Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 6
6 4. júlí 2008 FÖSTUDAGUR ÚTIVIST „Við leyfum ekki öllum að tjalda hér. Ungt fólk fær ekki að vera ef það er ekki með börn eða tjaldvagn og annað,“ segir Snæbjörn Magnússon, umsjónarmaður tjaldsvæðisins í Laugarási í Biskupstungum. Kristínu Laufeyju Steinadóttur lyfjafræðingi var um síðustu helgi vísað frá tjaldstæðinu en hún var þar á ferðalagi ásamt tveimur vinkonum. Tvö pör sem einnig eru vinafólk höfðu slegist í hópinn. Kristín Laufey er 28 ára gömul og hitt fólkið á svipuðum aldri. Þau ætluðu að eiga góða stund í íslensku sumri, grilla og fara í gönguferðir. „Við vorum ekki með börn í aftursætinu og þess vegna ekki boðin velkomin,“ segir Kristín Laufey. „Okkur var sagt að ef við værum með börn mættum við koma en ef við ætluðum að búa til börn þyrftum við að fara annað.“ Kristínu Laufeyju fannst hún mæta fordómum. „Ég hef aldrei gerst sek um að vera með læti eða eyðileggja neitt. Þess vegna finnst mér undarlegt að mæta svona viðhorfi að nálgast þrítugt.“ „Við rekum hér fjölskyldutjaldstæði og ungt fólk á ekki samleið með því,“ segir Snæbjörn. „Ungt fólk er fjörugra og skemmtir sér lengur, en hér á tjaldstæðinu á að vera ró frá miðnætti.“ Snæbjörn ætlar þó að bregða út af vananum eina helgi síðsumars og leyfa bara ungu fólki að tjalda í Laugarási. „Þá má unga fólkið hafa hátt, vera til og skemmta sér,“ segir Snæbjörn. „Þá helgi verður fjölskyldu- fólkinu bannað að koma til að trufla ekki krakkana.“ helgat@frettabladid.is Stefán Jónsson skrifar: Ég var að skoða linsur fyrir Canon SLR myndavélar og komst að því að Canon EF 50mm f/1,8 II linsa er dýrari í Elko í Fríhöfninni (11.999) en í hinum Elko búðunum (11.495). Hvert fer 24,5% virðisauka- skatturinn? Ólafur Ingi Ólafsson, rekstrar- stjóri ELKO flughafnarverslunar, svarar: „Veltuhraðinn hjá okkur er meiri en í búðunum í bænum, sem þýðir að bak við verðið hjá okkur liggur alltaf nýjasta kostn- aðarverðið. Í þessu dæmi er varan líklega ekki til í raun þótt lægra verð sjáist á netsíðunni, eða er þá hluti af eldri pöntun. Gegnum- sneitt er reglan sú að verðin hjá okkur eru tuttugu prósentum lægri en í öðrum Elko-verslunum og við reynum okkar besta til að geta staðið við hana.“ Rúnar Guðlaugsson, innkaupa- stjóri Fríhafnarinnar, segir almennt um verðlagið: „Við leggjum mikinn metnað í að verð sé í lagi og miðað við margar erlendar flughafnir komum við vel út. Flugstöðin er fríhafnar- svæði og allir söluaðilar eru undan- þegnir virðisaukaskatti. Það er mismunandi hversu hár skattur- inn er eftir vöruflokkum. Á sæl- gæti er hann ekki nema sjö pró- sent, en við reynum samt að hafa sælgæti fimmtán prósentum ódýr- ara svo fólk finni mun. Tóbak er 50-60 prósentum ódýrara og sterkt áfengi allt að sjötíu prósentum ódýrara. Það er minni munur í léttara áfengi. Léttvín eru um þrjátíu prósentum ódýrari og bjór 55 prósentum ódýrari. Snyrtivörur eru svo að jafnaði um tuttugu pró- sentum ódýrari í Fríhöfninni en annars staðar á landinu.“ Og enn um neytendamál í Flug- höfninni, Sigþór Bragason skrifar: Keypti evrur í Glitni kl. 15, þá kost- aði evran 118 kr. Morguninn eftir keypti sonur minn evrur í Lands- bankanum í Leifsstöð og kostaði þá hver evra 123 kr, eða fimm krón- um meira. Passið ykkur, látið ekki ræna ykkur nývöknuð og glöð á leið í fríið! Landsbankinn í Leifsstöð selur gjaldeyri einu prósenti dýrara en önnur útibú, að sögn vegna þess að opnunartíminn er lengri (opið er í brottfararsal frá kl. 5 til 18 alla daga). Það er álitamál hvort eitt prósent teljist „rán“. Fimm krónu muninn í dæmi Sigþórs má því frekar skrifa á gengisflökt, sem er algengt um þessar mundir. Gerir maður kostakaup í Fríhöfninni? Mikill verðmunur á flestu FRÁ FLUGHÖFNINNI Í flestum tilfellum hægt að spara, en betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. DR. GUNNI Umboðsmaður neytenda Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is Opnunartími: mán - fim 10:30 - 18:00 fös 10:30 - 19:30 laugardaga 10:30 - 18:00 Laugavegi 7 101 Reykjavík Sími 561 6262 www.kisan.is Heimsþekkt vörumerki eins og Sonia Rykiel, Bonpoint, Jamin Puech, Orla Kiely og fleiri ... Útsalan er hafin Næstum þrítug en fékk ekki að tjalda 28 ára lyfjafræðingi var um síðastliðna helgi vísað frá tjaldstæðinu í Laugarási í Biskupstungum. Hefðu mátt koma ef börn og tjaldvagn hefðu verið með í för. „Ungt fólk á ekki samleið með fjölskyldufólki,“ segir umsjónarmaður svæðisins. ÚTILEGA Fjölskyldufólk er ekki talið eiga samleið með ungu fólki á tjaldstæðinu í Laugarási. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Okkur var sagt að ef við værum með börn mættum við koma en ef við ætluðum að búa til börn þyrftum við að fara annað. KRISTÍN LAUFEY STEINADÓTTIR LYFJAFRÆÐINGUR ÞÝSKALAND, AP Þýskur bóndi lærði af sárri raun um hættur reykinga. Meðan hann stóð í verslun að kaupa sér sígarettur rann dráttar vél sem hann hafði lagt utan við verslunina af stað niður brekku með 25 tonn af kartöflum í eftirdragi. Traktorinn lenti á kyrrstæðum bíl og kramdi hann upp að vegg. Bíllinn er ónýtur en ekki sést á traktornum að sögn lögreglu. - gh Dráttarvélarslys í Þýskalandi: Dýrkeypt tóbak Allt sorp flokkað í Flóa Íbúar Flóahrepps munu flokka allan úrgang sem kemur frá heimilum þeirra, samkvæmt samningi sem hreppurinn gerði við Íslenska gáma- félagið. Gert er ráð fyrir að urðað sorp minnki um allt að áttatíu prósent á næstu árum með þessum aðgerðum. FLÓAHREPPUR Telur þú að að skipulögð og harðsvíruð glæpagengi séu að ná styrkri fótfestu hér á landi? Já 85,8% Nei 14,2% SPURNING DAGSINS Í DAG: Vilt þú að íslensk lögregla fái heimild til forvirkra rannsóknar- aðgerða? Segðu skoðun þína á vísir.is MANNRÉTTINDI „Ég hef ekki verið boðaður í viðtal þó að ég hafi ára- tuga reynslu af mannréttinda- málum,“ segir Arnþór Helgason blaðamaður. Umsóknarfrestur um stöðu mannréttindastjóra Reykjavíkur rann út 26. maí síðastliðinn. Enn er ekki búið að ráða í stöðuna. Í auglýsingunni stóð að ráða ætti í stöðuna sem fyrst. Arnþór Helgason var formaður Öryrkjabandalagsins frá 1986- 1993 og framkvæmdastjóri þess frá 2000-2005 og hefur verið ötull innan félagsmálaráðs Seltjarnar- nes. „Ég sótti um af því ég taldi að ég ætti talsvert erindi í þetta.“ Marta Guðjónsdóttir, formaður Mannréttindaráðs, segir að verið sé að ganga frá málinu. „Þeir sem uppfylltu skilyrði auglýsingar voru boðaðir í viðtal,“ segir Marta en samkvæmt Mörtu þurfti umsækjandi að hafa þekkingu á mannréttindamálum og reynslu af opinberri stjórnsýslu. Einn umsækjanda um starfið sem er með meistarapróf á sviði mannréttinda og hefur reynslu af hjálparstarfi var heldur ekki boð- aður í viðtal. „Ég ætla að fara fram á rök- stuðning fyrir því af hverju þetta er svona. Embættiskerfið í Reykjavíkurborg er augljóslega mjög þunglamalegt og þessi vinnubrögð eru forkastanleg og ófagleg.“ - vsp Enn hefur ekki verið ráðið í stöðu mannréttindastjóra Reykjavíkur: Reyndir ekki boðaðir í viðtal ARNÞÓR HELGASON Segist hafa áratuga reynslu af mannréttindamálum en var ekki boðið í viðtal. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI NOREGUR, AP Norska utanríkis- ráðuneytið upplýsti í gær að kólumbíska uppreisnarhreyfing- in FARC hefði látið Norðmann- inn Alf Onshuus Nino lausan úr gíslingu í gærmorgun. Ættingi sagði lausnarfé hafa verið greitt. Tæpt hálft ár er síðan Nino og fimm Kólumbíumönnum, þar á meðal kærustu hans, var rænt. Talsmaður ráðuneytisins í Ósló lagði áherslu á að frelsun Nino tengdist ekkert frelsun Ingrid Betancourt og fjórtán annarra gísla úr haldi FARC í fyrradag. Frændi Ninos, Björn Omdal Onshuus, sagði í útvarpsviðtali að lengra væri síðan kærastan, Ana Aldana Serrano, hefði verið látin laus til að hún gæti hjálpað til við að útvega lausnarféð. - aa Norskur gísl í Kólumbíu: Keyptur laus úr gíslingu FARC TYRKLAND, AP Tyrkneska lögreglan handtók í vikunni 24 menn, þar á meðal tvo fyrrverandi hershöfð- ingja, sem grunaðir eru um samsæri um valdarán. Handtökurnar eru hluti af deilu hins íslamska stjórnarflokks og veraldlegra þjóðernissinna í stjórnarandstöðu sem óttast að ríkisstjórnin vilji koma á íslömskum lögum í Tyrklandi. Yfirsaksóknari landsins hefur höfðað mál fyrir stjórnlagadóm- stóli ríkisins til að fá stjórnar- flokkinn, Réttlætis- og þróunar- flokkinn, leystan upp fyrir að grafa undan veraldlegum gildum stjórnarskrárinnar. - gh Stjórnmálaátök á Tyrklandi: Hershöfðingjar handteknir KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.