Fréttablaðið - 12.06.2008, Page 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Það var vandræðagangur á blað-inu þegar frétt um hommana á
Hæðinni átti að birtast daginn
eftir. Fyrirsögnin var Hommarnir
á Hæðinni reknir úr vinnu, en
hinir gagnkynhneigðu blaðamenn
voru tvístígandi yfir þessu. Var
fyrirsögnin móðgandi? Úr varð að
hringt var í Begga og Pacas og
auðvitað var þetta ekkert – Við
erum hommar, hvað er málið?
Í KJÖLFAR Suðurlandsskjálftans
var hringt í formann Parkinsons-
sjúklinga fyrir grínspurninguna á
bls. 2 og hann spurður hvort hann
hefði fundið skjálftann. Formaður-
inn fann hann, enda ekki með sjúk-
dóminn, en auðvitað varð allt vit-
laust. Í hrönnum móðgaðist fólk
fyrir titrandi hönd Parkinsons-
sjúklinga en formaðurinn var síður
en svo neitt fúll. Honum fannst
bara gott að verið væri að gera
grín. Þá fannst honum eins og Park-
insons-sjúklingar væru hluti af
samfélaginu.
AÐ MÓÐGAST auðveldlega er
veikleikamerki. Móðgað fólk er
hlægilegt. Sérstaklega verður
þetta pínlegt þegar fólk móðgast
fyrir hönd stórra hópa, eins og til
dæmis helmings mannkynsins. Ég
skil ekki hvernig er hægt að vera
móðgaður fyrir hönd allra kvenna í
heiminum út af því kannski að létt-
klætt módel hallar sér framan á bíl
til að auglýsa hann. Hvað kemur
það Guddu í Grafarvogi og Jenu í
Jakarta við? Eru svona auglýsing-
ar ekki bara hallærisheit sem
„dæma sig sjálf“ og ber að gantast
með frekar en að móðgast yfir?
FYRST komast hinar móðguðu
sveitir vitleysinga á flug þegar
taka skal upp hanskann fyrir
ímynduðu ofurveruna á himnum.
Þá fara hinir móðguðu í ham og
hreinlega sturlast. Þeir telja sig í
fullum rétti til að vera brjálaðir
enda er verið að vanvirða það sem
þeim er „heilagast“, ranghug-
myndinni í huga þeirra. Þeir brjál-
uðustu víla ekki fyrir sér að
kveikja í eða drepa af því að þeir
eru svo ægilega móðgaðir, og svo
telja þeir sig studda af ofurver-
unni sem klappar ánægð uppi á
skýi. Eins og hún sjálf gæti ekki
gengið í málið væri hún til, ver-
andi þetta almáttug og allt.
AÐ VERA móðgaður fyrir hönd
annarra er misskilin góðmennska.
Móðgunargirni er stór galli á húm-
orslausum og rétttrúnaðarsveitt-
um nútímanum. Sjálfur verð ég
helst móðgaður þegar ég stend eins
og bjáni við gangbraut og enginn
stoppar fyrir mér. En það er nú
bara af því mér leiðast fífl sem
kunna ekki umferðarreglurnar.
Að móðgast fyrir
hönd annarra
Í dag er fimmtudagurinn 12.
júní, 165. dagur ársins.
3.01 13.27 23.56
1.51 13.12 0.57
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
6
1
5
1
Hafðu einkaþjálfarann
í vasanum
Lifðu núna
Nýi Samsung Adidas síminn
fæst eingöngu hjá Vodafone.
Hann er sérhannaður fyrir
hlaupara og fólk sem vill ná
árangri í ræktinni. Hann heldur
þér við efnið með nákvæmum
upplýsingum um hraða,
brennslu og vegalengdir.
• Mp3 spilari
• Skrefamælir
• Púlsmælir
• Heilsubókhald á netinu
Sími sem heldur þér í formi
39.900 kr.
...ég sá það á visir.is
Segir grafhýsi Kleópötru fundið
Myndir berast frá Mars
Tilfærsla yfir á hægri akrein sviðsett
Býst við minni verðbólgu
MEST LESIÐ: