Fréttablaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 6
6 8. júlí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
FLÓTTAMENN „Læknarnir sögðu að
ég ætti að hætta að hugsa um þetta
en ég bara get það ekki. Ég er hrædd
um að þeir komi og geri það sama
við mig og þeir gerðu við manninn
minn,“ segir Rosemary Athieno,
eiginkona Pauls Ramses flótta-
manns.
Rosemary var skoðuð á sjúkra-
húsi í gær en hún hefur verið afar
kvíðafull og kvartar undan maga-
og höfuðverkjum.
Hún segist óttast á hverri stundu
að lögreglan komi til að vísa sér úr
landi. Hún færi þá annaðhvort til
Svíþjóðar eða Keníu.
Lögmaður
Pauls, Katrín
Theodórsdóttir,
kærði ákvörðun
Útlendinga-
stofnunar, um að
vísa honum úr
landi, til dóms-
málaráðherra í
gær.
„Ég kæri þetta
til ógildingar,
þar sem ekki hafi verið rétt að
ákvörðuninni staðið,“ segir hún.
Ávörðun um brottvísun hafi ekki
verið birt í samræmi við reglur
stjórnsýslulaga. Ekki fyrr en búið
var að taka Paul fastan.
„Hann hafði því ekki aðgang að
réttlátri málsmeðferð fyrir óháðum
dómstólum,“ segir hún.
Til vara fer Katrín fram á að
ákvörðuninni verði breytt og
umsóknin tekin fyrir hér á landi.
Flestir þeirra þingmanna Sam-
fylkingarinnar, sem Fréttablaðið
talaði við í gær, vilja að dómsmála-
ráðherra endurskoði ákvörðun und-
irstofnunar sinnar.
Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor-
maður Samfylkingar, hóf þessa
umræðu í fjölmiðlum í gær.
Lúðvík Bergvinsson, þingflokks-
formaður Samfylkingar, tekur ekki
jafn djúpt í árinni. En hann túlkar
Dyflinnar-samninginn þannig að
hann sé hugsaður einstaklingum til
hagsbóta, frekar en ríkjum.
„Og ég held að það hefði mátt
skoða þetta betur,“ segir Lúðvík.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra bendir hins vegar á að útlend-
inga löggjöfin hafi verið til umræðu
á síðasta þingi: „Og náðist góð sátt
um niðurstöðuna. […] Þingmenn
binda hendur framkvæmdavalds-
ins með þeim lögum, sem sett eru.“
Allsherjarnefnd kemur saman í
dag og fer yfir mál flóttamanna.
Ekki náðist í Hauk Guðmundsson,
forstjóra Útlendingastofnunar.
Boðað hefur verið til daglegra
mótmæla í hádeginu fyrir utan
dómsmálaráðuneytið.
klemens@frettabladid.is
Kona Pauls óttast
Útlendingastofnun
Rosemary, kona Pauls Ramses, er kvíðafull og fór í stutta stund á sjúkrahús í
gær. Hún er hrædd um að Útlendingastofnun vísi sér úr landi á hverri stundu.
Ákvörðun Útlendingastofnunar hefur verið kærð til dómsmálaráðherra.
KATRÍN
THEODÓRSDÓTTIR
ROSEMARY OG FÍDEL SMÁRI Konan fór á spítala í gær, en hún var með mikla maga-
verki. Læknarnir hvöttu hana til að dreifa huganum, en hún óttast að verða rekin úr
landi hvenær sem er. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KJÖRKASSINN
Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@frettabladid.is
DR. GUNNI gunnarh@frettabladid.is
„Ég hef ekkert nema gott eitt að
segja um að vakið sé máls á þessu
við ítölsk stjórnvöld,“ skrifar Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra í
skeyti til Fréttablaðsins.
Hann hafði verið inntur álits
á afskiptum Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur utanríkisráðherra af
málefnum Pauls Ramses.
„[Ítalskra stjórnvalda] er að taka
afstöðu til þess, hvort veita eigi Paul
Ramses hæli sem pólitískur flótta-
maður,“ segir Björn og rifjar upp að
Franco Frattini, utanríkisráðherra
Ítalíu, hafi í mörg ár farið með þau
mál innan framkvæmdastjórnar ESB
sem lúta að framkvæmd Dyflinnar-
samningsins, sem sé grundvallar-
skjal í málum sem þessum.
„[Frattini] hefur yfirburðaþekkingu
á þessu sviði. Hann þekkir einnig
vel til hér á landi og er velviljað-
ur landi og þjóð, rödd Íslands á
örugglega hljómgrunn hjá honum,“
segir hann.
BJÖRN ER SÁTTUR
VIÐ INGIBJÖRGU
SAMFÉLAGSMÁL Árni Mathiesen
fjármálaráðherra og Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra
hafa fundað um málefni Fjölsmiðj-
unnar. Niðurstaða fundarins var
sú að kanna vilja sveitarfélaganna
til að leigja húsnæði fyrir Fjöl-
smiðjuna. Það ríkir því enn óvissa
um húsnæðismál Fjölsmiðjunnar í
Kópavogi.
Árni segir að verið sé að skoða
þessi mál en það sé ekki sitt að
ræða málaflokka sem heyri undir
aðra ráðherra jafnvel þótt fjár-
málin komi við sögu. Árni vill ekki
tjá sig um mál Fjölsmiðjunnar
fyrr en fjármálin séu frágengin.
Þorbjörn Jensson, forstöðumað-
ur Fjölsmiðjunnar, segir að verst
sé hvað það taki ofboðslega langan
tíma að leysa húsnæðismálin.
Sveitarfélögin hafi samþykkt
fyrir sitt leyti að kaupa húsnæði
og borga 60 prósent í því en nú
vilji ríkið leigja húsnæði og þá
þurfi að fá afstöðu sveitarfélag-
anna til þess.
„Ef þau samþykkja þá verður
farið í það ferli að auglýsa eftir til-
boði í húsnæði fyrir Fjölsmiðjuna
og finna út úr því en við hefðum
frekar viljað kaupa húsnæði. Mér
finnst miklu hyggilegra að gera
það því að þá á Fjölsmiðjan hús-
næðið og er tiltölulega örugg í
því,“ segir Þorbjörn.
Fjölsmiðjan er nú á leið í sumar-
leyfi og hefst starfsemin ekki
aftur fyrr en í byrjun ágúst. Þor-
björn segist ætla að nota sumar-
fríið til að leita að húsnæði. - ghs
LEITAR AÐ HÚSNÆÐI Fjölsmiðjan er
á leið í sumarleyfi. Þorbjörn Jensson
forstöðumaður ætlar að nota sumarfríið
til að leita að húsnæði.
Enn ríkir óvissa um húsnæðismál Fjölsmiðjunnar í Kópavogi:
Ríkið vill leigja húsnæði
BÚRMA, AP Hjálparstarf eftir
fellibylinn sem gekk yfir Búrma
í maí gengur vel, að sögn
talsmanns UNICEF, stofnunar
sem heyrir undir Sameinuðu
þjóðirnar.
Yfir áttatíu þúsund létu lífið
þegar fellibylurinn Nargis reið
yfir Búrma 2.-3. maí og meira en
fimmtíu þúsunda er enn saknað.
Herforingjastjórnin í Búrma
var gagnrýnd fyrir að hindra
hjálparstarf erlendra aðila eftir
fellibylinn. Svo virðist þó sem
tekist hafi að hindra útbreiðslu
sjúkdóma og aukið mannfall
eftir fellibylinn.
- gh
Eftirköst fellibylsins í Búrma:
Hjálparstarf
gengur vel
Bjössaróló endurbyggður
Orkuveita Reykjavíkur mun leggja
fram tvær milljónir króna til að
endurbyggja hinn fræga Bjössaróló í
Borgarnesi. Bjössaróló er upphaflega
verk Björns Guðmundssonar sem bjó
þar hjá og handsmíðaði öll leiktækin
upp á eigin spýtur.
BORGARNESI
Sumarhús í súrheysturni
Skipulags- og byggingarnefnd Ölfuss
hefur tekið jákvætt í ósk eiganda
súrheysturns í sveitarfélaginu um
að breyta turninum í sumarhús svo
framarlega að sýnt verði fram á að
byggingin þoli breytingar vegna hurða
og glugga sem þurfi að koma fyrir.
ÖLFUS
Knapi hlaut opið beinbrot
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gær
mann, sem hlaut opið beinbrot eftir
að hafa fallið af hestbaki skammt
suður af Hvolsvelli. Maðurinn var
fluttur á Landspítalann í Fossvogi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Var rétt ákvörðun hjá Seðla-
bankanum að lækka ekki
stýrivexti?
Já 30%
Nei 70%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Vilt þú nýja ríkisstjórn?
Segðu skoðun þína á visir.is.
Natalie Simon skrifar: „Ég vil benda á óþægilegan
hlut í Krónunni á Granda. Þar er ekki að finna
neinar körfur heldur bara stórar kerrur (eða litlar
kerrur fyrir krakka). Ég veit ekki hvort það sé
svoleiðis í öllum Krónubúðum í borginni. Mér finnst
eins og verið sé að þvinga viðskiptavini til að
kaupa meira með því að spila inn á undirmeðvit-
und þeirra. Mér finnst þetta lúmskt og virðingar-
leysi við þá kaupendur sem vilja ekki vera nema
stutt í búðinni og kaupa fáa hluti.“
Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar,
segir það rétt að körfur séu ekki í boði í stærri
Krónubúðunum. Þær megi þó finna í minni
búðunum. Hann vill ekki kannast við að með því að
bjóða bara upp á kerrur sé verið að spila á
undirmeðvitund kúnnanna. „Svona ábendingar
hafa komið inn á borð hjá okkur áður og við
erum að skoða málið,“ segir hann. „Búðirnar
okkar eru rúmgóðar og þægilegar og
auðvelt er að fara með kerrur í gegnum þær.
Í tveimur stórverslunum okkar erum við
svo að þróa sjálfsafgreiðslukassa og þar munum
við hafa körfur, enda eru þessir sjálfsafgreiðslu-
kassar helst ætlaðir fyrir viðskiptavini með 10-15
hluti eða færri.“
KARFA EÐA KERRA? Þar liggur efinn.
Verður maður að fylla kerruna?
Óþægilegt körfuleysi