Fréttablaðið - 10.08.2008, Side 42

Fréttablaðið - 10.08.2008, Side 42
ATVINNA 10. ágúst 2008 SUNNUDAGUR240 TILKYNNINGAR TILBOÐ / ÚTBOÐ Menntaskólinn við Hamrahlíð www.mh.is STÖÐUPRÓF HAUSTIÐ 2008 Stöðupróf á vegum menntamálaráðuneytisins verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð sem hér segir: Miðvikudaginn 13. ágúst Kl. 16:00 Danska (hámark 6 einingar), norska (hámark 6 einingar), sænska (hámark 6 einingar). Kl. 18:15 Enska (hámark 9 einingar). Fimmtudaginn 14. ágúst Kl. 16:00 Ítalska (hámark 12 einingar), portúgalska (hámark 12 einingar), spænska (hámark 12 einingar), Kl. 18:15 Franska (hámark 12 einingar), japanska (hámark 12 einingar), pólska (hámark 12 einingar), rússneska (hámark 12 einingar), víetnamska (hámark 12 einingar), þýska (hámark 12 einingar). Föstudaginn 15. ágúst Kl. 16:00 Stærðfræði. Boðið er upp á próf í STÆ103, STÆ203 og STÆ263. Rafræn skráning í stöðupróf fer fram á heimasíðu skólans. Frekari upplýsingar á skrifstofu skólans í síma 595-5200. Sýna þarf persónuskilríki með mynd í prófinu. Prófgjald, kr. 3500 fyrir hvert próf, ber að greiða inn á reikning Menntaskólans við Hamrahlíð í banka 323 hb 26 nr 106, kt. 460269-3509. Greiðslu- frestur er til hádegis prófdag, nauðsynlegt er að fram komi nafn og kennitala próftaka og sýna þarf kvittun í prófinu. Í Aðalnámskrá framhaldsskóla er tekið fram að þessi próf séu ætluð þeim sem búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla. Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrir liggur álit menntamálaráðuneytisins um að stöðupróf skuli ekki nota sem upptektarpróf fyrir nemendur sem fallið hafa á annar- eða bekkjarprófi. Rektor. Mislæg vegamót Hringvegar við Leirvogstungu/Tungumela, Mosfellsbæ. Opið hús ÍSTAK hf. og Leirvogstunga ehf. stan- da að opnu húsi miðvikudaginn 13. ágúst kl. 17 - 19 í þjónustumiðstöð Ístaks á Tungumelum, Mosfellsbæ. Þar gefst áhugasömum kostur á að kynna sér framkvæmd mislægra vegamóta Hringvegar og Leirvogstungu/Tungume- la í Mosfellsbæ og mat á umhverfi sáhri- fum hennar. ÍSTAK hf. og Leirvogstunga ehf. hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnu- nar frummatsskýrslu um framkvæm- dina og liggur hún frammi til kynningar frá 23. júlí til 4. september 2008 á eftirtöldum stöðum: Bæjarskrifsto- fum Mosfellsbæjar og bóksafni Mos- fellsbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á eftirtöldum heimasíðum: Ístak - www.istak.is, Leirvogstunga - www.leirvogstunga.is, Alta - www.alta. is og Fjölhönnun - www.fjolhonnun.is Allir hafa rétt til að kynna sér fram- kvæmdina og leggja fram athugasem- dir. Athugasemdir skulu vera skrifl egar og berast eigi síðar en 4. september 2008 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Útboð Verksýn ehf. f.h. Húsfélagsins Krummahólum 6 í Reykjavík, óskar eftir tilboði í verkið: “Krummahólar 6, viðhaldsframkvæmdir.” Helstu magntölur eru: > Alhreinsun og fi ltun útveggja 246m² > Háþrýstiþvottur veggfl ata 1075 m² > Endursteypa byggingarhluta 90 m² > Endurnýjun glers og glerlista 40 m² > Endurnýjun glugga 71 stk. > Endurnýjun þakjárns 800 m² > Klæðning veggfl ata 826 m² > Málun veggfl ata 1321 m² > Málun gluggapósta og karma 2518 m Útboðsgögn verða afhent hjá Verksýn ehf. Ármúla 36 í Reykjavík, frá og með mánudeginum 11. ágúst 2008 gegn 5.000.- kr. óafturkræfu gjaldi. Einnig má fá gögnin send í tölvupósti án endurgjalds. Tilboði merktu “Krummahólar 6, viðhaldsframkvæmdir” skal skila til Verksýnar ehf. Ármúla 36 fyrir kl. 14.00 fi mmtudaginn 21. ágúst n.k. og verða tilboð þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Verksýn ehf. Ármúla 36, 108 Reykjavík www.verksyn.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.