Fréttablaðið - 30.07.2008, Side 12
12 30. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í
103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Þegar hásumarið hvelfist yfir París og borgin fyllist af
ungum og léttklæddum blómarós-
um, koma og aðrir út úr felustöð-
um sínum; reyndar eru þeir
jafnan til staðar í einhverjum
hornum og skúmaskotum, allan
ársins hring, en nú streyma þeir
leynt og ljóst um stræti og garða,
og fara skimandi um. Það eru þeir
menn sem iðka öllum stundum að
taka blómarósirnar tali undir
ýmsum átyllum til að gilja þær og
hafa af þeim stundargaman, eða
kannske lengra. Þessir menn eru
kallaðir „dragueurs“ á frönsku og
sögnin yfir athæfi þeirra er
„draguer“, en hvort tveggja er
komið af germönsku sögninni „að
draga“, eins og liggur reyndar í
augum uppi. Á klassískri íslensku
er þó í þessu sambandi talað um
að „húkka“, hin germanska rót
merkir þar annað stig.
Vafalaust hafa menn af þessu
tagi stundað iðju sína með nokkuð
svipuðum hætti allar götur síðan
París varð París, enda eru
aðferðir þeirra gamalreyndar og
ekki við miklum framförum að
vænta á því sviði. En hjá því gat
þó varla farið að hin mikla
bylting, sem sigur markaðshyggj-
unnar hefur valdið, hefði róttæk
áhrif á athæfi þessara táldráttar-
manna eins og allar aðrar hliðar
mannlífsins, enda hefur sú orðið
raunin á. Í sumar má lesa í blöðum
að þjálfaðir „húkkarar“ með mikla
starfsreynslu að baki bjóðist til að
kenna nýliðum listina, þeir setji
sem sé upp skóla í „húkki“.
Einn lærimeistarinn af þessu
tagi sem blöð hafa skýrt frá er
Arnaud nokkur Olieric, sem kýs
að nefna sig „Fönix“. Hann hélt
við níu konur í einu, þegar það
rann upp fyrir honum, fyrir einu
ári eða svo, að sú þekking sem
hann byggi yfir væri mikilla
peninga virði. Hófst hann þá
þegar handa. Þar sem markaðs-
væðing af þessu tagi verður að
hafa á sér engilsaxneskt yfir-
bragð ef menn eiga að taka hana
alvarlega í Frakklandi, kallaði
hann fyrirtæki sitt „Natural
Technics Development“, og lét í
veðri vaka að innihald kennslunn-
ar væri komið frá gósenlandi
frjálshyggjunnar, Bandaríkjun-
um, hvað svo sem hæft var í því.
Fyrir hverja kennslustund tók
hann frá 75 evrum og upp í 150
evrur, og þeir sem höfðu numið
listina fengu titilinn „Pick up
artist“, skammstafað „PUA“.
„Fönix“ sagði þó blaðamanni að
franski markaðurinn væri enn
mjög þröngur, aðeins um eina
milljón evra á ári, en hann
víkkaði ört. Sjálfur sagðist hann
hafa þjálfað meira en hundrað og
fimmtíu nemendur, en því fer
fjarri að hann sé einn um hituna.
Í þessari grein eru einnig
starfandi fyrirtæki eins og
„Spike“, „Sébastien Night“,
„CoolPUA“ og mörg fleiri svo
sem „Become In“ sem er sérhæft
í að kenna húkk á gangstéttum.
„Þetta er alger bylting“, sagði
Alexis, 29 ára gamall fjármála-
maður, sem hafði tekið fjórtán
lexíur og varið til þess 1800
evrum, „ég lá fimm stúlkur á
þremur mánuðum“. Til að vega og
meta þennan árangur geta
tölfróðir menn kannske reynt að
reikna út hvað Alexis verður
lengi, með þessum hraða, að
komast yfir þúsund og þrjár
konur eins og Don Giovanni tókst
á sínum tíma á Spáni.
Blaðamaður fékk að fylgjast
með því þegar Fönix tók tvo
nemendur í tíma á kaffistétt við
Ódáinsvelli í París. „Konur ganga
fyrir tilfinningum“, útskýrði
meistarinn. „Látið þær tala um
dans, það eru myndhvörf fyrir
kynferðismál“. Markmiðið er að
leiða fórnarlömbin út í fyndin og
tvíræð samtöl, sýna sjálfan sig í
sem bestu ljósi en gera sér upp
áhugaleysi. „Húkkarinn verður
að fá stúlkuna til að hlaupa á eftir
sér“. Síðan tók hann til við að
ljúka upp leyndardómum þess
sem hann kallaði „neg hits“, en
það eru „pillur“, eins og sagt er á
alþýðlegri íslensku, ætlaðar til að
slá erfiðar stúlkur út af laginu:
„Mér finnst kjóllinn þinn svo
fallegur, allar stelpur eru í
þessum sama kjól í sumar“. Og
loks fjallaði hann um „IOI“ (sem
er væntanlega skammstöfun
fyrir „Indicators of Interest“), en
það eru þau merki sem leiða í ljós
áhuga stúlkunnar á húkkaranum.
Til að kanna árangurinn af
þessari kennslu fékk blaðamaður
að fylgjast með tveimur stofn-
endum fyrirtækisins „Become
In“. Þeir gengu lausir í Lúxem-
borgargarðinum til að demons-
trera, og á minna en fimm
mínútum hafði þeim tekist að fá
tvær stúlkur til að gefa þeim
gemsanúmer sín. Til þess þurfti
þó ekki annað en mjög svo
hversdagslegar samræður.
„Sumir halda að þeir þurfi ekki
annað en læra nokkrar setningar
utan að,“ sagði annar þeirra
síðan, „en það er aðeins aukaat-
riði. Menn þurfa þvert á móti að
tileinka sér tæknina hið innra
með sér svo hún verði þeim
eðlileg og leiði í ljós persónuleika
þeirra. Húkkið er persónuleika-
bygging sem er gagnleg fyrir öll
svið þjóðfélagsins.“
En þetta er ekki auðlærð list, ef
trúa má því sem einn kennarinn í
greininni sagði blaðamanni: „Það
eru ekki fleiri en tuttugu raun-
verulegir húkk-listamenn í öllu
Frakklandi.“
Táldráttarmenn
Enn tala verkin
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
hefur látið Ólöfu Guðnýju Valdimars-
dóttur víkja úr skipulagsráði. Ekki er
nema um mánuður síðan Ólafur rak
Ólöfu Guðnýju sem aðstoðarmann
sinn en fór þess á leit við hana um
að sitja áfram í skipulagsráði fyrir
hönd F-lista. Sinnaskiptin helgast af
ummælum Ólafar
Guðnýjar í þá
átt að ekki væri
tímabært að taka
afstöðu til vinn-
ingstillögu um
nýjan Listahá-
skóla við Laugaveg, skipulagsráð ætti
eftir að taka málið fyrir. Sjálfur var
borgarstjóri búinn að gefa það út að
skipulagsráð myndi hafna tillögunni.
Hann líður greinilega ekki neitt hálf-
kák af hálfu fulltrúa sinna í borginni
á borð við það að vilja taka upp mál
á viðeigandi vettvangi. Annaðhvort
eru menn með honum eða á móti.
Eitraður kaleikur
Össur Skarphéðinsson er
ekki fyrr kominn heim,
sólbakaður frá Kanaríeyj-
um, en hann er tekinn
til óspilltra málanna
við að greina
borgarpólitíkina.
Á heimasíðu
sinni skrifar
Össur að sú ákvörðun sjálfstæðis-
manna að mynda meirihluta með
Ólafi F. Magnússon sé „einhver
eitraðasti kaleikur sem nokkur
stjórnmálaflokkur hefur sjálfviljugur
teygað í botn“, Sjálfstæðisflokkurinn
hafi málað sig út í horn í borginni;
enginn vilji vinna með honum og
hann verði að beygja sig undir duttl-
unga Ólafs af ótta við að hann hóti
að mynda enn einn meirihlutann.
Þannig að bikarinn eitraði er ekki
alveg galtómur. Og miðað við
álit Össurar á borgarstjóranum
virðist hann ekki ætla sínu fólki í
Samfylkingunni stórt ef hann
heldur að þeim finnist
freistandi að sötra
dreggjarnar.
bergsteinn@frettabladid.is
UMRÆÐAN
Helga Guðrún Guðjónsdóttir skrifar
um Unglingalandsmót UMFÍ
Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands, það ellefta í röðinni, verður
haldið í Þorlákshöfn dagana 1.-3. ágúst. Á
mótinu verður keppt í frjálsum íþróttum,
glímu, golfi, hestaíþróttum, knattspyrnu,
körfuknattleik, motorcross, skák og sundi.
Keppendur eru á aldrinum 11 til 18 ára.
Auk íþróttakeppninnar er ýmislegt í boði og ættu
allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Sérstaka
athygli vekur sú mikla dagskrá sem er fyrir 11 ára og
yngri en þau hafa ekki keppnisrétt á mótinu. Glæsileg
leiktæki, hoppkastali, rennibraut o.fl verður sett upp
á mótssvæðinu og einnig verða í boði íþróttaklúbb-
arnir ,,Fjörkálfaklúbbur 6-10 ára“ og ,,Sprelligosa-
klúbbur 5 ára og yngri“. Aðgangur er ókeypis.
Fjölbreytt menningardagskrá verður alla dagana
sem menningarnefnd Ölfuss hefur sett saman með
mótshöldurum. Kvöldvökur verða öll kvöldin og
mótinu verður slitið með kröftugri flugeldasýningu.
Umgjörð mótsins í Þorlákshöfn verður glæsileg.
Byggður hefur verið alvörukeppnisvöllur með
stórkostlegri umgjörð. Heimamenn hafa því lagt
mikinn metnað í undirbúning og framkvæmd
mótsins sem er án efa skynsamlegasta og
skemmtilegasta fjölskyldu-, íþrótta- og
forvarnahátíð sem hægt er að hugsa sér. Mót
þar sem unglingar og íþróttir eru í fyrirrúmi
og stórfjölskyldan getur tekið þátt.
Mótin hafa vakið verðskuldaða athygli og
hafa fyrir löngu sannað gildi sitt. Þeir
fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið
öðrum til fyrirmyndar í allri framkomu,
hvort sem um er að ræða í keppni, leik eða
umgengni. Keppnin snýst um að taka þátt og
vera með og gleðjast yfir afrekunum.
Það verður gaman að vera í Þorlákshöfn um
verslunarmannahelgina. Ef þú hefur ekki tekið
ákvörðun um hvert förinni skuli heitið um verslunar-
mannahelgina skaltu koma í Þorlákshöfn og njóta
þess að upplifa unglingalandsmót. Flestir þeir sem
hafa verið á mótunum hingað til koma aftur. Hvað er
betra en að foreldrar og börn njóti þess að vera
saman í marga daga á slíku móti?
Njótum þess að vera saman á unglingalandsmóti í
Þorlákshöfn þar sem saman fer keppni, skemmtun,
gleði og vinarþel.
Höfundur er formaður
Ungmennafélags Íslands.
Heilbrigt fjölskylduumhverfi
HELGA GUÐRÚN
GUÐJÓNSDÓTTIR
L
ífið er erfitt fyrir Gordon Brown, forsætisráðherra
Breta. Kannanir sýna minnkandi stuðning við Verka-
mannaflokkinn og nafnlausir þingmenn flokksins kalla
á afsögn hans sem formanns. Til að bjarga flokknum frá
skelfilegri útkomu þurfi ný andlit strax í haust. Brown
hefur misst traust almennings í þeim efnahagsþrengingum sem
hrjá Breta, jafnt og Íslendinga. Líkt og á Íslandi hafa fasteigna-
viðskipti dregist saman þar sem meira aðhalds er gætt í útlánum,
hægst hefur á öllum nýbyggingum og eru byggingaverktakar í
vandræðum. Þá er búið að spá auknu atvinnuleysi í haust.
Vandinn hljómar kunnuglega fyrir íslenska lesendur, þó að
hann sé ekki alveg sambærilegur, og hið sama má segja um for-
sætisráðherrann.
Líkt og Geir H. Haarde var Brown mjög vinsæll áður en hann
tók við sem formaður og forsætisráðherra. Hann var sérstaklega
talinn traustur fjármálaráðherra, þrátt fyrir að vera nokkuð lit-
laus karakter. Eftir að hafa staðið í skugganum af hinni miklu
sól sem Tony Blair var, var lengi ljóst að Brown myndi taka
átakalaust við flokknum og forsætisráðherraembættinu. Blair
hafði verið óhemju vinsæll í upphafi ferils síns sem formaður og
forsætisráðherra, en vinsældirnar döluðu eftir því sem Blair sat
lengur í stóli forsætisráðherra. Vilja margir meina að hann hafi
ekki þekkt sinn vitjunartíma.
Á síðasta ári hefur Brown svo komist að því að það sem ein-
kenndi hann sem traustan fjármálaráðherra er ekki nauðsynlega
það sama og einkennir góðan forsætisráðherra. Brown er gagn-
rýndur fyrir að vera fjarlægur kjósendum og þrátt fyrir öryggi
hans í öllu sem viðkemur tölum siglir breska þjóðin inn í tímabil
efnahagsþrenginga, sem Brown virðist ekki hafa nokkra stjórn á.
Hann hefur því verið gagnrýndur fyrir að vera ekki nógu mikill
leiðtogi til að geta leitt þjóðina í gegnum þetta erfiðleikatíma-
bil. Gagnrýnin virðist ná vel til kjósenda, en fylgi flokksins dalar
bara og dalar. Þegar flokkurinn tapar meira að segja kosningum
í Glasgow, þrátt fyrir skoskan uppruna Browns, virðist fokið í
flest skjól fyrir formanninn.
Það er ekki eins og Brown og ríkisstjórn hans hafi setið auðum
höndum, heldur hefur hann meðal annars komið bönkum og
öðrum lánveitendum til bjargar í lánsfjárkrísunni, sveitarfélög
hafa fengið leyfi til að kaupa óseldar íbúðir og eldsneytisskattur
hefur verið frystur. Þá eru í bígerð áætlanir um að taka lán upp á
hundruð milljarða til að bjarga fasteignaeigendum og fjölskyld-
um sem eiga í erfiðleikum vegna lánsfjárkrísunnar og hækka þar
með leyfileg lánamörk ríkisins, samkvæmt reglum sem Brown
setti sjálfur.
Hér endar samlíkingin milli Geirs og Browns. Vandamálið
fyrir Brown er að hann og samráðherrar hans leggja til lausnir,
þó að tímabundnar séu, til að takast á við komandi erfiðleika. En
breska þjóðin er ekki að hlusta, heldur leggur frekar eyrun við
hvað David Cameron, formaður Íhaldsflokksins, segir. Stjórn-
arandstaðan hér á landi hefur hins vegar ekki vaxið á þessum
tímum efnahagsþrenginga en líkt og lesa má í Markaðnum í dag
er hins vegar kallað eftir því að stjórnmálamenn hafi forystu um
að leggja til lausnir um hvernig hægt sé að komast aftur á fast
land. Forsætisráðherra hlýtur að þurfa að taka það til sín.
Efnahagsvandi fer með formann.
Geir H. Brown
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR SKRIFAR
Lít ég einn sem list kann
EINAR MÁR JÓNSSON
Í DAG |