Fréttablaðið - 19.05.2008, Síða 2
2 19. maí 2008 MÁNUDAGUR
Viðskiptavinir í Stofni fá fjölbreytt úrval
af hjólahjálmum á 30% afslætti í Markinu,
Ármúla 40, 108 Reykjavík.
ENN EINN KOSTUR ÞESS AÐ VERA Í STOFNI
30% AFSLÁTTUR AF HJÁLMUM
Allir undir 15 ára aldri eru skyldugir til að vera með
hjálm á hjóli, hlaupahjóli, hjólabretti eða línuskautum
og skiptir öllu máli a› velja réttan hjálm.
EGYPTALAND, AP George W. Bush,
Bandaríkjaforseti, hefur hvatt
leiðtoga arabaþjóða til að hætta
stuðningi sínum við hryðjuverka-
menn og veita í
staðinn borgur-
um sínum aukið
frelsi.
„Í Mið-
Austurlöndum
gerist það alltof
oft að einn
leiðtogi stjórnar
öllu á meðan
stjórnarandstað-
an situr í
fangelsi,“ sagði
Bush á heims-
ráðstefnu um
efnahagsmál sem fór fram í
Egyptalandi. „Það er kominn tími
til að þjóðir fyrir botni Miðjarðar-
hafs hætti þessum stjórnarháttum
og komi fram við fólk af þeirri
virðingu sem það á skilið.“ Bush
lauk í gær fimm daga ferðalagi
sínu um Egyptaland, Ísrael og
Sádi-Arabíu. Þetta var önnur ferð
forsetans um Mið-Austurlönd á
árinu. - fb
Bush í Mið-Austurlöndum:
Vill aukið frelsi
fyrir borgara
GEORGE W. BUSH
BÚRMA, AP Smitsjúkdómar hafa
enn ekki breiðst út í Búrma eftir
fellibylinn sem gekk yfir landið
fyrir tveimur vikum.
Alþjóðlegar heilbrigðisstofn-
anir hafa óttast mjög útbreiðslu
sjúkdóma á borð við kóleru
og mislinga á svæðinu eins og
algengt er við slíkar náttúruham-
farir. Stofnanirnar hafa lagt á það
áherslu að matarsendingar, hreint
drykkjarvatn og sjúkravörur
þurfi að halda áfram að berast ef
ekki á illa að fara. „Ef neyðarað-
stoðin við landið eykst ekki fljótt
er mikil hætta á að smitsjúkdóm-
ar breiðist út, sem myndi gera
ástandið mun verra en það er í
dag,“ sagði Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna. Yfir 78 þúsund manns hafa
fundist látnir eftir fellibylinn og
56 þúsunda er enn saknað. - fb
Ban Ki-moon um Búrma:
Brýnt að auka
neyðaraðstoð
MEÐ HJÁLPARGÖGN Hermenn frá
Búrma afferma flutningavél frá Taílandi.
LÖGREGLUFRÉTTIR Fíkniefnahund-
ur lögreglunnar á Selfossi var
heldur betur fundvís í gærmorg-
un þegar hann fann fíkniefni sem
falin höfðu verið í innréttingu
bifreiðar.
Ökumaður bifreiðarinnar var
stöðvaður um klukkan hálf níu
um morguninn grunaður um að
aka undir áhrifum fíkniefna. Var
hann færður ásamt bíl sínum á
lögreglustöð.
Þar fékk fíkniefnahundurinn að
spreyta sig og þefaði strax uppi tíu
grömm af ætluðu amfetamíni og
tvö grömm af kókaíni sem hafði
verið haganlega komið fyrir inni í
innréttingu bifreiðarinnar. - þo
Ungur ökumaður stöðvaður:
Faldi fíkniefni í
innréttingu bíls
LÖGREGLUFRÉTTIR Tveir karlmenn
á þrítugsaldri voru fluttir meðvit-
undarlausir á sjúkrahús eftir að
þeir hnigu niður á skemmtistað í
miðborginni í fyrrinótt.
Að sögn lögreglu kviknaði strax
sá grunur að þeir hefðu tekið inn
einhvers konar ólyfjan og voru
þeir fluttir beina leið á gjörgæslu
þar sem þeir fengu viðeigandi með-
ferð. Mennirnir voru útskrifaðir
af gjörgæsludeild í gærmorgun og
eru að sögn læknis á batavegi.
Ekki er vitað með vissu hvað það
var sem mennirnir innbyrtu en svo
virðist sem um fleiri en eitt efni
hafi verið að ræða. - þo
Tveir menn hnigu niður á bar:
Á gjörgæslu eft-
ir lyfjanotkun
STJÓRNMÁL Heildareftirlauna-
greiðslur til 164 fyrrverandi ráð-
herra og þingmanna námu um 250
milljónum króna í fyrra að því er
fram kemur í svari Þóreyjar Þórð-
ardóttur hjá Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins (LSR), við fyrir-
spurn Fréttablaðsins.
Samtals voru greiddar út rúm-
lega 49 milljónir til 35 ráðherra í
fyrra en rúmlega 200 milljónir til
129 fyrrverandi þingmanna. „LSR
hefur ekki upplýsingar um hverjir
þiggi eftirlaun og fái jafnframt
önnur laun,“ segir jafnframt í
svari Þóreyjar.
Samtals fá sex fyrrverandi ráð-
herrar greidd eftirlaun og greiða
jafnframt enn í LSR. Níu fyrrver-
andi þingmenn fá greidd eftirlaun
og greiða jafnframt til LSR.
Heildareftirlaunagreiðsla til
þingmanna og ráðherra árið 2004
var um 195 milljónir króna, árið
2005 219 milljónir, árið 2006 var
hún 226 milljónir og árið 2007 nam
hún 250 milljónum króna. - mh
Eftirlaunagreiðslur til 164 fyrrverandi þingmanna og ráðherra:
250 milljónir í eftirlaun í fyrra
ALÞINGI Eftirlaunagreiðslur til þingmanna og ráðherra hafa hækkað um 55 milljónir
frá árinu 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Klifraði fram af svölum
Karlmaður slasaðist lítillega þegar
hann féll niður úr tré við Njálsgötu á
laugardagskvöld. Maðurinn var í gleð-
skap á þriðju hæð þegar hann tók
upp á því að príla af svölum hússins
upp í nærliggjandi tré en fipaðist og
féll til jarðar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sautján ára á ofsahraða
Lögreglan stöðvaði sautján ára öku-
þór á Reykjanesbraut við Smáralind
á laugardagskvöld. Sá ók á 157 kíló-
metra hraða þar sem hámarkshraði
er 70.
ORKUMÁL Orkuveita Reykjavíkur
(OR) hefur kært úrskurð Sam-
keppniseftirlitsins um að OR megi
ekki eiga meira en þriggja pró-
senta hlut í Hitaveitu Suðurnesja
(HS) til Áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála.
Samkvæmt upplýsingum frá OR
krefst fyrirtækið þess að fá að
eiga tæplega þriðjungs hlut í HS.
Orkuveitan eignaðist 16,58 pró-
senta hlut í HS á síðasta ári, og
gerði jafnframt samkomulag við
Hafnarfjarðarbæ um kaup á 15,4
prósenta hlut í HS til viðbótar.
Samkeppniseftirlitið úrskurðaði
hins vegar um miðjan apríl að OR
mætti ekki eiga meira en þriggja
prósenta hlut í HS. Svo strangar
takmarkanir komu forsvarsmönn-
um bæði OR og Hafnarfjarðar-
bæjar mjög í opna skjöldu.
Til vara krefst OR þess að fá að
halda eftir 16,58 prósenta hlut í
HS, og að samningur við Hafnar-
fjarðarbæ verði ógiltur. Til þraut-
vara er þess krafist að OR fái að
eiga meira en þriggja prósenta
hlut í HS.
Hafnarfjarðarbær skilaði inn
greinargerð vegna kæru OR, þar
sem tekið er undir aðalkröfu
félagsins, segir Guðmundur Bene-
diktsson bæjarlögmaður. Hafnar-
fjarðarbær vill hins vegar ekki að
samningi við OR verði rift.
Óvíst er hvenær úrskurður
fæst í málinu, en Guðmundur
reiknar með því að þess verði ekki
langt að bíða. - bj
Orkuveita Reykjavíkur hefur kært úrskurð Samkeppniseftirlitsins um kaup í HS:
Vilja fá að eiga þriðjungs hlut
HITAVEITA Tekist er á um kaup OR
á tæplega þriðjungs hlut í Hitaveitu
Suðurnesja.
HJÁLPARSTARF „Það er vissulega
mikil upplifun að taka þátt í svona
stóru verkefni og bæði forvitni-
legt og erfitt að sjá hvernig pólit-
íkin stjórnar öllu og hefur áhrif á
hjálparstarfið,“ segir Gísli Rafn
Ólafsson, einn af stjórnendum
alþjóðasveitar Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar og meðlimur í
alþjóðlegu neyðarhjálparteymi
Sameinuðu þjóðanna, sem nú er
staddur við hjálparstörf í Taílandi
vegna hamfaranna í Búrma.
Gísli var sendur til Taílands á
vegum Microsoft þar sem hann
stýrir því verkefni að tengja hjálp-
arsamtök á vettvangi. „Við höfum
hannað ákveðið tölvukerfi fyrir
Sameinuðu þjóð-
irnar til að halda
utan um alla
samhæfingu og
dreifa upplýs-
ingum til þeirra
aðila sem koma
að hjálparstarf-
inu. Við sátum
yfir þessu alla
síðustu viku og
okkur tókst á
fjórum dögum að búa til kerfi sem
fullnægir þessum þörfum,“
útskýrir Gísli sem hefur aðsetur,
ásamt fjölmörgum hjálparstarfs-
mönnum, á svæðisskrifstofu Sam-
einuðu þjóðanna í Bangkok.
Rúmar tvær vikur eru liðnar
síðan fellibylurinn Nargis gekk
yfir Búrma. Stjórnvöld í Búrma
segja að 78 þúsund manns hafi lát-
ist í hamförunum en alþjóðlegar
hjálparstofnanir óttast að fjöldinn
sé mun meiri. Erfiðlega hefur
gengið að koma hjálpargögnum til
bágstaddra þar sem stjórnvöld
hafna enn öllum beiðnum alþjóð-
legra hjálparstofnana um leyfi til
að dreifa neyðargögnum.
Gísli segir skrítið að vera á
staðnum og fylgjast með pólitík-
inni. „Þetta kemur svo sem ekkert
á óvart enda erfitt að eiga við her-
foringjastjórnir en það er hálf
súrrealískt að vera svona nálægt
en fá samt ekki að vera á staðn-
um. Við höfum heyrt frá hjálpar-
starfsmönnum sem hafa fengið að
fara inn í landið, og þar eru
aðstæðurnar jafnvel enn súrreal-
ískari því þeir fá ekkert að fara og
eru fastir í höfuðborginni,“ segir
hann.
Gísli á sjálfur ekki von á að fara
til Búrma, að minnsta kosti ekki á
vegum Microsoft þar sem við-
skiptabann ríkir milli Bandaríkja-
manna og Búrma. „Ætli ég geri
ekki meira gagn hér í Taílandi en
hinum megin við landamærin. Það
þarf einhver að hafa yfirsýn og í
þessu tilviki þurfa þeir aðilar ekki
að vera á staðnum. Það væri jafn-
vel óhugsandi því í Búrma er ekki
hlaupið að því að komast í netsam-
band og allur tölvupóstur er rit-
skoðaður. Símasamband er líka
slitrótt svo þetta er ekki ákjósan-
legt umhverfi fyrir samhæfingar-
miðstöð,“ segir hann. Gísli reiknar
með að koma heim í vikulok.
thorgunnur@frettabladid.is
Pólitíkin stjórnar
því hverjir fá hjálp
Talið er að milljónir manna hafi enn ekki fengið neyðaraðstoð eftir að felli-
bylurinn Nargis reið yfir Búrma. Gísli Rafn Ólafsson, sem stýrir samhæfingu
aðgerða á vegum Microsoft frá Bangkok í Taílandi, segir ástandið súrrealískt.
GÍSLI RAFN
ÓLAFSSON
BEÐIÐ EFTIR MAT Fórnarlömb fellibylsins standa í röð eftir mat og öðrum hjálpar-
gögnum skammt fyrir utan höfuðborgina. Talið er að á stórum svæðum hafi enn
engin aðstoð borist. NORDICPHOTOS/AFP
Já, en Sóley, er Vigdís ekki
kona?
Það mætti réttlæta það með gömlu
tuggunni um að konur séu líka
menn ef einhverjum finnst enn
hræðilegt að heiðra konur.
Reykjavíkurráð ungmenna vill að reist
verði stytta af Vigdísi Finnbogadóttur.
Ekki hefur tíðkast til þessa að reisa
konum slíka minnisvarða. Sóley Tómas-
dóttir er borgarfulltrúi og femínisti.
SPURNING DAGSINS