Fréttablaðið - 30.07.2008, Blaðsíða 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Stefán Aðalsteinn Drengsson kleif nýlega Mont
Blanc og lenti þar í hrakningum.
Kvikmyndagerðarmaðurinn Stefán Aðalsteinn
Drengsson kleif nýverið Mont Blanc ásamt meðlim-
um 5 tinda. Leiðangurinn var ekki leikur einn og
mátti Stefán hafa sig allan við til að komast á topp-
inn. „Við vissum að þetta yrði krefjandi ferð, þar
sem um eitt hundrað manns deyja árlega á Mont
Blanc. En við félagarnir erum alltaf að reyna okkur
til hins ýtrasta. Ég ákvað að fara í ferðina til að búa
til heimildarmynd um hana. Ég og Leifur Dam Leifs-
son ákváðum að gera þetta og vera saman í línu alla
ferðina,“ útskýrir hann.
Ferðin var vikulöng og hófst á Ítalíu þar sem hóp-
urinn kleif tvö fjöll, La Tresenta og Grand Paradiso,
sem er hæsta fjall á Ítalíu. „Þessi tvö fjöll voru frá-
bær, þó sérstaklega Grand Paradiso enda þarf maður
að fikra sig áfram á klettasyllu til að komast á topp-
inn, sem er alls ekki fyrir lofthrædda,“ segir Stefán.
Leiðin lá því næst til Frakklands, þar sem Stefán
og félagar lögðu af stað upp brekkuna Mont Blanc
du Tacul. „Eftir hana byrjaði ég að finna verulega
fyrir þunna loftinu, því brekkan sem tók við af henni
var löng og lýjandi. Ég fékk dúndrandi hausverk, illt
í magann og sting fyrir hjartað sem orsakaði nála-
dofa í öllum vinstri handleggnum. Mér var ekki
farið að lítast á blikuna og hugleiddi hvort þetta
væri komið út í einhverja vitleysu. Við námum því
staðar í nokkrar mínútur; ég náði hjartslættinum
aðeins niður og svo héldum við áfram. Mistökin voru
þau að ég hvorki át né drakk að ráði í göngunni.“
Að sögn Stefáns náðu félagarnir loks á toppinn,
örmagna en sælir. „Núna þegar maður hefur haft
tíma til að melta þetta og spá í það sem gerðist, er
svarið einfalt. Þetta var háfjallaveiki, en margir
hafa farið illa út úr henni,“ segir Stefán, sem tók
ferðina upp á myndband og stefnir á að sýna hana í
íslenskum kvikmyndahúsum í árslok.
mikael@frettabladid.is
Neitaði að gefast upp
Stefán Aðalsteinn Drengsson segir sér alla vegi færa eftir ófarir á Mont Blanc. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÖRYGGI Í ÖNDVEGI
Áríðandi er að tryggja öryggi
barna í bílum. Á það ekki síst við
nú þegar ein stærsta ferðahelgi
ársins er fram undan.
BÍLAR 2
MENNINGIN Í VÍN
Valgerður Guðmunds-
dóttir er nýkomin úr
námi í Vínarborg þar
sem hún naut lífsins
og tilverunnar.
FERÐIR 4