Fréttablaðið - 12.06.2008, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 12.06.2008, Blaðsíða 74
Fjölnisvöllur, áhorf.: 750 Fjölnir Fylkir TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–11 (3–4) Varin skot Þórður 3 – Fjalar 1 Horn 8–6 Aukaspyrnur fengnar 21–12 Rangstöður 3–2 FYLKIR 4–4–2 Fjalar Þorgeirsson 7 Þórir Hannesson 6 Guðni Rúnar Helgas. 6 Valur Fannar Gíslason 7 Kjartan Breiðdal 3 Halldór Hilmisson 6 Ian Jeffs 6 Ólafur Stígsson 5 (86. Hermann Aðalg. -) Peter Gravesen 6 Allan Dyring 4 (76. Kjartan Baldvins. -) Jóhann Þórhallsson 5 *Maður leiksins FJÖLNIR 4–3–3 Þórður Ingason 7 Gunnar V. Gunnarss. 7 Óli Stefán Flóventss. 8 Kristján Hauksson 7 Eyþór Atli Einarsson 7 *Gunnar M. Guðm. 8 Ólafur Páll Johnson 5 (88. Ásgeir Aron Ásg. -) Ágúst Gylfason 7 Ólafur Páll Snorra. 6 (73. Pétur G. Markan -) Davíð Rúnarsson 7 (68. Andri V. Ívarss. 6) Tómas Leifsson 7 1-0 Tómas Leifsson (40. 1-0 Örvar S. Gíslason (6) 54 12. júní 2008 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is > Lengstu bönn knattspyrnusögunnar KSÍ hefur dæmt þjálfara og leikmann meistaraflokks ÍA í knattspyrnu kvenna í langt keppnisbann. Haraldur Sigfús Magnússon þjálfari hafði samband við Karitas Hrafns Elvarsdóttur rétt fyrir leik ÍA gegn Haukum í 2. flokki þrátt fyrir að hún væri ekki gjaldgeng í leikinn þar sem hún er fædd árið 1988 og því orðin of gömul. Karitas spilaði leikinn og fékk fyrir vikið bann út tímabilið. Haraldur fékk bann út árið og ÍA fékk þrjátíu þús- und króna sekt. Banni Karita- sar verður áfrýjað en Haralds ekki. Óvíst er hvort Haraldur starfi áfram hjá ÍA. FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, er ekki að stressa sig yfir stjórastarfinu hjá Hearts. Skoska úrvalsdeildarfélagið er í leit að nýjum stjóra og heyrði Guðjón síðast frá félaginu á miðvikudag í gegnum Ólaf Garðarsson umboðsmann. Hann vildi ekki segja nákvæmlega um hvað var rætt. „Það verður að koma í ljós hvað gerist. Það þurfa að vera ákveðnar faglegar forsendur til staðar til að ég hafi áhuga á starfinu,“ sagði Guðjón. Hann sagði einnig að ótímabært væri að ræða við ÍA um hvort hann gæti farið frá félaginu til að taka við Hearts ef það kæmi upp. Vladimir Weiss, stjóri Artmed- ia Bratislava, sagði við BBC í gær að hann væri á leið í viðræður við félagið en hann og Guðjón eru efstir á óskalista félagsins. - hþh Guðjón Þórðarson: Stressar sig ekki yfir Hearts GUÐJÓN Heyrði síðast í Hearts í fyrra- dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SUND Árni Már Árnason, sund- maður úr ÍRB, náði B-lágmarki í 50 metra skriðsundi í gær. Hann synti á 23,13 sekúndum á móti í Barcelona en er þó ekki öruggur með þátttöku á Ólympíuleikunum í Peking. Aðeins einn keppandi frá hverri þjóð má fara þangað í gegnum B-lágmark. Örn Arnar- son er þegar búinn að synda undir B-lágmarki í sömu grein og er með betri tíma en Árni. - óþ Mare Nostrum mótaröðin: Árni Már á ÓL? Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma fá í kvöld tækifæri til þess að gera lokaúrslitin um ítalska meistaratitlinn að seríu að nýju. Lottomatica vann síðasta leik örugglega á heimavelli sínum en er áfram í þeirri stöðu að tap þýðir að Montepaschi Siena er orðið ítalskur meistari annað árið í röð. Jón Arnór segir Palasport Mens Sana-höllina í Siena þar sem leikurinn fari fram í kvöld vera sterkan heimavöll sem sést ekki síst á því að liðið er búið að vinna alla 23 heimaleiki sína í deild og úrslitakeppni í vetur. „Þetta er minna hús en hjá okkur en stúkan er miklu nær gólfinu og hún er mun brattari. Maður er miklu nær áhorfendunum og finnur því meira fyrir þeim og þeir geta grýtt í mann ef þeir vilja. And- rúmsloftið þarna er ofsalega magnþrungið. Það er þvílík spenna og þeir eru með súper-áhorfendur sem fylgja þeim fram í rauðan dauðann,“ segir Jón Arnór en húsið tekur 6000 manns í sæti eða um helming þess fjölda sem PalaLottomat- ica, heimavöllur Lottomatica tekur. Jón Arnór er farinn að hitta betur í síðustu leikjum og er því farinn að leggja meira til sóknarleiksins í viðbót við það sem hann gerir fyrir varnarleik og liðsheild Lottomatica. Það er þó mest gaman að sjá hann í vörninni. Jón Arnór er nefnilega ekki að gefa neitt ókeypis inn á vellinum og hann stendur oft í mikilli baráttu við bakverði Siena. Einn þeirra sem Jón Arnór hefur alveg tekið út úr sínum leik er Mið-Afríkumaðurinn Romain Sato sem hefur aðeins skorað 17 stig og hitt úr 3 af 14 skotum sínum í síðustu tveimur leikjum. 10 af þessum stigum hafa komið af vítalínunni. Sato hefur kvartað mikið undan okkar manni sem gefur ekki mikið fyrir það. „Hann er bara vælukjói. Þeir spila mjög fast sjálfir og eru skítugir en þegar er tekið aðeins á þeim þá fara þeir að væla. Við þurfum að taka á þeim áfram í næsta leik,” segir Jón Arnór og bætti við. „Núna er allt önnur staða komin upp og ef við stelum næsta leik þá er þetta orðin sería aftur,” sagði Jón Arnór að lokum. JÓN ARNÓR STEFÁNSSON LÆTUR FINNA FYRIR SÉR: FIMMTI LEIKUR LOKAÚRSLITA ÍTALSKA KÖRFUBOLTANS Í KVÖLD Þegar tekið er aðeins á þeim fara þeir að væla FÓTBOLTI Luis Felipe Scolari var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea. Hann stýrir nú liði Portúgala á EM en mun taka við eftir mótið. Scolari er Brasilíu- maður og stýrði heimaþjóð sinni til heimsmeistaratitils árið 2002. Chelsea verður fyrsta liðið í Evrópu sem hann stýrir. - hþh Leit Chelsea loksins lokið: Scolari ráðinn EM 2008 Portúgal er komið áfram í 8-liða úrslitin eftir 3-1 sigur á Tékkum. Deco opnaði marka- reikninginn með miklu harðfylgi en Libor Sionko jafnaði með skalla. Ronaldo kom Portúgal yfir og hann lagði svo upp síðasta markið í uppbótartíma fyrir Ricardo Quaresma. Sviss er úr leik eftir 2-1 tap gegn Tyrkjum. Hakan Yakin kom Sviss yfir en Semih Senturk jafnaði fyrir Tyrki. Arda Turan skoraði sigurmarkið í uppbótar- tíma. Tékkar og Tyrkir leika úrslitaleik um hvor þjóðin kemst áfram með Portúgal. Í dag er leikið í B-riðli en þá mætast Þýskaland og Króatía og Austurríki og Pólland. - hþh A-riðill EM í gær: Portúgal fyrst til að komast áfram RONALDO Fagnar hér marki sínu í gær, sællegur á svip. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP FÓTBOLTI Fjölnir úr Grafarvogi vann í gær Fylki úr Árbænum, 1-0, með marki Tómasar Leifssonar í lok fyrri hálfleiks. Sigurinn var nokkuð sanngjarn þó svo að mark- ið hafi ef til vill komið örlítið gegn gangi leiksins. Ásmundur Arnarsson gerði fjór- ar breytingar á liði sínu og þær borguðu sig þar sem markaskor- arinn, Tómas, var einn þeirra sem kom inn í byrjunarliðið. Hann átti bylmingsskot að marki sem Fjalar Þorgeirsson, markvörður Fylkis, réði ekkert við. Fram að því voru Fylkismenn búnir að vera sterkari aðilinn í leiknum. Þeir voru meira með boltann og sköpuðu sér hættuleg- ar sóknir, þó svo að Fjölnismenn hafi átt nokkrar góðar skyndi- sóknir áður en markið kom. Varnarleikur Fjölnis var hins vegar vel skipulagður og áttu gest- irnir úr Árbænum í miklum vand- ræðum með að finna sér leið í gegnum vörn heimamanna. Fjölnismenn mættu mun spræk- ari til leiks í síðari hálfleik og áttu nokkur góð færi. Ólafur Páll Snorrason átti bestu marktilraun síðari hálfleiks er hann skaut í slá úr aukaspyrnu. Þá átti varamaður- inn Andri Valur Ívarsson skot í stöng en boltinn fór reyndar af varnarmanni Fylkis. Heimamönnum gekk mun verr að halda boltanum í síðari hálfleik og sem fyrr var vörn heimamanna afar föst fyrir. Fylkismenn reyndu hvað þeir gátu undir lokin að skapa sér færi en án árangurs. Varamaðurinn Kjartan Andri Baldvinsson komst næst því að jafna er hann skallaði í stöng eftir aukaspyrnu Peter Gravesen. Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, fékk að líta rauða spjaldið í leiknum. Hann mótmælti mjög dómgæslunni í leiknum og fékk gult fyrir. Hann var enn ósáttari við það og lét Gunnar Gylfason, aðstoðardómara, heyra það. Fyrir það fékk hann svo rautt. „Við fengum miklu betri færi en þeir og hefðum getað gert út um leikinn undir lokin,“ sagði Gunnar Már Guðmundsson, leikmaður Fjölnis. „Við erum vissulega heppnir í blálokin þegar þeir skalla í slá en mér fannst þetta sanngjarn sigur.“ „Mér fannst við yfirspila lið Fjölnis á löngum köflum og ekki oft sem við fáum svona pláss til að spila okkar leik,“ sagði Leifur eftir leik. „En það skilaði engu og er það aðalvandamálið.“ Hann vildi lítið tjá sig um dóm- gæsluna en sagði þó að hann væri ósáttur við að fá aðra meðferð en þeir sem sátu á varamannabekk Fjölnis. „Ég er orðinn verulega þreyttur á öllu því sem tengist dómaramálum, því miður. Ég sat á rassinum í 45 mínútur og sagði ekki orð. Á meðan voru menn hoppandi og skoppandi í hliðar- skýlinu mér við hlið. Það er ekki í fyrsta sinn í sumar sem það gerist að um leið og ég stend upp fæ ég athugasemd. Þetta er greinilega bara eitthvað sem ég verð að leiða hjá mér.“ - esá Vel skipulagðir Fjölnismenn unnu kærkominn sigur á Fylkismönnum í Grafarvoginum í gær: Fjölnismenn komnir aftur á sigurbraut KÁRI FAGNAR SIGURMARKINU Tómas og félagar hans fagna með stuðnings- mönnum Fjölnis. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Úrslit og markaskorarar í gær: Valur-KR 2-1 0-1 Hólmfríður Magnúsdóttir (11.), 1-1 Margrét L. Viðarsdóttir (42.), 2-1 Dóra M. Lárusdóttir (85.) Stjarnan-Breiðablik 2-1 1-0 Gunnildur Yrsa Jónsdóttir (47.), 2-0 Pamela Liddell (66.), 2-1 Greta Mjöll Samúelsdóttir (71.). FÓTBOLTI Valur sigraði KR í topp- slag Landsbankadeildar kvenna á Vodafonevellinum í gærkvöld. Leikurinn fór fjörlega af stað og strax frá fyrstu mínútu var mikið um hörð návígi og tæklingar, enda mikið í húfi. KR-stúlkur byrjuðu betur og gerðu harða hríð að marki Valsstúlkna og á 11. mínútu náði Hólmfríður Magnúsdóttir að skora fyrir gestina. Hólmfríður fékk nægan tíma til þess að athafna sig rétt fyrir utan vítateig Vals og þakkaði pent fyrir sig með því að þruma boltanum upp í hægra markhornið, óverjandi fyrir Randi Wardum í marki Vals. Markið virtist hafa slegið Vals- stúlkur enn frekar út af laginu en Íslandsmeisturunum óx þó ásmeg- in þegar líða tók á fyrri hálfleik og eftir rúman hálftíma leik gerðu Valsstúlkur tilkall til vítaspyrnu þegar boltinn virtist snerta hönd varnarmannsins Guðrúnar Sóleyj- ar Gunnarsdóttur innan vítateigs en dómarinn Frosti Viðar Gunn- arsson ákvað að dæma ekki. Sóknarþungi Valsstúlkna jókst svo enn meira í lok fyrri hálfleiks og eftir þunga sóknarlotu á 42. mínútu náði Margrét Lára Viðars- dóttir að jafna leikinn. María Björg Ágústsdóttir byrjaði á að verja vel frá Margréti Láru en eftir krafs í teignum barst boltinn aftur fyrir fætur Margrétar Láru sem brást ekki bogalistin og negldi honum í þaknetið. Litlu munaði hins vegar að KR tæki forystu á nýjan leik á 45. mín- útu þegar Edda Garðarsdóttir tók aukaspyrnu langt út á vinstri kant- inum en boltinn virtist ætla að svífa í markið áður en Wardum rétt náði að verja í slá. Það færðist enn meiri harka í leikinn í síðari hálfleik og greini- legt að bæði lið ætluðu að selja sig dýrt. Það var hins vegar ekki mikið um opin marktækifæri framan af seinni hálfleik. En það dró til tíðinda á 85. mínútu þegar Sif Atladóttir átti háa sendingu inn að vítateig KR og þar var Dóra María Lárusdóttir á auðum sjó og skallaði boltann laglega í markið. KR fékk kjörið tækifæri til að jafna leikinn á lokamínútu leiks- ins þegar markadrottningin Olga Færseth komst ein inn fyrir vörn Vals en Wardum sá við henni og lokatölur 2-1 fyrir Val. Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, var mjög ánægð í leikslok. „Ég er bara í skýjunum með þetta. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu en ég held að við höfum samt verið sterkari í heild- ina litið og viljinn var meiri hjá okkur,“ sagði Elísabet. Helena Ólafsdóttir, þjálfari KR, gat ekki leynt vonbrigðum sínum. „Eitt mark er ekki nóg í fótbolta og ég hefði viljað fá annað mark hjá okkur í stöðunni 0-1 en það féll ekki með okkur í dag. Það þarf bara að nýta öll sín færi í svona toppslag en það gekk ekki upp hjá okkur og það er grátlegt,“ sagði Helena. omar@frettabladid.is Sætur sigur Valsstúlkna Íslandsmeistarar Vals tryggðu stöðu sína á toppi Landsbankadeildar kvenna eftir 2-1 sigur gegn KR í toppbaráttuslag á Vodafonevellinum í gær. BARÁTTA Leikur Vals og KR ein- kenndist af mikilli baráttu og hörku í gærkvöld. FR ÉT TA B LA D ID /A R N ÞÓ R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.