Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 10
10 7. júlí 2008 MÁNUDAGUR ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 4 23 61 0 5/ 08 • Austurbæjarskólinn var fyrsta húsið með hitaveitu í Reykjavík. www.or.is Sögur og sagnir í Elliðaárdal Gengið ofan Árbæjarstíflu. Þriðjudags- kvöldið 8. júlí verður farin göngu- og fræðsluferð í Elliðaárdal undir leiðsögn Stefáns Pálssonar sagnfræðings. Dalurinn á sér merka sögu allt frá komu Ketilbjarnar gamla, landnámsmanns, þangað. Gengið verður um og sagðar sögur. Gangan hefst kl. 19.30 við Minjasafnið í Elliðaárdal. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Hressing í bolla frá Knorr Vinstrisinnuðu uppreisn- arsamtökin FARC hafa í meira en fjóra áratugi háð vopnaða baráttu við kólumbísk stjórnvöld sem kostað hefur tugi þúsunda mannslífa. Þau standa nú veik að vígi eftir árásir kólumbíska hersins og liðs- mönnum fækkar. Síðasta alvarlega áfallið fyrir sam- tökin reið yfir 2. júlí þegar kól- umbískir hermenn frelsuðu fransk-kólumbíska stjórnmála- manninn Ingrid Betancourt ásamt fjórtán öðrum, þar á meðal þrem- ur bandarískum hernaðarverktök- um, úr klóm samtakanna. „Hollywood“-björgun Björgunin líktist atriði úr Holly- wood-kvikmynd. Skæruliðarnir sem héldu gíslunum voru plataðir til að koma með þá að þyrlu hers- ins. Þar biðu hermenn í gervi með- lima hjálparstofnunar, frétta- manna og skæruliða. Þeir höfðu sannfært skæruliðana um að þeir væru á vegum FARC og flytja ætti gíslana annað. Þegar af stað var flogið voru skæruliðarnir yfirbug- aðir og gíslunum tilkynnt að þeir væru frjálsir. Sálræn áhrif björgunarinnar eru líklega enn meiri en þegar þrír leiðtogar FARC dóu í mars. Her- foringinn Raúl Reyes var drepinn í árás kólumbíska hersins á bæki- stöð skæruliða í Ekvador. Annar herforingi var drepinn af eigin líf- verði. Stofnandi og æðsti leiðtogi samtakanna, Manuel Marulanda, dó að líkindum úr hjartaáfalli. Hnignandi samtök FARC voru stofnuð árið 1964 sem hernaðararmur Kommúnista- flokks Kólumbíu. Samtökin skild- ust frá Kommúnistaflokknum á níunda áratugnum þegar áhersla þeirra tók að færast frá pólitíkinni yfir á glæpastarfsemi, einkum fíkniefnasölu og mannrán. Mörg ríki, þar á meðal Kólumbía, Banda- ríkin og ríki Evrópusambandsins, skilgreina FARC sem hryðjuverka- samtök. Vinstrisinnaðir þjóðarleiðtogar í Suður-Ameríku, einkum Hugo Chavez frá Venesúela, hafa reynt að miðla málum milli FARC og kól- umbískra stjórnvalda. En stjórn Alvaro Uribe Kólumbíuforseta hefur rekið harða stefnu gegn FARC. Stefnan virðist bera árangur. Frá árinu 2002 hefur liðsmönnum samtakanna fækkað úr sextán þús- und í níu þúsund og fækkar enn. Yfir sex hundruð uppreisnarmenn hafa verið drepnir á þessu ári. Stjórnvöld bjóða liðsmönnum fúlg- ur fjár fyrir að ganga til liðs við sig og talið er að þau eigi marga uppljóstrara í röðum samtakanna. Stuðningur Bandaríkjanna Bandaríkin hafa stutt dyggilega við kólumbíska herinn. „Kólumb- íu-áætluninni“ var hrundið af stað árið 1999 til að stöðva streymi kókaíns frá Kólumbíu til Banda- ríkjanna. Bandaríkin hafa eytt milljörðum dala í áætlunina sem hefur lítil áhrif haft á kókaín- streymið, en hefur á hinn bóginn styrkt mjög kólumbíska herinn. Hundruð enn í haldi FARC eru enn með hundruð gísla í haldi, en Betancourt var sá verð- mætasti. Henni var rænt meðan hún atti kappi við Uribe í kólumb- ísku forsetakosningunum árið 2002. Líklegt er að veiking FARC muni neyða þau í viðræður við kólumb- ísk stjórnvöld. Hugsanlega gæti lausn á átökunum, sem hafa rekið þrjár milljónir manna frá heimil- um sínum, loks verið í sjónmáli. Björgunin minnti á atriði í hasarmynd INGRID BETANCOURT Fagnar frelsinu ásamt börnum sínum eftir björgunina. FRÉTTASKÝRING: Vopnuð barátta FARC-uppreisnarsamtakanna FRÉTTSKÝRING GUNNLAUGUR HELGASON gunnlaugurh@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Sjúklingar bíða nú skemur eftir aðgerðum á sjúkra- húsum en þeir gerðu fyrir ári. Bið eftir hjartaþræðingu hefur styst hvað mest en bið eftir gerviliða- aðgerðum í hnjám er eini biðlistinn sem lengist svo nokkru nemur. Þetta kemur fram í tölum sem landlæknisembættið hefur tekið saman og miðast við 1. júní. Sam- anburður er gerður á biðtíma í febrúar á þessu ári og 1. júní í fyrra. Þegar tölur um bið eftir hjarta- þræðingu eru skoðaðar kemur í ljós að nú bíða 184 einstaklingar en á sama tíma í fyrra biðu 235 ein- staklingar. Þeim sem hafa beðið lengur en í þrjá mánuði hefur fækkað úr 119 í 61 einstakling. Í bráðatilvikum er engin bið. Aðrir biðlistar sem halda áfram að styttast eru biðlistinn á háls-, nef- og eyrnadeild og listi lýtalækn- ingadeildar vegna brjóstaminnkun- ar aðgerða. Þar er ekki um lýtaað- gerðir að ræða heldur aðgerðir vegna álagseinkenna sem konur hafa af mjög stórum brjóstum. Allstór hópur fólks bíður eftir aðgerð vegna skýs á auga en búast má við að sá biðlisti fari að styttast þar sem nýverið hefur verið samið við augnlæknastofur. Gerviliðaaðgerðum fjölgar jafnt og þétt, annars vegar vegna þess að þjóðin þyngist og aðgerðirnar verða sífellt öruggari. Biðlistinn eftir þessum aðgerðum er eini bið- listinn sem lengist, að sögn heil- brigðisráðuneytisins. - ghs Í AÐGERÐ Gerviliðaaðgerðum fjölgar jafnt og þétt. Biðlistinn eftir slíkum aðgerðum er eini biðlistinn sem lengist. Biðlistar vegna hjartaþræðinga hefur styst til muna á einu ári: Sjúklingar bíða skemur en áður Nýjar stúdentaíbúðir rísa Félagsstofnun stúdenta verður úthlut- að byggingarrétti fyrir námsmanna- íbúðir við Skógarveg. Borgarráð samþykkti tillögu þessa efnis á fundi sínum í fyrradag. HÚSNÆÐISMÁL Strandlengjan lítið menguð Lítil mengun er við fjörur Reykjavíkur og þær því öruggar til útivistar. Öll sýni sem tekin voru við strandlengju borgarinnar voru innan viðmiðunar- marka fyrir skólpmengun. ÚTIVIST NOREGUR, AP Efnahagsbrotadeild norsku lögreglunnar hefur lokið rannsókn á meintri spillingu við gerð varnarmálasamninga í Noregi. Ákveðið var að sekta þýska fyrirtækið Siemens um jafnvirði rúmlega þrjátíu milljóna króna. Lögreglan sakar Siemens um að hafa haft „óviðeigandi áhrif“ með því að hafa að miklu leyti greitt fyrir golfferð þriggja norskra hershöfðingja til Spánar árið 2004. Hershöfðingjarnir voru í aðstöðu til að hafa áhrif á gerð hergagna- samninga. Lögmaður Siemens segir að ákvörðuninni verði að líkindum áfrýjað til dómstóla. - gh Lögreglurannsókn í Noregi: Siemens sektað fyrir spillingu Fjöldaslagsmál í Öskjuhlíð Fjöldaslagsmál brutust út fyrir utan Keiluhöllina í Öskjuhlíð í fyrrinótt. Átta Litháar slógust með þeim afleið- ingum að einn var fluttur á slysadeild með höfuðáverka og brotnar tennur. Hinir sjö voru handteknir og færðir í fangageymslur. Gúmmíbátur brenndur Leifar gúmmíbáts sem brann til kaldra kola í fyrrinótt fundust við Ræktunar- stöðina við Nýbýlaveg í gærmorgun. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Stöðvaður á hlaupum Ökumaður ók gegn rauðu ljósi í Hafn- arfirði í fyrrinótt í tilraun til að sleppa frá lögreglu. Eftir að lögreglu tókst að stöðva hann við Víðiberg reyndi hann að komast undan á hlaupum en var stöðvaður og fluttur á lögreglustöð. Hann var sviptur ökuréttindum. LÖGREGLUFRÉTTIR ÞÁTTTAKANDI Í GAY PRIDE-GÖNGU Í KÖLN STILLIR SÉR UPP FYRIR MYNDA- TÖKU Þúsundir samkynhneigðra einstaklinga gengu um götur Kölnar í gær til að mótmæla mismunun. NORDICPHOTOS/AFP FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.