Fréttablaðið - 10.08.2008, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 10.08.2008, Blaðsíða 14
14 10. ágúst 2008 SUNNUDAGUR „Við erum allir áhugamenn um íslenska sögu og menningu og hvort tveggja kristallast hér á Íslendingadeginum í Gimli. Hér sjáum við til dæmis málverk af Dyrhólaey, Gullfossi, Þingvöllum og fleiri íslenskum kennileitum, svo ekki sé minnst á fjallkonuna sem er óvenju glæsileg í ár. Svo má líka segja að almennur nördaskapur hafi ráðið því að við erum staddir hér í dag,“ segir Guð- mundur Baldursson, einn af stofnend- um vefsíðunnar Baggalútur. Upphafs- menn síðunnar og makar þeirra voru staddir í miðri Norður-Ameríkuferð þar sem hápunkturinn var heimsókn til Gimli á Íslendingahátíðina. Spurðir hvernig Gimli komi þeim fyrir sjónir segjast þeir hafa mætt ótrú- legri gestrisni og góðum móttökum hvarvetna. „Okkur virðast standa allar dyr opnar,“ segir Karl Sigurðsson. „Í gærkvöldi vorum við á rölti um bæinn og gengum þá fram á hús eitt sem var alþakið íslenskum fánum. Framan á húsinu hékk borði sem á var letrað með stórum stöfum „Velkomin“. Við létum ekki segja okkur það tvisvar og gengum inn. Þar dvöldum við fram á rauða nótt í partíi með bæjarstjóra Gimli, ræðismanninum síunga Atla Ásmundssyni og fleiri valinkunnum og innfæddum eldri borgurum.“ Bragi Valdimar Skúlason segir marga viðstadda hafa kannast við Baggalút. „Hér búa greinilega margir sem hafa kynnt sér Baggalút, og þá sérstaklega tónlistina okkar. Heimsfrægðin er víða.“ Karl bætir um betur og segist hafa rætt við fólk sem hreinlega viðheldur íslenskukunnáttu sinni með því að hlýða á söngtexta sveitarinnar. Baggalútsmenn hrósa íbúum Gimli í hástert og segja tiltekna söguskoðun hafa fæðst í ferðinni. „Hann Haraldur félagi okkar kom með þá tilgátu að allt góða og kurteisa fólkið hafi flust hingað frá Íslandi. Reynsla okkar af íbúum bæjarins bendir vissulega til þess að nokkuð gæti verið til í því,“ segir Bragi og beinir athygli sinni því næst að sviðinu í Gimli Park, þar sem kór Seljakirkju hefur hafið magnaðan flutning á hinum sívinsæla slagara, Ísland ögrum skorið. Heimsfrægðin er víða HEIMSFRÆGIR Í GIMLI Hróður Baggalúts hefur borist til Nýja Íslands. THE JAKOBSSONS Íslendingahátíðin er vinsæll vettvangur fyrir endurfundi fjöl- skyldna með íslenskar rætur. Jakobsson- veldið lét sig ekki vanta. FLIPP AÐ VÍKINGASIÐ Heimamennirnir Matt og Steve vöktu athygli hátíðargesta fyrir frumlega túlkun á fornum víkingasiðum. „Harðfiskurinn selst betur en heitar lummur,“ segja þeir Art Kildor og Murrell Anderson frá Gimli. Þeir kumpánar höfðu í nógu að snúast við að sjá gestum hátíðarinnar fyrir ilmandi harðfiski sem þeir flytja að sögn inn frá Hafnarfirði fyrir hverja Íslendingahátíð. „Það er gríðarleg eftirspurn eftir harðfiski hér um slóðir. Reglan er sú að í aðdraganda Íslendingadagsins er pantað mikið magn af harðfiski til bæjarins, en harðfiskur er samt á boðstólum allan ársins hring í ákveðnum búðum í bænum,“ segir Murrell, sem er giftur konu af íslenskum ættum. Hann var formaður skipulagsnefndar Íslendingahátíðar- innar árin 1992 og 1993. Murrell segir hátíðina leika stórt hlutverk í bæjarlífi Gimli. „Margir bæjar- búar vinna að því allt árið um hring að skipuleggja og kynna hátíðina. Fólkið hér er stolt af íslenskum rótum sínum og það er virkilega gaman að sjá að hingað kemur fólk hvaðanæva að í Kanada til að skemmta sér og heiðra minningu forfeðra okkar.“ Murrell ferðaðist til Íslands árið 1975. Sótti hann meðal annars Akur- eyri og Húsavík heim og skemmti sér hið besta í mánaðarlangri ferð. Art segist enn eiga eftir að sækja Ísland heim en það standi til bóta. „Fjöl- skylda mín á í viðskiptasamböndum við Eimskip og Landsbankann. Ég ætla að fara til Íslands, grípa haug af seðlum og halda svo áfram að ferð- ast,“ segir hann og skellir upp úr. Got hardfisk? HRESSIR Art Kildor og Murrell Anderson sögðu harðfiskinn vinsælan. „Þetta var ósköp afslappað og þægi- legt. Fólkið hér er svo vingjarnlegt og óformlegt að þetta varð ekkert vandræðalegt,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra. Ingibjörg var sérstakur heiðursgestur á Íslend- ingahátíðinni og var sem slíkur, ásamt Hjörleifi Sveinbjörnssyni, eiginmanni sínum, hluti af mikilli skrúðgöngu sem farin var gegnum miðbæ Gimli við mikinn fögnuð viðstaddra. Ingibjörg segir hátíðina afar góða auglýsingu fyrir Ísland og allt sem íslenskt er. „Þetta er ótrúlega merkileg hátíð. Þátttakan er gríðarleg og nær langt út fyrir Íslendingasamfélagið. Það er í raun ótrúlegt hversu mikla rækt þetta fólk leggur við rætur sínar, og hversu miklu máli það skiptir að vita um sögu forfeðra sinna. Fólkinu á þessum slóðum er greinilega vel kunnugt um þær hörmungar sem forfeður þeirra fóru í gegnum til að freista þess að skapa þessum afkom- endum sínum betra líf. Það leggur mikið á sig til að hafa minningu þeirra í heiðri.“ Ingibjörg segir margt í fari íbúa Gimli og nágrennis minna sig á Ísland, sérstaklega útlitið. „Hérna hittir maður fyrir hvert kunnuglegt andlitið á fætur öðru. Maður sér börn og fullorðið fólk og finnst þetta vera fólk sem maður þekkir. Einnig er sérstak- lega skemmtilegt að spjalla við eldri borgarana hér, sem margir hverjir tala mjög góða íslensku, án þess að hafa endilega komið til Íslands.“ Að mati Ingibjargar er mikilvægt að viðhalda tengslum Íslands og Kanada. „Áherslurnar sem við Íslendingar leggjum á menningartengslin þyrftu að taka meiri mið af unga fólkinu en verið hefur. Það skiptir miklu að yngra fólk fái að kynnast þeirri menningu sem Ísland nútímans hefur upp á að bjóða, og öfugt. Fortíðin skiptir máli, en við megum ekki lifa í henni.“ Mikið um kunnugleg andlit MENNINGARTENGSL Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ásamt Ölmu Sigurdson, fjallkonu Íslendingadagsins í ár. HEIÐURSGESTIR Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra og eiginmanni hennar, Hjörleifi Sveinbjörnssyni, var vel fagnað í mikilli skrúðgöngu í gegnum miðbæ Gimli. ÍSLENDINGA-DUNK Keppt var í koddaslag, sem kallast dunk upp á ensku, á staur yfir hinu risavaxna Lake Winnipeg. Sýndu keppendur fádæma djörfung og hug, enda flestir af íslenskum ættum. ENDALAUS FÍFLALÆTI Töluvert var um trúða í skrúðgöngunni miklu. Ees-len-dinga- dah-grr-in Íslendingadagurinn var haldinn hátíðlegur í 119. sinn á slóðum Vestur-Ís- lendinga um síðustu helgi. Um 60.000 gestir sóttu bæinn Gimli í Manitoba- fylki í Kanada heim í tilefni hátíðarinnar. Mikið var um dýrðir að venju en hrottalegt morð sem framið var í bænum varpaði skugga á hátíðarhöldin. Kjartan Guðmundsson brá undir sig betri fætinum og tók hátíðargesti, inn- fædda sem aðkomumenn, tali.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.