Fréttablaðið - 05.07.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
5. júlí 2008 — 181. tölublað — 8. árgangur
FY
LG
IR
Í
D
A
G heimili&hönnunLAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2008
● SVERRIR NORÐFJÖRÐ ARKITEKT
Stílhreint og fallegt handbragð● LJÓSMYNDARINN JEANMARC CARACCI
Myndar mannlífi ð í Reykjavík
● INNLIT
Listin í hávegum höfð
Þúsundir
titla í boði
á ótrúlegum
verðum
OPIÐ 11 - 19
ALLA DAGA VIKUNNAR
KLETTHÁLS
KRYDDSMJÖR
ÚR SVEPPARÆKT Í
TÓNLISTINA
Ragnar Kristinn Kristjánsson, oft
kenndur við Flúðasveppi, hefur
söðlað um og gefið út geisladisk.
HÁTÍÐ HESTAMANNA
Bestu hestar og knapar landsins
eru saman komnir á landsmóti.
26
28
RISAVAXIN
SÓLGLERAUGU
Stærðin skiptir máli
í sólgleraugnatísku
sumarsins.
STÍLL 36
Kominn með æðstu gráðu
Sigurður Ragnar
Eyjólfsson er kominn
í hóp góðra manna
með æðstu þjálf-
aragráðu sem
UEFA veitir.
ÍÞRÓTTIR 42
VEÐRIÐ Í DAG
FÓLK „Þetta var ótrúleg reynsla,“
segir Ann Lönnblad ljósmóðir sem
fyrir tæpu ári síðan tók á móti syni
sínum í heitum potti heima í stofu.
„Ég var búin að ákveða fyrir-
fram að fæða heima ef allt yrði með
felldu og reyna að taka sjálf á móti
barninu. Þetta er auðvitað ekki
mjög algengt en ljósmæðrum
mínum leist vel á þetta,“ segir Ann
sem tók hjálparlaust á móti
stráknum en undir vökulum augum
ljósmæðra.
Í viðtali við Fréttablaðið lýsir
Ann fæðingunni sem gekk vel.
„Þegar kollurinn var kominn fram
studdi ég hendinni létt á hann og
þreifaði eftir naflastrengnum. Svo
fann ég axlirnar koma, tók á móti
barninu og stýrði honum rólega
upp úr vatninu,“ útskýrir Ann.
„Það að ganga með barn er ekki
sjúkdómur og fæðingin er ekki
sjúkdómur. Konur eru fæddar til
þess að fæða börn en síðustu ára-
tugina hefur verið svo mikil áhersla
á tæknina og það að fæða á hátækni-
sjúkrahúsum með allar græjur við
höndina. Margar konur verða
óöruggar þegar þær koma inn á
spítala og sjálfri fannst mér best að
vera þar sem mér líður best -
heima,“ segir Ann. - þo/sjá síðu 24
Ljósmóðirin Ann Lönnblad upplifði draumafæðinguna:
Tók á móti sínu eigin barni
SAMFÉLAG Ljósmyndaverkefnið
Homo Urbanus Europeanus eða
HUE er hugarfóstur franska
ljósmyndarans
Jean-Marc
Caracci sem
ferðast um
Evrópu til að
mynda fólk og
borgir.
Tilgangurinn
er að sýna fram
á líkindi með
Evrópubúum
þrátt fyrir
ólíkan bakgrunn
og ýta undir samkennd og ábyrgð
meðal íbúa álfunnar. Caracci er
nú staddur hérlendis við tökur á
mannlífinu í Reykjavík og hyggst
innlima útkomuna í þetta göfuga
verkefni. Sjá Heimili og hönnun
Jean-Marc Caracci:
Myndar mann-
líf í Reykjavík
FÓLK Kvikmyndagerðarmaðurinn
Hörður Arnarson er langt kominn
með gerð sjónvarpsþáttaraðar í
sex þáttum um
Kára Stefáns-
son og deCODE-
ævintýrið.
Hörður hefur
fylgst með Kára
og fyrirtækinu í
tæpan áratug og
hefur viðað að
sér miklu efni.
Honum hefur
þó ekki enn
tekist að ná tali
af Kára sjálfum
fyrir myndina.
Hörður hefur lengi búið í Los
Angeles og starfar sem kvik-
myndaleikstjóri og klippari.
Hefur hann þrisvar verið
tilnefndur til Emmy-verðlauna.
Hörður hefur meðal annars unnið
að gerð sjónvarpsþáttanna
Survivor. -jbg/sjá síðu 46
Hörður Arnarson í LA:
Gerir sjónvarps-
þætti um Kára
JEAN-MARC
CARACCI
HÆGVIÐRI OG HLÝTT Í dag verð-
ur hægviðri eða hafgola. Hálfskýjað
eða léttskýjað um mest allt land en
hætt við þokulofti með norður- og
austurströndinni. Hiti 13-21 stig,
hlýjast til landsins.
VEÐUR 4
17
13
17
20
16
20
20
21
FLUTT MEÐ ÞYRLU TIL REYKJAVÍKUR Karlmaður og kona slösuðust þegar þau misstu stjórn á bifhjóli sem þau tvímenntu á og
hjólið hafnaði utan vegar við Garða á Snæfellsnesi laust fyrir klukkan hálftvö í gærdag. Kölluð var út þyrla sem sótti fólkið og
flutti á Landspítala - háskólasjúkrahús. Fólkið var með meðvitund allan tímann en grunur var um innvortis áverka auk annarra
meiðsla að sögn lögreglu í Ólafsvík. Bæði voru lögð inn á sjúkrahúsið eftir slysið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ ARNÞÓR
HÖRÐUR
ARNARSSON
RÍKISFJÁRMÁL „Þetta er nú ekki
nema brot af þeim aðgerðum sem
eru fyrirhugaðar gagnvart Íbúða-
lánasjóði. Því er ótímabært fyrir
aðila að dæma um þær,“ segir Árni
M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Formaður sendinefndar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, Petra Koeva,
sagði í gær að tímasetning Íbúða-
lánasjóðs-aðgerðanna, þegar
hámarkslán voru aukin og veðrými
breytt, hefði verið „óheppileg“ í
ljósi aðgerða Seðlabankans gegn
verðbólgu.
Spurður segist Árni ekki geta
lesið út úr skýrslu nefndarinnar
að ríkisstjórnin vinni gegn pen-
ingamálastefnu Seðlabankans.
Gagnrýnin sé ótímabær, því
„aðgerðirnar koma ekki að fullu í
ljós fyrr en í haust“.
Að öðru leyti sé skýrsla nefnd-
arinnar „jákvæð og yfirveguð“.
Árni viðurkennir að lengi hafi
mátt bíða eftir aðgerðum ríkis-
stjórnarinnar og eðlilegt að þeir
sem fylgist með séu óþolinmóðir.
Nefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins metur það svo að stjórnvöld
og sveitarfélög eigi að hægja á
fyrirhuguðum fjárfestingum og
reyna að koma í veg fyrir launa-
skrið í verðbólgunni.
„Og þetta er svolítið í andstöðu
við það sem hefur verið í umræð-
unni hérna að undanförnu, til
dæmis hjá aðilum vinnumarkað-
arins. Það er athugunarefni fyrir
stjórnvöld og aðra að hugsa um
það, hvað sé rétt í þeim efnum,“
segir ráðherra.
- kóþ / sjá síðu 8
Einungis lítið brot
aðgerða framkomið
Fjármálaráðherra segir gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins ótímabæra. Ein-
ungis brot af fyrirhuguðum aðgerðum séu komin í ljós. „Athugunarefni“ að
sjóðurinn vilji að ríki og sveitarfélög dragi úr framkvæmdum í verðbólgu.