Fréttablaðið - 30.06.2008, Blaðsíða 12
12 30. júní 2008 MÁNUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Lögin um staðfesta sambúð eru
að mestu leyti sjónhverfing. Þau
veita hvorki samkynhneigðum né
gagnkynhneigðum nokkur réttindi
eftir því sem ég best veit. Ýmsir hafa
sagt að þetta veiti sömu réttindi
og hjónaband, en það er því miður
rangt. Þetta veitir ekki erfðarétt og
ekki öryggi eins og hjónaband á að
gera,“ segir Jörmundur Ingi um ný
lög um staðfesta samvist sem tóku
gildi í gær. „Mér finnst bara ljótt að
telja fólki trú um að þetta sé hjóna-
band þegar það er það ekki.“
Því næst spyr Jörmundur, „Ef það
er einhver akkur í því að fá staðfesta
sambúð af hverju mega þá prestar
ekki staðfesta sambúð fólks af
gagnstæðu kyni? Ég hef hingað til
ekki mátt staðfesta sambúð karls
og konu. Það stendur hvergi að
ég megi staðfesta sambúð tveggja
einstaklinga af gagnstæðu kyni. Ég
sé bara ekki hvað löggjafinn er að
meina með þessu. Þetta er eins og
plástur sem er settur á óskilgreint
sár.“
SJÓNARHÓLL
LÖG UM STAÐFESTA SAMVIST
Lögin eru hálf-
gert húmbúkk
„Ég er á leiðinni austur á land,“ segir
Daníel Karl Björnsson myndlistarmaður.
„Þar ætla ég að kenna á myndlist-
arnámskeiði fyrir krakka en það
er haldið ár hvert í tenglsum við
menningarmiðstöðina á Eiðum
á Héraði.
Daníel hefur ekki slegið slöku
við í Reykjavík en hann starfar
einnig fyrir galleríið Kling
og Bang. „Ég er búinn að
vera sveittur að vinna í Kling
og Bang við að taka niður
sýningu. Við erum nefnilega
að fara að setja upp aðra sem
verður opnuð næsta föstudag.
Þar verða sýnd verk eftir Erling
Klingenberg, Magnús Sigurðsson
og Ásmund Ásmundson.“ Hann
bætir við að verkin séu ný og þau séu
„ekkert minna en stórkostleg.“
„Auk þess að ætla í brúðkaup í
ágúst hef ég hugsað mér að
eyða sumrinu á Seyðisfirði,“
segir Daníel fullur tilhlökkunar.
„Þar keypti ég mér hús fyrir
nokkrum árum sem mér
þykir gaman að sinna.“
Þar segist Daníel ætla að
sinna verkum sem setið
hafa á hakanum. „Ég
hlakka mest til að taka til
í hlöðunni, hún er lítil en
alveg fullkomin fyrir mig.“
Daníel bætir því við að sér
þyki gott að vera í sveitinni.
Aðspurður hvers vegna segir
hann: „Sveitin heillar.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? DANÍEL KARL BJÖRNSSON MYNDLISTARMAÐUR
Sveitin heillar
Þjóðtrúin segir okkur að ógæfan sé
aldrei stök, heldur komi þrír atburð-
ir í röð. Því eru margir farnir að
spyrja sig þess hver sé þriðji
atburðurinn á eftir jarðskjálfta og
ísbjörnum.
„Jú, við höfum verið spurð að því
hvað þjóðtrúin segi í slíkum tilvik-
um,“ segir Rósa Þorsteinsdóttir,
þjóðfræðingur á Árnastofnun. „En
ekkert er til um þetta í þjóð-
trúnni.“
Rósa segir þá trú að stóratburðir
gerist þrír í einu mjög ríka. Nú sé
lag á nýrri hefð. „Við gætum fundið
einhvern atburð, hver sem hann nú
væri, og svo afleiðingu þessara
þriggja atburða. Ef jarðskjálfti
verður, ísbirnir ganga á land og...
eitthvað þriðja gerist, þá verður
svartur maður forseti í Bandaríkj-
unum,“ segir Rósa hlæjandi.
Hún segist ekki þekkja þjóðtrú
tengda jarðskjálftum. Hvað ísbirn-
ina varðar er heldur ekki mikið að
finna um þá. Þó segir gömul þjóð-
trú að húnarnir fæðist mennskir.
Þeir haldist þannig þar til birnan
slær yfir þá hrömmunum. Það er
það eina sem við þekkjum þessu
tengt,“ segir Rósa að lokum. - kóp
Þjóðtrúin lifir enn góðu lífi á meðal Íslendinga:
Bíða þriðja atburðarins
RÓSA ÞORSTEINSDÓTTIR
Stefnt er að því að opna
víkingasýningu í Víkinga-
heimum í Reykjanesbæ
næsta sumar. Verið er að
byggja yfir víkingaskipið
Íslending. Í sama húsi og
hægt verður að skoða skipið
verður sett upp sýning
frá Smithsonian-safninu í
Bandaríkjunum um ferðir
víkinganna.
Víkingasafnið verður hluti af vík-
ingaþorpi þar sem boðið verður
upp á skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna, segir Steinþór Jónsson,
framkvæmdastjóri Íslendings,
félagsins sem stendur á bak við
Víkingaheima.
„Okkar grunnur byggist á 1.000
fermetra sýningarhúsnæði sem
við erum að klára að byggja núna,
þar sem við munum meðal annars
hýsa Íslending,“ segir Steinþór.
Hann segir að hægt verði að
upplifa víkingatímann með tals-
vert öðrum hætti á Suðurnesjum
en í Hafnarfirði, þar sem íslensk-
ir víkingar hafa haft aðsetur und-
anfarin ár og haldnar hafa verið
árlegar víkingahátíðir.
„Við stefnum að því að byggja
upp ýmiss konar leiktæki úr trjá-
drumbum og gera fjölskyldugarð,
þar sem fjölskyldan getur komið
saman og átt góða stund,“ segir
Steindór. Mögulega verði líka hús-
dýr sem fylgt hafi víkingunum á
staðnum.
Sýningin verður opnuð næsta
sumar, en stefnt er að því að bygg-
ingin verði tilbúin í haust. Stein-
þór segir að einnig standi til að
standa fyrir fjölskylduhátíðum
með víkingaþema. Þær verði því
ólíkar þeim sem haldnar hafi
verið í Hafnarfirði og áherslan
frekar lögð á börnin.
Steinþór segir samkeppni við
víkingana í Hafnarfirði ekki á
dagskrá. Hann reiknar frekar
með því að víkingasafn og önnur
aðstaða á Reykjanesi verði vík-
ingunum í Hafnarfirði til hags-
bóta.
Íslendingur verður til sýnis í
sumar þótt húsið sé ekki tilbúið.
Hann stendur nú við bæjarstæðið
í Stekkjakoti í Njarðvík. Þar mun
Gunnar Marel Eggertsson skipa-
smíðameistari, sem smíðaði skip-
ið, taka á móti gestum milli klukk-
an 13 og 16 daglega.
Kostnaðurinn við uppbyggingu
Víkingaheima verður á bilinu 500
til 800 milljónir króna. Steinþór
segir vissulega erfiðara að ljúka
verkefni af þessari stærðargráðu
núna vegna erfiðleika í efnahags-
málum.
Víkingarnir eigi þó öfluga bak-
hjarla og hann óttist því ekki um
afdrif verkefnisins.
brjann@frettabladid.is
Víkingar herja á Suðurnes
VÍKINGAHEIMAR Víkingaskipið Íslendingur stendur í dag utandyra, en verið er að byggja sýningarsal þar sem meðal annars verður
hægt að sjá undir botn skipsins. MYND/VÍKURFRÉTTIR
JÖRMUNDUR INGI HANSEN
Fyrrverandi allsherjargoði
Viðurstyggilegt
„Mér finnst Jón H.B. Snorra-
son og Arnar Jensson og
menn sem unnu með þeim
að rannsókn málsins, hafa
beitt viðurstyggilegum vinnu-
brögðum, sem verða þeim til
ævarandi vansa.“
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON LEYNIR
EKKI SKOÐUN SINNI Á ÞEIM SEM
UNNU AÐ RANNSÓKN BAUGS-
MÁLSINS.
Morgunblaðið 29. júní.
Súkkulaðikleinuland
„Ísland hefur um árabil verið
súkkulaðikleina í samfélagi
þjóðanna.“
EDDA RÓS KARLSDÓTTIR TELUR AÐ
EKKI ÞÝÐI LENGUR FYRIR ÍSLAND
AÐ VERA „SÚKKULAÐIKLEINA“ UTAN
EFNAHAGSBANDALAGA.
Fréttablaðið 29. júní.
SIMBABVE:
HIÐ STÓRA STEINHÚS
■ Nafn Afríkuríkisins Simbabves
er dregið af orðunum Dzimba
dza mabwe.
Þessi orð,
í Shona-
tungumálinu,
þýða „hið
stóra stein-
hús“.
Shona-
málið er af
ætt Bantu-mála, sem eru ríkjandi í
suðurhluta heimsálfunnar.
Sérfræðingar telja að þær
tungur gætu verið rúmlega 500
talsins. En innan Shona eru
nokkrar mállýskur, svo sem Zezuru
og Ndau. Bantu þýðir „fólk“ og var
nefnt svo vegna þess hve margar
tungurnar eru.