Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 33
Boð og bönn
Mikið hefur verið rætt um mark-
aðssetningu á vörum fyrir börn
og skiptar skoðanir eru á því
hvort banna eigi auglýsingar sem
höfða sérstaklega til barna, en
Magnús hefur sína sérstöku nálg-
un á þetta álitamál. „Ég held að
spurningin sé ekki hvort eigi að
banna auglýsingar með lögum, ég
held að ábyrgðin verði á endan-
um að liggja hjá fyrir tækjunum
sem framleiða varning eða veita
þjónustu fyrir börn. Ég er alger-
lega sammála því að það er skað-
legt heilsu barna að auglýsa stíft
óhollan varning. Þess vegna var
sú ákvörðun tekin að slíkum varn-
ingi myndi Latibær aldrei tengj-
ast. Meginspurningin er hvað sé
vænlegast til árangurs og ég held
að ef allir þeir sem koma að upp-
eldi barna með einum eða öðrum
hætti, svo sem foreldrar, kenn-
arar, framleiðendur afþreyingar
og stjórnendur sjónvarpsstöðva,
tækju höndum saman mætti snúa
óheilla þróun við. Þetta hefur
margoft gerst í sögunni, nærtæk-
asta dæmið er vakning almenn-
ings um skaðsemi reykinga sem
nú er algerlega viðurkennd af
samfélaginu og reykingar hvergi
liðnar innan um börn. Þessi sama
þróun er nú þegar hafin þegar
það kemur að heilbrigðum lífs-
háttum, en þar verða allir hags-
munaaðilar að koma saman, ekki
bara löggjafinn.“ Latibær er
stöðugt að leita leiða til að leggja
lóð á vogarskálina.
„Okkur langar meðal annars
til að bjóða fram ódýran og
þægilegan valkost í veitingahús-
um sem mótvægi við alla óholl-
ustuna sem er í boði með því að
opna Latabæjarveitingastað.
Með aukinni heilsufarsvitund
hefur verið reynt að tengja hina
ýmsu karaktera sem börn þekkja
við hollan mat, en börn þurfa að
finna að tengingin sé raunveru-
leg til að hún veiti þeim inn-
blástur. Það hefur Latibær fram
yfir hvert annað barnaefni og
því langar okkur mikið að opna
veitingastað sem yrði eins konar
McDonald‘s 21. aldarinnar,“ út-
skýrir Magnús, en með vaxandi
vinsældum Latabæjar hafa mörg
matvæla fyrirtæki viljað tengja
vörur sínar við fyrirtækið. „Við
höfum vandað mjög valið á sam-
starfsaðilum og sagt nei við ótal
vörumerkjum sem okkur finnst
ekki rétt að tengja okkur við.
Á meðan við höfum verið að
segja nei við skyndibitastaði og
súkkulaðiframleiðendur sem
gætu greitt okkur strax hefur
fjárhagsstreymi verið hæg-
ara á köflum, en í staðinn hefur
Latibær verið að vaxa jafnt og
þétt og sett nafn sitt á vöru sem
við treystum. Niðurstaða þessa
er að Latabæjarvörumerkið
er orðið mun verðmætara og
samstarfsaðilar þurfa að leggja
meira á sig en ella til að upfylla
okkar staðla. Nú er Kellogg’s til
dæmis að hanna sérstakt Lata-
bæjarmorgunkorn til þess að
það uppfylli okkar skilyrði, í stað
þess að lógóið okkar sé sett á eitt-
hvert annað morgun korn á mark-
aðnum,“ segir Magnús.
Engin takmörk
Framtíðarmöguleikar Latabæjar
virðast vera óteljandi. Magnús
segist aðeins vera kominn hálfa
leið með það sem hann lagði af
stað með í upphafi og það er ekki
að finna að orka hans og eldmóð-
ur fari dvínandi.
„Þetta er búið að vera gríðarleg
vinna, en rosalega skemmtileg.
Það er svo mikil keyrsla á
hlutunum að manni gefst sjaldan
tækifæri til að stoppa í brekkunni
og njóta útsýnisins því maður er
einhvern veginn alltaf á leið-
inni upp eða að renna sér niður.
Ég verð stundum hálfdofinn yfir
þeim árangri sem hefur náðst
á meðan það er svona mikið að
gera, en svo staldrar maður öðru
hverju við og áttar sig á að það
er verið að bera okkur saman við
stórfyrirtæki á borð við Disney
og Pixar. Þau fyrirtæki eru með
um það bil 15.000 starfsmenn á
meðan kjarninn af starfsfólki
Latabæjar er um fimmtíu manns,
þó svo að fleiri komi að verk-
efnunum úti í heimi. Margir af
starfsmönnum okkar hafa unnið
vinnu sína af ástríðunni einni
saman og ég ætti ekki næga pen-
inga til að greiða þeim fyrir allt
sem þeir hafa lagt á sig innan
fyrirtækis ins,“ segir Magnús og
útilokar ekki þann möguleika að
fyrir tækið verði selt til stærri
aðila á komandi árum. „Oft eru
minni aðilar keyptir út og maður
verður að vera viðbúinn þeim
möguleika. Ég er stoltur af því
að sjá merkið vaxa og að fram-
leiðsla á efni Latabæjar geti farið
fram erlendis án þess að ég komi
beint að henni. Nú eru til dæmis
fjöldi leikara af ýmsu þjóðerni
að leika Íþróttaálfinn á sviði, auk
þess sem Latabæjarbrúður eru
orðnar hluti af framleiðslu BBC.
Það er kannski bara eins gott
enda kemur einhvern tímann að
síðasta söludegi á manni,“ segir
Magnús og hlær.
„Latibær er í raun ungt fyrir-
tæki og á margt eftir ógert. Við
fórum nýlega yfir það innan-
borðs í fyrirtækinu hvað Latibær
vill raunverulega standa fyrir og
niðurstaðan var sú að við viljum
hreyfa við fólki, bæði á líkama og
sál. Arkimedes sagði: „Gefðu mér
nógu langa stöng og stað til að
standa á og ég skal hreyfa heim-
inn. Vonandi er Latibær nógu
löng stöng til hreyfa heiminn,“
segir Magnús að lokum.
„Nú eru til dæmis fjöldi leikara af ýmsu
þjóðerni að leika Íþróttaálfinn á sviði,
auk þess sem Latabæjarbrúður eru
orðnar hluti af framleiðslu BBC. Það
er kannski bara eins gott enda kemur
einhvern tímann að síðasta söludegi á
manni,“ segir Magnús og hlær.
4. JÚLÍ 2008 FÖSTUDAGUR • 9