Fréttablaðið - 30.06.2008, Blaðsíða 18
[ ]
Margir golfarar skreppa á
golfvellina þegar hlýna tekur
á vorin. Einar Gunnarsson,
golfari og nemi í Golfkennara-
skóla PGA á Íslandi, er engin
undantekning.
„Ég er að fara út á golfvöll að
spila,“ segir Einar á sólríkum sum-
ardegi. Hann segist lengi hafa haft
áhuga á golfi. „Ég hef haft áhuga á
golfi frá því ég var krakki. Ég
stundaði golf mikið á unglingsár-
um. Svo kom smáhlé því ég var í
handbolta. Á þeim tíma lagði ég
golfið aðeins á hilluna en ekki
alveg upp í hillu,“ segir Einar en
bætir því við að golfiðkun hans
hafi aukist aftur og verið kraft-
meiri undanfarið.
„Það sem er svo skemmtilegt við
golfið er að fólk er alltaf í sífelldri
leit að fullkomnun en veit innst
inni að það nær henni aldrei. Alltaf
er hægt að bæta sig. Það er hægt
að komast einni tröppu ofar, hvort
sem maður heitir Tiger Woods eða
er að byrja. Það er það flottasta við
íþróttina,“ segir Einar.
Einar segir að golf sé hugar-
sport og holl íþrótt. „Golfið er
einnig holl uppeldisíþrótt, vil ég
meina. Það eru vissir siðir og regl-
ur sem börn og allir læra þegar
íþróttin er stunduð. Þess vegna
gerir hún fólk heilbrigðara og
minnir það á hvernig á að haga
sér,“ segir Einar íhugull.
Ávallt er skemmtilegt þegar
nám og áhugamál tengjast. Einar
stundar nám við Golfkennaraskóla
PGA á Íslandi. „Ég byrjaði núna í
vetur í golfkennaranámi. Þegar
námið hittir algjörlega á áhuga-
málið manns er það miklu skemmti-
legra.“ martaf@frettabladid.is
Golfið góð uppeldisíþrótt
Einar segir golfið vera hugarsport og holla íþrótt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Félagsskapurinn skiptir máli í golfi eins og öðrum íþróttum. Skemmti-
legast er að fara á völlinn með góðum vini eða nánum fjölskyldumeðlimi.