Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.08.2008, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 10.08.2008, Qupperneq 4
Þjóðhátíðarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna ársins 2009. Þjóðhátíðarsjóður minnir á að frestur til að senda umsóknir um styrki vegna ársins 2009 er til og með 31. ágúst n.k. Nánari upplýsingar veitir ritari sjóðsins í síma 569 9622 eða netfanginu: thjodhatidarsjodur@sedlabanki.is. Að öðru leyti er vísað í ítarlegri auglýsingu sem birtist í dagblöðunum 29. júní sl., og fi nna má einnig á vefslóðinni http://www.sedlabanki.is/?PageID=28. Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs 4 10. ágúst 2008 SUNNUDAGUR SJÁVARÚTVEGUR „Ég seldi ekki kvótann heldur skipið. Kvótinn fylgdi því,“ segir Ásmundur Jóhannsson trillusjómaður, sem undanfarið hefur gert út frá Sandgerði án kvóta. Í Fréttablað- inu í gær kom fram að Ásmundur hefði hagnast um sextíu milljónir króna þegar hann seldi hlut sinn í útgerðarfélaginu Festi, þar með talinn kvótann. Þetta segir Ásmundur ekki alls kostar rétt. „Tryggingarmat skipsins var 180 milljónir. Við skulduðum sextíu milljónir. Ég seldi svo minn part fyrir sextíu milljónir og fékk tvær til fjórar milljónir auka fyrir veiðarfæri og veiðarfæra- geymslu,“ segir Ásmundur. „Ég hefði getað selt öðrum og fengið 150 milljónir í minn hlut en vildi það ekki.“ - kh Ásmundur Jóhannsson: Seldi skipið, ekki kvótann ÁSMUNDUR JÓHANNSSON Segist hafa selt skip en ekki kvóta. MYND/VÍKURFRÉTTIR SAMFÉLAGSMÁL Hávær umræða um uppeldisstofnanir á borð við Breiðavík hefur haft greinileg áhrif á eftirspurn eftir dvöl fyrir börn á meðferðarheimilum Barna- verndarstofu að sögn Braga Guð- brandssonar, forstjóra stofunnar. Tveimur meðferðarheimilum fyrir börn hefur verið lokað á þessu ári vegna fækkunar umsókna eins og fram kom í Fréttablaðinu fyrir helgi. „Opinber umræða síðustu missera um uppeldisstofn- anir fortíðarinn- ar hefur greini- lega haft þau áhrif að foreldr- ar eru tregari til að senda börnin frá sér,“ segir Bragi. „Því miður hefur neikvæð umræða um þessi heimili smitast yfir á meðferðarstofnanir dagsins í dag sem þær eiga fátt sameigin- legt með og veita allt annars konar þjónustu.“ Bragi nefnir einnig viðhorfs- breytingu sem orðið hafi á undan- förnum árum um að rétt sé að ganga lengra en áður var gert í að veita stuðning og meðferð á vett- vangi heimilisins. „Við erum nýbúin að ráða starfs- fólk til að sinna fjölþáttameðferð á heimavígstöðvum og felst í því að efla foreldra í að bregðast við óæskilegri hegðun barna sinna,“ segir Bragi en verkefnið hefst á höfuðborgarsvæðinu síðar á þessu ári, væntanlega í nóvember. „Þessar aðferðir hafa verið að ryðja sér til rúms víðs vegar í Evrópu og vestanhafs á síðustu árum og hafa sýnt sig að skila fullt eins góðum árangri og meðferðar- dvöl á stofnun og í sumum tilfell- um er árangurinn betri.“ Bragi segir meðferðina felast í því að meðferðaraðili komi á heim- ili unglings og hjálpi foreldrum og unglingnum sjálfum að takast á við vandann í samvinnu við skóla og nánasta félagslega umhverfi. „Hægt er að nálgast meðferðar- aðilann allan sólarhringinn, sjö daga vikunnar, til að veita leiðsögn ef krísa kemur upp,“ segir Bragi. Bragi segir að meðferðarfram- boð hafi til þessa einskorðast við dvöl á meðferðarheimilum. „Nú erum við að kynna til sögunnar fleiri valkosti sem væntanlega gefa okkur færi á því að mæta fjölbreyttari þörfum en áður,“ segir Bragi. „Hins vegar er alveg ljóst að áfram verður hópur barna og unglinga sem þarf á meðferð- ardvöl á stofnunum að halda. Engin áform eru uppi um að loka öllum meðferðarstofnunum.“ helgat@frettabladid.is Foreldrar tregari að senda börn á stofnun Hávær umræða um uppeldisstofnanir á borð við Breiðavík hefur greinilega haft þau áhrif að foreldrar eru tregari að vista börn á stofnun. Ný aðferð geng- ur út á að foreldrar geti fengið leiðsögn allan sólarhringinn ef krísa kemur upp. GELDINGALÆKUR Meðferðarheimili sem hýsti sex börn var lokað í vor vegna minni eftirspurnar eftir meðferðardvöl fyrir börn. MEÐFERÐARDVÖL Færri foreldrar kjósa nú að senda börn sín í meðferð á stofnun eftir neikvæða umræðu um uppeldisheimili á borð við Breiðavík. BRAGI GUÐBRANDSSON DÓMSMÁL Tveir menn hafa verið sýknaðir af ákæru um innbrot í tvo sumar bústaði í júlí 2004. Úr bú stöð unum var meðal annars stolið rússneskri loð húfu, fornri myndavél, tóbaks horni, verk fær- a tösku, vegg teppum, grafík mynd eftir Þórð Hall, heimilis tækjum og spegli. Ekki þótti sannað að mennirnir hefðu verið að verki. Mennirnir voru sakfelldir fyrir önnur brot. - sh Hver stal verki Þórðar Hall?: Innbrot í bústað er enn óupplýst SVEITARSTJÓRNIR Forsvarsmenn Einingaverksmiðjunnar Borgar hafa átt sáttafundi með Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra vegna deilu um starfsemi fyrirtækisins í Kópavogi. Í framhaldinu hafa forsvarsmennirnir sent tillögur til að ná fram samvinnu um veru Borgar í bænum í ljósi þess að flytja eigi fyrirtækið í annað sveitarfélag innan fjögurra ára. Meðal tillagna Borgar er að fá tímabundið starfsleyfi fyrir steypustöð, afnotarétt af uppfyll- ingu í eigu bæjarins og afnotarétt að vegi sem fyrirtækið muni leggja bundið slitlag á til að rykbinda. - gar Einingaverksmiðjan Borg: Friðmælist við Kópavogsbæ PEKING, AP Bandarískur maður var stunginn til bana og eiginkona hans og kínverskur leiðsögu- maður særð þegar kínverskur maður réðist á þau með hníf að vopni. Atvikið varð á þekktum ferðamannastað í Peking, höfuðborg Kína á laugardag. Um er að ræða tengdaforeldra þjálfara blakliðs Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum. Árásarmaðurinn svipti sig lífi eftir árásina með því að stökkva fram af svölum í um fjörutíu metra hæð. Ofbeldisglæpir sem beinast gegn erlendum ríkisborg- urum eru sjaldgæfir í Kína. - bj Ráðist á ferðamenn í Peking: Gestur stung- inn til bana WASHINGTON, AP John Edwards, fyrrum öldungadeildarþingmaður í Bandaríkjunum, hefur viður- kennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni árið 2006. Hann neitar að vera faðir barns konunnar sem hann hélt framhjá með. Edwards, sem var ein af vonarstjörnum Demókrataflokks- ins, viðurkenndi að hafa sagt ósatt um framhjáhaldið í barátt- unni um útnefningu demókrata til forsetaframbjóðanda. Talið er að þetta muni hafa alvarlegar afleiðingar fyrir pólitískan feril Edwards. Hann þótti standa þétt að baki eigin- konu sinni í baráttu hennar við ólæknandi krabbamein. - bj John Edwards hélt framhjá: Sagði ósatt um framhjáhaldið JÁTAÐI John Edwards hélt við kvik- myndatökukonu sem tók þátt í kosn- ingabaráttu hans árið 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VINNUMARKAÐUR Ákveðnar vinnu- reglur gilda slasist starfsmenn í vinnuslysum í álveri Norðuráls á Grundartanga, segir Ragnar Guð- mundsson, forstjóri Norðuráls. Eins og fram kom í Fréttablað- inu segja forsvarsmenn verka- lýðsfélagsins starfsmenn kallaða til vinnu hjá fyrirtækinu, þrátt fyrir að vera með vottorð um að þeir séu óvinnufærir eftir vinnu- slys. Forsvarsmenn Norðuráls munu funda með trúnaðarmönn- um og forsvarsmönnum Verka- lýðsfélags Akraness í vikunni til að ræða ásakanirnar. Ragnar segir ekki rétt að Norður- ál sé að reyna að komast hjá því að skrá alvarleg slys sem slík með því að kalla slasaða starfsmenn aftur til vinnu. Ef óhappatilvik komi upp sé mikilvægt að skrá þau rétt til þess að hægt sé að stuðla að sem bestu öryggi starfs- manna. Engum sé greiði gerður með því að sópa slíkum tilvikum undir teppið. Séu starfsmenn hins vegar færir um að vinna létt störf hafi þeim verið fundin verkefni. Oft vilji starfsmenn snúa aftur til starfa þó þeir geti ekki sinnt sínum reglubundnu störfum. Ragnar segir að komi í ljós á fundinum vikunni að misbrestur sé á að stefnu fyrirtækisins sé fylgt verði bætt úr því. - bj Forsvarsmenn Norðuráls segja ákveðnar reglur gilda um starfsmenn sem slasast: Ræða ásakanir í næstu viku VINNUSLYS Þurfi starfsmenn að vera fjarverandi frá vinnu í kjölfar vinnuslyss telst það alvarlegra en ef þeir snúa aftur til vinnu strax eftir slysið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 20° 20° 23° 24° 19° 25° 23° 23° 21° 29° 33° 24° 23° 26° 28° 32° 17° Á MORGUN 3-8 m/s. ÞRIÐJUDAGUR Hæg, breytileg átt. 11 12 12 10 10 12 14 12 13 12 12 6 6 3 3 6 8 3 4 3 6 5 10 11 12 1212 8 10 9 1213 LITLAR BREYTINGAR Í öllum megin- atriðum er svipað veðurlag á landinu og var í gær. Hægur af austri eða norðaustri með einhverjum rigningardropum austast. Ég á von á að hann geti orðið þokkalega bjartur við sunnan og vestanvert landið en spárnar eru þó ekki eindregnar í þá átt. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur GENGIÐ 08.08.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 162,0081 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 82,59 82,99 158,84 159,62 124,72 125,42 16,717 16,815 15,602 15,694 13,283 13,361 0,7519 0,7563 131,47 132,25 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.