Fréttablaðið - 10.08.2008, Síða 49

Fréttablaðið - 10.08.2008, Síða 49
ENSKI BOLTINN BYRJAR 16. ÁGÚST Góðgerðarskjöldurinn byrjar 10. ágúst (Man Utd. - Portsmouth) Fyrir utan The English Pub (í hálfleik) Austurstræti 12 í fyrra eftir að reykingabannið var sett. 7 SPORT frjálsum íþróttum standa við hlið- ina á þér í matarröðinni. Á síðustu leikum vorum við að labba inn í matartjaldið og þá var Yao Ming sem spilar í NBA við hliðina á okkur. Við hugsuðum bara „mikið djöfull er hann stór“,“ sagði Örn og brosti en Ming er 230 cm. „Ég sá líka konu sem var 220 í Sydney árið 2000. Það var spes.“ STÆRÐFRÆÐI SUNDSINS Örn segir fyrsta markmiðið vera að koma sér upp úr undanrásun- um. „Síðan er þetta bara stærð- fræði eftir það. Þaðan fara átta af sextán í úrslit og þaðan fá þrír af átta verðlaun. Þetta er ekki flókin stærðfræði. Þetta snýst bara um að gera hlutina eins vel og maður getur. Ég fer fyrst og fremst til að bæta mína tíma,“ sagði Örn. Hann var nálægt verðlaunasæti á leik unum í Aþenu 2004. „En samt ekki. Ég varð fjórði en var einni og hálfri sekúndu frá þriðja sæti en samt bara sex hundraðs- hlutum frá sjöunda sæti. Það sýnir hvað er stutt á milli í þessu. Það var svekkjandi að sjá að ég varð fjórði en svo var þetta kannski bara fínt þegar maður sá þetta heilt yfir,“ sagði Örn og hló við. Hann segir að það komi vel til greina að fara á leikana í London 2012 en þar með myndi hann jafna met Guðmundar Gíslasonar sund- manns sem fór á fjóra Ólympíu- leika. Enginn Íslendingur hefur farið á fimm leika. „Það er ein í bandaríska liðinu 41 árs sem fer á sína fimmtu leika núna. Ég hef kannski alveg fjórtán ár til viðbótar í þessu líka,“ segir Örn og brosir. TIL DANMERKUR Í NÁM Örn heldur í víking til Danmerk- ur í haust. Þar mun hann mennta sig í afreksþjálfun í sundi en hann er yfirþjálfari hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar. Hann hefur menntað sig hér heima en þarf að fara út til að fá alþjóðlega gráðu. „Með hana má ég þjálfa hvaða félagslið eða landslið í heimi,“ segir Örn. „Það er tilhlökkun í mér. Ég mun synda áfram næsta vetur, þjálfa sundliðið og stunda námið. Þetta lítur vel út,“ segir Örn, sem stefnir að sundþjálfun í framtíð- inni. Það hefur þó ekki alltaf verið í áætlunum kappans. „Það var aldrei stefnan, ég fór í þjálfun af illri nauðsyn fyrir þremur árum síðan. Það vantaði svo þjálfara hjá SH að ég tók það að mér. Ég hafði í sjálfu sér ekk- ert betra að gera. Ég byrjaði með yngstu hópana en færði mig upp eftir það,“ sagði Örn sem hefur einnig kennt skólasund og leik- fimi í Áslandsskóla í Hafnarfirði. Það hefur því verið nóg að gera hjá Erni sem hefur vart tíma fyrir það að hitta vini sína. „Ég var að þjálfa fram í maí í tólf til þrettán tíma á viku, kenna frá tuttugu og upp í 32 tíma á viku í skólasundi og leikfimi. Líka af illri nauðsyn. Maður lætur hafa sig út í ýmislegt,“ sagði Örn, sem segist því hafa verið ansi upp- tekinn og fjölskyldulífið situr á hakanum. „Þegar maður hefur varla tíma til að hitta vinina er erfitt að reyna að stofna fjölskyldu. Eins og þetta hefur verið eru þetta meira og minna æfingar eða þjálfun frá sex á morgnana til níu ÖRN FÉKK SÉR ÓLYMPÍUTATTÚ ÁRIÐ 2006: GÆTI BÆTT VIÐ ÓLYMPÍUHÚÐFLÚRIÐ FLJÓTLEGA Örn fékk sér langþráð húðflúr árið 2006. Hann lét þá flúra á sig merki Ólympíuleikanna. „Ég var búinn að ætla að gera þetta síðan 2000. Ég var í fríi úti í Serbíu með Serba sem ég hef verið að æfa með. Ég datt inn á fínustu stofu bæjarins og lét bara vaða,“ sagði Örn og brosti yfir minningunni. Hann stefnir á að bæta við sig fleiri flúrum á næstunni. „Ég á eftir að bæta við mig. Ég ætla að setja merki þeirra Ólympíuleika sem ég fer á á mig einhvers staðar. Það verður ekki á sama stað,“ sagði Örn, sem er að fara á sína þriðju leika. „Svo veit maður aldrei hvort maður fari til London 2012 líka,“ sagði Örn. Það var Pierre de Coubertin sem hannaði tákn Ólympíuleikanna árið 1913. Það stendur fyrir heimsálfurnar fimm sem kepptu á leikunum árið 1920 og táknar sameiningu þeirra íþróttamanna sem keppa fyrir þeirra hönd á leik- unum. Suður og Norður-Ameríka deila hring en hina eiga Afríka, Asía, Evrópa og Eyjaálfa.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.