Fréttablaðið - 10.08.2008, Blaðsíða 64
með ánægju
Magnús Jónsson, Amy Poppers,
draggdrottning Íslands 2008
Til hamingju!
Magnús Jónsson, flugliði hjá Iceland Express, er nýkrýnd draggdrottning Íslands.
Við erum afar stolt af okkar manni og sendum honum og öllu hinsegin fólki
baráttukveðjur.
Drottning
háloftanna
Iceland Express er stoltur stuðningsaðili Samtakanna 78 og
aðalstyrktaraðili alþjóðlegs knattspyrnumóts samkynhneigðra,
Iceland Express Cup sem fram fer í Reykjavík í apríl 2009.
Margar þeirra stétta sem berj-ast fyrir því að fá laun í sam-
ræmi við menntun og mikilvægi
starfans, eru stéttir sem sinna
hagsmunum barna. Nýjasta
dæmið eru auðvitað ljósmæður.
LEIKSKÓLAKENNARAR og
fóstrur liðsinna foreldrum við að
ala börnin upp sem og kennarar,
þar sem kennslu- og uppeldishlut-
verk er samofið. Sú staðreynd að
hagsmunir barna vega ekki sér-
staklega þungt, blasir einnig við
þegar litið er til stöðu barna-
verndarmála. Reglulega fréttist
af starfi barnaverndar þar sem
skammast er yfir afgreiðslu ein-
stakra mála. Ýmist eru menn æva-
reiðir yfir of miklu inngripi nefnd-
anna eða telja að nefndin geri allt
of lítið. Undir þessu situr starfs-
fólk sem eðli málsins samkvæmt
getur sjaldnast svarað fyrir sig.
Auðvitað gera starfsmenn barna-
verndarnefnda mistök og þar sem
miklir hagsmunir eru í húfi verða
mistökin því miður alvarlegri. En
ætti gagnrýnin ekki að beina kast-
ljósinu að því að þeir sem vinna að
því að tryggja hag barna, sem í
sumum tilvikum eiga engan annan
málsvara, eigi að geta sinnt því
starfi sómasamlega?
UMRÆÐA um hagsmuni barna
er að mestu bundin við hagsmuni
hinna fullorðnu í kringum þau.
Gildir þá einu hvort fjallað er um
leikskólamál, forsjármál eða
barnaverndarmál. Rauði þráður-
inn ætti hins vegar að vera hags-
munir barnsins.
LÁG laun í þessum „barna“-stétt-
um eru óbeint réttlætt þannig að
um sé að ræða hugsjónastörf. Þá
virðist blasa við að ekki eigi að
umbuna fólki fyrir hugsjónir. Í
næstu andrá geta menn svo rétt-
lætt góð kjör stjórnenda í fjár-
málafyrirtækjum þannig að hætta
sé á að hæfileikafólk þiggi boð frá
erlendum samkeppnisaðilum séu
kjörin ekki svona góð. Að vísu eru
nánast engin dæmi um slík boð.
Þar virðist því hótunin um að
hætta hafa sitthvað að segja um
kjörin – en það er í sjálfu sér ekki
þannig að hér sé ætlunin að býsn-
ast yfir góðum kjörum í fjármála-
geiranum, síður en svo.
EFTIR stendur þó að menntaðar
ljósmæður, leikskólakennarar og
aðrar stéttir sem sinna hagsmun-
um barna hafa einmitt hætt störf-
um vegna kjara sinna, án þess að
það veki sérstaka athygli eða sé
gagnrýnt af þunga. Hugsjónafólkið
þarf nefnilega líka að geta lifað af
laununum. En hvað segir það
okkur um stöðu barna?
Hótanir og
hugsjónir
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur
Í dag er sunnudagurinn
10. ágúst, 224. dagur ársins.
5.04 13.33 21.59
4.36 13.18 21.57