Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 38
22 7. júlí 2008 MÁNUDAGUR
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA.
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 8 L
HANCOCK kl. 8 - 10 12
INCREDIBLE HULK kl. 10 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 4D - 6D L
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 4 - 6 VIP
KUNG FU PANDA M/ENSKU kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 L
HANCOCK kl. 4 - 6 - 8D - 10:10D 12
HANCOCK kl. 8 - 10:10 VIP
WANTED kl. 5:30 - 8 - 10:20 - 10:40 16
NARNIA 2 kl. 5 - 8 7
INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:20 12
WANTED kl. 8:30D - 10:50D 16
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6:30D L
NARNIA 2 kl. 6D 7
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9 14
THE BANK JOB kl. 9 - 11:10 16
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 6 L
WANTED kl. 8 - 10 16
NARNIA 2 kl. 6 7
THE BANK JOB kl. 9 16
HANCOCK kl. 8 - 10:10 12
KUNG FU PANDA m/ísl. tali kl. 8 L
WANTED kl. 10:10 16
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL
ÞAÐ ER KOMINN NÝR HROTTI Í
FANGELSIÐ...AF MINNI GERÐINNI!
HEIMSFRUMSÝNING NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
12
10
HANCOCK kl. 6 - 8 - 10
BIG STAN kl. 8 - 10
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.50
12
7
12
HANCOCK D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
HANCOCK LÚXUS D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
KUNG FU PANDA D HJÓÐ & MYND kl. 3.45 - 5.50 ÍSL. TAL
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8 - 10.30
ZOHAN kl. 8 - 10.30
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
12
14
HANCOCK kl. 6 - 8.30 - 10.30
KUNG FU PANDA kl. 6 - 8 -10 ENSKT TAL
BIG STAN kl. 5.40 - 8 - 10.20
SEX AND THE CITY kl. 6 - 9
5%
5%
SÍMI 551 9000
12
16
7
14
10
12
THE INCREDIBLE HULK kl. 5.30 - 8 - 10.30
HAPPENING kl. 8 -10.10
MEET BILL kl. 5.50 - 8
SEX AND THE CITY kl. 7 - 10
ZOHAN kl. 5.30
INDIANA JONES 4 kl. 10.20
SÍMI 530 1919
Jack Black sannar
að hann er einn af
fyndnustu grínleikurunum
í heiminum í dag.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HANCOCK kl. 4, 6, 8 (D) og 10(D) 12
KUNG FU PANDA kl. 4 (D) og 6(D) L
WANTED kl. 8 og 10.10 16
NARNIA: PRINCE CASPIAN kl. 4 og 7 7
SEX AND THE CITY kl. 10 14
M Y N D O G H L J Ó Ð M Y N D O G H L J Ó Ð
Metal Gear Solid-serían hefur verið
einn af burðarstólpum Playstation-
merkisins frá byrjun. Með hverri
nýrri Playstation-vél hefur Metal
Gear Solid-leikur vanalega fylgt á
eftir, og nú er engin undantekning
þar á. Metal Gear Solid 4: Guns of
the Patriots er ætlað að ljúka 20 ára
langri og flókinni sögu Metal Gear.
Í leiknum er sögð lokasaga klónsins
Solid Snake og baráttu hans við að
bjarga heiminum frá bróður sínum
Liquid sem hefur sagt heiminum
stríð á hendur og ætlar sér loksins
að ná yfirhöndinni. Það er erfitt að
ræða restina af sögunni án þess að
fara út í að spilla sjónarspilinu sem
leikurinn er.
Metal Gear Solid-leikirnir hafa
oft stigið dansinn á milli þess að
vera gagnvirk kvikmynd og tölvu-
leikur. Hideo Kojima, aðalhönnuður
seríunnar, hefur einmitt rætt um
það í viðtölum að áður en hann sneri
sér að leikjagerð hafði hann hug á
að gerast kvikmyndagerðarmaður
og það sést vel þegar leikirnir sem
hann hefur komið að eru spilaðir.
Sögur leikjanna hafa vanalega verið
mjög epískar og sterk saga hefur
verið kjarni leikjanna. Í MGS4 er
saga Solid Snake’s og baráttu hans
gerð mjög góð skil. Snake er feng-
inn til að koma til baka eftir nokk-
urra ára hlé og tíminn hefur ekki
reynst honum góður. Klónunar-
ferlið sem skapaði hann er hrein-
lega að ganga frá honum, hann er
orðinn gamall langt fyrir aldur
fram og á ekki langt eftir kallinn.
Öll umgjörð leiksins er vægast
sagt stórkostleg, það er ekki hægt
að finna flottari leik á Playstation 3
eða á annarri leikjavél sem skartar
bæði gullfallegri grafík og hljóm-
gæðum. Að sjá leikinn fara í „cut
scene“ og beint inn í spilun án neins
munar í gæðum er ótrúlegt að sjá.
Það er áberandi að Konami, útgef-
andi leiksins, hefur kostað miklu til
að tryggja að þetta verði besti leik-
urinn í seríunni og hreinlega leikur
sem muni selja vélar fyrir Sony-
veldið. Miðað við hvernig viðtökur
leikurinn hefur fengið bæði í sölu
og gagnrýni bendir allt til þess að
Sony-menn ættu að verða ánægðir
þegar jólabónusinn verður greidd-
ur út í ár.
Með leiknum fylgir Metal Gear
Online, sem er netspilunarpartur
leiksins. MGO styður 16 notendur í
einu og býður upp á nokkrar mis-
munandi tegundir leikja. MGO virk-
ar að mestu frábærlega og bætir
upp MGS4 mjög vel. Það sem er
hægt að kvarta yfir er óþarflega
flókið kerfi við að skrá sig inn í
fyrstu.
Leikurinn nær að vera það sem
Metal Gear-aðdáendur hafa beðið
eftir og um leið hvati fyrir fólk að
fara út og versla Playstation 3-vél
bara til að spila leikinn. Það sem er
hægt að setja út á leikinn, er að
fyrir fólk sem er að koma nýtt inn
er sagan í flóknari kantinum, svo
það tekur sinn tíma að fatta hverjir
allir eru og hvert hlutverk manns
er. Einnig eru vídeóin lengri en fólk
er vant. Að öðru leyti er erfitt að
finna galla í svona fínpússaðri vöru.
Sveinn A. Gunnarsson
Stórkostleg upplifun
TÖLVULEIKIR
Metal Gear Solid 4: Guns of the
Patriots
Kominn út fyrir Playstation 3
PEGI Merkingar: 18+ Upplýsingar um
PEGI-merkingar má finna á www.
saft.is.
★★★★★
Skyldueign fyrir alla PS3-eigendur og
einn flottasti leikur ársins.
Ásgeir Valur Sigurðsson málaði myndina
Stjána bláa og sýndi á samsýningunni
List án landamæra á dögunum. Það vakti
athygli að málverkið var sett á 400.000.000
Bandaríkjadali og hefði verið dýrasta
málverk í heimi hefði það selst. Það gerð-
ist ekki en Ásgeir seldi hins vegar aðrar
myndir á viðráðanlegra verði.
Nú stefnir Ásgeir á enn dýrara málverk. „Ég byrja á
þeirri mynd eftir tvo mánuði,“ segir hann. „Það er af
einstaklingi sem ég nefni ekki fyrr en málverkinu af
honum er lokið. Eftir það set ég stopp á að gera
málverk á verði sem jafnvel hinir ríkustu hér á landi
eiga erfitt með að ráða við. Þó verða allar listasýn-
ingar hjá mér með að minnsta kosti einni mynd sem
er á ásættanlegu verði fyrir vellauðugt fólk.“
Ásgeir hefur áhyggjur af því að Bandaríkjadollur-
um verði á næstunni skipt út fyrir mynteinguna
Ameru. „Fari svo gæti ég neyðst til að gera
400.000.000 dalina að Amerum og ég hef ekki
hugmynd um hvað það er mikið í íslenskum krónum.
Bankastarfsmanneskja hjá Landsbanka hefur tjáð
mér að 400.000.000 Bandaríkjadalir sé upphæð sem
tölvukerfi bankans geti ekki reiknað út í íslenskum
krónum sökum þess hversu stór upphæðin er.“
Eigandi afþreyingarbúðarinnar 2001 stakk upp á
því við Ásgeir að hann prófaði að bjóða Stjána bláa á
tvö hundruð þúsund krónur. „Ég svaraði til baka að
ég gæti ekki gert mig að fífli og myndi aldrei setja
Stjána bláa á verð sem ég gæti ekki nýtt mér til
lengri tíma,“ segir Ásgeir. Hann stefnir á að sýna í
Leicester í Bretlandi á næsta ári og mun reyna að
selja Stjána á uppsettu verði þar, annaðhvort í
dollurum eða Ameru.
„Nú hef ég hafið gerð blekteikninga sem kosta á
bilinu fimm hundruð til fimm þúsund íslenskar
krónur,“ segir listamaðurinn að lokum.
gunnarh@frettabladid.is
Stefnir á að mála tvö
dýrustu málverk sögunnar
EIN MYND Á HVERRI SÝNINGU FYRIR VELLAUÐUGA Ásgeir Valur
við Stjána bláa. Hann málar nú enn dýrara málverk.
Kolbrún Sól Ingólfsdóttir lögg sjúkraþjálfari BSc.
Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir lögg sjúkraþjálfari BSc. MSc. Manual Therapy
Pétur Einar Jónsson lögg sjúkraþjálfari BSc. DC of Naprapathy, MBA
Róbert Magnússon lögg sjúkraþjálfari BSc. MSc. Sérfræðingur í íþróttasjúkraþjálfun
Sandra Dögg Árnadóttir lögg sjúkraþjálfari BSc.
Sigrún Konráðsdóttir lögg sjúkraþjálfari BSc.
Atlas Endurhæfi ng sérhæfi r sig í greiningu og meðhöndlun íþróttameiðsla og endurhæfi ngu verkjasjúklinga.
Tímapantanir í síma 552 66 00
Atlas Endurhæfi ng
Eftirtaldir sjúkraþjálfarar hafa hafi ð störf hjá Atlasi Endurhæfi ngu,
Engjavegi 6, 104 Reykjavík (við hliðina á Laugardalshöllinni).