Fréttablaðið - 08.07.2008, Side 22
8. JÚLÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● veiði
Zpey-veiðistangirnar eru vin-
sæl nýjung á markaðinum, en
þær eru búnar sérstöku hand-
fangi sem auðveldar mönnum
veiðina.
„Þetta er í raun einhver mesta
bylting sem við höfum séð í veiði-
stöngum í áratugi,“ segir Ólafur
Vigfússon, verslunarmaður í Veiði-
horninu, um nýjar veiðistangir
sem verslunin flytur inn og nefn-
ast Zpey. Þær voru valin besta nýja
flugustöngin á evrópsku fagsýn-
ingunni sem haldin var í Róm í ár.
„Norðmaðurinn Arve Evensen
hannaði kerfið og á jafnframt fyr-
irtækið Zpey System sem fram-
leiðir stangirnar. Hugmyndin
fæddist þegar Arve kom eitt sinn
heim eftir margra daga veiðileið-
sögn, dauðþreyttur í baki, öxlum
og höndum. Hann hugsaði með sér
að það hlyti að vera hægt að hanna
veiðistöngina þannig að hægt væri
að kasta henni með minni áreynslu
og á auðveldari hátt. Hann gekk
með hugmyndina í maganum í sex
ár þar til endanleg útkoma kom á
markaðinn í fyrra.“
Sérkenni Zpey-veiðistanganna
er handfangið sem er sérstakt í
laginu. „Handfangið er z-laga sem
gerir það að verkum að veiðimað-
urinn heldur stönginni nær lík-
amanum og allar hreyfingar eru
minni og styttri. Þetta hefur ýmsa
skemmtilega kosti í för með sér;
hægt er að kasta flugu með talsvert
minni áreynslu og án þess að
þreyt- ast eins mikið, auð-
veldara er að kasta lengra
og byrj- endur eru fljót-
ari að ná tökum á þessu,
svo eitthvað sé nefnt.“
Veiðistang- irnar eru
hannaðar fyrir fluguveiði
og eru tvær gerð- ir í boði.
„Annars vegar eru
þetta tvíhendur sem heita
Zpey First Edition og
hins vegar einhend- ur
sem heita Zpey Switch.
Þær vinna eins og hefð-
bundnar einhendur, en
þeim fylgir z-lagað hand-
fang sem hægt er að festa
aftan á stöngina og nota eins
og litla tvíhendu.“
Þrátt fyrir að Zpey-stangirnar
hafi verið stutt á markaðnum eru
þær strax orðnar vinsælar. „Þetta
eru ekki stangir í ódýrasta verð-
flokki; við erum að tala um stang-
ir sem kosta á bilinu 65.000 til
115.000. Við vorum dálítið smeyk
að taka þetta inn fyrst því þetta
er ekki ódýrt, en þær hafa selst
mjög vel. Það fara nokkrar í hverri
viku.
Við erum að fá menn inn í búð-
irnar sem eru nýkomnir úr veiði-
túr þar sem einhver var með svona
veiðistöng og þeir segja bara: Ég
ætla að fá svona stöng. Menn eru
að kynnast þessu á bakkanum og
sjá ljósið,“ segir Ólafur brosandi.
Þrátt fyrir marga kosti þá
þykir Ólafi ólíklegt að Zpey-
stangirnar verði ráðandi
á markaðinum. „Þetta er
bara einn möguleiki. Það
eru til svo margir mis-
munandi kaststílar og
þetta handfang hent-
ar þeim ekki öllum.
Þetta mun því aldrei
taka yfir markaðinn
en þetta er mjög kær-
komin og skemmtileg
viðbót.“ - mþþ
Ein mesta bylting í áratugi
Ólafur Vigfússon með Zpey-veiðistangirnar sem hafa létt mörgum veiðimönnum veiðina. Stangirnar fást í Veiðihorninu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Þessi tvíhenda heitir
Zpey First Edition og
kom á markaðinn í
fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ /AUÐUNN
Arve Evensen kom hingað ásamt fleiri Norðmönnum í vor og hélt flugukastsnám-
skeið í Norðurá á vegum Veiðihornsins. Voru 50 manns á námskeiðinu en færri
komust að en vildu. Hér sést Arve úti í á að kenna veiðimönnum.
MYND/ ÓLAFUR VIGFÚSSON
Stian Evensen, sonur Arves, kenndi einnig á námskeiðinu. Hann er margfaldur Nor-
egs meistari í fluguköstum en hér sýnir hann köst í Norðurá.
„Við fórum í veiðiferð til Nuuk í
fyrra og fjögurra manna hópurinn
veiddi 205 laxa á tveimur dögum.
Eftir það hættum við bara að
veiða,“ segir Ingi Þór Guðmunds-
son, forstöðumaður sölu- og mark-
aðsdeildar Flugfélags Íslands sem
býður í fyrsta sinn upp á sérhann-
aðar veiðiferðir til Nuuk, höfuð-
borgar Grænlands, í sumar.
„Við fórum, hópur í vöruþróun,
til Grænlands síðasta haust. Sett-
um okkur í samband við fjögurra
stjörnu hótel á Grænlandi sem
heitir Hans Egede og ferðamála-
ráð á svæðinu. Veiðiferðirnar
til Nuuk urðu til upp úr því sam-
starfi.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Flugfélag Íslands býður upp á
ferðir til Grænlands. Flugfélagið
hefur staðið fyrir ferðum til Kul-
usuk á austurströndinni og Nar-
sarsuaq, þangað sem Íslendingar
hafa talsvert sótt í fluguveiði. „Við
sáum því að það var markaður
fyrir veiðiferðir til Grænlands,“
segir Ingi Þór og bætir því við að
rekja megi ástæðuna til góðrar
veiði og lágs verðlags. „Þetta land
er náttúrulega bara ónumið og þú
getur eiginlega bara farið í næstu
sprænu og veitt.“
Þá verður leiðangursstjóri í
veiðiferðunum ekki af verri end-
anum, heldur söngvarinn góð-
kunni Pálmi Gunnarsson. „Hann
er búinn að vera mikið á Græn-
landi í veiði. Það er alltaf ágætt
að fá óháða ráðgjöf og hann þekk-
ir landið vel. Hann er einnig mik-
ill veiðimaður þannig að það er
eins og punkturinn yfir i-ið,“ segir
Ingi Þór en tekur fram að Pálmi
fari þó einungis í nokkrar ferðir
með veiðimönnunum. Grænlensk-
ir leiðsögumenn verði hópunum
síðan innan handar. - mmf
Góð veiði á Grænlandi
Íslendingar hafa áður farið til Græn-
lands í veiðiferðir en nú er boðið upp á
sérsniðnar ferðir til Nuuk.
Ingi Þór Guðmundsson segir veiði á Grænlandi gefa einstaklega vel af sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Við ákváðum að gera eitthvað í
maðkamálum þar sem það hefur
verið svo ofboðslegur þurrkur ár
eftir ár. Það vantar beitu vegna
þess,“ segir Tómas Skúlason, eig-
andi Veiðiportsins, sem hóf nýlega
sölu á hvítmaðki sem er helst not-
aður í silungsveiði. Að hans sögn
hefur hvítmaðkurinn verið notað-
ur í veiðar á Íslandi í mörg ár en
hvergi fengist. „Þetta eru bara
gamlir karlar sem hafa gert þetta
sjálfir. Þetta hefur aldrei verið haft
til sölu.“ Enda hafa viðtökurnar
ekki staðið á sér eftir að sala hófst.
Hann bætir við að það sem geri
hvítmaðkinn sérstakan sé að þarna
séu lifandi púpur á ferð. „Fiskur-
inn lifir náttúrulega á púpum, lirf-
um og þess háttar lífverum í vötn-
unum. Þarna kemst beitan nálægt
fæðu fisksins. Þetta er orginall-
inn.“
Þegar sumrin eru þurr og tiltölu-
lega heit eins og verið hefur í ár er
erfitt að finna maðk. „Núna er það
mikil þurrkur að það hefur ekki
verið til maðkur í þrjár til fjórar
vikur. Þegar rignir þá er það á vit-
lausum tíma og svo er líka svo bjart
á nóttunni,“ segir Tómas þreyttur á
ástandinu og bætir við að maðka-
tínarar séu auk þess í samkeppni
við fugla.
Tómas segir Veiðiportið vera að
auka úrvalið í beituveiðinni með
því að setja hvítmaðkinn á markað.
„Beituveiðin á Íslandi hefur ein-
skorðast, og þá sérstaklega á sumr-
in, við maðk og makríl. Þarna erum
við að bæta einni tegundinni við.“
- mmf
Hvítmaðkur á markað
Tómas Skúlason segir hvítmaðkinn í fyrsta sinn til sölu á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR