Fréttablaðið - 12.06.2008, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 12. júní 2008 3
HVERJU BREYTTIRÐU SÍÐAST?
Náttúruflísar eru einstaklega
vinsælt gólfefni um þessar
mundir, en mikilvægt er að
meðhöndla þær rétt.
Náttúruflísar eru gerðar úr slit-
sterkum steini. Til þess að halda
steininum fallegum og glansandi
er mikilvægt að hugsa rétt um
hann. Þórir Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Húsfélagaþjónust-
unnar ehf., sem sérhæfir sig meðal
annars í umhirðu náttúruflísa,
bendir á að mikilvægt sé að með-
höndla flísarnar strax og þær hafa
verið lagðar á gólf. „Ómeðhöndl-
aðar náttúruflísar eru opnar og
draga því í sig óhreinindi. Þegar
þær eru meðhöndlaðar lokast þær
og haldast lengur fallegar,“
útskýrir Þórir.
Samkvæmt Þóri hefur notkun
náttúrusteins aukist gríðarlega.
„Þetta er fallegt gólfefni og hentar
víða og ef flísarnar eru meðhöndl-
aðar reglulega koma þær vel út.“
Það fer eftir því hvar flísarnar eru
settar hversu oft þarf að með-
höndla þær. Flísar sem eru í sam-
eign eða þar sem umgengni er
mikil þarf að meðhöndla um einu
sinni á ári til þess að halda þeim
fallegum og glansandi.
Húsfélagaþjónustan ehf. hefur
að stærstum hluta verið að þjón-
usta húsfélög með alhliða hrein-
gerningu, en einnig fyrirtæki og
heimili. Að sögn Þóris þarf að
hreinsa flísarnar vel áður en þær
eru meðhöndlaðar. Í lagi er að nota
sápu og vatn en annars eru til sér-
stök hreinsiefni fyrir þennan stein.
„Við höfum verslað mikið við F.
Helgason því þeir eru bæði að
selja svona flísar og eru með góð
efni fyrir náttúrusteininn.“ Þegar
flísarnar hafa verið hreinsaðar vel
er borin á þær olía sem þarf að fá
að standa í sólarhring og í lokin
eru flísarnar bónaðar.
Þórir bendir á að ef flísarnar
hafa fengið ranga meðhöndlun
þurfi að byrja á því að leysa upp
þau efni sem sett hafa verið á þær
og að það sé oft mikil vinna. Þegar
það hefur verið gert er svo byrjað
frá grunni með því að hreinsa flís-
arnar vel, bera á þær olíu og bóna.
klara@frettabladid.is
Rétt umhirða mikilvæg
Þórir Gunnarsson er eigandi fyrirtækisins Húsfélagaþjónustan ehf. sem sérhæfir sig í
þrifum fyrir húsfélög.
Náttúruflísar eru mjög vinsælt gólfefni
í dag.
Helga Óskarsdóttir myndlistar kona útbjó barnaherbergi og
notar gamlan diskaskáp undir föt.
„Hann fékk barnaherbergi í jólagjöf strákurinn en hann er þriggja
ára,“ segir Helga um nýjustu breytingarnar hjá sér en fjölskyldan
flutti í gamalt hús í Þingholtunum fyrir ári.
„Við þurftum ekki að gera mikið, rifum ekki niður neina veggi eða
slíkt áður en við fluttum inn. Fyrir komulagið í húsinu hentaði okkur
ágætlega þannig að við þurftum bara að mála og snurfusa.Við
máluðum barnaherbergið og rifum niður spegla sem límdir voru á
vegginn. Svo fékk hann gamlan diskaskáp frá ömmu minni sem við
breyttum í fataskáp. Ég tók úr honum hillu og setti stöng í staðinn
þannig að hann er með fötin upphengd og allt í röð og reglu.“
Konan sem bjó í húsinu á undan Helgu átti uppkomin börn og
notaði herbergið sem sjónvarpsherbergi. Breytingarnar tókust vel
og litli herramaðurinn er ánægður með nýju vistarverurnar.
„Hann er rosalega ánægður og varð svolítið stærri við að fá
sérherbergi. Hann er enn að sýna gestum „nýja“ herbergið sitt.“
- rat
Fékk nýtt herbergi
Helga Óskarsdóttir myndlistarkona og sonur hennar í nýja barnaherberginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
4you.is • Eddufelli 2 • 111 Reykjavík • Sími 564-2030 690-2020
Okkar dýnur eru
100% náttúruefni
þar sem svona
pöddur lifa ekki.
Henta mjög vel
asmaveiku fólki
Sefur þú hjá þessum
og fjölskyldu hans?
Er það það sem þú vilt?
Heaven & Earth dýna
100% lífræn bómull í yfi rhlíf
Þessi yfi rhlíf er gerð úr 100% lífrænni silkimjúkri
bómull, engin bleikingarefni og engin skaðleg efni.
Með þessum eiginleikum skapast þægilegt og gott
svefnpláss sem hentar sérstaklega vel fyrir alla þá
sem þjást af ofnæmi eða eru næmir fyrir sterkum
efnum.
100% Hrein ullar fylling
fyllingin sér fyrir raka og hita temprun, sem sér til
þess að halda á þér hita þegar kalt er en virkar öfugt
í hita, og þar af leiðandi líður þér alltaf vel á þessari
dýnu. Fyllingin er ekki eldfi m og rykmaurar sækja
ekki í hana.
30 cm af 100% Náttúrulega Latexi.
Þetta endingargóða og ofnæmis efnalausa efni er
með náttúrulega öndun og gefur fulkomin stuðning
við bak og kemur í veg fyrir önnur óþægindi með því
að gefa eftir.
215.000 - 245.000 kr.
NEI!
Toggi Rykmaur