Fréttablaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2008 19
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Aðalheiðar Frímannsdóttur
(Alla)
Hjallabraut 33.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki St. Jósefsspítala
Hafnarfirði og Jóhanni Ágústi Sigurðssyni lækni.
Ármann Guðjónsson Jórunn Ólafsdóttir
Lilja Guðjónsdóttir Árni Guðjónsson
Jóna Ósk Guðjónsdóttir
Lárus Guðjónsson Guðrún Magnúsdóttir
Ólafur Guðjónsson Hanna Björk Guðjónsdóttir
Ingi Hafliði Guðjónsson Æsa Hrólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Unnur Lárusdóttir
lést á Heilsugæslu Suðurnesja 17. maí 2008. Jarðarförin
auglýst síðar.
Kristinn E. Jónsson Lucyna Augustynowicz
Nanna Jónsdóttir Björn Vífill Þórleifsson
Jón B.G. Jónsson Ingibjörg Guðmundsdóttir
Guðmundur Pálsson Ólöf Bolladóttir
Jóna Björg Pálsdóttir Birgir Elíasson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Svavar Einar Einarsson
Sauðárkróki,
andaðist föstudaginn 16. maí. Útför hans fer fram frá
Sauðárkrókskirkju föstudaginn 23. maí kl. 14.00.
Helena J. Svavarsdóttir Reynir Barðdal
Marta Svavarsdóttir Sigurður J. Sigurðsson
Magnús Svavarsson Ragnheiður Baldursdóttir
Sigríður Svavarsdóttir Kristján B. Halldórsson
afabörnin og fjölskyldur þeirra.
Sonur minn, bróðir okkar, mágur og
vinur,
Bjarni Sigurðsson
Mýrarási 2, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 14. maí á nýrnadeild Landspítalans.
Hann verður jarðsunginn frá Seljakirkju fimmtudag-
inn 22. maí kl. 13.00.
Hildur Bjarnadóttir
Svanhildur Sigurðardóttir Markús Ívar Magnússon
Jónas Sigurðsson Elsa Nína Sigurðardóttir
Ásta Sigurðardóttir Gunnlaugur Jón Magnússon
Heimilisfólkið Mýrarási 2 og aðrir aðstandendur.
Kæri eiginmaður minn, mágur okkar og
föðurbróðir,
Skúli Björnsson
lyfjafræðingur
til heimilis í Carmel Californiu USA lést þann 9. maí
93 ára að aldri.
Charlotte Björnsson
Guðfinna Bjarnadóttir Ólafs
Ingibjörg Lúðvíksdóttir
Bjarni Björnsson
Innilega þökkum við auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
Helgu Þórarinsdóttur
Kaplaskjólsvegi 53, Reykjavík.
Fyrir hönd ástvina,
Sigurður Steinþórsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Erna B. Árnadóttir
Holtsbúð hjúkrunar- og dvalarheimili,
lést sunnudaginn 18. maí á Landspítalanum
Hringbraut.
Anton Bjarnason Helga Torfadóttir
Pétur Bjarnason Sigríður Jóhannesdóttir
Rósa Antonsdóttir
Birna María Antonsdóttir Jón Þórarinsson
Helga Björg Antonsdóttir
Jón Bjarni Pétursson
Skúli Steinar Pétursson
Guðrún María Pétursdóttir.
AFMÆLI
SNORRI
ÞÓRISSON
kvikmynda-
gerðarmaður
er 59 ára.
ÓLAFUR H
KRISTJÁNSSON
þjálfari Breiða-
bliks er 40 ára.
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
fréttamaður
er 46 ára.
ÞÓRARINN
TYRFINGSSON
yfirlæknir á
Vogi er 61 árs.
Fyrir skömmu tóku fjórir
nýir ABC-skólar til starfa
í Pakistan með samtals sex
hundruð nemendum. Alls
eru 2.813 nemendur í ABC-
skólunum tólf en rekstur
þeirra er alfarið kostaður
frá Íslandi.
Fjórir skólanna eru í
eigin húsnæði sem Rúmfata-
lagerinn, Borgarholtsskóli
og fleiri hjálpuðu til við að
byggja. Nemendur í Fjöl-
brautaskólanum í Ármúla
eru einnig langt komnir
með að safna fyrir fimmta
skólanum og mun byggingu
hans ljúka á þessu ári. Hinir
skólarnir eru reknir í leigu-
húsnæði.
Við skólana búa 510 nem-
endur á bráðabirgðaheima-
vistum, en auk þess eru
nú um þúsund börn á bið-
lista eftir skólagöngu og
heimavist. Framkvæmdir
við byggingu nýrrar heima-
vistar eru að hefjast en ís-
lensk grunnskólabörn söfn-
uðu fyrir heimavistinni með
því að ganga í hús með söfn-
unarbauka í söfnuninni Börn
hjálpa börnum í febrúar síð-
astliðnum.
Starf ABC í Pakistan hófst
í ágúst 2005 og er því innan
við þriggja ára. Ein brýn-
asta þörfin nú er að fá stuðn-
ingsaðila við börnin, að því
er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá ABC barna-
hjálp á Íslandi.
Þar segir einnig að ýmsir
hafi hlaupið undir bagga og
hjálpað til við að sjá fyrir
börnunum þar til stuðn-
ingsaðilar fást. Má þar
nefna Landssamband bak-
arameistara sem stóð fyrir
hjálparsnúðasölu í byrjun
mars með ágætum árangri
en með upphæðinni sem
safnaðist er hægt að sjá um
það bil 300 börnum, í tveim-
ur ABC skólum, fyrir skóla-
máltíðum fyrsta skólaárið.
Einnig settu Peter Ander-
son og Danssmiðja Íslenska
dansflokksins upp tvær
danssýningar og greiddu
með þeim menntun og mál-
tíðir 150 barna í mánuð.
Á heimasíðu ABC barna-
hjálpar, www.abc.is, er hægt
að finna myndir og upplýs-
ingar um börn sem vantar
stuðning, og skrá sig sem
stuðningsaðila barns.
Fjórir nýir ABC
skólar í Pakistan
MENNTUN ER MÁTTUR Stjórnarmenn í Landsambandi bakarameistara,
Gunnar Gunnarsson, Jóhannes Felixsson, Steinþór Jónsson og Guðrún
Margrét Pálsdóttir, við afhendingu söfnunarfjárins.
Mikil fjölgun barna varð í
Reykjanesbæ á síðasta ári
og eru nú yfir tvö þúsund
börn í grunnskóla og átta
hundruð í leikskóla. Þetta
kom fram á íbúafundi með
bæjarstjóra Reykjanes-
bæjar sem var haldinn ný-
lega í Höfnum.
Nánast helmingur barn-
anna er á Vallarheiði en ráð-
gert er að opna þar nýjan
leikskóla og grunnskóla-
deild fyrir nemendur í 1. til
5. bekk haustið 2008 . Hjalla-
stefnan ehf. rekur þar jafn-
framt leikskólann Völl.
Reykjanesbær hefur því
brugðist hratt við til þess
að tryggja öllum nemend-
um sambærileg menntun-
arskilyrði, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Mikil fjölgun íbúa kallar á
byggingu nýrra leikskóla
og stækkun og endurbætur
á þeim eldri, segir þar jafn-
framt.
Grunnskólar bæjarins eru
nú orðnir sex talsins með til-
komu barnaskóla á Vallar-
heiði, leikskólar eru níu tals-
ins og verða tíu með nýjum
leikskóla á Vallarheiði.
Íbúum fjölgar á
Reykjanesi
Dvalarheimilið Grund hefur
gert samning við Landspítala
um rekstur á deild L-1 sem
var opnuð fyrir skömmu.
Í fréttatilkynningu segir
Guðrún B. Gísladóttir fram-
kvæmdastjóri þetta vera
ánægjuleg tímamót, þar sem
leitað hafi verið leiða síðast-
liðin misseri til að útvíkka
starfsemina, sérstaklega
til að koma til móts við þá
fækkun sem verði á Grund í
kjölfar fjölgun einbýla. Hún
segist jafnframt telja að sú
reynsla sem Grund búi yfir
muni nýtast vel á þessari
deild, sem er biðdeild fyrir
aldraða með áherslu á heim-
ilisfólk með heilabilun. En á
Grund hefur um langt skeið
verið rekin sérstök deild
fyrir heilabilaða.
Undanfarnar vikur hefur
starfsfólk Grundar unnið
ötullega að því að undirbúa
starfsemi deildarinnar en að
stórum hluta verður hægt
að samnýta starfsemi stoð-
deilda Grundar og deildar-
innar á Landakoti.
Ný deild á Grund
NÝR REKSTUR Dvalarheimilið
Grund opnaði nýlega deild í
samstarfi við Landspítala.
„Þegar ég var skírð var ég eina Lana lands-
ins. Nú erum við ábyggilega orðnar tíu,“ segir
Lana Kolbrún Eddudóttir dagskrárgerðar-
kona á Ríkisútvarpinu þegar hún er spurð út
í nafnið sitt. Þar leynist líka falleg saga á bak
við.
„Besta vinkona mömmu var ensk/íslensk
og hét Lana Lorraine. Lana dó þegar mamma
gekk með mig, sumarið 1964, og sótti nafnið í
draumi. Það þurfti alls konar leyfi til að fá að
skíra mig útlensku nafni og það skilyrði var
sett að íslenskt nafn fylgdi með. Þess vegna
heiti ég líka Kolbrún. Ég er mjög ánægð með
nafnið og hef alltaf verið en það gat verið
leiðin legt að stafa það fyrir fólk þegar ég var
yngri. Bankagjaldkerar kölluðu mig yfirleitt
Láru eða Lenu og stundum bara Kolbrúnu.“
Þurfti oft að stafa nafnið
LANA KOLBRÚN Margir þekkja röddina
hennar úr útvarpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR