Fréttablaðið - 30.07.2008, Page 19
][
Valgerður Guðmundsdóttir,
þjóðfræðingur og meistara-
nemi í lögfræði, er nýkomin
heim úr námi í Vínarborg.
„Ég var skiptinemi við Háskólann í
Vín en ég kynntist borginni fyrst
fyrir tíu árum og gjörsamlega féll
fyrir henni. Þess vegna varð hún
fyrir valinu þegar ég fór að skoða
skiptinám,“ segir Valgerður.
Námið í Vínarborg var að sögn
Valgerðar mjög frábrugðið því sem
hún hefur vanist við Háskóla
Íslands. „Lagadeildin er miklu
stærri og margir prófessorarnir
eru frægir á sínu sviði. Mikið fram-
boðið var líka af fjölbreyttum val-
áföngum,“ útskýrir hún.
Að sögn Valgerðar er Vínarborg
mikil lista- og menningarborg og
margt af því sem hún hefur upp á
að bjóða er miðsvæðis. „Það er
talsvert af fallegum byggingum og
söfnum í miðbænum og gaman að
ganga þar um,“ segir Valgerður en
sjálf bjó hún í níunda hverfinu þar
sem Sigmund Freud bjó á sínum
tíma. Einnig eru margir fallegir
almenningsgarðar í borginni og
þar eyddi Valgerður gjarnan
dögunum með nesti og góða bók.
„Hvað menningarlegan mun
varðar þá eru Vínarbúar mjög
kurteisir. Í lyftum heilsast fólk
þegar það gengur inn og kveður
þegar það gengur út. Sama á við
um búningsklefa í líkamsræktinni.
Þegar fólk gengur þaðan út kastar
það kveðju á alla hina. Mér fannst
þetta frekar skrítið til að byrja
með en svo vandist ég þessu,“ segir
hún og hlær.
Valgerður ferðaðist mikið þá sex
mánuði sem hún dvaldi í Vínar-
borg. „Ég ferðaðist mikið innan
Austurríkis; fór til Linz, Salzburg,
Innsbruck og Graz og líka til
Bratislava, höfuðborgar Slóvakíu,
sem er aðeins klukkustund frá Vín,
en það er mjög auðvelt að ferðast
til annarra landa frá borginni því
staðsetning hennar er frábær,“
segir hún. klara@frettabladid.is
Menning og mannasiðir
Valgerður starfar í sumar hjá Rétti – Adalsteinsson & Partners. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Freud bjó í sama hverfi og Valgerður en
heimili hans hefur verið gert að safni.
Þinghúsið í Vín er glæsileg bygging.
Dagsferðir eru tilvaldar yfir sumartímann. Skemmtilegt getur verið að
láta hvatvísina ráða för og skella sér í dagsferð á sólríkum sumardegi yfir
helgi án þess að hafa fastmótaða hugmynd um endastöð.
Allra síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta
er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem
er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig
um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana
og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til
Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Lykill fortíðar
Landnámssýningin við Aðalstræti veitir gestum
tækifæri til að skyggnast inn í lífið á landnámsöld.
Einstök margmiðlunartækni gerir gestum kleift að
ímynda sér hvernig lífi heimilisfólks í fyrstu byggð
Reykjavíkur var háttað og hvernig umhverfi og
landslag borgarinnar var við landnám.
Aðalstræti 16
www.reykjavik871.is
Auglýsingasími
– Mest lesið