Fréttablaðið - 10.08.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.08.2008, Blaðsíða 16
Topphár • Dvergshöfði 27 • 110 Reykjavík Opið mán.-föstud. kl. 08-18 og á laugard. kl. 09-14 587 2030 H á r s n y r t i s t o f a Bryndís Björk Gerður 10% opnunar- afsláttur SPORT 2 S unddrottningarnar tvær keppa hvor um sig í tveim-ur keppnisgreinum í Pek- ing. Erla Dögg keppir í 100 metra bringusundi og 200 metra fjór- sundi og Ragnheiður keppir í 50 metra skriðsundi og 100 metra skriðsundi. Báðar eru þær vitan- lega fullar tilhlökkunar fyrir leikana og setja stefnuna hátt. HVAÐA ÞÝÐINGU HAFA ÓLYMPÍULEIKAR FYRIR ÞÉR? ERLA DÖGG: Að vera keppandi á Ólympíuleikum er náttúrlega ný reynsla fyrir mér en ég kíkti nú samt til Aþenu árið 2004 til þess að skoða aðstæður og get því nokkurn veginn gert mér í hugar- lund hvernig viðburður þetta er. Að koma til Aþenu á sínum tíma kveikti líka í mér til þess að vinna markvisst að því að ná þátttökurétti á Ólympíuleikun- um og þetta er stærsti draumur hvers íþróttamanns að vera á meðal keppenda þar og tilhlökk- unin er því mikil. RAGNHEIÐUR: Fyrir mér eru Ólympíuleikarnir algjört ævin- týri. Þegar ég náði á síðustu leika í Aþenu árið 2004 var ég salla- róleg. Að komast á Ólympíuleika var þá búið að vera markmiðið svo lengi og ég vissi að ég myndi á endanum ná þangað. En um leið og ég steig fæti inn í Ólympíu- þorpið og fór fyrst í laugina gerði ég mér grein fyrir því að það að ná á leikana var bara byrjunin. Að labba hringinn á opnunarhá- tíðinni er eins og jól, afmæli og sumarfrí allt á sama tíma. Maður er þá búinn að vera að æfa og æfa alveg á fullu og það er eins og að fá auka orkuskot að labba inn á opnunarhátíðina og vita að maður er einn af fáum sem eru í þessari stöðu. Ég var að skoða allt og alla og allt of upptekin af Ólympíuandanum sem er yfir leikunum til að einbeita mér nóg í lauginni. Það má því segja að síðustu leikar hafi verið góð æfing fyrir leikana í Peking. Það eru í raun alveg gríðarleg for- réttindi að geta farið aftur og gert betur. það er allavega planið. En ég er samt alveg viss um að þótt ég þykist vita hvað ég er að fara út í, þá verði þessir leikar ekki síðra ævintýri. ERTU SÁTT VIÐ UNDIRBÚNING ÞINN FYRIR ÓLYMPÍULEIKANA? ERLA DÖGG: Mér er búið að ganga mjög vel á öllu sundárinu og hef verið að setja nokkur Íslandsmet og er vitanlega sátt við það. Ég er því í góðu líkamlegu formi en andlegi hlutinn er líka mjög mikil- vægur. Það er mikilvægt þegar þú ert að reyna að ná lágmörkum fyrir stórmót eins og Ólympíu- leikana að halda alltaf áfram, jafnvel þótt á móti blási og allt gangi ekki upp eins og þú varst að vona. Maður þarf alltaf að halda sig í gírnum og ekki vera neikvæð og missa ekki sjónar á upphaflegum markmiðum. RAGNHEIÐUR: Það hefði margt mátt fara betur í undirbúningn- um. það voru nokkrir hlutir og aðstæður sem gerðu mér ekki kleift að æfa alveg jafn vel og ég vildi í vetur, eins og veikindi og skóli, en samt sem áður er ég í þrusuformi. Ég held líka að ég sé bara að æfa betur núna fyrir vikið. Það er alltaf hægt að óska þess að hafa gert meira eða æft betur en ég er bara jákvæð og það eina sem skiptir máli er hvað ég geri héðan af og þangað til ég keppi. HVER ER KÚNSTIN VIÐ AÐ TOPPA Á RÉTTUM TÍMA Í STÓRMÓTI SEM ÞESSU? ERLA DÖGG: Það er mjög flókið mál að toppa á réttum tíma og maður lætur þjálfarana bara um að stjórna því. Nei, nei, þetta er svona samvinnuverkefni hjá mér og þjálfaranum mínum að finna réttu blönduna. Þetta er sveigjan- legt að því leyti að við förum eftir því hvernig ég finn mig í lauginni. Ef ég er alltof þreytt á einhverjum tímapunkti í æfinga- ferlinu, þá er hvíld eina leiðin og þá er bara tekið meira á því dag- inn eftir eða eitthvað slíkt. Hvíld- in er líka mikilvæg og maður verður að læra að hvíla á réttum tímum til þess að lenda ekki í ofþjálfun eða einhverju slíku. RAGNHEIÐUR: Maður er ekki að toppa á hverju móti, þannig að það er ekkert alltof erfitt að stilla sig inná réttu mótin. Ég hef farið á svo mörg mót í gegnum árin að ég kann orðið á þetta. Ég hef gert ýmislegt rangt og margt rétt fyrir öll mótin og maður tekur bara öllu sem lexíu fyrir næsta mót. Ég er mjög jákvæð á undir- búninginn núna og er á góðri leið með að synda mín bestu sund í Peking. Svo er líka adrenalínið sem myndast á þessum stærstu mótum ólýsanlegt. Það spilar ef til vill inn í að toppa á réttum tímum. Ég er alla vega ekki í neinum vafa um að ég eigi eftir að toppa í Peking og það er góðum æfingum, góðum stuðningi og góðu skapi að þakka. HVERJAR ERU VÆNTINGAR OG VONIR ÞÍNAR FYRIR ÓLYMPÍULEIK- ANA? ERLA DÖGG: Ég er ekki með neitt sæti í huga eða neitt svoleiðis. Þó svo að ég sé að fara á stórmót sem þetta þá langar mig nú bara til þess að halda áfram að bæta minn árangur og það er markmið mitt á leikunum. Ég verð mjög sátt ef að það tekst og ég verð bara að reyna að láta umhverfið ekki trufla mig heldur vinna með mér og njóta þess að keppa þarna. RAGNHEIÐUR: Markmiðin mín eru að synda betur en ég hef gert hingað til og brosa rosalega mikið. Það er svo gaman á svona mótum að maður verður að leyfa sér að njóta þess og vera ekki í of miklu stressi eða of upptekin af smá- atriðum eins og einni slæmri æfingu. Ég vona bara að það gangi allt upp á réttum tíma hjá mér. ÓLYMPÍULEIKARNIR í Peking voru settir með einstökum glæsibrag á föstudag. Svo sannarlega stórkostlegt upphaf að einum stærsta og umdeildasta íþróttaviðburði allra tíma. Þetta er líklega sá allra stærsti. Kínverjar hafa sett tóninn en þeir leggja allt undir til þess að gera þennan viðburð að þeim stærsta og flottasta í íþróttasögunni. Hefur ekkert verið til sparað og er með hreinum ólíkindum að sjá íþróttamannvirkin sem Kínverjar hafa reist. Þau eru engu lík og hreint mögnuð upplifun að skoða þau í návígi. Skipulag Kínverjanna er með hreinum ólíkindum og ótrúlegur fjöldi starfsmanna sér til þess að allir fái nauðsynlegar upplýsingar og þjónustu. Til marks um það eru „aðeins“ þrír starfsmenn sem standa utan við lítið salerni í blaðamannamiðstöðinni og vísa manni inn um réttar dyr, sem þó eru kyrfilega merktar. Það eru 27 íslenskir íþróttamenn á leikunum að þessu sinni. Glæsilegur hópur sem samanstendur af 14 handboltamönnum, 8 sundmönnum, 3 frjálsíþrótta- mönnum, einum júdókappa og einni badmintonkonu. Mestar vonir eru bundnar við handboltalandsliðið og Örn Arnarson. Handboltaliðið er eins og íslenska veðrið – maður veit aldrei hvað gerist næst. Sól einn klukkutímann og rigning þann næsta. Strákarnir okkar gætu allt eins tekið upp á því að fara á kostum og vinna til verðlauna. Gæðin eru svo sannarlega til staðar í liðinu. Það efast enginn um það. Svo gæti liðið líka allt eins tekið upp á því að tapa öllum leikjum sínum. Við skulum vona ekki og ég trúi ekki að slíkt gerist. Örn náði fjórða sætinu í Sydney, var arfaslakur og formlaus í Aþenu. Það hefur lítið farið fyrir honum síðustu mánuði og við vitum í raun ekki hversu öflugur hann er þessa dagana. Hann lenti í erfiðleik- um er hann missti þjálfarann sinn í upphafi sumars og vonandi kemur það ekki niður á honum í Peking. Sjálfur segist hann vera í betra formi en margur heldur og ef það reynist rétt gæti hann vel höggvið nærri sínum besta árangri á ÓL eða jafnvel gert betur og nælt sér í medalíu. Verður mjög spennandi að fylgjast með Erni. Þórey Edda náði stórbrotnum árangri á síðustu leikum en hefur verið afar óheppin með meiðsli síðustu ár og er því nokkuð fjarri því að stökkva sömu hæð og hún gerði í Aþenu. Æfingar síðustu vikur hafa þó lofað góðu hjá henni og vonandi toppar hún á besta tíma. Þó svo að flestir íslensku keppendurnir séu ekki að fara að berjast um verðlaun eða komast í úrslit í sínum greinum má ekki gleyma því að hér er allt á ferð afreksfólk sem hefur unnið baki brotnu að því að ná markmiði sínu – að komast á Ólympíuleikana. Það er ekki auðvelt markmið og svo sannarlega afrek hjá hverjum íþróttamanni að komast inn á stærstu íþróttakeppni heims þar sem aðeins er pláss fyrir um ellefu þúsund keppendur. Íslenski hópurinn samanstendur af frábæru íþróttafólki sem er til fyrirmyndar innan vallar sem utan. Sannkallað afreksfólk og ekki síst góðar fyrirmyndir sem nauðsynlegt er að halda á lofti fyrir æsku þessa lands. STÆRSTI ÍÞRÓTTA- VIÐBURÐUR SÖGUNNAR FRÁ RITSTJÓRA Henry Birgir Gunnarsson Handbolta- liðið er eins og íslenska veðrið – maður veit aldrei hvað gerist næst. Útgefandi: 365 Ritstjóri: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is Blaðamenn: Óskar Ófeigur Jónsson ooj@frettabladid.is Ómar Þorgeirsson omar@frettabladid.is Hjalti Þór Hreinsson hjalti@frettabladid.is Útlitshönnun: Kristín Agnarsdóttir kristina@ frettabladid.is Auglýsingar: Stefán P. Jones spj@frettabladid.is SPORT SUNDDROTTNINGAR SEM STEFNA HÁTT Sunddrottningarnar Erla Dögg Haraldsdóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir eru klárar í ævintýranlega Ólympíuleika í Peking. SPORT/ARNÞÓR Sundkonurnar Erla Dögg Haraldsdóttir og Ragnheiður Ragnarsdóttir verða í eldlínunni á Ólympíu- leikunum í Peking. Þær gáfu sér tíma til þess að ræða um undirbúning, væntingar sínar og hvaða merkingu Ólympíu- leikar hafa fyrir þær. 8 ÍSLANDSMET Erla Dögg og Ragnheiður hafa verið iðnar í því að setja Íslandsmet. Erla Dögg á íslandsmet í 50, 100 og 200 metra bringusundi, 200 og 400 metra fj ór-sundi og 200 metra fl ugsundi. Ragnheiður á Íslandsmet í 50 og 100 metra skriðsundi.Forsíðumyndina tók Arnþór Birkisson af Ragnheiði Ragnarsdóttur og Erlu Dögg Haraldsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.