Fréttablaðið - 30.06.2008, Page 52
20 30. júní 2008 MÁNUDAGUR
„Það er svaka vinsælt að fara út í
svona stórt verkefni strax eftir að
maður eignast barn, eða þannig.
Sem betur fer á ég mjög skilnings-
ríka konu,“ segir Vilhelm Jónsson,
Villi Naglbítur. Verkefnið er sam-
starf 200.000 naglbíta og Lúðra-
sveitar verkalýðsins, tónleikar og
plata.
„Það verða tíu gömul Naglbíta-
lög á plötunni útsett fyrir 45
manna lúðrasveit og bandið. Það
er svakalegt að heyra tónlist eftir
sig í þessum útsetningum. Ég er
alvarlega að spá í að hætta í rokk-
inu og gerast tónskáld. Og það er
auðvitað miklu meira töff að vinna
með lúðrasveitinni en Gospel kórn-
um eða Sinfó. Það eru allir eld-
rauðir í framan þegar allir eru að
spila í einu. Og svo er það bara
rugl þetta „less is more“-kjaftæði.
„More is more“. Við heimspeki-
menntaða fólkið föttum það.“
Hið fjölmenna samstarfsverk-
efni kemur fyrst fyrir almenn-
ingssjónir á Menningarnótt á stór-
tónleikum í Hafnarhúsinu. Svo má
búast við plötunni í október. - glh
folk@frettabladid.is
> ENN EITT KYNLÍFS-
MYNDBANDIÐ
Verne Troyer, sem er þekktast-
ur fyrir leik sinn í kvikmynd-
unum um spæjarann Aust-
in Powers, stendur nú í mála-
ferlum við fyrirtækið TMZ.com.
Fyrirtækið mun hafa komist
yfir myndband af ást-
aratlotum Troyers og
þáverandi kærustu
hans og sett það inn
á veraldarvefinn.
Leikarinn Jake Gyllenhaal er flutt-
ur inn í glæsivillu Reese Wither-
spoon í Los Angeles, sem er metin
á um fimm milljónir dollara.
Margir telja þetta benda til þess
að parið sé í brúðkaupshugleiðing-
um.
Samkvæmt heimildum tímarits-
ins US Weekly eyðir parið ómæld-
um tíma saman, en þau kynntust á
tökustað kvikmyndarinnar Rendi-
tion fyrir rúmu ári síðan. Jake er
sagður vera duglegur að hjálpa
Reese með uppeldi barnanna
hennar tveggja, Avu átta ára og
Deacons fjögurra ára, sem hún á
úr hjónabandi sínu með leikaran-
um Ryan Phillippe.
Reese og Jake þrættu lengi vel
fyrir samband sitt, en opinberuðu
það í október síðastliðnum eftir að
til þeirra sást í rómantískri
helgarferð í Rómarborg.
Flutt í glæsivillu
Tískuhúsin kynna nú karlatísku sína fyrir vor og sumar 2009 í Mílanó. Hjá Moschino
og hönnuðinum Antonio Marras strunsuðu skólastrákalegar fyrirsætur eftir pöllunum.
Hnepptar peysur og munstraðir jakkar virðast ætla að verða allsráðandi á komandi vori.
Skólastrákar í Mílanó
Sardíníski hönnuðurinn Anton-
io Marras og Rossella Jardini hjá
Moschino voru samstiga í hönnun
sinni fyrir næsta vor og sumar.
Uppfærðir skólastrákar í hnepptum
peysum, skyrtum og jakkafatabux-
um verða greinilega á hverju strái
næsta sumar, en það útlit hefur ekki
síður verið vinsælt hjá hönnuðum
kvenfatnaðar.
SAMSTIGA Í SKÓLASTRÁKAHÖNNUN
GLÆSILEGT PAR Reese Witherspoon og
Jake Gyllenhaal eru sögð eyða ómæld-
um tíma saman og búa nú í glæsivillu
Reese í Los Angeles.
Ingibjörg Lind Karlsdóttir og Logi Bergman
eru meðal þeirra sem tala inn fyrir persón-
urnar í Kung Fu Panda, en hún verður frum-
sýnd 2. júlí næstkomandi. Inga talar fyrir
Meistara Nöðru, en Logi talar fyrir nashyrn-
inginn, Vachir liðsforingja.
Logi Bergmann fór í gegnum ítarlegt mat
hjá Dreamworks erlendis og stóðst það víst
með glans. Sigurður Victor Chelbat, sem sér
um kynningar og markaðsmál Sammynda,
segir ekki hlaupið að því þar sem „nokkrum
vel þekktum einstaklingum“ hafi verið hafn-
að.
Inga Lind segist hafa skemmt sér konung-
lega við gerð talsetningarinnar. „Þetta var
æðislega gaman. Mér var boðið hlutverk á
síðustu metrunum á meðgöngunni minni. Ég
gekk svo hressilega fram yfir með þetta
barn, það var fínt að gera eitthvað í fríinu.
Og rosalega skemmtilegt að prófa eitthvað
nýtt.“ Lucy Liu talar fyrir Meistara Nöðru á
ensku.
Þetta er í fyrsta sinn sem Inga talar inn á
teiknimynd. „Ég hef lesið fyrir börnin mín, en
ekki svona.“ Inga segir þau Loga ekkert hafa
unnið saman að þessu verkefni. „Maður er bara
einn inni í stúdíói.“ Því eru engin slöngu- og
nashyrningagamanmál þeirra á milli.
Fríður hópur kemur að talsetning-
unni, en landsliðið, Arnar Jónsson,
Hjálmar Hjálmarsson, Atli Rafn Sig-
urðarson, Ólafur Darri Ólafsson og
Valdimar Flygering tala öll inn á
myndina. Björn Thorarensen þýddi.
Leikstjórn var í höndum Júlíusar
Agnarssonar. kbs
Inga Lind er Naðra
MORE IS MORE Villi Naglbítur spilar með
Lúðrasveit verkalýðsins
Allir eldrauðir í framan
Það stefndi allt í að Angelina Jolie
og Jennifer Aniston færu í hár
saman þegar kæmi að frumsýn-
ingu nýjustu mynda þeirra.
Kvikmynd Angelinu, Changeling,
verður frumsýnd í október á
þessu ári og þykir myndin það
góð að hún þykir líkleg til
óskarsverðlauna næsta ár.
Kvikmynd Jennifer, He‘s just not
that into you, átti að frumsýna
sama dag en nú hefur verið
staðfest að frumsýn-
ingunni hefur verið
frestað og verður
myndin því ekki
sýnd fyrr en í
byrjun næsta árs.
Það þýðir að
Aniston þarf
ekki að keppa
við ástkonu
fyrrverandi
eiginmanns síns
um vinsældir
enn um sinn.
Í hár saman
KUNG FU PANDA Komin yfir á
Íslensku.
SLANGA Inga Lind talar fyrir einn
Kung Fu-meistaranna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI