Fréttablaðið - 07.08.2008, Qupperneq 46
26 7. ágúst 2008 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Nafngiftin á bókinni er í
raun flókin og mögnuð,“ út-
skýrir Hildur Hákonardótt-
ir, listakona og höfundur bók-
arinnar Blálandsdrottningin
og fólkið sem ræktaði kart-
öflurnar, sem Salka gefur út
í tilefni 250 ára afmælis kart-
öfluræktar á Íslandi og árs
kartöflunnar hjá Sameinuðu
þjóðunum. Í bókinni er rakin
saga ræktunar á Íslandi, með
sérstakri áherslu á upphaf-
ið, mismunandi tegundir og
hverjar duga best í ólíku um-
hverfi.
„Mér finnst Blálands-
drottning með fallegri nöfn-
um á kartöflutegundum, en
bláar kartöflur eru eitt af
þremur íslenskum afbrigð-
um í norræna genabank-
anum. Blálandsdrottning á
einnig við um fyrstu kon-
una sem hafði tekjur af kart-
öflurækt á Íslandi, Vilhelm-
ínu Lever, kaupmannsdóttur
á Akureyri, en hún var mikil
drottning og svo hugrökk og
hjartastór að hún kaus fyrst
kvenna þótt ekki hefðu konur
kosningarétt þá,“ segir Hild-
ur sem við gerð bókarinnar
ferðaðist allt frá Suður-Am-
eríku til Eyrarbakka.
„Bláar kartöflur eru sein-
sprottnar, geymast vel og
voru vinsæll kostur á skipum
fyrr á öldum, en Blálands-
drottningin hefur líklega
borist hingað með frönsk-
um skútum,“ segir Hildur og
staðfestir að góðar bláar jafn-
ist á við þær bestu rauðar.
„Íslensk afbrigði kart-
aflna eru þrjú; bláar, rauðar
og gular. Í heiminum öllum
eru til þúsundir afbrigða, en
í dag fæst einna helst útsæði
premier, gullauga, rauðra og
Helgu á Íslandi. Það sem er
merkilegt við íslensku kart-
öfluna er að við ræktum fyrst
og fremst til að njóta við mat-
borðið en ekki til iðnaðar, og
þá skipta bragðgæði mestu.
Þeir sem rækta eru afar
kresnir og Íslendingar hafa
frábæran kartöflusmekk,“
segir Hildur brosmild úti í
kartöflugarði.
„Kartaflan breytti miklu í
samfélagi manna, bæði hér
heima og í útlöndum. Hún
var auðveld í ræktun, gaf
tækifæri til starfa í iðnaði
og stuðlaði að borgarmynd-
un erlendis. Á Íslandi virð-
ist hún hafa skipt þurrabúð-
armenn mestu, en þurrabúð
var á vissan hátt forveri þétt-
býlis hér á landi, þegar fólk
þurfti ekki að búa í sveitum
og reyndi að afla sér viður-
væris með sjómennsku. Enda
varð soðningin með kart-
öflum þjóðarréttur Íslend-
inga næstu hundrað ár þegar
þótti sjálfsagt að borða fisk
og kartöflur fimm sinnum
í viku, og ég fullyrði að enn
er ekkert betra með fiski en
kartöflur,“ segir Hildur sem
þykir góðar kartöflur alls
matar best.
thordis@frettabladid.is
HILDUR HÁKONARDÓTTIR: SKRIFAÐI
BÓK UM KARTÖFLURÆKT Á ÍSLANDI
Bláar kartöflur
LISTAMAÐUR Í KARTÖFLUGARÐINUM Hildur Hákonardóttir ferðaðist
heimsbyggðina á enda til að feta í fótspor kartöflunnar. MYND/SUNNLENSKA
BRUCE DICKINSON SÖNGVARI ER
50 ÁRA Í DAG.
„Rokktónlist á að vera
gróf. það er fjörið við hana.
Hún stendur upp og lætur
buxurnar falla.“
Dickinson er söngvari rokk-
bandsins Iron Maiden. Hann
hefur komið nokkrum sinnum
til Íslands sem flugmaður.
MERKISATBURÐIR
1727 Öræfajökull gýs. Gosið
stóð í eitt ár og á fyrstu
dögum þess sást ekki
munur á degi og nótt, svo
mikið var gjóskufallið.
1772 Útilegumennirnir Fjalla-
Eyvindur Jónsson og Halla
Jónsdóttir eru handsöm-
uð. Eyvindur sleppur síðar
úr varðhaldi og frelsar
loks Höllu. Þau lágu úti í
tæpa tvo áratugi.
1944 IBM setur á markað fyrstu
reiknivélina sem stýrð er
af tölvuforriti. Hann var al-
mennt kallaður Harvard
Mark I.
1955 Fyrirtækið Tokyo Tele-
communications Engin-
eering setur á markað
fyrsta útvarp sitt. Fyrirtæk-
ið breytir síðar nafni sínu í
Sony.
Þennan dag, 7. ágúst árið
1960, hlaut Fílabeins-
ströndin sjálfstæði frá
Frakklandi. Landið hafði
verið undir stjórn Frakka
frá síðari hluta 19. aldar
og voru þar framleidd-
ar kakó- og kaffibaunir í
miklu magni.
Félix Houphouët-
Boigny leiddi Fílabeins-
strendinga til sjálfstæðis
eftir diplómatískum leið-
um. Hann var leiðtogi innlendra kaffibaunarækt-
enda og kosinn á franska þingið 1945. Hann varð
fyrstur Afríkubúa að komast í evrópska ríkisstjórn
og ítök hans í frönskum stjórnmálum höfðu
mikið að segja er Fílabeinsströndin fékk fullveldi
1958 og varð loks sjálfstætt ríki árið 1960.
Þegar Fílabeins-
ströndin fékk sjálfstæði
var ríkið eitt best stönd-
uga ríki Vestur-Afríku.
Ríkið var, og er enn í
dag, einn af stærstu
kaffibaunaframleiðend-
um í heimi, ásamt því
að eiga stóra markaðs-
hlutdeild á heimsmark-
aði kakós og pálmolíu.
Síðasti áratugur hefur
einkennst af borgara-
stríði og grimmdarverkum á Fílabeinsströndinni.
Barátta um demantanámur, frekar en pólitískur
ágreiningur, þar sem barnahermönnum var misk-
unnarlaust beitt hefur skilið landið eftir í sárum.
Skrifað var undir friðarsamninga árið 2007 sem
halda að nafninu til þótt lítið megi út af bera.
ÞETTA GERÐIST: 7. ÁGÚST ÁRIÐ 1960
Fílabeinsströndin hlýtur sjálfstæði
Elskulegur faðir okkar og bróðir,
Páll Jóhann Einarsson
flugmaður,
andaðist aðfaranótt laugardagsins 2. ágúst sl. á
líknardeild Landakots. Útför hans verður gerð frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, þriðjudaginn 12. ágúst nk. kl.
15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er vinsamlegast bent á PEACE-útgáfuna
s. 893 3361, kt. 200137-3419. Reikningur 0513 -26-
077770.
Carolin Einarsson Pálsdóttir Kristín Einarsson Pálsdóttir
Birgir Davidsen Pálsson
Páll Ástþór Jónsson Pálsson
Stefán (Norman) Mink Pálsson
Systkini og afkomendur.
50 ára afmæli
Í dag, 7. ágúst, er
Theodóra
Þorsteinsdóttir
skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar
fi mmtug. Hún býður upp á grillveitingar
úti í garði á heimili sínu Kveldúlfsgötu 23 í
Borgarnesi í kvöld kl. 18-21. Ættingjar og
vinir hjartanlega velkomnir að gleðjast
með afmælisbarninu.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
Helga Eyjólfssonar
frá Árbæ, Borgarfirði eystra.
Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Seyðisfjarðar.
Ágústa Sveinsdóttir
Jóhann Frímann Helgason
Þorkell Helgason Lukka S. Gissurardóttir
Magnús Bjarni Helgason
Ósk Helgadóttir Stefán Tryggvason
Anna Helgadóttir Guðni Sigmundsson
afa og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir og systir
okkar,
Hjördís Kristjánsdóttir
Furulundi 6c, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar föstudaginn 25. júlí. Útför
hennar fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 8. ágúst
kl.14.00.
Héðinn Ósmann Skjaldarson
Kristján Hjörtur Oddgeirsson
Oddgeir Kristjánsson Ingibjörg Haraldsdóttir
Baldvin Kristjánsson
Guðfinna Jóna Kristjánsdóttir Gunnþór Oddgeirsson
Halldóra Kristjánsdóttir Hannes C. Pétursson
Helga Hólmfríðardóttir Anton Gunnarsson
Óskdís Kristjánsdóttir
og systkinabörn.
Heittelskuð eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
Aðalbjörg Kristjánsdóttir
Stapaseli 15, Reykjavík,
lést á líknardeild LSH Kópavogi að kvöldi sunnudags-
ins 3. ágúst. Hún verður jarðsungin frá Seljakirkju
mánudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Sigurjón Norberg Ólafsson
Steinunn Guðmundsdóttir
Steinunn Björg Sigurjónsdóttir Guðmundur
Kjærnested
Guðmundur Fertram Sigurjónsson Fanney Hermannsdóttir
barnabörn, systkini og aðrir ástvinir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns mín, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Hjartar Hjartarsonar
Skólabraut 5, Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar
Karitasar, líknardeildar í Kópavogi og deildar 13D á
Landspítalanum við Hringbraut. Guð blessi ykkur öll.
Jensína Guðmundsdóttir
Drífa Hjartardóttir Skúli Lýðsson
Ingibjörg Hjartardóttir Sigurður Ólafsson
Vilborg Arinbjarnar
Anna Ásta Khan Hjartardóttir Hrafn Sabir Khan
Björn Grétar Hjartarson
Guðmundur Ingi Hjartarson Sigríður Sigmarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
90 ára afmæli
Ég færi fjölskyldu minni, vinum mínum og kunning jum er
hafa verið mér samferða í leik og starfi , mínar innilegustu
þakkir fyrir margvíslegan heiður og sóma er mér var
sýndur á 90 ára afmæli mínu þann 30. júlí sl.
Guð blessi ykkur öll.
Kristinn Óskarsson
fyrrv. lögreglumaður,
Hæðargarði 35, Rvk.
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra Brynjólfsdóttir
frá Þykkvabæjarklaustri, síðast til heimilis
að Fögrubrekku 34, Kópavogi,
lést þann 2. ágúst á Vífilsstaðaspítala. Útför hennar
fer fram frá Kópavogskirkju á morgun, föstudaginn 8.
ágúst kl. 13.00.
Jón Hannesson
Brynjólfur Jónsson Kristín Siggeirsdóttir
Hannes R. Jónsson Beatriz Ramirez Martinez
Guðrún Jónsdóttir Eiríkur Ingi Eiríksson
Soffía Jónsdóttir Björn L. Bergsson
barna- og barnabarnabörn.