Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 28
Á góðum degi er ekki úr vegi að
draga fram Jóa Fel sem býr innra
með okkur öllum og baka alvöru
bananamuffins til að hafa með
morgunmatnum.
450 g spelt
1 msk. lyftiduft
2 egg
200 g hrásykur
1/2 dl olía
4 og 1/2 dl mjólk
3-4 vel þroskaðir bananar
hitið ofninn í 200 gráður
Blandið saman spelti og lyftidufti í
skál. Þeytið saman egg, hrásykur,
olíu og mjólk í annarri skál. Blandið
innihaldi skálanna saman og bætið
bananamaukinu út í. Hellið deiginu í
muffinsform og bakið í 15-20 mínút-
ur, eða þar til kökurnar hafa lyft sér.
LOSTÆTI VIKUNNAR
MORGUNMATURINN:
Uppáhaldið er ad koma við í Lagkage-
huset á Christianshavn (eftir að hafa
komið börnunum í skólann) og kaupa
mér speltbrauð og rabarbarahorn sem
bragðast best á svölunum mínum.
SKYNDIBITINN:
Ég er ekkert rosa dugleg í skyndibit-
anum, en ef hægt er að kalla sushi
skyndibita þá klikkar Sticks and sushi
á Istegade aldrei.
RÓMÓ ÚT AD BORDA:
Það er lítill franskur staður á Lars
Bjørs stræde sem heitir L’Education
Nationale. Hann er í algjöru uppáhaldi.
Hann er kannski ekkert neitt voða
rómó í útliti, en það er eitthvað sem
liggur í loftinu þar.
UPPÁHALDSVERSLUNIN:
Klárlega Goggle á Elmegade, þegar
innkaupin snúast um sjálfa mig. Ef ég
er að hugsa um börnin þá er það Elme-
børn sem er á Elmegade. Annars er
mjög mikið af skemmtilegum verslun-
umn á Istedgade þar sem er hægt að
finna eitthvað við allra hæfi.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁLIÐ:
Það hlýtur ad vera Islands Brygge,
sem hefur blómstrað síðustu árin. Þá
má sérstaklega nefna Københavns
havnebad og umhverfið þar í kring
sem er algjör snilld.
BEST VIÐ BORGINA:
Það sem mér finnst best vid Kaup-
mannahöfn er hvað það er stutt í græn
svæði. Maður kemst alls staðar í ein-
hverja garða eða leiksvæði þar sem
hægt er að eyða heilu og hálfu dögun-
um í ró og næði í öllum hamagangn-
um.
LÍKAMSRÆKTIN:
Hjóla, labba, hjóla meira.
borgin mín
KAUPMANNAHÖFN
LÁRA GUÐNADÓTTIR nemi
Inga Wonder syngur lag á nýjustu plötu Merzedes Club
Í spandexgalla á
sviðinu
Inga Þóra Ingadóttir gengur
undir nafninu Inga Wonder
þessa dagana. Hún mun troða
upp með Merzedes Club í
sumar en hún syngur lagið Des-
ire á væntanlegri plötu hljóm-
sveitarinnar. Til þess að falla
inn í hópinn mun Inga klæðast
sérhönnuðum galla úr smiðju
Hörpu Einarsdóttur.
„Valli sport spurði mig hvort
ég vildi verða bakraddasöng-
kona Merzedes Club. Svo vildi
Barði Jóhannsson endilega að
ég myndi syngja eitt lag á plöt-
unni. Ég ákvað því bara að slá
til,“ segir Inga. Hún er ekki
ókunn sviðsljósinu því hún söng
í kór í mörg ár og dansaði með
Love Guru. Það er kannski ekki
á færi allra að klæðast fatnaði
í anda Merzedes Club en Inga
fer létt með það enda er hún
íþróttafræðingur og einkaþjálf-
ari. Þegar hún er spurð hvort
hún fái einhvern tímann sviðs-
skrekk segir hún svo ekki vera.
„Ég er búin að vera í fimleikum
og að dansa á sviði síðan ég var
lítil þannig að þetta er ekkert
mál. Mér finnst gaman að koma
fram og fá viðbrögð hjá fólki.
Það gefur mér kraft,“ segir hún
og bætir við að ekki skemmi
það stemninguna hvað hún fíli
danstónlist vel. Þegar hún er
spurð að því hvernig hún haldi
sér í formi þá segist hún æfa á
hverjum degi enda sé hún Boot
Camp þjálfari.
„Við þjálfararnir æfum
saman í tvo tíma á dag,“ segir
Inga Wonder klár í slaginn.
martamaria@365.is
Bananamuffins í árbít
4 • FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008