Fréttablaðið - 30.06.2008, Blaðsíða 50
18 30. júní 2008 MÁNUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Fátt er það sem hressir
jafnrækilega og að
þamba gosdrykk á
heiðskírum og fögrum
sumardegi. Gosunn-
endur þekkja allir þá
alsælu sem hríslast um
líkamann við hljóðið sem
heyrist þegar gosílát er
opnað fyrsta sinni, svo og nánast
ólýsanlegri vellíðaninni sem fylg-
ir fyrsta sopanum. Soparnir verða
svo stöðugt verri og verri þar til
botninum er náð; viti borið fólk
hefur rænu á að drekka ekki
dreggjarnar, enda eru þær gos-
lausar og sumir segja fullar af
munnvatni. Betra er að halda sig
við efsta gosið í flöskunni og nýta
dreggjarnar í vísindatilraunir.
Nokkur hefð er fyrir því að sér-
legar viðhafnarútgáfur af þekkt-
um gosdrykkjum komi á markað-
inn á sumrin, enda má fastlega
gera ráð fyrir því að almenningur
sé nokkuð gosþyrstari þá en á vet-
urna. Gaman er að kynna sér gos-
flóruna á hverju sumri enda kenn-
ir þar ýmissa grasa;
sumar gosdrykkirnir eru jafnan
litríkir og framandi á bragðið.
Þó að flest gott megi segja um
það að bjóða upp á nýjungar sem
þessar til að gleðja bragðlauka
landsmanna er einn stærðarinnar
galli á gjöf Njarðar: Stundum eru
þessir tímabundnu drykkir bara
svo góðir að lífið virðist tómt og
tilgangslaust þegar framleiðslu
þeirra er hætt. Það eru eflaust
margir sem hugsa til bláa Pepsí-
s ins með söknuð í hjarta; ekki
aðeins var bragðið ólíkt öllu öðru
heldur leið manni við drykkjuna
eins og ofurhetju sem er fær um
að innbyrða geislavirkan úrgang
til að bjarga mannkyni. Það er
ekki vondur drykkur sem fram-
kallar hjá manni jafn mikilfeng-
lega dagdrauma. Fleiri drykkir
hafa átt sér stað í hjörtum þjóðar-
innar í gegn um árin og er nokkuð
útséð með það að það mun taka
ansi marga sárt þegar drykkur
þessa sumars, hinn smellni Rímix,
hverfur af markaðinum með
haustinu. Hvers vegna ekki að
leyfa honum að lifa aðeins lengur
og gleðja bragðlauka landsmanna
yfir hörðustu vetrarmánuðina?
STUÐ MILLI STRÍÐA Drykkir sumars
VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR BERST FYRIR NEYSLUVÖRUM
Það er svo langt
síðan að ég fór
á krá! Held að
Reagan hafi
verið forseti
Bandaríkjanna!
Eða
leikari!
Ég gæti auðveld-
lega vanist þessu!
Svo mikið gott í
glasinu!
Svo margt
fallegt að
horfa á!
Passaðu þig á þessari,
Haraldur! Maður veit
aldrei hvar hún hefur
verið!
Haltu
kjaafti
Halló?
Má ég tala við
Palla?
Hann er
sofandi.
Ókei, þá
hringi
ég aftur
snemma í
fyrramálið.
Þetta er snemma í
fyrramálið.
Ó,
ókei.
Má ég þá
tala við
hann?
Þessir íkornar eru
klikkaðir! Ég fæ ekki
á annað kosið en að
vera inni í dag. Hvað
get ég annað gert!?!
Lokað
gluggunum.
Pabbi!
Sjáðu
hvað ég
bjó til!
Afmælis-
kort til
mömmu!
„Til ham-
ingju með
afmælið,
mamma.“
En hvað það
er flott!
Mamma á ekki afmæli fyrr
en eftir tvær vikur, svo við
verðum að finna ofurleynileg-
an stað til að fela það
á á meðan.
Eins og golf-
töskuna þína
Hvað veist þú um golftösk-
una mína?
Mamma segir
að þú felir alltaf
hlutina þína í
henni.
Vá, hvað lífið er
auðvelt hjá ykkur
krökkunum. Þegar
ég var á þínum aldri
varð ég að drekka
úr klósettinu.
Stjórn 365 hf. boðar til hluthafa-
fundar í félaginu sem haldinn verður
á Hilton Reykjavík Nordica
þriðjudaginn 1. júlí 2008, kl. 14.00.
Dagskrá:
Tillaga um að stjórn félagsins
verði falið að óska eftir afskráningu
hlutabréfa félagsins úr kauphöll OMX
Nordic Exchange á Íslandi.
Tillaga um að stjórn félagsins verði
falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í
félaginu er þess óska fyrir kl. 16.00
þann 11. júlí 2008. Greitt verði á
kaupverði kr. 1.20 á hvern hlut.
Tillaga um að stjórn félagsins verði
heimilað í tengslum við framangreind
kaup á hlutabréfum í 365 hf., sbr.
dagskrárlið 2, að kaupa allt að 15%
eigin hluta fyrir kr. 1.20 á hvern hlut.
Heimildin skal gilda til og með 31. júlí
2008. Verði eigin hlutir í eign
félagsins umfram 10% eftir viðskiptin
skal stjórn félagsins lækka hlutafé
félagsins í samræmi við lög um
hlutafélög til að eigin hlutir eftir slíka
hlutafjárlækkun verði ekki umfram
10% af hlutafénu.
Atkvæðaseðlar afhendast og verða
taldir á hluthafafundinum þann 1. júlí
og verða einungis atkvæði þeirra
hluthafa sem eru skráðir í hlutaskrá
kl. 11.00 þann dag talin með.
Stjórn 365 hf.
1
2
3