Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 07.07.2008, Blaðsíða 46
30 7. júlí 2008 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. mælieining, 6. í röð, 8. fley, 9. munda, 11. ekki heldur, 12. skattur, 14. mont, 16. átt, 17. þrí, 18. stjórnar- umdæmi, 20. stefna, 21. streita. LÓÐRÉTT 1. krass, 3. úr hófi, 4. jarðbrú, 5. viður, 7. skór, 10. eyrir, 13. nytsemi, 15. naga, 16. rá, 19. átt. LAUSN LÁRÉTT: 2. volt, 6. rs, 8. far, 9. ota, 11. né, 12. tíund, 14. grobb, 16. sv, 17. trí, 18. lén, 20. út, 21. álag. LÓÐRÉTT: 1. krot, 3. of, 4. landbrú, 5. tré, 7. stígvél, 10. aur, 13. not, 15. bíta, 16. slá, 19. na. „Ég er búin að vera að þjálfa í mörg ár en er búin að vera með aðstöðu í einu af Meridian- hótelunum í Dubai undanfarna níu mánuði, en hér eru flestar líkamsræktartöðvar inni á hótelum þar sem fólk hefur aðgang að tækjum, heilsulind, sundlaug og tennis- velli,“ segir Guðfinna Sigurðardóttir, einkaþjálfari og líkamsræktarkennari, sem hefur búið í Dubai undanfarin sex ár ásamt eiginmanni sínum, Michael Hansen, og tveimur sonum þeirra, Ísaki fjögurra ára og Davíð sex ára. „Ég er ekki hrifin af megrunarkúrum svo ég legg frekari áherslu á lífsstílsbreytingu. Ég nota prógramm sem heitir „8 weeks to a new you“ og hitti þá viðskiptavinina þrisvar eða fjórum sinnum í viku í átta vikur,“ útskýrir Guðfinna og segist finna mikinn mun á lífinu í Dubai og Íslandi. „Við fluttumst hingað eftir að maðurinn minn fékk flugmannsstarf hjá Emirates-flugfé- laginu og það tók mig allavega tvö ár að venjast þessum breytta lífsstíl. Hér eru allir með þernur á heimilinu, það eru engar gang- stéttir til að fara í göngutúra og maður fer allra sinna ferða á bíl, sem er mjög tíma- frekt því það er allt fullt af bílum,“ segir Guðfinna. Aðspurð hvort verðlagið sé ekki hátt segir hún það mjög svipað og hérlendis. „Fyrir tveimur árum hefði ég sagt að verðlagið væri lægra á Íslandi, en nú hefur allt hækkað svo mikið að það er svipað í dag,“ segir Guðfinna sem vill þó ekki meina að fjölskyldan verði í Dubai til frambúðar. „Dubai er rosalega langt komið í ýmsu, svo sem skólamálum, en annað er mjög langt eftir á. Það getur til dæmis tekið heila eilífð að láta gera við bilaðan bíl eða ganga frá pappírsvinnu. Uppbyggingin í landinu er gífurlega hröð og það er hálfóhugnanlegt hvað það er mikið af peningum hérna, en maður er mest hræddur um að þetta sé blaðra sem springi einn daginn. Flugfélagið sér okkur fyrir mjög fínu húsi og greiðir hita, rafmagn og lækniskostnað, en þetta er ekki það raunverulega líf sem ég vil að synir mínir kynnist svo ég vil gjarnan flytja til Svíþjóðar eða Íslands þegar eldri sonur minn fer í gagnfræðaskóla,“ segir Guðfinna að lokum, en þeim sem hafa áhuga á að kynna sér þjálfunaraðferðir Guðfinnu betur er bent á að kíkja á 8weeks.net. alma@frettabladid.is GUÐFINNA SIGURÐARDÓTTIR: KEMUR ÍBÚUM DUBAI Í FORM Óhugnanlegt hvað það er mikið af peningum hérna ÁNÆGÐ Í DUBAI Guðfinna hefur nóg að gera sem líkamsræktarkennari og einkaþjálfari í Dubai, en vill þó ekki búa þar til frambúðar. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN „Það er FM957 og Voice hérna á Akureyri. Uppáhaldslagið mitt þessa stundina er I Kissed a Girl með Katy Perry en ég hlusta bara á það sem er heitast. Ef ég næ svo hvorki Voice né FM957 þá er það Rás 2.“ Vilborg Daníelsdóttir, vörubílstjóri á Akureyri. „Við erum að koma heim um miðjan júlí,“ segir Þórarinn Leifsson rithöfundur sem hyggst búa á Ísafirði fram að áramót- um ásamt konu sinni, Auði Jónsdóttur. Þau eru búsett í Barcelona. „Það verð- ur of heitt hérna í júlí. Heilinn hættir bara að virka í þessum hita,“ segir Þórarinn. Auður er að leggja loka- hönd á bókina Vetrarsól sem kemur út í haust og ætlar að klára að skrifa hana fyrir vestan. Þórarinn ætlar að klára handrit sem hann ætlar að selja í forlag í haust. „Við vinnum þannig vinnu að við getum búið hvar sem er,“ segir Þórarinn en þau hafa reynt að haga málum þannig að þau búi hálft ár á Íslandi og hálft ár erlendis. „Ég var ekkert spenntur fyrir því að fara heim í sumar því ég vildi ekki vera í Reykjavík. Þegar Auja stakk upp á að fara á Ísa- fjörð leist mér strax betur á þetta. Ég er nefnilega með alls konar rómantískar hugmyndir um sveitina,“ segir hann. Auður ætlar að halda námskeið í ritlist á Ísa- firði í september og jafnvel fara með nám- skeiðið til Reykja- víkur. Þau stefna að því að fara aftur til Spánar kringum 20. desember með viðkomu í Danmörku og Þýska- landi. Þórarinn segir að það sé ofan á þá nátt- úrufegurð sem þau fá ókeypis á Vestfjörðum, þá sé einnig mun ódýrara að lifa þar. „Meðan evran er að láta svona þá er réttast að við búum í tjaldi þangað til krónan styrkist. Verðum í útilegu þangað til,“ segir Þórarinn sem ætlar að njóta lífsins fyrir vest- an. „Ég ætla að fara í göngur og veiða fisk í soðið. Auður ætlar að baka pönnukökur.“ - shs Frá Barcelona til Ísafjarðar AUÐUR JÓNSDÓTTIR Mun klára bókina Vetrarsól meðan hún dvelst á Ísafirði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÞÓRARINN LEIFSSON Flytur með frúnni á Ísafjörð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Jú, ég hitti George og tók í spað- ann á honum. Hann var fremur þurr á manninn, enda frægur fyrir það,“ segir Ólafur Jóhannesson De Fleur sem á dögunum heimsótti Skywalker-búgarð George Lucas ásamt fleiri aðilum úr kvikmynda- heiminum. „Það eru þarna fjögur eða fimm risastór hús sem hann á. Þar með talið risahljóðstúdíó þar sem vinna um 130 manns,“ segir Ólafur en stúdíó George Lucas sér meðal annars um að hljóðsetja allar myndir Stevens Spielberg og allar myndir frá Pixar, sem eitt sinn var hluti af Lucasfilm. Ólafur notaði tækifærið og bað hinn virta leikstjóra um leyfi til þess að nota skot af Yoda úr Star Wars í mynd sinni Queen Raquela. „Já, ég talaði við drenginn um það. Hann vísaði mér þurrlega – samt var eitthvað blítt við það – á aðstoðar mann sem gekk frá smáat- riðum svo ég fengi leyfið. Það hefði verið stórmál að fá þetta í gegnum lögfræðinga þannig að það var fínt að nota tækifærið,“ segir Ólafur. Af Ólafi er annars það að frétta að mynd hans Queen Raquela fór í sýningu í kvikmyndahúsum Los Angeles í síðustu viku og fer vel af stað að sögn Ólafs. „Viðbrögð áhorf- enda hafa verið frábær. Nokkrir stelpustrákar hafa haft samband og nokkrar stúlkur sem eru þekkt- ar úr klámheiminum hérna hafa fylgst með myndinni og ætla að mæta og sýna sinn stuðning. Það verður fróðlegt að sjá,“ segir Ólaf- ur sem lauk á dögunum við þrjá þætti sem kallast Hringfarar. Í sumar ætlar hann að slaka á og „leyfa heilanum að anda aðeins“. - shs Heimsótti George Lucas ÓLAFUR DE FLEUR Heimsótti Skywal- ker-búgarð George Lucas og gekk frá samningum í leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR EINKASAFNI Tískutröllin Arnar Gauti Sverrisson og Gunnar Hilmarsson, oftast kenndur við GK, virðast hafa ákveðið að taka golfíþrótt- ina með trompi í sumar. Þeir vöktu athygli á Hvaleyrarvellinum á föstudag þar sem þeir voru mættir ásamt tveimur félögum sínum. Báðir voru þeir Arnar Gauti og Gunni uppstrílaðir, í bleikum peysum og með trefla og klúta samkvæmt nýjustu tísku. Ekki fer sögum af árangri þeirra á golf- vellinum en þeir voru í hið minnsta við öllu búnir, með góðar græjur og á golfbíl. Höfðu viðstaddir á orði að það væri nú nógu sjaldgæft að sjá alvöru golfbíla á íslenskum golfvöll- um, en þennan daginn sáu menn í fyrsta skipti golfbíl ferja menn hvert fótmál á æfingavellinum. Á Austur-Indía fje- laginu var sam- ankomið sann- kallað draumalið Valsmanna í handknattleik síðastliðið laug- ardagskvöld. Fór þar fremstur í flokki landsliðshetjan Snorri Steinn Guðjónsson. Með honum voru menn á borð við Markús Mána Mikaelsson, fyrrum leikmann Vals og íslenska landsliðsins, og Ólaf Gíslason, markmann Valsmanna. Einnig gat þar að líta Bjarka nokkurn Sigurðsson sem varð frá að hverfa úr handboltanum vegna meiðsla á besta aldri. Drengirnir höguðu sér prúðmannlega áður en þeir héldu út í sumarnóttina. Trommuleikarinn Hanni Bach- mann og kona hans Íris Aðalsteinsdóttir eignuðust á dögunum heilbrigt stúlku- barn. Rokkarinn geðþekki lýsti því á Vísi.is hvernig hann hágrét þegar prinsessan fæddist, og skyldi engan undra sem þekkir tilfinning- una. Stúlkan hefur verið nefnd Evíta Rán. -hdm/shs FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á blaðsíðu 8 1 Árni Ísaksson 2 Framleiðslufyrirtækið WhiteRiver Productions 3 Friðrik Weisshappel Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.