleg form
Sérblað um híbýli og stofur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
híbýli − stofaMÁNUDAGUR 19. MAÍ 2008 Pierre Paulinhefur hannað í sextíu árBLS. 12
Listhúsinu LaugardalReykjavík
Sími: 581 2233
Dalsbraut 1
Akureyri
Sími 461 1150
Eftir að ég fékk mér IQ-CARE hef ég ekki fundið til í bakinu!
Sölvi Fannar ViðarssonFramkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar
Ég mæli hiklaust með
6 mán.
vaxtalausar raðgr.
Íslendingar í
Cannes
Laufey Guðjónsdóttir
og fleiri Íslendingar
láta til sín taka á
kvikmyndahátíðinni
í Cannes.
FÓLK 25
Allt á fullu í
Hollywood
Atli Örvarsson er
önnum kafinn við
að semja tónlist við
stórmyndir.
FÓLK 30
Milt um allt land og áframhald-
andi súld eða úrkomuloft norðan-
lands. Þurrt sunnan til en einhverjar
líkur á síðdegisskúrum. Hiti 7-13 stig
yfir hádaginn.
VEÐUR 4
7
9
88
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
MÁNUDAGUR
SJÁVARÚTVEGSMÁL Íslenskar fisk-
vinnslur fá tækifæri til að bjóða
í allan afla íslenskra fiskiskipa,
verði nýtt frumvarp sjávarút-
vegsráðherra að lögum. Heimildir
Fréttablaðsins herma að frumvarp-
ið sé tilbúið og verði kynnt í þing-
flokkum stjórnarflokkanna í dag.
Frumvarpinu er ætlað að greiða
fyrir aðgengi íslenskra fiskkaup-
enda að hinum svokallaða gáma-
fiski. Það er unnið upp úr tillögum
nefndar sem skipuð var samhliða
því að svonefnt útflutningsálag var
afnumið nýverið.
Ekki náðist í Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra vegna
málsins í gær. - bj
Nýtt frumvarp í þingflokka:
Fiskvinnslur fái
að bjóða í afla
FISKAFLI Nýju frumvarpi er ætlað að
greiða fyrir aðgengi fiskkaupenda að
gámafiski. FRÉTTABLAÐIÐ/GVAHEILBRIGÐISMÁL Rúmlega 300 börn
eru á biðlista eftir því að komast
að hjá talmeinafræðingum.
Þóra Másdóttir, talmeinafræð-
ingur og verkefnisstjóri Heyrnar-
og talmeinastöðvar, telur fullvíst
að sá fjöldi væri enn meiri ef
samningar væru á milli Heyrnar-
og talmeinastöðvar og Trygginga-
stofnunar.
„Samningsleysið veldur því að
erfiðara er fyrir foreldra að fá
endurgreiðslu og því tel ég að
margir foreldrar telji sig í raun
ekki hafa efni á því að leita til tal-
meinafræðings,“ segir Þóra sem
telur því að um mjög falið vanda-
mál sé að ræða.
Eyrún Ísfold Gísladóttir, tal-
meinafræðingur hjá Talþjálfun
Reykjavíkur, segir biðtímann mis-
jafnan eftir sveitarfélögum, en á
hennar vinnustað hafi fólk jafnvel
þurft að bíða í á annað ár eftir að
fá þjónustu. Þar sé þó unnið að því
að fólk þurfi sjaldnast að bíða
lengur en í um hálft ár.
Andrés Ævar Grétarsson, faðir
drengs á fimmta ári sem fæddist
hvort tveggja með skarð í vör og
klofinn góm og þarf því á talþjálf-
un að halda, segir fjölskylduna
svo langþreytta á ástandinu í þess-
um málum að þau hafi íhugað að
flytja til Danmerkur til að tryggja
að drengurinn þeirra fái þá aðstoð
sem hann þarf á að halda.
Björn Zoëga, forstjóri Landspít-
alans, segir að fyrir skömmu hafi
verið gengið frá samningum um
bætta þjónustu við börn sem fæð-
ast með klofinn góm og/eða skarð í
vör. Nú vinni spítalinn að því að
koma upp tannlæknaþjónustu
fyrir þessi börn á spítalanum sér-
staklega svo hægt sé að koma til
móts við foreldra vegna endur-
greiðslna á tannlæknaþjónust-
unni. Mjög ólík verðskrá er meðal
tannlækna og samræmist hún
sjaldnast viðmiðunarskrá Trygg-
ingastofnunar.
Björn segir að enn sem komið er
hafi ekki verið rætt um hvort
Landspítalinn komi til með að hafa
umsjón með talþjálfun barnanna,
þótt sé það ekki útilokað. - kdk
Rúmlega 300 börn á
biðlista eftir talþjálfun
Faðir drengs sem þarf talþjálfun segist svo þreyttur á seinagangi í kerfinu að fjöl-
skyldan íhugi að flytja úr landi. Sum börn þurfa að bíða á annað ár eftir þjónustu.
Kvaddir með stæl
Guðjón Valur Sigurðs-
son og Sverre Jakobs-
son voru kvaddir af
stuðningsmönnum
Gummersbach um
helgina þar sem
Sverre fékk
óvænta gjöf í
kveðjuskyni.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
FLUG „Mótorinn var orðinn gamall og lúinn. Við
ákváðum að skipta um hann núna svo vélin yrði í
góðu formi á flugsýningunni á laugardaginn,“ segir
Páll Indriði Pálsson. Hann var í óða önn að gera við
rússneska flugvél ásamt félögum sínum þegar
ljósmyndari Fréttablaðsins kíkti við í Fluggörðum á
Reykjavíkurflugvelli í gær.
Hinn árlegi flugdagur verður haldinn næstkom-
andi laugardag og af því tilefni stendur Flugmála-
félag Íslands fyrir viðburðum alla vikuna. Opið hús í
Fluggörðum í gær var fyrsti liðurinn í þeirri dagskrá
og Páll segir að margir hafi kíkt við.
„Það var þónokkur traffík og fólki fannst gaman að
sjá að við vorum að vinna í vélinni. Þetta er rússnesk
YAK 52 vél sem er sérstök að því leyti að sovéski
flugherinn notaði hana til að æfa flugmennina sína.
Hún hefur listflugeiginleika sem við nýtum okkur og
hér er hún meðal annars notuð sem kennsluvél í
listflugi,“ segir Páll sem á vélina í félagi með sautján
öðrum flugköppum í flugklúbbnum Jökum. - þo
Flugmálafélag Íslands stendur fyrir viðburðum tengdum flugi alla vikuna:
Skipt um mótor í YAK 52
SKIPT UM MÓTOR Félagarnir Hjalti Grétarsson, Einar Rafnsson og Páll Indriði Pálsson skipta um mótor í rússneskri flugvél.
Vélin ætti að vera komin í lag fyrir flugsýninguna á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍRAK, AP Bandarískur hermaður
hefur verið sendur heim frá Írak,
fyrir að nota eintak af Kóraninum
sem skotmark á æfingasvæði, að
sögn yfirmanna bandaríska
hersins. Hann má búast við
refsingu.
Bandarískur herforingi kyssti í
gær nýtt eintak af Kóraninum áður
en hann afhenti það leiðtogum
súnní-múslima á svæðinu til að
reyna að koma í veg fyrir að
atvikið skaðaði samskipti hersins
við mikilvæga bandamenn.
Íraskir lögreglumenn fundu
bókina, sem hermaðurinn skaut alls
fjórtán sinnum. Hann hafði að
auki krotað í bókina. - bj
Hermaður í Írak sendur heim:
Með Kóraninn
sem skotskífu