Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 04.07.2008, Blaðsíða 32
Það er ekkert leyndarmál … …að Leyndarmálið er ein vinsælasta bók í heimi. Hvers vegna? Vegna þess að Leyndarmálið er bók um raunveruleg viðfangs- efni sem býður upp á raunverulegar lausnir! Leyndarmálið er bók fyrir þá sem vilja fá meira út úr lífinu. Notaðu sumarið og tileinkaðu þér Leyndarmálið M agnús Scheving fór af stað með Latabæ árið 1995 í þeim tilgangi að hvetja börn og fjölskyld- ur þeirra til að lifa heilbrigðu líf- erni á skemmtilegan hátt. Eftir áralangan samfleytan árangur á Íslandi jókst sala á ávöxtum og grænmeti meðal annars um 22 prósent í kjölfar Latabæjar- orkuátaksins. Fyrir um fjórum árum hófst hin eiginlega útrás Lata bæjar og nú er hann heims- þekkt vörumerki sem er óðum að styrkjast í sessi sem eina al- þjóðlega vörumerkið sem er til- einkað heilbrigði barna og fjöl- skyldna. Til marks um þetta má nefna könnun sem gerð var meðal áhorfenda á Latabæjar- leiksýningu í Bretlandi í apríl á þessu ári. Meðal svarenda voru 43 prósent sem staðhæfðu að börn þeirra hefðu meiri áhuga á og neyttu meira af hollum mat en áður og um 36 prósent sögðu börnin sín hreyfa sig meira eftir viðkynningu við Latabæ. Magnús leggur mikið upp úr því að grunn- hugmyndin haldi sér og að Lati- bær hreyfi við fólki. „Heilbrigði er frekar erfitt viðfangsefni því það getur verið flókið að skilgreina fyrir börn- um hvað heilsa er. Það sem er heilsusamlegt fyrir fjögurra ára stúlku er allt annað en það sem er heilsusamlegt fyrir fertugan mann, svo ég kýs að segja að heil- brigði snúist um jafnvægi og að börn fái svigrúm til að taka eigin ákvarðanir þegar kemur að lífs- stíl. Það er til allskyns skemmti- legt barnaefni en ofbeldi kemur oft við sögu og það er lítið um raunverulegar fyrirmyndir. Það er í raun ekkert annað barnaefni á markaðnum sem er svona heils- umiðað eins og Latibær og mér fannst mikil áskorun að koma réttu skilaboðunum áleiðis til barna í sjónvarpsþætti á áhuga- verðan hátt, án þess að vera að predika,“ útskýrir Magnús. „Stað- reyndin er sú að barnaefni hefur bara vissan stimpil og börn eru yfirleitt sett í annað sæti þegar kemur að gæðum. Barnaefni er því alltaf að verða ódýrara og lé- legra, en við ákváðum í upphafi að leggja mikið upp úr gæðunum þó svo að það yrði dýrara,“ bætir hann við. Heimsyfirráð Það getur verið erfitt að gera sér í grein fyrir þeim árangri sem Latibær hefur náð á heimsvísu. Nú hafa 53 sjónvarpsþættir verið sýndir úti um allan heim, á ótal tungumálum. Nýverið gerði Lati- bær samning við BBC í Bretlandi um samframleiðslu á 26 nýjum þáttum sem nefnast „LazyTown Extra“. Í fyrstu atrennu verða 26 þættir framleiddir að hluta til í upptökuveri Latabæjar í Garða- bæ, en hinn hlutinn verður tekinn upp af BBC. Um þessar mundir eru viðræður á lokastigi við aðrar sjónvarpsstöðvar um sams konar samstarf. Í hinum nýju þáttum mun Siggi sæti fara og hitta börn í hverju landi fyrir sig. Á aðeins örfáum mánuðum hefur um ein milljón manns séð Latabæjar leiksýningu í Bretlandi og sjö löndum Suður-Ameríku. Á næsta ári er áætlað að opna sýn- ingar í að minnsta kosti fimm löndum til viðbótar í Suður- og Mið-Ameríku auk fimm Evrópu- landa. Latibær nýtur svo mik- illa vinsælda í Suður-Ameríku að þegar Magnúsi var boðið að fara þangað og hitta heilbrigðisráð- herra Chile gat hann ekki gengið í gegnum tollinn á flugvellinum án þess að skrifa eiginhandarár- itanir fyrir tollverðina og krakk- ar höfðu hópast fyrir framan flugstöðina til að sjá Íþróttaálf- inn koma klukkan átta að kvöldi til. „Konan sem þreif hótel- herbergið hjá mér bankaði einn daginn og spurði kurteisislega hvort hún mætti koma með barnið sitt sem var á nærliggjandi leik- skóla og hitta mig. Ég sagði að það væri sjálfsagt og þegar ég kom niður í anddyrið stuttu síðar voru um áttatíu börn á aldrinum þriggja til sex ára sem vildu sýna mér leikrit um hreyfingu. Fólk- ið á hótelinu skildi ekki hvað var eiginlega um að vera, en ég sett- ist niður í góðar fjörutíu mínút- ur á meðan börnin sýndu mér allskyns hreyfingar, armbeygj- ur og hopp sem þau höfðu æft. Að vera Íslendingur og koma til Chile og sjá að maður hefur haft áhrif er alveg magnað,“ segir Magnús, sem hefur ekki einungis haft áhrif á börn og fjölskyld- ur þeirra heldur hafa stjórnvöld ráðfært sig við hann um vax- andi offituvandamál, heilbrigð- isráðherrar víðs vegar um heim- inn sóst eftir að hitta hann og nú síðast var Magnús heiðurs gestur á ráðstefnu með leiðtogum stærstu matvælafyrirtækja heims og helstu áhrifa aðila innan heilbrigðis geirans, þar sem hann talaði sem leiðandi sérfræðingur í málefnum heilbrigðis barna. Magnús hefur einnig þegið boð The Sun, sem er víðlesnasta dag- blað Bretlands, um að skrifa dálk- aröð í blaðið. „Ég mun skrifa í blaðið sem Íþróttaálfurinn og byrja á því í júlí. Vegna anna á ég erfitt með skrifa dálka reglulega í blaðið svo þetta verður gert með því móti að á þriggja vikna fresti verð ég sérfræðingur þeirra í einhverju tilteknu máli sem tengist heilsu og er í umræðunni í Bretlandi hverju sinni,“ útskýrir Magn- ús sem vinnur einnig að því að skrifa bók um þessar mundir. „Ég er að skrifa bók með Mir- iam Stoppard um barnauppeldi, en Miriam skrifaði til dæmis Kvennafræðarann og bækur fyrir foreldra sem hafa selst í milljón- um eintaka. Við erum núna að skrifa saman bók sem ber vinnu- heitið How to Raise Healthy Kids og er gríðarlega spennandi verk- efni. Við munum líklega ljúka við skrifin á þessu ári svo bókin ætti að vera tilbúin til útgáfu á al- þjóðlegum markaði á næsta ári,“ segir Magnús. Reglulega berast bréf til Lata- bæjar frá börnum og fullorðn- um hvaðanæva úr heiminum sem þakka fyrir þau jákvæðu áhrif sem þættirnir eða leiksýningin hefur haft á þau, en það berast líka bréf frá foreldrum sem biðja um hjálp og góð ráð til að ástunda heilbrigðara líferni. Í kjölfarið var tekin sú ákvörðun að gera Latabæjar klúbb til að styðja við bakið á börnum og foreldrum þeirra. „Fyrir verð einnar pitsu á mánuði verður hægt að gerast meðlimur í klúbbnum í tvö ár með barnið sitt. Þau fá þá reglulega sendan pakka heim til sín með ýmsum varningi, svo sem tón- list, plakötum, bókum, límmiðum og DVD-disk þar sem Íþróttaálf- urinn talar til krakkanna. Þessu mun fylgja dagskrá frá a til ö og krakkarnir fá verðlaun eftir hvert ár sem þau ljúka. Eftir tvö ár í klúbbnum fá þau send- an galla og svokallað „ofurhetju- æfingaprógramm“, þar sem þau þurfa að þjálfa foreldra sína, ömmur eða afa í einn mánuð áður en þau útskrifast og fá bikar,“ útskýrir Magnús og áætlar að stórt hlutfall harðra Latabæjar- aðdáenda, sem nú skipta mörg- um milljónum á heimsvísu, muni ganga í klúbbinn. Það er vart að finna íslenskt barn sem ekki þekkir Íþróttaálfinn. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því leikritið Áfram Latibær var sýnt árið 1996 og nú er Latibær á góðri leið með að ná heimsyfirráðum með sjónvarps- þátt í 118 löndum og leiksýningu úti um allan heim. Alma Guðmundsdóttir hitti Magnús Scheving á „bæjarstjóraskrifstofu“ Latabæjar og fékk að skyggnast inn í heim Íþróttaálfsins og mannsins á bak við fyrirtækið. Latibær hreyfir við heiminum Besti tími dagsins: Æfingatíminn. Bíllinn minn er … Jógadýnan mín, ég slappa af við akstur. Diskurinn í spilaranum: Sigur Rós. Mesti lúxusinn: Að keyra heim úr vinnunni á nóttunni – þá er engin umferð. Uppáhaldsmaturinn: Grilluð stórlúða. Uppáhaldsárstíðin: Þegar sumarið lendir á helgi. Besta fríið: Frí hvað? Skil ekki spurninguna. Uppáhaldsdrykkurinn: Vatn. Mesta klisjan: Þú getur allt sem þú ætlar þér nema þegar þú hættir við á miðri leið. Mér líður best þegar: Þegar ég sé að Latibær getur haft jákvæð áhrif á börn. Uppáhaldshúsgagnið: Bekkpressan. 8 • FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.