Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.08.2008, Qupperneq 53

Fréttablaðið - 10.08.2008, Qupperneq 53
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Helgu Ingibjargar Stefánsdóttur Vífilsgötu 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sóltúns. Guð blessi ykkur öll. Sjöfn Friðriksdóttir Skúli Jón Sigurðarsson Alda G. Friðriksdóttir Guðni F. Guðjónsson Hulda G. Friðriksdóttir Sigurbjarni Guðnason barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Helga Carlsdóttir Hansen (Dosla), lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 28. júlí. Henni er sungin sálumessa í Kristskirkjunni í Landakoti, þriðjudaginn 12. ágúst kl. 13.00. Carl Vanderziel Cindy Vanderziel Allen Vanderziel Selina Vanderziel Jennifer Chandler Jeffrey Chandler barnabörn og langömmubörn. Hugheilar þakkir til þeirra fjölmörgu sem auðsýndu okkur samúð, vinsemd og hjálp- semi vegna andláts og útfarar, Egils Jónssonar bónda og fv. alþingismanns, Seljavöllum. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild 11B Landspítalanum við Hringbraut og Hjúkrunarheimilinu á Höfn fyrir einstaka hjúkrun, velvild og umhyggju í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Halldóra Hjaltadóttir og fjölskylda. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Elínar Jósefsdóttur áður til heimilis að Langholtsvegi 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Reykjavík fyrir góða umönnun og hlýju. Jóna Guðbrandsdóttir Ásbjörn Einarsson Einar Jón Ásbjörnsson Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir Elín Björk Ásbjörnsdóttir Gísli Jóhann Hallsson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ástu Bjarnadóttur Vífilsstöðum, áður til heimilis að Álftamýri 44. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Vífilsstaða fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Bjarney Georgsdóttir Samúel Vilberg Jónsson Jóhanna Georgsdóttir Sigurjón Óskar Georgsson barnabörn og barnabarnabörn. 85 ára afmæli Sigríður Rósa Kristinsdóttir, 85 ára. Sigríður Rósa Kristinsdóttir, Lagarfelli 9a, Fellabæ, sem eitt sinn „talaði frá Eskifi rði“ er 85 ára í dag, 10. ágúst. Hún verður heima. Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Gunnhildar Guðmundsdóttur Hvassaleiti 20, 103 Reykjavík, sem lést laugardaginn 19. júlí sl. Guðmundur Sigurðsson Valgerður Marínósdóttir María Sigurðardóttir Einar Loftsson Áslaug Sigurðardóttir Sveinn Hannesson Hrefna Sigurðardóttir Haukur Valdimarsson Sigurður Sigurðarson Ingibjörg Sigurðardóttir Bjarni S. Einarsson barnabörn og barnabarnabörn. SUNNUDAGUR 10. ágúst 2008 17 timamot@frettabladid.is Ólafsdalshátíð verður haldin í Ólafsdal í Gilsfirði í dag á vegum Ólafsdalsfélagsins. Markmið Ólafsdalsfélagsins er að stuðla að eflingu og varðveislu Ólafsdals í Dölum sem er í flokki einna merk- ustu menningarminjastaða á Vesturlandi. Í Ólafsdal var meðal annars fyrsti búnaðarskóli landsins en hann var stofnaður fyrir tilstuðlan Torfa Bjarnasonar, sem einnig var skólastjóri skólans. „Tilefni hátíðarinnar er annars vegar að Ólafsdalsfélagið er að fá jörðina í Ólafsdal leigða til uppbyggingar og hins vegar að í mánuðinum eru liðin 170 ár frá fæðingu Torfa Bjarnasonar, skólastjóra búnaðarskólans,“ segir Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins. Inntur eftir því hver starfsemin á svæðinu eigi að vera segir Rögnvaldur að hún verði margvísleg. „Við viljum hafa starfsemina lifandi. Eina sem stendur eftir núna er gamla húsið, en hér áður voru mun fleiri bygg- ingar, eins og fjós og smiðja. Það var heilt samfélag í Ólafs- dal. Menn sjá fyrir sér ferðaþjónustu að hluta yfir sumar- tímann og einhvers konar fræðslustarfsemi en við viljum reyna að nýta húsið og svæðið sem mest.“ Dagskráin á hátíðinni verður fjölbreytt og fræðandi og hefst hún klukkan 14:00 við minnismerkið um Torfa Bjarna- son og konu hans Guðlaugu. Þar verður ritað undir afhend- ingu staðarins til Ólafsdalsfélagsins og mun Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mæta af því tilefni. „Ýmislegt annað verður í boði eins og söngatriði auk þess sem ávörp og erindi verða flutt. Skólahúsið og nánasta um- hverfi verður til sýnis til 17:00 undir leiðsögn valinkunnra leiðsögumanna.“ Einnig stendur til að heyja og allir þeir sem hafa réttu amboðin, svo sem orf, ljá eða hrífu eru hvattir til að mæta með þau og sýna færni sína. Munir verða sýndir úr Ólafs- búinu ásamt ljósmyndasýningu um lífið í Ólafsdal. Kaffi og kleinur verða í boði fyrir gesti og gangandi. Kaffihlaðborð verður einnig á Skriðulandi frá klukkan 13 til 20. „Hápunkturinn hátíðarinnar verður svo án efa þegar Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra skrifar undir samkomulag með Ólafsdalsfélaginu um leigu á svæðinu,“ segir Rögnvaldur spenntur fyrir fram- haldinu. Allir eru velkomnir á hátíðina og má nálgast frekari upp- lýsingar á www.dalabyggd.is eða www.reykholar.is sigridurp@frettabladid.is ÓLAFSDALUR: HÁTÍÐ HALDIN Á VEGUM ÓLAFSDALSFÉLAGSINS Viljum lifandi starfsemi ANTONIO BANDERAS LEIKARI ER 48 ÁRA Í DAG. „Það var heiður og forrétt- indi að fá að koma hingað til Bandaríkjanna fyrir um sex- tán árum, allslaus. Margt hefur gerst síðan þá.“ José Antonio Domínguez Band- eras er spænskur leikari og söngvari. MERKISATBURÐIR 1779 Veðurathuganir Rasmus- ar Lievog hófust. Þetta var með allra fyrstu veðurat- hugunum hérlendis. 1801 Landsyfirréttur tók til starfa. Fyrsti dómstjóri réttarins var Magnús Stephensen. 1975 Guðlaug Þorsteinsdóttir, fjórtán ára, varð fyrsti kvenskákmeistari Norður- landa. 1984 Bjarni Friðriksson hlaut bronsverðlaun í 95 kílóa flokki í júdó á Ólympíu- leikunum í Bandaríkjun- um. 1986 Lágmynd af G. Schier- beck, landlækni og fyrsta formanni Garðyrkju félags Íslands, var afhjúpuð í Fógetagarðinum við Aðal- stræti. Þennan dag árið 1927 lést Stephan G. Stephansson skáld, 73 ára að aldri. Ungur flutti hann vestur um haf og bjó hann lengi við Klettafjöll. Hann var oft kallaður Klettafjallaskáldið. Stephan G. Stephansson hét upphaflega Stefán Guðmundur Guðmundsson. Hann var fædd- ur þann 3. október árið 1853 á Kirkjubóli í Skagafirði. Stefán bjó í Skagafirði til 15 ára aldurs en flutti þá í Þing- eyjarsýslu og starfaði þar sem vinnumaður. Hann bjó þar þangað til hann fluttist til Vest- urheims ásamt fjölskyldu sinni. Í fimm ár bjó hann í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum og giftist þar Helgu Sigríði Jóns- dóttur. Áttu þau saman átta börn en sex þeirra komust á legg. Næst bjó Stefán í Norður- Dakóta, í tíu ár. Í Wisconsin kall- aði hann sig Stefán Guðmunds- son en í Dakota var hann skrif- aður Stefansson, sem gerði það að verkum að bréf hans rugluð- ust við bréf annarra Stefanssona svo Stefán tók upp nafnið Step- han G. Stephansson, sem hann varð síðar þekktur undir. Fyrsta ljóðakver Stefáns bar nafnið Úti á víðavangi og kom það út 1894. Ljóðabækur hans urðu fjölmargar og mjög vin- sælar. ÞETTA GERÐIST: 10. ÁGÚST 1927 Stephan G. Stephansson fellur frá RÖGNVALDUR GUÐMUNDSSON Formaður Ólafsdalsfélagsins er einkar spenntur fyrir uppbyggingunni á starfseminni í Ólafsdal. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.