Fréttablaðið - 21.05.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
EFNAHAGSMÁL Tæplega 70 prósent félagsmanna
í Félagi íslenskra stórkaupmanna (FÍS) eru
hlynntir því að Íslendingar taki upp evru sem
gjaldmiðil í stað íslensku krónunnar. Þetta
kemur fram í könnun sem Capacent Gallup
gerði fyrir félagið.
Þar kemur einnig fram að tæplega 66
prósent félagsmanna telur að aðild Íslands að
Evrópusambandinu (ESB) yrði hagstæð fyrir
fyrirtæki sitt. Rúmlega 65 prósent sögðust
hlynnt aðildarviðræðum að ESB og tæp 57
prósent sögðust hlynnt aðild.
„Félagið hefur ákveðið að koma fram með
stefnumótun í gjaldeyris- og peningamálunum
og fyrsta skrefið í þá átt var að kanna hug
félagsmanna,“ segir Knútur Signarsson
framkvæmdastjóri. „Skilaboðin frá félags-
mönnum eru alveg skýr. Ég tel að sá ólgusjór
sem menn hafa verið að lenda í vegna
ástandsins að undanförnu hafi valdið því að
menn eru farnir að líta á krónuna sem
nokkurs konar viðskiptahindrun. Það má segja
að þessi niðurstaða sé kall til stjórnvalda og
við vonum að þeir skjóti ekki skollaeyrum
við.“
„Þetta kemur mér ekkert á óvart,“ segir
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins. „Þetta er alveg í
samræmi við það sem ég hef skynjað frá
ýmsum fyrirtækjum sem eru ekki í FÍS. En
þetta er þó nokkur breyting því innan þessa
hóps var stuðningur við ESB frekar rýr fyrir
nokkrum árum.“
Félag íslenskra stórkaupmanna er ekki
innan Samtaka atvinnulífsins en Vilhjálmur
skynjar nokkurn samhljóm meðal þessara
tveggja.
„Ég held að beggja megin séum menn búnir
að fá sig algjörlega fullsadda af gengisfell-
ingu og þessum háu vöxtum því það er verið
að fórna svo miklu fyrir ekki neitt með því að
viðhalda þessari peningastefnu sem við nú
búum við,“ segir Vilhjálmur. Félag íslenskra
stórkaupmanna er 80 ára í dag en Knútur, sem
tók við stöðu framkvæmdastjóra síðastliðinn
föstudag af Andrési Magnússyni, segir að
beðið verði með veisluhöld fram á haust. - jse
Fréttablaðið er með 41% meiri lestur
en 24 stundir og 93% meiri lestur
en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið 18–49 ára.
skv. könnun Capacent í febrúar–apríl 2008.
Við stöndum upp úr
í nýjustu könnun
Capacent
Allt sem þú þarft... ...alla daga
49,72%
36,30%
69,94%
Fréttablaðið
24 stundir
M
orgunblaðið
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
21. maí 2008 — 136. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Útfarir eru persónulegri í
dag en áður fyrr
Rúnar Geirmundsson útfararstjóri
á 25 ára starfsafmæli.
TÍMAMÓT 18
26
79
/
I
G
02
Þú færð Shimano
í næstu
sportvöruverslun
hjól
Gleymir ekki
fortíðinni
Aron Pálmi
kominn með
húðflúr af
fangelsis-
glugga.
FÓLK 30
Mátar Mercury-
mottuna
Magni Ásgeirsson
er kominn með
myndarlegt yfir-
vararskegg.
FÓLK 30
VINNUVÉLAR
Margar nýjungar á
MaskinExpo
Sérblað um vinnuvélar
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
KRISTJÁN MÁR KÁRASON
Ákveðið uppi á Esju að
fara til Bútan og Tíbet
ferðir bílar heimili veiði
Í MIÐJU BLAÐSINS
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA VEIÐI VINNUVÉLAR O.FL.
Kristján Már Kárason fór ásamt nokkrum fé-
lögum í óvenjulega ferð til Bútan á síðasta ári
en það er staður sem fæstir kannast við. Kristján og ferðafélagar hans fóru í gegnum Tíbet
til Bútan og vörðu þar níu dögum undir góðri leið-
sögn heimamanna. Kristján segir landið afar fagurt
og ber sögu þess afar vel. „Ég hafði aldrei hey tþ í b
þeim tóku allir mjög vel. Litadýrðin var mikil,
fatnaður fólksins var afar stórbrotinn og litirnir
voru nær óteljandi. „Í Bútan hittum við margt mjög forvitni-
legt fólk. Þar á meðal var afar merkileg kona
sem við fengum að hitta af náð og miskunn.
Hún bjó í litlu þorpi uppi í sveit o h
yfir mörk líf
Ferð til lands drekanna
Kristján var ánægður með ferðina til Bútan sem er ógleymanlegt land sem er efst á lista hjá fæstum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
SKREYTIR ALLTBryndís Ýrr Baldursdóttir notar airbrush-tækni til þess að skreyta allt mögulegt og hefur meðal annars gert mörg flott
mótor hjól ennþá flottari.
BÍLAR 3
GÓÐUR HÓPURHaukur Snorrason, Helgi H. Jónsson, Kári Jónasson og Sigurður G. Tómasson eru meðal þeirra leið-sögumanna sem eru að útskrifast frá
Menntaskólanum í Kópavogi.
FERÐIR 4
Allra síðustu sætinHeimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol 22. maí eða 29. maí. Þú bókar sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu
tækifærið og njóttu vorsins á vinsælasta sumarleyfi sstað Íslendinga
vinnuvélarMIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 Allar helstu nýjungará MaskinExpo í Svíþjóð
BLS. 2
NETIÐ
Flugleitarvélin Dohop
á asískan markað
Sérblað um netið
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG.
netiðMIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 Flugleitarvélin Dohop
fær jákvæða umfjöllun í asískum fjölmiðlum BLS. 2
Birta Rán Björgvins-dóttir ljósmyndarinýtur mikilla vinsælda á vefsíðunni flickr.com BLS. 6
VIÐSKIPTI Ekki er ástæða til að
hækka stýrivexti Seðlabanka
Íslands á morgun að mati fjögurra
sérfræðinga sem skipa skugga-
bankastjórn Markaðarins. Merki
séu um samdrátt í efnahagslífinu
og hætta á ofkælingu hagkerfisins
verði vextir hækkaðir meira. Eng-
inn mælir þó með að vextir verði
lækkaðir strax heldur beri að
staldra við og fylgjast vel með
þróun hagstærða næstu vikurnar.
Skuggabankastjórnina skipa
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings, Ólaf-
ur Ísleifsson, lektor við Háskólann
í Reykjavík, Edda Rós Karlsdóttir,
forstöðumaður greiningardeildar
Landsbankans, og Þórður Friðjóns-
son, forstjóri Kauphallar Íslands.
Markmið skuggabankastjórnar
Markaðarins er að skapa umræðu
um ástand og horfur efnahagsmála
fyrir hverja stýrivaxtaákvörðun.
Seðlabankinn tilkynnir ákvörðun
um stýrivexti á morgun.
Öll telja þau hættu á ofkólnun
þótt erfitt sé að merkja það greini-
lega í hagtölum. Edda Rós segir
vanta fullkomnari gögn um gang
efnahagslífsins. Ásgeir segir slaka
verða á vinnumarkaði í haust og
Ólafur vill efla gjaldeyrisvarasjóð-
inn. Þórður segir það taka langan
tíma að byggja upp orðstír við hag-
stjórn. - bg / sjá Markaðinn
Skuggabankastjórn Markaðarins telur að halda eigi stýrivöxtum óbreyttum:
Óttast ofkælingu hagkerfisins
BJARTVIÐRI NYRÐRA Í dag
verður austan strekkingur allra syðst
annars mun hægari. Bjartviðri norð-
an til en yfirleitt skýjað syðra og
úrkomulítið. Hiti 6-14 stig, mildast
til landsins nyrðra.
VEÐUR 4
9 12
7
6
10
ÞYRLUBJÖRGUN HJÁ LANDHELGISGÆSLUNNI Opið hús var í Flugskýli Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll í gær í tilefni af
Flugviku. Sýnt var samflug Fokkerflugvélar Landhelgisgæslunnar og þyrlunnar. Þá var þyrlubjörgun sýnd. Þessi ungi snáði skemmti
sér vel á Flugdeginum og fékk blöðru með sér heim. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SJÁVARÚTVEGUR Áhöfnin á Nirði
veiddi fyrstu hrefnuna af þeim
fjörutíu sem sjávarútvegsráð-
herra hefur heimilað að veiddar
verði í gær.
„Þetta er 7,4 metra tarfur og
þeir segja að eftir fyrsta innlit
virðist kjötið vera mjög fallegt,“
segir Gunnar Bergmann, formað-
ur Félags hrefnuveiðimanna.
„Hann veiddist langt úti í
Faxaflóa og menn segja að það sé
allt fullt af hrefnu í Flóanum.“
Gunnar segir að hrefnunni verði
landað skömmu eftir hádegi í dag.
Miklar umræður fara fram um
ágæti veiðanna hérlendis og
viðbrögð Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, formanns Samfylk-
ingar, vegna ákvörðunar sjávarút-
vegsráðherra. Erlendir fjölmiðlar
greina frá því að óeining sé um
veiðarnar innan ríkisstjórnarinn-
ar. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
sendu frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem þeir fagna ákvörðun um
að heimila veiðar. - jse/ sjá síðu 4
Hrefnuveiðar byrja vel:
Fyrsta hrefnan
komin um borð
Stórkaupmenn vilja evru
Mikill stuðningur er meðal félagsmanna í Félagi íslenskra stórkaupmanna um að taka upp evru í stað
krónu og um aðild að Evrópusambandinu. Framkvæmdastjórinn segir niðurstöðuna kall til stjórnvalda.
Breiðablik og
ÍA unnu bæði
ÍA og Breiðablik unnu sína
fyrstu leiki í Landsbanka-
deild karla í gær. ÍA
lagði Fram á heimavelli
en Blikar unnu KR-inga í
Vesturbænum.
ÍÞRÓTTIR 26
Hlynnt(ur)
69,4%
Andvíg(ur)
22,4%
Hvorki né
8,2%
Ertu hlynnt(ur) eða and-
víg(ur) því að taka upp evru
sem gjaldmiðil á Íslandi í
stað íslensku krónunnar?
Ertu hlynnt(ur) eða and-
víg(ur) aðild Íslands að
Evrópusambandinu?
Hlynnt(ur)
56,8%
Andvíg(ur)
31,6%
Hvorki né
11,6%