Fréttablaðið - 21.05.2008, Qupperneq 54
22 21. maí 2008 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
Björn Roth segir vel koma
til greina að kæra til lög-
reglu stuld á undeildu verki
Christofs Büchel sem skorið
var niður af ramma sínum á
Hjörleifshöfða.
„Við viljum líta svo á að um tug-
milljóna stuld sé að ræða,“ segir
Guðjón Sigmundsson, betur þekkt-
ur sem Gaui litli.
Verk hins heimsþekkta sviss-
nesska listamanns, Christof
Büchel, hafa vakið mikla athygli
hér á landi en þar fjallar hann
meðal annars um rasisma. Miklar
innsetningar, eða veggspjöld
prentuð á segldúk, 2x3 metrar,
voru sett upp við Hvalfjarðargöng
og svo tvö við Hjörleifshöfða.
Nýverið rauk einhver til og skar
verkin af römmum sínum þau sem
voru á Hjörleifshöfða og haft á
brott með sér.
Mynd Büchels sýnir þrjár hvítar
kindur stugga við einni svartri og
hefur uppsetning þess kveikt við-
brögð. Meðal annars hafa starfs-
menn borgarinnar farið til að rífa
niður auglýsingaplaköt þar sem
sjá má myndina. Gaui litli kom að
uppsetningu verkanna og segir
aðeins tvennt í stöðunni hvað varð-
ar Hjörleifs-
verkin:
Annað hvort hafi hreinlega ein-
hver brjálæðingurinn, sem mis-
skilur inntak verksins, rokið til,
með hnífinn á lofti og fjarlægt
verkið í pólitísku fári eða þá að
þarna hafi einhver vafasamur
listaverkasafnari verið á ferð.
„Jahh, þetta gæti þess vegna dúkk-
að upp á Ebay. Hvað veit maður?
Büchel er heimsþekktur listamað-
ur. Talinn einn efnilegast listamað-
ur samtímans og meta má verk
hans á milljónir,” segir Gaui litli.
Innsetningar Büchels eru liður í
verkefninu Ferðalag/Journey sem
er á vegum Listahátíðar og Björn
Roth stjórnar. „Er Christof búinn
að gera allt vitlaust? Já, eða land-
inn öllu heldur þó Christof hafi
„startað” þessu,“ segir Björn.
Hann segir að í sínum huga sé í
raun ekki myndirnar, plakötin og
skiltin sem séu hið eiginlega lista-
verk heldur viðbrögðin sem slík.
„Fólk bregst við á mismunandi
hátt. Í kjölfar þess að fjallað var
um í sjónvarpsfréttum þegar
plakötin voru rifin niður rauk
kona ein út og fór að rífa niður
plaköt. Aðspurð af hverju sagði
hún: Sjónvarpið sagði það.“
Björn Roth segir vel koma til
greina að kæra stuldinn á Hjör-
leifshöfða til lögreglu. „Og hvar
endar þetta þá? Christof sjálfur
vill ekki tjá sig um þetta á þessu
stigi. Segir þetta verð að hafa
sinn gang. Hann segir bara:
Sjáum hvað verða vill. Sum
verka hans eru pólitísk.
Hann hefur gaman að því,“
segir Björn Roth.
jakob@frettabladid.is
Kindum Büchels
stolið eða slátrað
GAUI LITLI Segir sennilega
um svívirðilegan lista-
verkaþjófnað að ræða
frekar en að einhver
skyni skroppinn hafi
rokið til með hníf-
inn í öfugsnúnum
pólitískum tilgangi.
„Jú, jú, þetta er allt klappað og
klárt. Ég lokaði reyndar bara aug-
unum þegar afgreiðslumaðurinn
renndi kortinu í gegn,“ segir Þórir
Snær Sigurjónsson, kvikmynda-
framleiðandi með meiru. Hann
þurfti að standa við stóru orðin og
kaupa Armani-smóking handa
kvikmyndagerðarmanninum Rún-
ari Rúnarssyni.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
fyrir skemmstu lýsti Rúnar því
yfir að stuttmynd hans 2 Birds
myndi keppa um gullpálmann í
Cannes. Þórir lofaði í kjölfarið að
kaupa sérsniðinn Armani-smók-
ing ef sú yrði raunin. Sem kom
svo á daginn. „Hann verður í
smókingnum þegar hann tekur
við gullpálmanum á sunnudag-
inn,“ bætir Þórir við en útskýrir
jafnframt að þetta sé svipuð gerð
af smóking og keyptur var handa
Degi Kára þegar Voksne
mennesker var sýnd á frönsku
ríveríunni.
Þórir vildi þó ekki gefa upp
kaupverðið; það væri algjört
hernaðarleyndarmál. Samkvæmt
upplýsingum frá Sævari Karli
sem selur einmitt Armani-smók-
inga kostar einn slíkur rúmar 130
þúsund, sem þykir fremur lágt
verð miðað við annars staðar í
Evrópu.
Rúnar var einmitt á leiðinni í
verslunina í Kaupmannahöfn
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. Og í ljós kom að smóking-
urinn var ekki keyptur til að
svala einhverri hégómagirnd
leikstjórans eða láta Þóri standa
við stóru orðin. „Mér hefði nefni-
lega ekki verið hleypt inn á sýn-
inguna án þess að vera í smóking,
þetta er því hálfgerður keppnis-
búningur líkt og íslenska lands-
liðstreyjan,“ útskýrir Rúnar en
þetta er í fyrsta skipti sem hann
fer til Cannes. „Ég hlakka mikið
til og vonandi rignir mann ekki
niður.“ - fgg
Smókingurinn er keppnisbúningur
VERÐUR Í ARMANI Rúnar Rúnarsson er
búinn að fá Armani-smókinginn sem
honum var lofað. Hann gegnir reyndar
öðru og kannski mikilvægara hlutverki
því Rúnari hefði sennilega ekki verið
hleypt inn á sýninguna án þess að
klæðast slíkum spjörum.
Gwyneth Paltrow átti „comeback” á rauða
dreglinum í gærkvöldi þegar hún mætti á
frumsýningu Two Lovers, sem hún leikur
aðalhlutverkið í á móti engum öðrum en
Joaquin Phoenix. Leikstjórinn James Gray
er nánast áskrifandi að keppninni, var í
fyrra með We Own the Night, en þetta er
þriðja myndin hans af fjórum sem valin er
í keppni. Joaquin Phoenix fékk því miður
magakveisu og var lagður inn á spítala
þegar hann átti að fljúga til Cannes og
var hans sárt saknað af aðdáendum í
höllinni.
Gwyneth er að snúa aftur á hvíta
tjaldið eftir töluvert hlé í að sinna
börnum og buru. Iron Man sem
var nýlega frumsýnd var fyrsta
myndin hennar eftir hlé og Two
Lovers næsta en
hún á greinilega
fullt erindi aftur í
bransann og var
vel tekið af áhorf-
endum.
Þó að myndin
sé amerísk og
stór nöfn á bakvið
hana er hún ekki
fjármögnuð af
stóru stúdíóunum
heldur telst óháð
kvikmyndagerð.
James Gray lét Hollywood-stúdóin heyra
það þegar hann ræddi við blaðamenn eftir
sýninguna og lýsti því yfir að leikstjórar frá
til dæmis Kína eða Afríku ættu eftir að ná
yfirhöndinni og fólk ætti ekki eftir að vilja
sjá Hollywood-myndir lengur.
Hann talaði um slæma þróun í Hollywood
síðustu þrjátíu árin og saknar gamla Holly-
wood sem framleiddi áður bestu myndir í
heimi. Nú til dags þurfa myndirnar að vera
svo rosalega stórar til að höfða til svo mikils
fjölda að margra sögur verða ekki sagðar.
Þannig munu amerískir leikstjórar missa
hæfileikann til að segja sögur. Góðar, fallegar,
raunsæjar og flóknar sögur. Gray trúir því að
almenningur vilji upplifa miklu meiri dýpt
og flóknari sögur en stúdíóin þori að bjóða
uppá og tók sem dæmi: „Ef þú gefur fólki
alltaf McDonald‘s að borða og býður þeim
svo allt í einu upp á sushi þá finnst þeim það
að sjálfsögðu skrítið. En það er ekki þar með
sagt að fólk vilji ekki líka fá sushi.”
CANNES 2008 HANNA BJÖRK VALSDÓTTIR FYLGIST MEÐ BESTU KVIKMYNDAHÁTÍÐ HEIMS
Hollywood-maskínan gagnrýnd
Í SVIÐSLJÓSINU Gwyneth
Paltrow á rauða dreglin-
um í Cannes.
NORDICPHOTOS/GETTY
HINNAR MISSKILDU KINDUR. Verk Christofs Büchel, 2x3 metrar, var prentað á
segldúk og því komið fyrir á Hjörleifshöfða en hefur verið skorið niður af óprúttnum
aðilum.
> HARRISON FÆR GARÐ
Olivia Harrison, ekkja Bítilsins George Har-
rison, hefur opnað garð til heiðurs manni
sínum á Chelsea-blómasýningunni sem er
haldin í London. Fyrrverandi samherji Harri-
son í Bítlunum, Ringo Starr, aðstoðaði
Oliviu við opnunina. Harrison, sem dó
úr lungnakrabbameini árið 2001, var
reglulegur gestur á sýningunni, sem
er haldin á hverju ári. Vonast Olivia
til að garðurinn muni endurspegla
persónuleika hans.
F
ít
o
n
/S
ÍA
Eftir Inu Christel Johannessen
AÐEINS 3 SÝNINGAR Á
LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
23.05.08 / 24.05.08 / 25.05.08
MIÐAR 568 8000 / www.id.is
SÝNINGAR Á LISTAHÁTÍÐINNI Í BERGEN
01.06.08 / 02.06.08
HEIMSFRUMSÝNING
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
OG CARTE BLANCHE, BERGEN
KYNNA
BREYTTUR SÝNINGARTÍMI
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 24.MAÍ
SÝNING NÚ KL 17.00